Morgunblaðið - 03.12.2011, Qupperneq 23
arionbanki.is — 444 7000
Markmiðið er að útboðið geri Högum hf. kleift að uppfylla skilyrði NASDAQ OMX
Iceland um dreifingu hlutafjár og marki þannig grunninn að dreifðu eignarhaldi á Högum,
en þá er bæði horft til þess að almenningur og fagfjárfestar eignist hlut í félaginu, og jafn-
framt er markmið seljandans að fá ásættanlegt verð fyrir eign sína.
Fyrirtækjaráðgjöf Fjárfestingabankasviðs Arion banka hefur umsjón með almenna útboðinu.
Stærð útboðsins nemur 20% af útgefnum hlutum, eða 243.517.168 hlutum, en seljandi áskilur sér rétt til að stækka útboðið
í allt að 30% af útgefnum hlutum eða samtals í allt að 365.275.752 hluti. Seljandi óskar eftir áskriftum á verðbilinu 11–13,5
krónur á hlut og mun eftir lok áskriftartímabils ákvarða eitt endanlegt útboðsgengi til allra kaupenda í útboðinu,en það mun
verða á framangreindu verðbili. Andvirði útboðsins getur þannig numið á bilinu 2,7–4,9 milljörðum króna.
Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í útboðinu er bindandi.
Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um Haga og skilmála útboðsins sem er að finna í lýsingu Haga
dagsettri 26. nóvember 2011 sem gefin er út á íslensku. Fjárfestum er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti í lýsingunni.
Lýsinguna má nálgast rafrænt á www.hagar.is og www.arionbanki.is. Hana má einnig nálgast innbundna í höfuðstöðvum
Haga að Hagasmára 1 í Kópavogi og hjá Arion banka í Borgartúni 19 í Reykjavík.
Þeir sem vilja fjárfesta fyrir 100 þúsund krónur til 25
milljónir króna eru beðnir að skila áskrift sinni rafrænt á
vef Arion banka,www.arionbanki.is.Til þess notar fjárfestir
notandanafn sitt og lykilorð að netbanka Arion banka,
eða kennitölu sína og lykilorð sem hann pantar á áskriftar-
vefnum og fær sent um hæl sem rafrænt skjal í netbanka
sinn hjá hvaða íslenska viðskiptabanka sem er.
Þeir sem vilja fjárfesta fyrir 25-500 milljónir króna eru
beðnir að hafa samband við fyrirtækjaráðgjöf eða hlutabréfa-
miðlun fjárfestingabankasviðs Arion og skila áskrift sinni á
sérstöku formi sem nálgast má hjá þessum söluaðilum.
Útboðið er til aðila (einstaklinga og lögaðila) með íslenska
kenntölu sem eru fjárráða og ráða búi sínu sjálfir. Það þýðir
m.a. að einstaklingum undir 18 ára aldri er ekki heimiluð
þátttaka í útboðinu.
Úthlutun: Komi til þess að eftirspurn í útboðinu verði
meiri en sem nemur stærð útboðsins, þá verða annarsvegar
áskriftir að andvirði 0,5–25 milljónum króna skertar um
allt að 50%, en lægstu áskriftir látnar halda sér, og þurfi að
koma til frekari niðurskurðar verður hámark netáskrifta
lækkað frekar með flötum niðurskurði og hinsvegar verða
áskriftir yfir 25 milljónum króna skertar samkvæmt einhliða
ákvörðun seljanda sem taka mun mið af framangreindum
markmiðum útboðsins.
Áskriftartímabil stendur frá mánudeginum 5. desember
2011 klukkan 10.00 til fimmtudagsins 8. desember 2011
klukkan 16.00.
Eindagi kaupverðs: 14. desember 2011
Stefnt er að því að 15. desember 2011 verði fyrsti dagur
viðskipta með hluti Haga hf. í Kauphöllinni.
Almennt hlutafjárútboð
5.– 8. desember 2011
Eignabjarg ehf., dótturfélag Arion banka hf., hyggst selja
þegar útgefna hluti í Högum hf. með almennu útboði.