Morgunblaðið - 03.12.2011, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.12.2011, Blaðsíða 18
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hundruð nýrra starfa verða til á sunnanverðum Vestfjörðum, ef áætlanir um stórfellt laxeldi og vinnslu á vegum tveggja fyrirtækja ganga eftir. Laxeldið getur því orð- ið hin nýja stóriðja svæðisins og orðið mikilvæg stoð byggðanna sem staðið hafa höllum fæti á und- anförnum árum vegna samdráttar í sjávarútvegi. Mikil reynsla er af fiskeldi á þessu svæði, ekki síst í Tálknafirði. Þar hófst laxeldi upp úr 1980 og var umfangsmikið um tíma. Lax- eldið er sveiflukennd atvinnugrein og fjármagnsfrek og sjúkdómar geta einnig sett strik í reikninginn. Öll fyrirtækin stöðvuðust á erf- iðleikatímum, meðal annars vegna þess að þolinmæði lánardrottna brast, og sum urðu gjaldþrota. Fyrirtækin sem nú starfa njóta þessa arfs í þekkingu reynslumik- illa starfsmanna og þjónustufyr- irtækja. Fiskeldisþorpið Tálknafjörður Fjórar stöðvar eru nú reknar á fiskeldisstaðnum Tálknafirði, allar nýta að einhverju leyti aðstöðu sem byggð var upp á fyrri upp- gangstímum. Grundvöllurinn er góður aðgangur að köldu og volgu vatni. Í Norðurbotni elur Dýrfiskur ehf. regnbogasilungsseiði til áfram- eldis í Dýrafirði. Á Gileyri er Bæj- arvík ehf. að byggja upp bleikjueldi í landkerum. Þar eru aðstæður til verulegrar aukningar. Tungusil- ungur er með eldi á bleikju og regnbogasilungi skammt frá þorp- inu og rekur vinnslustöð. Nýja fyrirtækið, Fjarðalax, er með aðstöðu í þorpinu og elur lax í sjókvíum úti á firðinum. Fjarðalax er einnig með sjókvíaeldi í Arn- arfirði og hefur eldi í Patreksfirði á komandi ári. Það hefur komið sér upp vinnslu á Patreksfirði. Sjávarútvegsfyrirtækin Oddi á Patreksfirði og Þórsberg á Tálkna- firði voru með áframeldi á villtum smáþorski og voru að undirbúa lax- eldi. Fjarðalax tók yfir laxeld- ishlutann, meðal annars leyfin sem aflað hafði verið, og þorskeldinu var hætt í fyrra vegna slæmrar af- komu. Aðstaðan er til og hægt að hefja aftur þorskeldi ef aðstæður breytast til batnaðar. Arnarlax er með áform um stór- fellt laxeldi í Arnarfirði og upp- byggingu á vinnslu á Bíldudal. Góður andi er á milli starfs- manna fyrirtækjanna í fiskeld- isþorpinu. Menn hjálpast að, eftir því sem aðstæður leyfa, og telja að uppbygging hjá einum styrki heild- ina. Möguleikar skapist á aukinni þjónustu í kringum fiskeldið. 200 starfsmenn við fiskeldi Nokkrir tugir starfa eru nú þeg- ar við fiskeldi á sunnanverðum Vestfjörðum. Þar vega starfsmenn Fjarðalax þyngst. Atvinnulíf er ein- hæft á þessum litlu stöðum og kærkomið að fá ný störf og val- möguleika um vinnustað. Fáar konur eru við þessi störf og svo til eingöngu við vinnslurnar. Þar eru sóknarfæri fyrir fiskeld- isfyrirtækin því góð störf vantar fyrir konur. Gangi áform Fjarðalax og Arn- arlax að fullu eftir má búast við að bein störf við fiskeldi verði hátt í 200 eftir fimm til tíu ár. Reikna má með að eitt afleitt starf eða meira fylgi hverju starfi í eldisfyrirtækj- unum þannig að nokkur hundruð ný störf geta orðið til vegna upp- byggingar fiskeldis á suðurhluta Vestfjarða. Togast á um nýtingarréttinn Reynslan frá öðrum löndum sýn- ir að leyfi til laxeldis eru takmörk- uð gæði og geta reynst verðmæt. Reynir á það eftir því sem ásókn í nýtingu strandsvæða eykst. Borið hefur á slíkri togstreitu á milli fyr- irtækjanna sem nýta og hyggjast nýta Arnarfjörð til ýmiskonar verðmætasköpunar. Arnarfjörður er tekinn sér- staklega fyrir við gerð nýting- aráætlunar fyrir strandsvæði Vest- fjarða sem Fjórðungssamband Vestfirðinga stendur fyrir. Umræð- ur um olíuhreinsistöð við fjörðinn var upphaflega kveikjan að þeirri vinnu sem virðist full þörf á. Von er á fyrstu niðurstöðum á næstu mánuðum. Niðurstöður skýrslu sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra frá því í haust sýna að stjórn- sýslulegt umhverfi strandsvæða er afar flókið. Ekkert eitt ráðuneyti fer með yfirstjórn málaflokksins og ellefu undirstofnanir bera meg- inábyrgðina. Benda má á að skipu- lagsvald sveitarfélaganna nær að- eins til netalaga sem ná 115 metra út frá stórstraumsfjöruborði, en sjókvíarnar eru þar fyrir utan. Efasemdir voru um það hvort Arnarfjörður, þótt stór sé, bæri það fiskeldi sem þar er áformað. Farið var yfir málið í ákvörðun Skipulagsstofnunar um hvort eldi Arnarlax og Fjarðalax í Arnarfirði þyrfti að fara í umhverfismat. Nið- urstaðan varð sú að umhverfisáhrif yrðu ekki umtalsverð og ekki væri þörf á mati. Fram kemur að áhrif eldisins yrðu einkum á vistkerfi sjávarbotnsins en þau yrðu stað- bundin og afturkræf. Í þessu felst væntanlega að tekið er undir sjón- armið fyrirtækjanna sem telja að með hvíld frá eldi á þriðja ári muni vistkerfið hreinsa sig sjálft og ef það dugi ekki til megi færa kvíarn- ar örlítið til. Hvíldin er einnig til að koma í veg fyrir að laxalús verði viðvar- andi vandamál í laxeldi í Arn- arfirði. Spurning er hvort fyr- irtækin geta ekki unnið saman og samstillt hvíldartímann. Samkvæmt núgildandi lögum þurfa tveir kíló- metrar að vera á milli kvía en við breytingar á lögum og reglum um fiskeldi munu vera uppi hugmyndir um að auka lágmarksfjarlægðina. Lært af reynslunni Fiskeldi er viðkvæm atvinnu- grein, eins og sagan kennir. Mark- aðir sveiflast og sjúkdómar geta eyðilagt góð fyrirtæki. Stóru laxeldisfyrirtækin sem nú eru að hefja starfsemi byggjast á fenginni reynslu á svæðinu og ann- ars staðar. Bæði hafa þau látið gera umhverfisrannsóknir í fjörð- unum og njóta krafta þaulreyndra eldismanna, íslenskra og norskra. Síðast en ekki síst hafa eigend- urnir aðgang að mörkuðum vest- anhafs og austan. Þá hefur bleikjueldið gengið vel og markaður verið traustur. Fjölmargir íbúar sem rætt er við vegna þessarar umfjöllunar við- urkenna að erfið saga fiskeldisins hafi komið upp í hugann á fyrri stigum. Þeir hafa þó tröllatrú á að nýja fiskeldisuppbyggingin grund- vallist á traustum grunni og vísa til þeirra miklu fjármuna sem eig- endur hafa þegar lagt í fyrirtækin og hafa lýst til reiðubúna til að gera. „Skipulag þeirra og áætl- anagerð ætti að lágmarka hættuna á að illa fari. Mér finnst forsendur uppbyggingarinnar betri en áður var. Menn hafa lært af reynslunni og sala afurðanna er tryggð,“ segir Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, oddviti Tálknafjarðarhrepps. Hundruð starfa verða til  Á ýmsu hefur gengið í fiskeldi á suðurhluta Vestfjarða  Allar gömlu stöðvarnar hættu en eru nú komnar í rekstur og nýjar hafa bæst við  Nýju fyrirtækin njóta reynslu starfsmanna og fyrirtækja Arnarfj. Patreksfjörður Tálknafj. Fiskeldi á sunnanverðum Vestfjörðum Norðurbotn Gileyri Tálknafjörður Fiskeldisstöðvar Sjókvíar Áformaðar sjókvíar Vinnslustöðvar Hlaðseyri Patreksfjörður Fossfjörður Bíldudalur Haganes Hlaðsbót Slátrun Það er kalsasamt að standa úti við bleikjuslátrun í frosti snemma morguns. Starfsmenn Bæjarvíkur hafa snör handtök við slátrunina. Fossfjörður Fjarðalax hóf eldi í Fossfirði í Arnarfirði fyrr á þessu ári og Arnarlax hefur sótt um leyfi til að vera með kvíar þar. Lax- eldiskvíar gætu því orðið nokkuð þéttar í Fossfirði, þegar allt verður komið í gang. 18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011 Fiskeldi - Ný stóriðja á Vestfjörðum Arnarlax stefnir að því að byggja upp aðstöðu fyrir 3.000 tonna framleiðslu á laxi á ári. Sjókvíar verða á þremur stöðum í Arnarfirði og afurðirnar fullunnar á Bíldudal. Stefnt hefur verið að því að tilraunaeldi hefjist í vor en ekki hafa fengist nauðsynleg leyfi. Arnarlax hefur sótt um starfsleyfi hjá Umhverfis- stofnun og rekstrarleyfi hjá Fiskistofu. „Þetta tekur allt of langan tíma. Við erum tilbúnir og bakhjarl- arnir eru tilbúnir og vilja hefja uppbyggingu. Ég skil ekki að þetta þurfi að taka svona langan tíma,“ segir Víkingur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Arnarlax. Að félaginu standa norsk og dönsk fyrirtæki sem stunda eldi, vinnslu og sölu á laxaafurðum, auk ein- staklinga sem tengjast Bíldudal. Meðal eigenda er Matthías Garðarsson sem er brautryðjandi í full- vinnslu laxaafurða í Noregi og rekur stórt fyrirtæki á því sviði. Hugmyndin er að vinna allt hráefnið á Bíldudal, á svipaðan hátt og í fyrirtæki Matthíasar, og selja frosna laxabita á Evrópumarkað. Sótt hefur verið um lóð fyrir 3.000 fermetra slátur- og vinnsluhús í eða við Bíldudal. Verið er að kanna þau mál hjá Vesturbyggð. Áformað er að seiðaeldið verði í Tálknafirði. „Undirbúningur hefst um leið og við fáum leyfin,“ segir Víkingur. Áformað er að hefja tilraunaeldi og stækka stöðina upp í 3.000 tonna ársframleiðslu á næstu fjórum til fimm árum. Verðfall hefur orðið á laxi frá Noregi, eins og oft áður. Víkingur segir að það hafi ekki truflað und- irbúning Arnarlax. Tilbúnar afurðir hafi ekki lækkað eins og hráefnið og reynslan sýni að þær sveiflist minna. Áætlað er að uppbyggingin kosti þrjá milljarða króna og að 50 ný störf skapist. Fullvinna afurðirnar á Bíldudal
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.