Morgunblaðið - 03.12.2011, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 03.12.2011, Blaðsíða 11
finnst mikil upplifun að sjá gler- blásturinn.“ Það verður kátt í bæ og Vina- bandið kemur fram en Sigrún segir að það samanstandi af tveimur góð- um mönnum. „Þorgrímur sem er á níræðisaldri og Haraldur, þeir spila á munnhörpu og gítar. Þorgrímur er með munnhörpu sem hann smíð- aði sjálfur úr silfri og hún hefur ein- staklega fallegan hljóm. Hann kem- ur og skjallar okkur dömurnar og spilar yndislega fyrir okkur og gestina.“ Viðurkenning fyrir mortel Sigrún kom í sumar með tvær nýjar hönnunarvörur á markað, en það eru glermortel og sushi-sett. „Ég frumsýndi þessar vörur á Handverki og hönnun í Ráðhúsinu og tók þátt í samkeppninni Skúla- verðlaun. Ég fékk viðurkenningu fyrir mortelin,“ segir hún og bætir við að Sushi-bakkarnir, sem ekki eru blásnir, geymi skemmtilega sögu. „Þannig var að ég komst fyrir þónokkru yfir ákveðna tegund af gleri sem ég held að maður nokkur hafi flutt inn fyrir stríð, til að búa til úr því þvottabretti. En svo vann tíminn ekkert með honum, stríðið brast á og síðan komu þvottavél- arnar. Þá duttu þvottabrettin upp fyrir. Svo maðurinn hefur setið uppi með rifflaða glerið. Kona nokkur fann þetta gler undir tröpp- um í íbúð mannsins þegar hún keypti hana.“ Tommu þykkt gler í botni Hún segir það vera talsverða vinnu að búa til sushi-bakkana. „Fyrst saga ég glerið til og slípa það, síðan sandblæs ég það og hita í mótum og beygi það til eins og ég vil hafa það. Mér finnst frábært að þetta þvottabrettagler fái svona al- veg nýtt hlutverk löngu seinna. En ég hef gert skálar og föt úr þessu gleri og þetta er mjög sterkt efni.“ Sigrún segir að glerið í mortel- unum sé líka mjög sterkt. „Þau eru um það bil tomma að þykkt í botn- inum og þurfa að vera rúnnuð eins og stauturinn sem kemur ofan í. Ég held því fram að í gamla daga hafi gler og postulín verið notað í mor- tel, sérstaklega í lyfjaframleiðslu, því þau máttu ekki vera gljúp eins og leirinn er.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011 Jólaljósadýrð og aðventustemning verður nú um helgina í Grasagarð- inum og ýmislegt á dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Á laugardeginum kl. 14 mun séra Bjarni Karlsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju, flytja jólahugvekj- una Jólin sem tengslahátíð og Svavar Knútur spilar á gítar. Bæði laugardag og sunnudag kl. 16 mun svo skart- gripahönnuðurinn og rithöfundurinn Hendrikka Waage lesa upp úr nýjustu bók sinni Rikka og töfrahringurinn í Japan. Á meðan á upplestri stendur verður tilboð á kakói og smákökum fyrir börnin. Á sunnudeginum milli 14 og 16 verður ungt tónlistarfólk úr Skóla- hljómsveit Austurbæjar á ferð og flugi um Laugardalinn og gleður gesti með jólatónum. Í Café Flóru hefur einnig verið sett upp lítið Umhygg- jutré en gestum á öllum aldri býðst að föndra origami-skraut og skreyta tréð til styrktar Umhyggju, félagi langveikra barna. Kaffihúsið Café Flóra og jólabasarinn eru opin frá klukkan 12-18. Endilega … Jólalegt Ljósadýrð í Grasagarðinum þar sem aðventustemning verður ríkjandi. … skreytið Umhyggjutréð Núna um helgina verður opið hús á glerblástursverkstæði Sigrún- ar Einarsdóttur, Bergvík á Kjal- arnesi. Opið verður báða dagana, laugardag og sunnudag frá 10 til 15. Sýndur verður glerblástur, út- sala á glermunum, Vinabandið spilar og kaffi á könnunni. Verkstæðið er staðsett milli Klébergsskóla og Grundar- hverfis. Allir velkomnir. Jólahelgin á glerverkstæðinu GLERBLÁSTUR OG ÚTSALA Víða um land eru haldir skemmtilegir mark- aðir nú á aðventunni þar sem hægt er að upplifa jólastemningu og kaupa jólagjafir. Einn af þeim er Jólamarkaðurinn á Fitjum í Reykjanesbæ. En Fitjar eru verslunarkjarni í bænum. Á Jólamarkaðnum selja 20 til 25 ólíkir listamenn, hönnuðir og handverksfólk vörur sínar beint til viðskiptavina. Markaður- inn er opinn alla laugardaga og sunnudaga fram að jólum frá kl. 13-18. Einnig verður op- ið frá kl. 17- 22 fjóra seinustu daga fyrir jól. Handverksfólki, listamönnum og hönn- uðum býðst að leigja sölubás á sanngjörnu verði á markaðnum en áhugasömum er bent á að hafa samband við Sigurbjörn í síma 860 0007 eða á netfanginu sibbia@isl- andia.is Reykjanesbær Jólastemning Tónlist og jólalegar skreytingar á Jólamarkaðnum á Fitjum, gestir kíkja á það sem í boði er. Handverk Fallegar ljósaseríur hjá brosmildum handverkskonum. Jólastemning á markaði á Fitjum Sushi Settið er gert úr riffluðu gleri ætl- að í þvottabretti. Mortel Þau eru sann- arlega litrík og skemmti- leg gegnsæu mortelin. Eirvík hefur eldhústæki og fylgihluti fyrir alla sem unna góðri matargerð. Allt fyrir matgæðingana vi lb or ga @ ce nt ru m .is Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.