Morgunblaðið - 13.12.2011, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 13.12.2011, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2011 Reykjavíkurtjörn Það eru viss forréttindi að vera ungur og fá aðstoð til að komast leiðar sinnar á ísnum. Kristinn Velferð barna er undir fullorðnum komin. Og aðgerða er þörf, undireins. Ís- land hefur alla burði til að vera leiðandi í heiminum hvað varð- ar uppeldi, næringu og hreyfingu. Við eigum fyrst og fremst að einbeita okkur að því að ala upp einstaklinga sem gera kröf- ur um hollan mat, fjölþætta hreyfingu, kyrrðarstundir og al- menna mannrækt, alla ævi. Við eigum að hefjast handa við að ala upp nýjar kynslóðir sem sætta sig aldrei við það agaleysi sem er við lýði nú um stundir. Neðangreindan texta er að finna í skýrslunni Léttara líf sem inniheldur 67 tillögur um bætt heilbrigði þjóðarinnar með aukinni hreyfingu og hollara mataræði. Skýrslan hefur legið óhreyfð í skúffu í forsætisráðu- neytinu síðan 2006. Ef ekki verður gripið til aðgerða mun þjóðin halda áfram að fljóta sof- andi að feigðarósi. Samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofn- uninni (WHO) eru meira en 22 milljónir barna undir 5 ára aldri of þungar og um 155 milljónir barna á skólaaldri. Í ríkjum Evrópusambandsins eru 14 milljónir skólabarna of þungar, þar af glíma 3 milljónir við of- fitu. Talið er að of þungum börnum í Evrópu fjölgi um 400.000 á ári. Íslensk börn eru meðal feit- ustu barna á Norðurlöndum og eru til að mynda 18% íslenskra 9 ára gamalla barna yfir kjör- þyngd (of feit eða of þung). Lík- amleg áreynsla er börnum nauð- synleg svo þau vaxi eðlilega og öðlist nægan hreyfiþroska, styrk og fimi. Rannsóknir, sýna að lík- amleg áreynsla dregur auk þess úr líkum á geðrænum vanda- málum barna og unglinga, bætir sjálfsmynd þeirra og náms- árangur. Að mati WHO er hægt að fyr- irbyggja 80% tilfella af hjarta- og æðasjúkdómum, 90% af full- orðins sykursýki og 30% af öll- um krabbameinstilfellum með hollu mataræði, nægri hreyfingu og reykleysi. Samkvæmt rann- sókn vísindamanna í Oxfordhá- skóla í Bretlandi kostuðu hjarta- og æðasjúkdómar ríki Evrópu- sambandsins 13.520 milljarða ís- lenskra króna árið 2003. Mælt er með því að forvarn- araðgerðir beinist fyrst og fremst að því að draga úr þeim þáttum í umhverfinu sem stuðla að þyngdaraukningu. Þar vegur þyngst framlag stjórnvalda til að auka hreyfingu og bæta gæði matvæla ásamt aðgengi að holl- um mat. Með aukinni líkamsþyngd, hreyfingarleysi og lélegri nær- ingu versnar heilsan og lífs- gæðin rýrna og sálin lætur und- an með vaxandi þunglyndi. Án góðrar heilsu minnka lífsgæðin. En hvað eru lífsgæði, hvað vilj- um við fá út úr lífinu? Þótt mál- tækið hver er sinnar gæfu smið- ur, sé enn í fullu gildi er því ekki alltaf að heilsa þegar börn eiga í hlut. Þau fæðast inn í mis- munandi aðstæður, öll með margþætta eiginleika, en mótast síðan af foreldrunum, umhverf- inu, fjölmiðlum, skólakerfinu, tómstundastarfi, vinum og vandamönnum. Börnin stjórna því ekki nema að litlu leyti hvort þau neyta nær- ingarríkrar fæðu, hvort þeim gefst kostur á að stunda íþróttir eða annað fé- lagsstarf, hvort sköpunarþrá þeirra fær útrás, hvort þau fá næga örvun og svo mætti lengi telja. Sum börn verða afskipt og njóta ekki þeirrar ástar og umhyggju sem þau þyrftu til að þroskast sem heilsteyptir, kærleiksríkir og meðvitaðir einstaklingar. Sjón- varpið og tölvan er vettvangur allt of margra barna og ung- menna og sumir foreldrar eru afskiptalausir gagnvart því. Foreldrar ættu að hafa tölu- vert um það að segja hvers kon- ar örvunar, umönnunar og nær- ingar börnin njóta í leikskólum og hjá dagmæðrum því lengi býr að fyrstu gerð. Góð næring og fjölbreytt hreyfing er mikilvæg fyrir andlegan og líkamlegan þroska barna. Með réttri nær- ingu fá börnin nauðsynleg nær- ingarefni og hafa orku til að hreyfa sig og stuðla þannig að eðlilegum vexti og þroska. Reikna má með að börn, sem eru fædd fyrri hluta árs og byrja í leikskóla eins árs gömul, dvelji hátt í 9.000 klukkustundir í leikskóla, fram að fyrsta skóla- degi á 6. aldursári. Það er gíf- urlega langur og áhrifaríkur tími á helstu mótunarárum barnanna og þau öðlast lík- amlega, félagslega og sál- fræðilega eiginleika sem móta viðmót þeirra til leiks og náms til frambúðar. Það sem ræður úrslitum um hvað börn borða og hversu mik- ið þau hreyfa sig er margþætt og breytilegt eftir aldri barnanna. Mataræði og hreyfi- venjur fjölskyldna skiptir sköp- um og mótar yfirleitt afstöðu barna til næringar og hreyf- ingar. Ef börn alast upp við það að borða ávexti og grænmeti eru miklar líkur á að þau haldi því áfram alla ævi. Að sama skapi er líklegt að slæmar mat- arvenjur í æsku, svo sem óhóf- leg neysla sykurs og fitu, breyt- ist ekki þótt aldurinn færist yfir. Þá eru foreldrar mikilvægar fyr- irmyndir þegar kemur að hreyf- ingu barna og geta haft mikil áhrif á hversu mikið þau hreyfa sig til framtíðar. Það er engin ein leið að heil- brigðum lifnaðarháttum en mið- að við hvert stefnir í mat- arvenjum og hreyfingarleysi Íslendinga er nauðsynlegt að vekja fólk til vitundar um að allt samfélagið þurfi að taka sér tak. Nauðsynlegt er að mennta- yfirvöld, heilbrigðisyfirvöld, at- vinnulífið og fleiri aðilar taki höndum saman um að auka heil- brigði þjóðarinnar í ljósi þess að frammistaða og afköst aukast ef næring og hreyfing er til fyr- irmyndar. Eftir Þorgrím Þráinsson » Ísland hefur alla burði til að vera leiðandi í heiminum hvað varðar heilbrigt uppeldi, holla nær- ingu og öfluga hreyf- ingu. Við höfum sofið á verðinum. Þorgrímur Þráinsson Höfundur er rithöfundur. Ætlum við að eyðileggja börnin? Síðan ég byrjaði að fylgjast með málefnum framhaldsskóla hefur aftur og aftur komið upp umræða um þörf fyrir fleiri stuttar námsbrautir og að þær geti dregið úr brottfalli frá námi. Ákvæði um framhaldsskólapróf eft- ir eins og hálfs til tveggja ára nám í 16. grein laga um framhaldsskóla (nr. 92/ 2008) eru e.t.v. einhvers konar berg- mál af þessari umræðu. Hugmyndir um að fjölgun stuttra brauta sé gott ráð við brottfalli byggjast þó á fremur hæpnum forsendum. Vandi þeirra sem hætta í skóla án þess að ljúka skil- greindu námi er, að ég held, fremur of fáir kostir á löngu námi en skortur á stuttum námsbrautum. Ég hef starfað við framhaldsskóla í rúman aldarfjórðung og kynni mín af unglingum benda til að flestir vilji klára þriggja til fjögurra ára nám og útskrifast svo með jafnöldrum sínum. Styttri brautir hafa ekki verið fjölsótt- ar af fólki innan við tvítugt þótt víða hafi verið boðið upp á þær. Flestar þriggja til fjögurra ára námsbrautir sem nú standa til boða eru annaðhvort starfsmenntabrautir, sem búa fólk undir tiltekið og afmark- að starf, eða fremur strembnar bók- námsbrautir til stúdentsprófs, sem eru einkum undirbúningur fyrir akadem- ískt nám í háskóla. Það er vart við því að búast að allur þorri þeirra unglinga sem ekki sækja í hefðbundið mennta- skólanám sé tilbúinn að velja eina til- tekna starfsgrein. Marga þeirra lang- ar í breiðari menntun og flestir þeirra vita vel að störfin sem bjóðast í fram- tíðinni munu fæst falla að sérgreinum, sem voru skilgreindar fyrir margt löngu af mönnum sem verða dauðir þá, ef þeir eru það ekki nú þegar. Það vantar líklega meira framboð af almennu námi sem býr fólk ekki undir tiltekið starf heldur opna og óvissa prófs eftir tveggja til fjögurra ára starfstengt nám eða listnám, en sú leið var aðeins fyrir þá sem luku sérhæfðu starfs- eða listnámi. Með nýrri Aðal- námskrá, sem var gefin út í vor á þessu ári, fá skólar aftur svigrúm, eins og þeir höfðu fyrir 1999, til að bjóða fleiri kosti á námi til stúdentsprófs. Ég held að heppilegt sé að nýta þetta svigrúm til að afnema aðskiln- aðarstefnuna alveg og skilgreina allt framhaldsskólanám sem nám til stúd- entsprófs. Nú kann einhver að segja að með þessu hljóti að vera horfið frá því að stúdentspróf dugi til inngöngu í há- skóla. Því er til að svara að nú þegar fer fjarri að öll stúdentspróf dugi til inngöngu í hvaða háskóladeild sem er – enda tæpast vit í öðru en þær setji hver sín inntökuskilyrði sem geta t.d. verið svo og svo margar námseiningar í tilteknum greinum (eins og er þegar gert í verkfræði við Háskóla Íslands) eða árangur á inntökuprófi (eins og í læknadeild Háskóla Íslands og leik- listar- og dansdeild Listaháskóla Ís- lands). Verði þessi breyting gerð á næstu árum munu skólar útskrifa suma með stúdentspróf af félagsfræða-, mála- eða náttúrufræðibraut og aðra með stúdentspróf í iðngreinum eins og húsasmíði eða hársnyrtiiðn og enn aðra með stúdentspróf þar sem áhersla er lögð á listir, íþróttir eða hvað annað sem menntar fólk og bæt- ir. Það verður þá væntanlega tekið að líta á það sem sjálfsagðan hlut að ungt fólk klári þriggja til fjögurra ára fram- haldsskólanám og útskrifist með stúd- entspróf. framtíð. Slíkt nám á meira skylt við hefðbundið stúd- entsnám en eiginlegt starfsnám, en þarf samt ekki allt að vera jafn- bundið bóklegum fræðum og stúdentsnám er nú um stundir. Listir, handverk, félagsmál, íþróttir og þroskandi vinna geta vel verið drjúgur hluti þess. En það þarf að njóta virð- ingar og hafa tilgang og til þess er best að það sé af fullri lengd og heiti það sama og annað nám á framhalds- skólastigi. Ég hugsa að heppilegast sé að móta námsleiðir af þessu tagi án þess að umturna að ráði þeim starfsmennta- og bóknámsbrautum sem fyrir eru og miða við að upp til hópa ljúki ungling- ar þriggja til fjögurra ára námi í fram- haldsskóla og útskrifist eftir það með próf sem kallast stúdentspróf. Um og upp úr miðjum áttunda ára- tug síðustu aldar voru stofnaðir fjöl- brautaskólar víða um land, sums stað- ar með samruna gagnfræða- og iðnskóla. Á þessum tíma var um það rætt að í þeim yrði engin aðgreining á bóknámi og verknámi. Reyndin varð samt sú að gera greinarmun á stúd- entsprófi og öðrum lokaprófum eins og hefðbundið var. Þessi mannamunur var, og er enn, undirstrikaður með því að stúdentar bera hvíta húfu þegar þeir útskrifast en aðrir eru ýmist húfu- lausir eða með höfuðfat í öðrum lit. Á árunum frá því um 1980 fram til 1999 var þessi gamalgróna aðgreining milduð nokkuð með fjölgun stúdents- brauta sem höfðuðu til æ breiðari hóps. Undir aldarlok voru t.d. víða komnar íþrótta-, tónlistar- og tækni- brautir til stúdentsprófs. Árið 1999 tók gildi Aðalnámskrá sem stöðvaði þessa þróun og kvað á um að bóknáms- brautir skyldu aðeins þrjár (þeim var svo fjölgað í fjórar nokkrum árum seinna) og allar með þunga áherslu á undirbúning fyrir akademískt nám. Námskráin frá 1999 opnaði að vísu leið til að klára viðbótarnám til stúdents- Eftir Atla Harðarson » Öllum námsbrautum framhaldsskóla ætti að ljúka með stúdents- prófi eftir þriggja til fjögurra ára nám. Atli Harðarson Höfundur er skólameistari við Fjöl- brautaskóla Vesturlands. Nám til stúdentsprófs fyrir alla unglinga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.