Morgunblaðið - 03.12.2011, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 03.12.2011, Blaðsíða 45
Umræðan MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011 Unnið er nú að end- urskoðun almanna- trygginga. Þetta er önnur tilraunin til endurskoðunar á stuttu tímabili. Þegar Jóhanna Sigurð- ardóttir var félags- málaráðherra í rík- isstjórn Geirs H. Haarde fól hún Stef- áni Ólafssyni prófess- or formennsku í endurskoð- unarnefnd almannatrygginga. Stefán skilaði skýrslu og lagði þar til að gerðar yrðu ýmsar tilfærslur innan almannatrygginga en ekkert nýtt fé sett inn í kerfið. Ég gagn- rýndi þessar tillögur harðlega. Núverandi velferðarráðherra hef- ur skipað nýja endurskoðunarnefnd undir forustu Árna Gunnarssonar. Af þeim fréttum, sem ég hefi feng- ið af störfum nefndarinnar, sýnist mér nefndin hafa fallið í sömu gryfju og nefnd Stefáns Ólafssonar: Aðalatriðið nú er sameining flokka og tilfærslur en engin almenn hækkun lífeyris aldraðra. Örlítið á þó að breyta tekjutengingum tryggingabóta þannig að skerðing tryggingabóta vegna vissra tekna minnki en mjög lítið. Lífeyrir aldraðra frystur í 3 ár Segja má að bætur aldraðra hafi verið frystar í tæp 3 ár eða frá jan- úar 2009. Auk þess má nefna að um áramótin 2008/2009 fengu ¾ líf- eyrisþega aðeins hálfar verðlags- bætur, þ.e. 9,6%, í stað tæplega 20% eins og verðbólgan hafði verið. Næstu 2 árin hækkaði kaup lág- launafólks um 16% en bætur hækkuðu ekk- ert. 1. júní í ár hækk- uðu lágmarkslaun um 10,3% en lægstu bæt- ur aldraðra og öryrkja hækkuðu aðeins um 6,5%. Hér munar 3,8% stigum. Og nú ákveður ríkisstjórnin að bætur eigi aðeins að hækka um 3,5% næsta ár í stað 6% eins og sam- komulag sagði til um samkvæmt áliti ASÍ. Þar munar 2,5% stigum. Eftir þessa meðferð stjórnvalda á eldri borgurum og öryrkjum er það ákveðin krafa að kjörin verði þegar leiðrétt, lífeyrir aldraðra og öryrkja verði hækkaður strax. Stjórnvöld hafa haft af eldri borg- urum og öryrkjum marga milljarða undanfarið. Og ætlunin er að snuða bótaþega um rúma 2 milljarða næsta ár miðað við upplýsingar fjárlagafrv. Hækkun bóta kostar ríkið 3 milljarða næsta ár, þ.e. 3,5% hækkun en 2,5% hækkun bóta til viðbótar liggur óbætt hjá garði. Sagt er að ætlunin sé að setja ein- hverja fjárupphæð inn í kerfi al- mannatrygginga 2013 til þess að kosta breyttar tekjutengingar tryggingabóta. Ef til vill ætlar rík- isstjórnin að skila bótaþegum ein- hverju af þeirri fjárhæð, sem hún hefur haft af þeim undanfarið, eða ef til vill að skila sem svarar því, sem á að hafa af bótaþegum 2012. Og hvað með þá fjármuni, sem búið var að semja um að verja til þess að draga úr víxlverkunum lífeyr- issjóðsgreiðslna og tryggingabóta. Það voru 2 milljarðar eða rúmlega það. Miklar vonir voru bundnar við þetta samkomulag ríkisstjórnar og lífeyrissjóðanna frá því fyrir tæpu ári. Meðal annars gerði sam- komulagið ráð fyrir því, að frí- tekjumark lífeyris aldraðra frá TR vegna greiðslna úr lífeyrissjóði yrði hækkað í áföngum í 27.400 krónur á mánuði á tímabilinu 2013-2015. Ekki er unnt að rifta því sam- komulagi nema hlutaðeigandi aðilar séu samþykkir því. Ríkið lofaði 2 milljörðum vegna þess. Ætlar ríkið að leggja fram nýtt fjármagn vegna endurskoðunar almanna- trygginga? Frítekjumark vegna greiðslna úr lífeyrissjóði verði 150 þús- und á mánuði Afnema verður skerðingu trygg- ingabóta aldraðra að fullu vegna greiðslna úr lífeyrissjóði. Þetta má gera í tveimur áföngum. Það er ekkert gagn í því að draga lítillega úr skerðingu tryggingabóta vegna greiðslna úr lífeyrissjóði. Lágmarks frítekjumark vegna lífeyrissjóðs- greiðslna er að mínu mati 150 þús- und krónur á mánuði. Samhliða þessari breytingu þarf að afturkalla þá breytingu, sem gerð var á út- reikningi grunnlífeyris 2009. TR. Ég minni á að þessar ráðstafanir frá miðju ári 2009 voru tímabundn- ar og áttu að hámarki að gilda í 3 ár. Það verður að standa við það og afturkalla strax. Þar með fær fjöldi eftirlaunamanna sinn grunnlífeyri á ný eins og ætlast var til í upphafi. Ég tel að grunnlífeyrir eigi að halda sér. Þá þarf einnig að hækka á ný frítekjumark vegna atvinnu- tekna. Það ætti einnig í byrjun að vera 150 þúsund krónur á mánuði og hækka á ný síðar. Að mínu mati á að halda frítekjumörkum þó að breytt verði lítillega tekjuteng- ingum tryggingabóta við endur- skoðun almannatrygginga. Lífeyrir aldraðra frá TR hækki strax Að lokum vil ég undirstrika að lífeyrir aldraðra og öryrkja dugar hvergi nærri til sómasamlegrar framfærslu. Það verður að hækka hann verulega strax eða 2012 og eðlilegast er að hækka hann í áföngum til samræmis við neyslu- könnun Hagstofunnar (dæmigert neysluviðmið er samhljóða nið- urstöðu neyslukönnunar). Endur- skoðun almannatrygginga verður að taka á hækkun lágmarkslífeyris aldraðra og á almennri hækkun líf- eyris aldraðra. Það kemur ekki til greina að leggja fram tillögur um endurskoðun almannatrygginga án þess að hækka lífeyri aldraðra og öryrkja almennt. Tilgangur endur- skoðunar á að vera að bæta kjör aldraðra og öryrkja en ekki til- færslur innan kerfisins. Ég tel einnig óeðlilegt að skerða stórlega lífeyri aldraðra og öryrkja við það, að þeir fari í sambúð eða hjóna- band. Annaðhvort á lífeyririnn að vera sá sami eða með litlum mun. Hækka á lífeyri aldraðra verulega 2012 Eftir Björgvin Guðmundsson » Tilgangur endur- skoðunar (almanna- trygginga) á að vera að bæta kjör aldraðra og öryrkja en ekki til- færslur innan kerfisins. Björgvin Guðmundsson Höfundur er viðskiptafræðingur. Nóatúni 4 • Sími 520 3000 www.sminor.is A T A R N A Heimilistæki, ljós og símar í miklu úrvali. Komdu í heimsókn til okkar á aðventunni og gerðu góð kaup. Fjöldi tækja á sérstöku jólaverði. Sjón er sögu ríkari. Gigaset AS180 Langur taltími, mikil hljómgæði. Jólaverð: 5.930 kr. stgr. Palma gólflampar AN19901-90 (stál) AN19901-30 (antík) Vandaðir gólflampar. Lesljós og uppljós. Jólaverð: 14.900 kr. stgr. Þvottavél WM 14E262DN Tekur mest 6 kg, vindur upp í 1400 sn./mín. Jólaverð: 119.900 kr. stgr. Uppþvottavél SE45E234SK Með fimm kerfum. Mjög hljóðlát og vinnusöm. Jólaverð: 99.900 kr. stgr. Ryksuga VS 59E20 Létt og lipur. 2200 W. Jólaverð: 19.900 kr. stgr. Baðvog AD8115S Stafræn baðvog með nákvæmni upp á 100 g. Jólaverð: 2.900 kr. stgr. Töfrasproti MSM 7500 Kraftmikill, 600 W. Fylgihlutir: Skál með loki og stór hakkari. Jólaverð: 13.900 kr. stgr. 1 2 3 4 5 6 7 6 7 5 2 1 43 2011 Kimmidoll á Íslandi Chiaku „Laughter“ My spirit heals and heartens Ármúla 38 | Sími 588 5011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.