Morgunblaðið - 03.12.2011, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.12.2011, Blaðsíða 10
Hefð er fyrir því að senda jólakort til vina og ættingja fyrir jólin. Voru slíkar sendingar mik- ilvægar fyrir þá tæknibyltingu í samskiptum sem við þekkjum í dag. Daglegu lífi barst ábending um safn af fallegum jólakortum sem dóttir safnara nokkurs í Reykjavík hafði fundið við tiltekt. Kortin eru dagsett allt aftur til ársins 1909 og sést á safninu hve jólakort hafa tekið miklum breyt- ingum í gegnum árin. Kortin eru ekki jólaleg miðað við skilgreiningu okk- ar í dag. Sum eru rómantísk og hafa hentað vel fyrir ungar yngismeyjar á meðan önnur sýna náttúru Ís- lands og vísa þá ef til vill til eft- irlætisstaðar sendanda. Þau eiga það þó öll sameiginlegt að innihalda hlýjar jólakveðjur. Þá er rithöndin áberandi glæsileg á kortunum og greinilegt að send- endur hafa vandað til verksins. Vefsíðan emma.is er vefur sem ger- ir sjálfstæðum höfundum, útgef- endum og handhöfum útgáfuréttar kleift að koma ritverkum á fram- færi hvort sem þeir vilja bjóða þau til sölu eða gefa verkin. Þannig er Emma rafbókamiðlari fyrir íslenskar rafbækur. Þjónustan er ætluð hverskonar rithöfundum, áhuga- og skúffuskáldum og fyrirtækjum en hverjum sem á höfundar- og út- gáfurétt á verki er velkomið að gefa það út hjá Emmu. Verkin eru gefin út sem lófabækur (rafbækur fyrir lestöflur, snjalltæki eða tölvur). Það eru þeir Óskar Þór og Fannar sem standa á bak við Emmu en þeir elska bækur af öllum toga og sam- an hafa þeir óbilandi áhuga og trú á möguleikum nýrrar tækni og næmt auga fyrir möguleikum bók- mennta í framtíðinni. Á síðunni segir að þeir félagar hafi valið nafnið Emma þar sem það sé fallegt, auðvelt að muna og sé skírskotun í skáldsöguna Emmu eftir Jane Austen og Emmubækur fyrir krakka. Enn fremur segir að Emma sé jákvæð og skapandi, áhugasöm og spennandi og alltaf tilbúin til að finna eitthvað að lesa handa þér. Nafnið Emma er af fornfrönskum og fornþýskum uppruna og merkir heild eða allt. Vefsíðan www1.emma.is Morgunblaðið/ÞÖK Bóklestur Það verður sífellt algengara að fólk lesi bækur í rafrænu formi. Tilvalið fyrir skúffuskáld 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þetta er í tuttugasta og ní-unda skipti sem ég heldsvona opið hús fyrir jólin.Þetta er árviss viðburður hjá mér,“ segir glerlistakonan Sig- rún Einarsdóttir sem rekur gler- verkstæðið Bergvík á Kjalarnesi. „Ég geri þetta fyrst og fremst til að leyfa fólki að sjá glerblástur, því við erum ekki lengur með opið verk- stæði en þannig var það fyrstu árin. Fólk getur komið um helgina og fengið að sjá hvernig sumir hlutir verða til. Við erum fjórar sem ætl- um að sýna glerblástur, ég sjálf og Ólöf systir mín og tveir gestablás- arar, þær Ida W. Knudsen frá Dan- mörku og Laura K. Puska frá Finn- landi. Ég ætla líka að vera með útsölu á útlitsgölluðum glermunum og hafa afslátt af öðru gleri í tilefni jólahelgarinnar hér hjá mér. Gestir fá líka kaffi og piparkökur og fé- lagar úr Vinabandinu leika jólalög á munnhörpu og gítar á laugardags- morgun.“ Mikil upplifun fyrir börnin „Þetta opna hús er í mínum huga aðallega huggulegheit, því ég sé ekki svo mikið af mínum við- skiptavinum og mér finnst gaman þegar þeir koma á verkstæðið. Margir halda líka tryggð við mig og það þykir mér vænt um. Sumir koma á hverju ári og hafa gert í öll þessu 29 ár. Heilu ættirnar byrja jólin hérna á verkstæðinu á opna húsinu hjá mér. Mér finnst líka svo skemmtilegt hvað krakkarnir hafa gaman að þessu, þau sem eru frá sex ára og upp að fermingu, þeim Þvottabrettagler verður sushi-sett Hún opnar glerverkstæðið sitt fyrir gestum núna um helgina og ætlar að leyfa þeim að sjá glerblástur, hlusta á munnhörpuspil og gítarleik og bjóða upp á kaffi og piparkökur. Margir fastagestir koma ár eftir ár og heilu ættirnar byrja jólin á verkstæðinu hjá Sigrúnu glerlistakonu sem verður með útsölu um helgina. Blástur Sigrún og Ida W. Knudsen á glerblásturverkstæðinu. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Morgunblaðið/Árni Sæberg Falleg og listi- lega vel skrifuð Jólakortasafn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.