Morgunblaðið - 03.12.2011, Qupperneq 45
Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011
Unnið er nú að end-
urskoðun almanna-
trygginga. Þetta er
önnur tilraunin til
endurskoðunar á
stuttu tímabili. Þegar
Jóhanna Sigurð-
ardóttir var félags-
málaráðherra í rík-
isstjórn Geirs H.
Haarde fól hún Stef-
áni Ólafssyni prófess-
or formennsku í endurskoð-
unarnefnd almannatrygginga.
Stefán skilaði skýrslu og lagði þar
til að gerðar yrðu ýmsar tilfærslur
innan almannatrygginga en ekkert
nýtt fé sett inn í kerfið. Ég gagn-
rýndi þessar tillögur harðlega.
Núverandi velferðarráðherra hef-
ur skipað nýja endurskoðunarnefnd
undir forustu Árna Gunnarssonar.
Af þeim fréttum, sem ég hefi feng-
ið af störfum nefndarinnar, sýnist
mér nefndin hafa fallið í sömu
gryfju og nefnd Stefáns Ólafssonar:
Aðalatriðið nú er sameining flokka
og tilfærslur en engin almenn
hækkun lífeyris aldraðra. Örlítið á
þó að breyta tekjutengingum
tryggingabóta þannig að skerðing
tryggingabóta vegna vissra tekna
minnki en mjög lítið.
Lífeyrir aldraðra frystur í 3 ár
Segja má að bætur aldraðra hafi
verið frystar í tæp 3 ár eða frá jan-
úar 2009. Auk þess má nefna að
um áramótin 2008/2009 fengu ¾ líf-
eyrisþega aðeins hálfar verðlags-
bætur, þ.e. 9,6%, í stað tæplega
20% eins og verðbólgan hafði verið.
Næstu 2 árin hækkaði kaup lág-
launafólks um 16% en
bætur hækkuðu ekk-
ert. 1. júní í ár hækk-
uðu lágmarkslaun um
10,3% en lægstu bæt-
ur aldraðra og öryrkja
hækkuðu aðeins um
6,5%. Hér munar 3,8%
stigum. Og nú ákveður
ríkisstjórnin að bætur
eigi aðeins að hækka
um 3,5% næsta ár í
stað 6% eins og sam-
komulag sagði til um
samkvæmt áliti ASÍ.
Þar munar 2,5% stigum.
Eftir þessa meðferð stjórnvalda
á eldri borgurum og öryrkjum er
það ákveðin krafa að kjörin verði
þegar leiðrétt, lífeyrir aldraðra og
öryrkja verði hækkaður strax.
Stjórnvöld hafa haft af eldri borg-
urum og öryrkjum marga milljarða
undanfarið. Og ætlunin er að snuða
bótaþega um rúma 2 milljarða
næsta ár miðað við upplýsingar
fjárlagafrv. Hækkun bóta kostar
ríkið 3 milljarða næsta ár, þ.e. 3,5%
hækkun en 2,5% hækkun bóta til
viðbótar liggur óbætt hjá garði.
Sagt er að ætlunin sé að setja ein-
hverja fjárupphæð inn í kerfi al-
mannatrygginga 2013 til þess að
kosta breyttar tekjutengingar
tryggingabóta. Ef til vill ætlar rík-
isstjórnin að skila bótaþegum ein-
hverju af þeirri fjárhæð, sem hún
hefur haft af þeim undanfarið, eða
ef til vill að skila sem svarar því,
sem á að hafa af bótaþegum 2012.
Og hvað með þá fjármuni, sem búið
var að semja um að verja til þess
að draga úr víxlverkunum lífeyr-
issjóðsgreiðslna og tryggingabóta.
Það voru 2 milljarðar eða rúmlega
það.
Miklar vonir voru bundnar við
þetta samkomulag ríkisstjórnar og
lífeyrissjóðanna frá því fyrir tæpu
ári. Meðal annars gerði sam-
komulagið ráð fyrir því, að frí-
tekjumark lífeyris aldraðra frá TR
vegna greiðslna úr lífeyrissjóði yrði
hækkað í áföngum í 27.400 krónur
á mánuði á tímabilinu 2013-2015.
Ekki er unnt að rifta því sam-
komulagi nema hlutaðeigandi aðilar
séu samþykkir því. Ríkið lofaði 2
milljörðum vegna þess. Ætlar ríkið
að leggja fram nýtt fjármagn
vegna endurskoðunar almanna-
trygginga?
Frítekjumark vegna greiðslna
úr lífeyrissjóði verði 150 þús-
und á mánuði
Afnema verður skerðingu trygg-
ingabóta aldraðra að fullu vegna
greiðslna úr lífeyrissjóði. Þetta má
gera í tveimur áföngum. Það er
ekkert gagn í því að draga lítillega
úr skerðingu tryggingabóta vegna
greiðslna úr lífeyrissjóði. Lágmarks
frítekjumark vegna lífeyrissjóðs-
greiðslna er að mínu mati 150 þús-
und krónur á mánuði. Samhliða
þessari breytingu þarf að afturkalla
þá breytingu, sem gerð var á út-
reikningi grunnlífeyris 2009. TR.
Ég minni á að þessar ráðstafanir
frá miðju ári 2009 voru tímabundn-
ar og áttu að hámarki að gilda í 3
ár. Það verður að standa við það og
afturkalla strax. Þar með fær fjöldi
eftirlaunamanna sinn grunnlífeyri á
ný eins og ætlast var til í upphafi.
Ég tel að grunnlífeyrir eigi að
halda sér. Þá þarf einnig að hækka
á ný frítekjumark vegna atvinnu-
tekna. Það ætti einnig í byrjun að
vera 150 þúsund krónur á mánuði
og hækka á ný síðar. Að mínu mati
á að halda frítekjumörkum þó að
breytt verði lítillega tekjuteng-
ingum tryggingabóta við endur-
skoðun almannatrygginga.
Lífeyrir aldraðra frá TR
hækki strax
Að lokum vil ég undirstrika að
lífeyrir aldraðra og öryrkja dugar
hvergi nærri til sómasamlegrar
framfærslu. Það verður að hækka
hann verulega strax eða 2012 og
eðlilegast er að hækka hann í
áföngum til samræmis við neyslu-
könnun Hagstofunnar (dæmigert
neysluviðmið er samhljóða nið-
urstöðu neyslukönnunar). Endur-
skoðun almannatrygginga verður
að taka á hækkun lágmarkslífeyris
aldraðra og á almennri hækkun líf-
eyris aldraðra. Það kemur ekki til
greina að leggja fram tillögur um
endurskoðun almannatrygginga án
þess að hækka lífeyri aldraðra og
öryrkja almennt. Tilgangur endur-
skoðunar á að vera að bæta kjör
aldraðra og öryrkja en ekki til-
færslur innan kerfisins. Ég tel
einnig óeðlilegt að skerða stórlega
lífeyri aldraðra og öryrkja við það,
að þeir fari í sambúð eða hjóna-
band. Annaðhvort á lífeyririnn að
vera sá sami eða með litlum mun.
Hækka á lífeyri aldraðra verulega 2012
Eftir Björgvin
Guðmundsson » Tilgangur endur-
skoðunar (almanna-
trygginga) á að vera að
bæta kjör aldraðra og
öryrkja en ekki til-
færslur innan kerfisins.
Björgvin Guðmundsson
Höfundur er viðskiptafræðingur.
Nóatúni 4 Sími 520 3000
www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
Heimilistæki, ljós og
símar í miklu úrvali.
Komdu í heimsókn
til okkar á aðventunni
og gerðu góð kaup.
Fjöldi tækja á
sérstöku jólaverði.
Sjón er sögu ríkari.
Gigaset AS180
Langur taltími, mikil hljómgæði.
Jólaverð: 5.930 kr. stgr.
Palma gólflampar
AN19901-90 (stál)
AN19901-30 (antík)
Vandaðir gólflampar.
Lesljós og uppljós.
Jólaverð: 14.900 kr. stgr.
Þvottavél WM 14E262DN
Tekur mest 6 kg, vindur upp í
1400 sn./mín.
Jólaverð: 119.900 kr. stgr.
Uppþvottavél SE45E234SK
Með fimm kerfum. Mjög hljóðlát
og vinnusöm.
Jólaverð: 99.900 kr. stgr.
Ryksuga VS 59E20
Létt og lipur. 2200 W.
Jólaverð: 19.900 kr. stgr.
Baðvog AD8115S
Stafræn baðvog með
nákvæmni upp á 100 g.
Jólaverð: 2.900 kr. stgr.
Töfrasproti MSM 7500
Kraftmikill, 600 W. Fylgihlutir:
Skál með loki og stór hakkari.
Jólaverð: 13.900 kr. stgr.
1
2
3
4
5
6
7
6
7
5
2
1
43
2011
Kimmidoll
á Íslandi
Chiaku „Laughter“
My spirit heals
and heartens
Ármúla 38 | Sími 588 5011