Morgunblaðið - 03.12.2011, Side 14
A l l a r n á n a r i u p p l ý s i n g a r á b a e n d a f e r d i r . i s
www.baendaferdir.is s: 570 2790
Frá tignarlegum höllum stærsta lýðræðisríkis heims til hæstu tinda
Himalayafjalla sameinar þessi ævintýraferð undur Indlands og töfrandi
náttúru Nepal. Báðar þjóðir eiga sér langa og merka sögu með dulda og
framandi menningararfleifð, sérstaka siði og trúarvenjur. Fjölskrúðugar
frásagnir hindúatrúarinnar og búddismans heilla ekki síður en
konungshallir og glæsibyggingar hinna fyrrum voldugu mógúla. Ferð
okkar hefst í Delí þar sem við skoðum m.a. forsetahöllina og upplifum
ævintýralegan markað í Gömlu Delí. Í Jaipur heimsækjum við Amber
Fort kastalann og Hawa Mahal, eða „höll vindanna“, förum á fílsbak og
njótum andstæðna gamla og nýja tímans. Komum til Agra og skoðum
Taj Mahal, eitt þekktasta grafhýsi í heimi og heimsækjum Fatehpur Sikri,
forna, yfirgefna sandsteinaborg. Síðast en ekki síst förum við til elstu
borgar heims,Varanasi, sem er pílagrímaborg og helgasti staður Hindúa,
eða hin svokallaða „borgin eilífa“. Höldum til Nepal, lands stórbrotinnar
náttúru og sérstakrar menningar sem ákveðin dulúð hvílir yfir.Við fáum
notið óviðjafnalegs landslags, þar sem skiptast á fagrir frjósamir dalir, skógi
vaxnar hæðir og tignarlegir tindar hæstu fjalla heims.Við kynnumst hinni
sérstöku menningu sem er samofin einlægu trúarlífi og upplifum m.a. hof
hinnar „lifandi gyðju“ í Katmandú.
Kalifornía er í líklega í hugum margra þekkt fyrir Hollywood og
kvikmyndir. Við fljúgum til Seattle þar sem við gistum í eina nótt
og fljúgum þaðan til San Francisco en þar bíður okkar sannkölluð
draumaferð. Skoðum allt það helsta í hinni fallegu San Francisco en
þar má helst nefna Golden gate brúnna, Fischerman‘s warf ásamt
Chinatown. Haldið þaðan meðfram ströndinni til Los Angeles, farið á
staði eins og Hollywood, Rodeo Drive í Beverly Hills og Alvera Street.
Áfram er haldið til San Diego og Phoenix. Við skoðum eitt stærsta
sandöldusvæði í Norður-Ameríku ásamt því að stoppa í Sedona, þar
sem glæsilegir, risastórir rauðir klettar einkenna umhverfið. Síðan er
komið að hápunkti ferðarinnar sem er hið stórfenglega Grand Canyon,
sem margir telja eitt af náttúrulegu undrum veraldar. Þá borgar sig
að fara snemma á fætur og sjá sólarupprásina í þessu stórbrotna
landslagi. Því næst er ekið til Las Vegas, sem er ein þekktasta
spilaborg í Ameríku, gist þar í tvær nætur og gefst þá færi á að kíkja
aðeins í spilavítin og jafnvel freista gæfunnar.
Kynningarfundur verður haldinn 7. desember
kl. 20:00 í húsakynnum Bændaferða Síðumúla 2.
Kynningarfundur verður haldinn 8. desember
kl. 20:00 í húsakynnum Bændaferða Síðumúla 2.
Dulúð Indlands &
Nepal23. mars - 6. apríl
Fararstjóri: Inga Ragnarsdóttir
Draumaheimur
Kaliforníu4. - 16. apríl
Fararstjóri: Guðrún Bergmann
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011
FRÉTTASKÝRING
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Ef stjórnvöld ætla að bæta framleið-
endum kjúklinga- og svínakjöts
tekjutap vegna niðurfellingar á toll-
vernd þarf að styrkja þessar tvær
greinar um tvo milljarða króna.
Greinarnar njóta engra styrkja í
dag. Ekkert liggur fyrir hvort póli-
tískur vilji er til að fara út á þessa
braut, en samningamenn Íslands í
viðræðum við Evrópusambandið
geta hins vegar ekki hafið umræður
um landbúnaðarmál nema það liggi
fyrir að hverju við ætlum að stefna í
þessum efnum.
Ef Ísland gerist aðili að Evrópu-
sambandinu þurfa íslensk stjórnvöld
að afnema tolla af innfluttum land-
búnaðarvörum. Hagfræðingarnir
Erna Bjarnadóttir og Daði Már
Kristófersson voru fengnir til að
meta hvað þessi tollvernd væri mikil
í krónum og aurum og hvað þyrfti að
hækka styrki til landbúnaðar mikið
til að bændur væru jafnsettir. Nið-
urstaða þeirra er að aðild að ESB
breytti engu um verð á lambakjöti
hér á landi, styrkir til mjólkurfram-
leiðenda þyrftu að aukast um 15%,
um 8% vegna framleiðslu nautakjöts,
um 41% vegna svínabænda og 53%
vegna kjúklingaframleiðenda.
Þessar tölur sýna að munur á
verðlagi milli Íslands og meginlands
Evrópu er mestur á svínum og kjúk-
lingum. Í skýrslu Ernu og Daða
kemur fram að til að svínabændur
væru jafnsettir með afnámi toll-
verndar þyrftu þeir að fá styrki sem
nemur 730 milljónum og kjúklinga-
framleiðendur þyrftu að fá styrki
sem næmi 1.170 milljónum.
Fáir framleiðendur
Framleiðendur í svína- og kjúk-
lingarækt eru mjög fáir. Svínabænd-
ur eru 17 og kjúklingaframleiðendur
eru enn færri. Tvö fyrirtæki eru ráð-
andi á markaði í kjúklingarækt, þ.e.
Reykjagarður sem Sláturfélag Suð-
urlands á og Matfugl sem einnig er í
eigu stórfyrirtækis í matvælafram-
leiðslu. Í svínarækt er eitt fyrirtæki,
Stjörnugrís, með a.m.k. 50% mark-
aðshlutdeild.
Ef farið væri út í að styrkja kjúk-
linga- og svínarækt myndu styrkir
dreifast á mun færri hendur en í
mjólkurframleiðslu þar sem fram-
leiðendur eru um 700 og í sauðfjár-
rækt þar sem framleiðendur eru
tæplega 2.800. Verði farið út í að
styrkja svínarækt um 730 milljónir
fær stærsti framleiðandinn yfir 350
milljónir á ári og stærstu framleið-
endur í kjúklingarækt fá svipaða
upphæð.
Í ESB eru styrkir til landbúnaðar
annars vegar greiddir af heimaland-
inu og hins vegar af ESB. Í Finn-
landi greiðir ríkissjóður Finnlands
um 60% styrkjanna en ESB 40%.
Formlegar viðræður við ESB um
landbúnaðarmál eru ekki hafnar og
íslensk stjórnvöld hafa ekki kynnt
hvaða kröfur þau ætla að gera í við-
ræðunum. Erna Bjarnadóttir segir
augljóst að íslensk stjórnvöld verði
áður en viðræður hefjast, að setja sér
markmið og svara því hversu mikið
þau vilji að einstakar greinar land-
búnaðarins verði styrktar. Bænda-
samtök Íslands hafi fyrr á árinu sett
fram kröfur um varnarlínur í viðræð-
um við ESB, en stjórnvöld hafi ekki
svarað þessum kröfum.
Á að styrkja kjúk-
linga- og svínarækt?
Ef bæta á svína- og kjúklingaframleiðendum tapaða toll-
vernd við aðild að ESB þarf að styrkja þá um tvo milljarða
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Svín Svínabændur á landinu eru ekki nema 17 en sauðfjárbændur eru um 2.800 og kúabændur eru 700.
Þörf fyrir styrki
» Áætluð stuðningsþörf helstu
greina landbúnaðarins eftir inn-
göngu í ESB er eftirfarandi:
mjólk 7.410 milljónir, lambakjöt
3.420 milljónir, nautakjöt 130
milljónir, svínakjöt 730 milljónir,
kjúklingar 1.170 milljónir, egg
390 milljónir, blóm 170 millj-
ónir, tómatar, gúrkur og papr-
ikur 390 milljónir og annað 380
milljónir.
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
Ljóst er af minnisblaði sem lagt var
fram í utanríkismálanefnd Alþingis í
ágúst 2010, um IPA-aðstoð Evrópu-
sambandsins við Ísland vegna um-
sóknarinnar um inngöngu í sam-
bandið, að verkefnið hefur tafist
verulega miðað við þær áætlanir sem
þá var miðað við. Þannig má nefna að
gert var ráð fyrir því í minnisblaðinu
að útgreiðsla IPA-styrkja gæti haf-
ist um mitt ár 2011 en nú er gert ráð
fyrir að það gerist einhvern tímann á
næsta ári.
Að sama skapi var gert ráð fyrir
því í minnisblaðinu að upplýsinga-
skrifstofa sem Evrópusambandið
hyggst opna eftir næstu áramót yrði
opnuð um áramótin í fyrra, en skrif-
stofan er hluti af IPA-aðstoðinni og
er gert ráð fyrir að allt að 224 millj-
ónum króna verði varið til hennar
samkvæmt útboðsgögnum.
Þingsályktunartillaga um fullgild-
ingu rammasamnings á milli ís-
lenskra stjórnvalda og fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins um IPA-aðstoðina hefur nú verið
lögð fram á Alþingi af utanríkisráð-
herra en samningurinn, sem undir-
ritaður var 8. júlí í sumar, er for-
senda þess að hún geti hafist.
Ríkið leggi fram fjármagnið
Þess má geta að gert er ráð fyrir
IPA-styrkjum frá Evrópusamband-
inu í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórn-
arinnar vegna næsta árs að upphæð
596 milljónir króna og er gert ráð
fyrir því samkvæmt frumvarpinu að
ríkissjóður greiði þær fjárhæðir út
að miklu leyti og fái þær síðan end-
urgreiddar þegar IPA-styrkirnir
berast frá sambandinu.
Fjárlagafrumvarpið er nú í þriðju
umræðu á Alþingi en þingsályktun-
artillagan hefur enn ekki verið tekin
til umræðu.
Fyrri áætlanir ekki staðist
Rammasamningur við ESB forsenda IPA-styrkja til Ís-
lands Þegar gert ráð fyrir þeim í fjárlagafrumvarpinu
Evrópumál Höfuðstöðvar fram-
kvæmdastjórnar ESB í Brussel.