Morgunblaðið - 03.12.2011, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 03.12.2011, Blaðsíða 50
50 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011 ✝ Friðjón Jóns-son fæddist á Blómsturvöllum, Hellissandi, 12. febrúar 1931. Hann lést á Dvalarheim- ilinu Jaðri 27. nóv- ember 2011. Foreldrar Frið- jóns voru Svan- fríður Kristjáns- dóttir, fædd á Hellissandi 25.1. 1910, d. 14.11. 1995, og Jón Guð- mundsson, f. 15.2. 1905 í Hösk- uldsey, d. 15.2. 1970. Systkini Friðjóns voru 6: Karl Guð- mundur, stýrimaður, f. 7.8. 1933, d. 17.2. 1962; Þyri hjúkr- unarfræðingur, f. 30.7. 1943, d. 13.7. 2000; Rúrik þjónn, f. 24.11. 1946, d. 30.10. 1986, Sigurður út- gerðarmaður, f. 11.4. 1950; Kristján útgerðarmaður, f. 16.6. Rúnar Logi. Friðjón Rúnar, unn- usta Rósa Morthens, börn Frið- jóns Rúnars eru Sonja, Friðjón Adolf, Aníta Gurrý og Magga Dóra. Friðjón tók einnig að sér tvær dætur Guðrúnar frá fyrra hjónabandi: Jónína Vigfúsdóttir, f. 2.1. 1951, maki Páll V. Stef- ánsson, börn þeirra Guðrún Fríða og Stefán Ragnar. Lára E. Vigfúsdóttir, f. 26.2. 1952, dóttir hennar er Anna María. Barna- barnabörn Friðjóns eru 14. Frið- jón ólst upp á Hellissandi, flutti ungur til Reykjavíkur, og fór í Skipstjóra- og stýrimannaskól- ann. Hann starfaði alla sína tíð við vinnu sem tengdist sjó- mennsku, aðallega frá Rifi eftir að hann flutti aftur á Hellissand, þá annaðhvort sem stýrimaður eða skipstjóri og einnig starfaði hann sem verkstjóri í Hrað- frystihúsi Hellissands í nokkur ár. Útför Friðjóns fer fram í dag, 3. desember 2011, frá Ingjalds- hólskirkju kl. 14. 1951, og Baldur vél- stjóri, f. 17. 1. 1953. Fyrri kona Friðjóns var Guðrún Guð- mundsdóttir, f. 28.7. 1928. Þau skildu. Börn þeirra: 1) Jón, f. 16.9. 1952. Börn hans: Emil Þór og Sunneva. Maki Jóns er Hulda Sigurðardóttir. 2) Sigríður, maki Garðar Pétursson, barn þeirra er Freydís Eva. Árið 1966 kvæntist Friðjón Guðrúnu Sam- úelsdóttur, f. 3.9. 1933, d. 20.11. 1991. Börn þeirra: Svanur Karl, f. 5.3. 1966, unnusta Sigríður Ingólfsdóttir, börn hans eru Est- er og Inga Rún og fóstursonur Rúnar Berg. Signý Rut, f. 30.3. 1967, maki Loftur Bjarnason, börn þeirra eru Hilmar Freyr og Mig langar til að minnast föður míns, Fía í Ártúni, eins og flestir þekktu hann. Hugur minn tekur mig til baka þegar við bjuggum í Ártúni, húsi afa og ömmu. Ártún var ævintýraland út af fyrir sig. Við höfðum fjöruna, gömlu fjár- húsin hans afa, frystihúsið og Keflavíkina eins og hún lagði sig til leikja. Við hreinlega elskuðum fjöruna og eyddum töluverðum tíma í að veiða á bak við frysti- húsið. En ævintýraheimurinn kemur líklegast frá öllum sögu- stundunum sem við ólumst upp við frá pabba, hann var óþreyt- andi að segja sögur og deila með okkur einhverju skemmtilegu sem hann hafði jafnvel upplifað á árum áður. Þegar ég var yngri ólumst við systkinin upp við það að pabbi væri mikið á sjó. Þegar hann kom heim las hann oft fyrir okkur sög- ur úr þjóðsögunum og ævintýrum og passaði vel upp á að við kynnt- umst þeim. Þá kúrðum við öll saman og hann las alltaf þannig að alltaf átti að lesa eina sögu í viðbót. Þegar hann hins vegar tók sér frí frá sjómennsku og varð verkstjóri í Hraðfrystihúsinu vænkaðist hagur okkar allveru- lega með sögulestur í huga, því þá fengum við oftar sögustund. Pabbi fór oft með okkur í bíltúra og sagði þá frá því sem fyrir augu bar. Þá var farið kringum Jökul og var mikið um sögur og lært um staðhætti og vildi hann að við fræddumst um sem mest. Okkur fannst oft erfitt þegar hann var lengi á sjó í einu en það gleymdist fljótlega þegar hann var að koma heim úr siglingum, þá komu Mackhintosh-boxin heim, og í dag get ég varla litið við þessum box- un en okkur þótti ekki leiðinlegt þá að fá allt þetta heim og fengum við stundum í magann. Ég minn- ist kvöldanna í Ártúni eftir að keypt var fyrsta vídeótækið. Þá sátum við saman, útbjuggum veitingar og horfðum á bíómynd, en pabbi læddist stundum frá því hann vildi frekar lesa Íslendinga- sögurnar. Aldrei man ég eftir því að hann hafi nokkurn tímann byrst sig við okkur. Alltaf talaði hann við okk- ur á rólegu nótunum og við skild- um þá að við höfðum gert eitthvað sem ekki mátti gera. Pabbi var einstakt ljúfmenni gagnvart börnum og þeim sem minna máttu sín. Barnabörnin sóttust í að fara til hans og voru dugleg að heimsækja hann og hann var duglegur að heyra í þeim og fylgj- ast með þeim. Jafnvel börn sem ekki voru tengd honum hændust að honum og góðmennsku hans. Pabbi hafði yndi af því að spila og í alllangan tíma var alltaf spil- að heima hjá okkur um jólin. Eftir að hann kom aftur vestur hafði hann yndi af því að spila bridge og það mátti ekki missa úr einn spiladag. Ef það er eitthvað sem hægt er að tengja sérstaklega við hann þá er það suðusúkkulaði frá Nóa Síriusi, spil og Íslendinga- sögurnar. Hann gat lesið þær aft- ur og aftur og varð aldrei leiður á þeim. Ég kveð þig, elsku pabbi, með söknuði og þakka fyrir allan þann tíma sem við áttum saman og þann tíma sem drengirnir mínir fengu að njóta með þér en þeim fannst gaman að hlusta á þig og heyra hvað þú hafðir upplifað og gert um ævina og ekki fannst þeim leiðinlegra að fá að taka eins og eina skák við þig. Signý Rut. Jæja afi Fíi. Nú er komið að leiðarlokum hjá okkur og þykir mér það sárt að segja bless við þig þegar stutt er í jólin. Ég get sagt helling af sögum af okkur, hverja annarri skemmtilegri. En meiningin með þessari grein er hinsvegar að láta hana dóttur þína, Signýju, og móður mína ekki fá áfall yfir öllum þessu sög- um af okkur og læt ég því nægja stuttan texta núna. Þú varst ekki eins og hinn týp- íski afi; með skalla, í peysuvesti og með sixpensara á hausnum. Þú varst ekki með bumbu og heldur ekki að segja manni muninn á réttu og röngu. Þú varst öruggur um að móðir mín og faðir hefðu alið okkur bræðurna vel upp og þyrftir því ekki að skipta þér af því. Þú varst alltaf vel greiddur með greiðuna að vopni, í jakkaföt- um, lést vindinn leika um þitt fal- lega gráa hár og með sígarettu í hægri hendi að prakkarast með mér. Ég gleymi aldrei þegar þú komst í heimsókn á Helluhólinn í eitt skipti og ég var kominn með nóg af því hversu mikið þú reyktir og ákvað að fela sígaretturnar í von um að þú gæfist upp á reyk- ingunum. Sú varð ekki raunin. Ég hafði aldrei séð þig jafn pirraðan og þá og mikið fannst mér það fyndið en svo gafst mamma nú upp á röflinu í þér og lét mig ná í sígaretturnar sem voru vel faldar í krukku uppi á ísskáp. Önnur sagan er töluvert lengri, en ég ætla að reyna að láta hana hljóma stutta. Það var þegar þú komst að passa mig þegar for- eldrar mínir fóru að keppa í blaki. Ég var í kringum 13-15 ára gam- all og var á leiðinni á ball með vini mínum. Þér fannst leiðinlegt að hafa ekki fengið að heyra þetta fyrr, því þá hefðir þú getað farið í ríkið fyrir mig, en þú dóst ekki ráðalaus og skelltir í blöndu fyrir mig. Romm í kók. Ég hafði ekki hugmynd um hvað þetta var en í sakleysi mínu hafði ég ekki kjark í að drekka þetta og ákvað að selja blönduna til annarra sem drukku þetta. Degi seinna leyfðir þú mér svo að baka skúffuköku, sem ég hafði aldrei gert og heppnaðist kakan eftir því. Hún var óæt en þú sagðir samt við mig að hún væri góð. Ég held reyndar að þér gæti hafa fundist hún góð vegna þess að hún var troðfull af kaffi og bragðaðist eins og kaffi. Ég mun aldrei gleyma símtöl- unum sem við áttum en þau voru mörg. Mér er minnisstæðast þeg- ar þú hringdir 17. júní fyrir nokkrum árum og varst nýkom- inn úr miðbænum. Þá hafðir þú farið fyrr um daginn í gönguna og séð fólk dansa. Þú varst ekki lengi að finna þér unga konu til að dansa við en svo fórstu að röfla við mig um að hún hefði ekki haft þol til að halda í við þig. Svona varstu, alltaf tilbúinn að skemmta þér. Núna þegar þú ert kominn á betri stað er aðeins ein mynd sem kemur upp í huga minn þegar ég ímynda mér hvað þú sért að gera núna og hún er mjög einföld og lýsir þér best: Á sjó með full- fermi, með sígarettu í vinstri, greiðuna í hægri að segja brand- ara eða sögur. Niðri í káetu er svo góð bók sem þú grípur í þegar þú loksins ferð í koju. Sjáumst, afi, ég á eftir að sakna þín gífurlega mikið og takk fyrir allt. Ps. vonandi verður þú búinn að læra nýja spilagaldra sem þú get- ur sýnt mér. Hilmar. Í dag kveð ég afa Fía. Ég ólst upp hjá ömmu Gurrý og afa Fía í Ártúni. Þegar ég sest niður og ætla að skrifa nokkur orð um hann þá koma ótal góðar minn- ingar upp í hugann. Ég var mikið afabarn og þegar hann var á sjó þá taldi ég dagana þangað til að hann kom heim af sjónum og þeg- ar hann kom í land fékk hann ekki frið fyrir mér. Ég hékk í honum og fátt mátti hann gera án mín. Sem betur fer leiddist honum ekki félagsskapurinn og leyfði mér að koma með sér í bíltúr, í heimsóknir og stundum í vinn- una. Afi var mikill sögumaður og fannst honum gaman að segja mér sögur af draugum og tröll- um. Um Nesið fórum við oft í bíl- túrum okkar og alltaf kom eitt- hvað skemmtilegt út úr því. Svo í seinni tíð hafði hann gaman af að minna mig á hvernig ég var þegar ég var lítil og það kom honum til að brosa og gott faðmlag kom ósjaldan á eftir. Ég er virkilega þakklát fyrir allar þær stundir okkar og sérstaklega þínar síð- ustu. Það fær mig til að brosa í gegnum tárin þegar ég var hjá þér og þú sendir mig upp í sjoppu að kaupa suðusúkkulaði, uppá- haldið okkar, og í fyrsta skipti frá því ég man eftir mér þá varst það þú sem áttir að klára það og ofan í þig fóru nokkrir bitar. Ég kveð þig með miklum söknuði, elsku afi. Anna María. Friðjón Jónsson ✝ Þórhalla Þor-steinsdóttir fæddist í Litluvík 15. september 1924. Hún lést á legudeild Sunda- búðar 24. nóv. síð- astliðinn. Foreldrar henn- ar voru Ingibjörg Magnúsdóttir og Þorsteinn Magn- ússon. Þórhalla giftist Björgólfi Jónssyni, f. 24.9. 1923, d. 8.2. 1989, frá Vopnafirði, 24. apríl 1948. Börn þeirra eru Ingibjörg Ósk f. 1945, maki Örn Karlsson. Ómar Þröstur f. 1948, maki Fjóla Georgsdóttir. Óskírður f. 1949, d. 1949. Þorsteinn Jón f. 1950, d. 1981, maki Reg- ína Guðjónsdóttir. Hjálmar f. 1953, maki Guðný Sveinsdóttir. Bjarki f. 1956, maki Björg Guð- jónsdóttir. Sig- urveig f. 1961. Ömmu- og lang- ömmubörn eru 39. Þórhalla ólst upp í Húsavík eystri frá 6 ára aldri ásamt 11 systkinum en fluttist til Vopnafjarðar 1947 þar sem hún bjó alla tíð lengst af í Ásbrún. Útförin fer fram frá Vopna- fjarðarkirkju í dag, laugardag- inn 3. desember 2011, og hefst athöfnin kl. 14. Elsku amma mín, nú kveð ég þig í hinsta sinn. Ég kvaddi þig í símann í síðustu viku, þú skildir mig og svaraðir mér. Daginn eft- ir varstu farin. Það á eftir að verða sérkennilegt að koma aust- ur á Vopna og geta ekki farið í eldhúsið í Ásbrún þar sem þú varst vön að standa við vaskinn og eldavélina meðan eldhúsið ið- aði af lífi. Því það var venja allra barna þinna, barnabarna og tengdabarna, sem og annarra í bænum, að kíkja við í kaffi. Þar var margt rætt og mikið hlegið. Þú varst alltaf svo kát en gast líka sent okkur tóninn þegar við áttum það skilið. Ég fann alltaf ást og vænt- umþykju frá þér, elsku amma. Þú varst alltaf svo góð við alla sem minna máttu sín og áttu dýrin stóran þátt í þínu lífi. Þú áttir alltaf kisu sem var mjög oft með kettlinga, einnig man ég eft- ir að þú hafir átt stökkmýs, hamstra, naggrís, páfagauka, álft, hrafn, kindur og dúfur. Þetta var því sannkölluð paradís fyrir okkur krakkana að koma til þín í þinn húsdýragarð. Krakk- arnir á leikskólanum nutu líka góðs af þegar þau fengu að njóta dýranna þinna yfir girðinguna. Ég heyrði þetta lag stuttu eftir að ég frétti að þú værir dáin og ég hvarf í huganum í eldhúsið til þín. Horfið er nú sumarið og sólin, í sálu minni hefur gríma völd. Í æsku léttu ís og myrkur jólin; nú einn ég sit um vetrarkvöld. Eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það en samt ég verð að segja, að sumarið líður allt of fljótt. Ég gái út um gluggann minn hvort gangir þú um hliðið inn. Mér alltaf sýnist ég sjái þig. Ég rýni út um rifurnar. Ég reyndar sé þig alls staðar. Þá napurt er, það næðir hér og nístir mig. (Vilhjálmur Vilhjálmsson.) Elsku amma mín, megir þú hvíla í friði, því nú ertu búin að fá hvíldina þína. Bless, elsku amma. Þín nafna, Þórhalla. Þórhalla Þorsteinsdóttir ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN B. SIGURÐARDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Eir áður Hraunbæ 103, andaðist í faðmi dætra sinna á Eir að morgni laugardagsins 19. nóvember. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir til ættingja og vina fyrir hlýjar kveðjur og samúð. Starfsfólki á 3-N og Ólafi Samúelssyni lækni á Eir færum við hjartans þakkir fyrir ómetanlega umönnun, nærveru og virðingu í hennar garð. Sigurlaug Anna Tryggvadóttir, Gunnar Halldórsson, Erla Sigtryggsdóttir, Gunnar Jónsson og fjölskyldur. ✝ Okkar ástkæri JÓN SIGURÐUR HJÁLMARSSON, Nonni frá Gilhaga, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn 18. nóvember. Innilegustu þakkir og kveðjur til starfsfólks Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki og Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, fyrir hlýhug og góða umönnun. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd aðstandenda, Systkinin frá Gilhaga og fjölskyldur þeirra. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVEINN RAGNAR BJÖRNSSON skipstjóri, Framnesvegi 20, Keflavík, áður Garðbraut 56, Garði, lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 25. nóvember. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 6. desember kl. 13.00. Loftveig Kristín Sigurgeirsdóttir, Guðlaug Þóra Sveinsdóttir, Baldvin Sigurðsson, Sigurgeir Borgfjörð Sveinsson, Elín Gunnarsdóttir, Björn Sveinsson, Elísa Rakel Jakobsdóttir, Rósa Sveinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, NANNA HARALDSDÓTTIR, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þriðjudaginn 29. nóvember. Útförin fer fram frá Digraneskirkju mánu- daginn 12. desember kl. 13.00. Einar Sigurðsson, Haraldur Einarsson, Súsanna Jónsdóttir, Sigurður Einarsson, Guðbjörg Svanlaug Árnadóttir, Kristján Einarsson, Berglind Þráinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, ÆSKA BJÖRK JÓHANNESDÓTTIR BIRKILAND, lést á Landspítalanum Fossvogi mánudaginn 28. nóvember. Útför hennar fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 6. desember kl. 11.00. Jóhanna Björk Halldórsdóttir, Davíð Bjarki Jóhönnuson, Þorsteinn Þorsteinsson, Þórdís Björk Sigurgestsdóttir, Sigurgestur Jóhann Rúnarsson, Ósk Elín Jóhannesdóttir Birkiland, Ólafur Sverrisson, Unnur Ragnhildur Jóhannesdóttir Birkiland, Ingibjörg Albertsdóttir. ✝ Elskuleg eiginkona mín, SJÖFN SIGURÐARDÓTTIR, er látin. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 5. desember kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Ragnar Sigfússon.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.