Morgunblaðið - 13.12.2011, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.12.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2011 Kuldinn og jarðbönn valda því að smáfuglar jafnt og margir stærri fuglar reiða sig á matar- gjafir mannfólksins. Margir fóðra fugla við heimili sín og verður þá kornmeti, til dæmis brauðafgangar eða fuglafóður, oft fyrir valinu. Þrösturinn á myndinni átti leið framhjá Bæj- arins bestu í miðborg Reykjavíkur og fúlsaði ekki við pylsunni. Fuglarnir kunna margir að meta feitmeti og orkuríkt fæði í kuldanum. Mikilvægt að muna eftir fuglunum þegar vetur sverfur að Morgunblaðið/Árni Sæberg Þröstur borðar „eina með engu - nema smá klaka“ Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Samkvæmt frumvarpi Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra er áformuð sú breyting á greiðslu at- vinnuleysisbóta um áramótin að eftir 42 mánuði samfellt á bótum, eða í þrjú og hálft ár, detti fólk út í þrjá mánuði. Á þeim tíma þarf það að reiða sig á fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna en getur síðan farið aftur á atvinnuleys- isbætur í níu mánuði. Til þessa hefur verið hægt að vera á atvinnuleysis- bótum samfellt í fjögur ár, og var fimm ár þar áður. Sveitarfélögin eru mjög ósátt við þessi áform en þau fá enga sérstaka greiðslu frá ríkinu vegna þessarar breytingar. Talið er að þetta geti snert um 1.000 manns á næsta ári, flesta strax í vor, og að eftir ár verði sveitarfélögin búin að fá til sín 4-5 þúsund manns af langtímaatvinnu- leysisskrá. Talið er að viðbótarútgjöld sveitarfélaganna vegna þessa séu um 1,5 milljarðar króna. Upphaflega stóð til að miða við 36 mánuði á bótum, þegar næstu þrír mánuðir dyttu út, en stjórnvöld lengdu það viðmið í 42 mánuði til að milda áhrifin. Er talið að atvinnuátak Vinnumálastofnunar og fleiri aðila næsta sumar muni draga úr þörf fólks, sem dettur af atvinnu- leysisskrá þessa þrjá mánuði, til að leita sér aðstoðar hjá sveitarfélögun- um. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, telur að þessi lenging á viðmiðinu muni litlu breyta. „Við reyndum hvað við gátum fram á síðustu stundu að koma í veg fyrir þetta,“ segir Halldór en fulltrúar sveitarfélaganna áttu fundi með fjár- málaráðherra, velferðarráðherra, þingmönnum og loks fjárlaganefnd, þar sem reynt var að fá þessum áformum stjórnvalda hnekkt, en án árangurs. Að sögn Halldórs var m.a. gerð tillaga um að fjármagna þetta með því að sveitarfélögin fengju hluta af tryggingargjaldinu til sín, en á það var ekki fallist. „Þessi kostnaður lendir alfarið á sveitarfélögunum, sem á sama tíma eru með um 20 þús- und starfsmenn að greiða trygging- argjald af inn í Atvinnuleysistrygg- ingasjóð. Við erum gapandi hissa á þessu,“ segir Halldór og bendir á að reynslan sýni að um 80% þeirra sem eru á atvinnuleysisbótum nýti sér fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna. „Fjárhagsaðstoðin er yfirleitt síðasta úrræðið, eiginlega hálfgerð neyðarað- stoð, og við óttumst að fólk muni fest- ast enn frekar í fátæktargildru með þessu,“ segir Halldór og bendir einn- ig á að atvinnulausir hafi í sumum til- vikum ekki átt rétt á fjárhagsaðstoð sveitarfélaga, m.a. vegna tekna maka. Frá hruni hefur fjárhagsaðstoð sveit- arfélaganna aukist um 62% og Hall- dór óttast að sum sveitarfélög eigi mjög erfitt með að taka á sig auknar byrðar. Ljóst sé að einhver önnur þjónusta geti þurft að víkja. Vonast eftir leiðréttingu Atvinnuleysið hefur verið langmest á Suðurnesjum, eða rúm 12%, og Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykja- nesbæ, segir breytingar á fyrirkomu- lagi atvinnuleysisbóta geta haft alvar- legar afleiðingar fyrir sveitarfélagið. Einnig sé þetta heldur ekki mikil bót fyrir fólk sem lengi hefur verið frá vinnu, þar sem bætur séu mun lægri en fjárhagsaðstoð sveitarfélaga hefur numið. Árni gerir sér hins vegar vonir um að þessum áformum verði breytt og þau leiðrétt þannig að höggið fyrir sveitarfélögin verði ekki jafnmikið. Stjórnvöldum eigi að vera vel kunn- ugt hvað geti gerst að öðrum kosti. „Erum gapandi hissa á þessu“  Langtímaatvinnulausir fá ekki bætur í þrjá mánuði og verða að reiða sig á aðstoð sveitarfélaganna  Sveitarfélög ósátt við framkvæmdina  Viðbótarútgjöld 1,5 milljarðar  Bitnar hart á Suðurnesjum Halldór Halldórsson Árni Sigfússon Viðræðum um fjóra kafla, í samnings- viðræðum Íslands og Evrópusam- bandsins, lauk í gær en þá fór fram þriðja ríkjarástefna Ís- lands og ESB í Brussel. Hafa þá alls átta kaflar verið afgreiddir. Utanríkisráðherra, Össur Skarp- héðinsson, ávarpaði ráðstefnuna og fagnaði þeim ákvörðunum sem tekn- ar voru í síðustu viku til þess að styrkja evrusamstarfið og sigrast á skuldavanda einstakra ríkja. Sagði hann m.a. að aðgerðir til að tryggja framtíð evrunnar væru Íslendingum mikilvægar, þar sem þeir stæðu frammi fyrir því að þurfa að velja milli óstöðugrar krónu í höftum eða stöðugrar evru. Ráðherrann sagði einnig að ís- lenskt atvinnulíf hefði frá gildistöku EES-samningsins notið góðs af þátt- töku í verkefnum tengdum atvinnu- og iðnstefnu ESB. Það hefði m.a. styrkt samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja en vöxtur lítilla og með- alstórra fyrirtækja væri lykilatriði í að skapa þau 35 þúsund störf sem þyrftu að verða til á næsta áratug. Luku viðræðum um fjóra kafla á ríkja- ráðstefnu í gær Össur Skarphéðinsson Breytingin á greiðslu at- vinnuleysisbóta er í frum- varpi sem Guðbjartur Hann- esson velferðarráðherra lagði nýlega fram á Alþingi. Frumvarpið er nú til umræðu í velferðarnefnd. Í greinar- gerð með frumvarpinu kem- ur fram að fjölgað hafi veru- lega í hópi langtímaat- vinnulausra. Áætlað er að á næsta ári muni ríflega 2.100 atvinnuleitendur hafa fengið atvinnuleysisbætur í 42 mánuði eða lengur. Sveitar- félögin telja þennan hóp vera stærri. Nær til þús- unda fólks ATVINNULAUSIR Ylfa Kristín K. Árnadóttir ylfa@mbl.is Ástæða þess að sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu verða veittar 350 milljónir til almenningssamgangna árið 2012 í drögum að nýrri samgönguáætlun en ekki einn milljarður, eins og segir í viljayfirlýsingu ríkisins sem undirrituð var í september, er sú að upphaflega var gert ráð fyrir að áætlunin tæki gildi í upphafi árs en henni hef- ur verið frestað fram á haustið. Fjárframlag næsta árs minnkar því í hlutfalli við seinkunina. Í drögunum er gert ráð fyrir að árin 2013 og 2014 renni milljarður til verkefnisins hvort árið. Þetta segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. „Engan bilbug á okkur að finna“ „Það er nokkuð síðan við fórum að ræða um að við myndum hefja átakið þegar liðið væri inn í komandi ár,“ segir Ögmundur. „Það er tvennt sem kemur til; hinar augljósu fjárhagsaðstæður og svo hitt að við tökum tíma til undirbúnings en það er engan bilbug á okkur að finna hvað átakið varðar. Það er m.a.s. grundvallarstef í áherslum í nýrri samgönguáætlun, sem er að koma fyr- ir þingið þessa dagana, að við leggjum meiri áherslu á almenningssamgöng- ur en verið hefur til þessa,“ segir Ög- mundur. Áherslur endurskoðaðar „Það hefur ekki farið framhjá neinum að menn hafa í aðdraganda fjárlaganna verið að endurskoða sitthvað í áherslum, þ.á m. að láta meira fé renna til heilbrigð- ismála og heilbrigðisstofnana en áður hafði verið ráð- gert,“ segir ráðherra. „Þetta er í því samhengi sem ber að skilja þessa breytingu en ekki á þann veg að við séum að hvika frá okkar ásetningi.“ Átaki frestað til hausts  Verja 350 milljónum til almenningssamgangna í stað eins milljarðs sökum frestunar gildistöku samgönguáætlunar Ögmundur Jónasson SKINNY handsturtuhaus verð kr. 1.990.- SPRING sturtuhaus kringlóttur 20 cm verð kr. 9.450.- ESPRITE CARRÉ ferkantaður 20 cm verð kr. 12.400- EMOTION sturtuhaus kringlóttur 10 cm verð kr. 3.990.- STURTUHAUSAR Í ÚRVALI GÆÐI,ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ - ÞAÐ ER TENGI www. tengi.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.