Morgunblaðið - 03.12.2011, Side 30
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011
FRÉTTASKÝRING
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
Á sama tíma og þúsundir Íslendinga
þurfa enn ein jólin að leita til hjálp-
arsamtaka til að geta haldið jól flykkj-
ast aðrar þúsundir Íslendinga í versl-
unarleiðangra til Bandaríkjanna fyrir
jólin. Raftækjaverslun er komin á
svipað ról og hún var fyrir hrun og
dýrar spjaldtölvur sagðar jólagjöfin í
ár. Þýðir þetta að bilið sé að breikka á
milli þeirra sem búa við kröppustu
kjörin og þeirra sem hafa það fínt? Er
kreppan búin hjá hinum almenna
neytanda eða eru skýringarnar flókn-
ari en svo?
Af starfsmönnum raftækjaversl-
ana að dæma er hinn meðvitaði neyt-
andi enn til staðar og fólk almennt
sækist eftir að fá sem mest fyrir aur-
inn sinn. Guðjón Júlíusson, vörustjóri
sjónvarps- og hljómtækjadeildar
Elko, segir að hlutfallslega meira selj-
ist af ódýrari tækjum en í fyrra. Hins-
vegar séu líka komin inn dýrari tæki,
t.d. tók Elko nýlega í sölu sjónvörp
sem kosta um 800.000.
Skúli Hersteinn, verslunarstjóri
Samsung-setursins, segir að mikið
seljist af ódýrari tækjunum en hins-
vegar sé merkjanleg aukning í milli-
verðflokki og á dýrustu tækjunum.
„Hér á bæ bregður okkur ekkert þótt
inn komi einn og einn og vilji tæki fyr-
ir 800 þúsund,“ segir Skúli. Markað-
urinn fyrir dýr lúxusraftæki sé tví-
mælalaust til staðar á Íslandi.
Sala á snjallsímum og spjaldtölvum
hefur líka farið vaxandi á árinu. Valdi-
mar Sigurðsson, doktor í markaðs-
fræðum, með áherslu á neytendasál-
fræði, segir að breytingar á
neyslumynstri stýrist að hluta af
menningu hinnar svokölluðu „Ég-
kynslóðar,“ sem sé orðin vön einstak-
lingsmiðaðri afþreyingu sem hver og
einn geti sniðið eftir eigin höfði.
Spjaldtölvan uppfylli m.a. þessar
þarfir og veki því löngun margra.
„Þetta er eflaust það sem flestir
myndu vilja kaupa sér, en það er
munur á löngun og eftirspurn. Þótt
fjöldinn vilji þessar vörur þýðir það
ekki að allir hafi efni á þeim.“
Og þótt fólk leyfi sér að kaupa dýra
hluti þýðir það ekki endilega að það
vaði í peningum. Neytendur elta
gjarnan fordæmi þeirra efnuðustu í
því hvaða hlutir þyki eftirsóknarverð-
ir. Nýjar vörur eins og snjallsímar og
spjaldtölvur virðast kannski mörgum
prjál í fyrstu en eftir því sem
útbreiðsla þeirra verður
meiri sannfærast fleiri
um að þær séu ómissandi
neysluvara, óháð fjár-
hag.
Markaður til stað-
ar fyrir lúxustæki
Dýrustu símarnir vinsælir 800.000 kr sjónvörp seljast
Morgunblaðið/Ernir
Framboð Flatskjáir hafa tekið við af gömlu túbusjónvörpunum og fást í öllum verðflokkum. Þótt mest seljist af
ódýrum og millidýrum skjáum er fjarri því fáheyrt að dýrustu tækin, sem kosta hátt í milljón króna, seljist á Íslandi.
„Við sjáum alveg verulega breyt-
ingu á milli ára í því hvers konar
tæki fólk er að kaupa,“ segir
Hrannar Pétursson, upplýsinga-
fulltrúi Vodafone.
„Það má segja að sú þróun sem
við byrjuðum að sjá í fyrra haldi
áfram. Þá varð merkjanleg breyt-
ing á kaupum að því leyti að fólk
fór að kaupa vandaðari tæki og
snjallsímar byrjuðu að rjúka út.
Þeir eru frekar nýir á markaðnum
og byrjuðu í rauninni fyrst að koma
sterkir inn í fyrra en á þessu ári
hefur orðið sprenging í sölu á
snjallsímum og þeir eru núna um
það bil helmingur af þeim símtækj-
um sem við seljum.“ Að hluta til má
rekja aukna hlutdeild snjallsíma til
þess að verðbilið er orðið fjölbreytt-
ara og ódýrari tegundir komnar á
markað að sögn Hrannars. „En það
eru samt alls ekki bara ódýrustu
símarnir sem seljast. Við sjáum líka
mjög mikla sölu í efstu gæðaflokk-
unum. Það er mikil sala í Samsung
símtækjunum og iPad.“
Svipað virðist uppi á teningnum
hjá Símanum. Margrét Stef-
ánsdóttir, upplýsingafulltrúi Sím-
ans, segir dýra síma seljast mjög
vel, Samsung Galaxy S II sem kost-
ar 99.900 kr og iPhone símarnir
sem kosta allir vel á annað hundrað
þúsund rjúka út. Snjallsímar eru nú
alls um 55% af heildarsölu símans
og er mikill vöxtur í Android sím-
um, sem eru yfir 40% af öllum seld-
um símum. Margrét segir að spjald-
tölvurnar frá Samsung og iPad,
sem kosta frá 99.000 og upp í tæp
150.000, seljist líka gríðarlega vel.
Dýrir snjallsímar rjúka út og
spjaldtölvur vinna hratt á
Morgunblaðið/Ernir
Snjallsímar Á liðnu ári hefur mark-
aðshlutdeild snjallsíma snaraukist.
Valdimar segir auglýsingar
tvímælaust segja sína sögu um
markaðinn. Færst hefur í
aukana að fyrirtæki auglýsi dýr-
ar vörur og ætla má að fyrirtæki
setji ekki peninga í að auglýsa
slíkar vörur nema þau telji sig
hafa markhóp. „Það er aug-
ljóslega fólk í landinu sem hefur
það ansi gott,“ segir Valdimar.
Breytingin felist kannski fyrst
og fremst í því að lúxus sé ekki
eins mikið „tabú“ og
hann var á tímabili
eftir hrun þegar
áherslan var öll á
sparsemi og nýtni.
„Það er mjög stutt
síðan fólk hefði
farið í felur með og
jafnvel skamm-
ast sín fyrir að
kaupa dýra
hluti.“
Ekki lengur
sama „tabú“
FELULEIKUR MEÐ DÝR KAUP
Valdimar Sigurðsson
Gjafakort er gjöf sem kemur að gagni
Með gjafakorti Íslandsbanka getur viðtakandi
valið sér nákvæmlega það sem hann vill.
Gjafakortið virkar eins og önnur greiðslukort,
þú velur upphæðina ...
Ástin mín fær það
sem hún óskar sér ...
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
1
1
-2
5
4
4