Morgunblaðið - 13.12.2011, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 13.12.2011, Blaðsíða 30
Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Kvöldlokkur á jólaföstu er yfir- skrift tónleika Blásarakvintetts Reykjavíkur og félaga sem fram fara í Fríkirkjunni í kvöld kl. 20.00. „Þetta er í 31. sinn sem við höldum aðventutónleika okkar. Það er stór- kostlegt að vera ennþá að,“ segir Einar Jóhannesson klarínettuleik- ari. Bendir hann á að starfsemi kvintettsins hafi eðlilega dregist nokkuð saman eftir að Bernharður Wilkinson flautuleikari fluttist til Færeyja. „Ef við fáum boð um að spila og Benni getur ekki komið þá hefur Hallfríður Ólafsdóttir hlaupið í skarðið. En við erum dálítið íhaldssamir og viljum helst halda hópinn meðan stætt er,“ segir Ein- ar. Þess má geta að fyrr á árinu lék Blásarakvintett Reykjavíkur í Lugano í Sviss með Vovka Ashken- azy píanóleikara og innan skamms er væntanlegur diskur kvintettsins þar sem leikin eru verk eftir W.A. Mozart, L. Beethoven og Franz Danzi, en diskurinn er gefinn út í Japan. Slagarar þess tíma Spurður um efnisskrá kvöldsins segir Einar að fluttar verði seren- öður eða kvöldlokkur fyrir átta blásara, þ.e. tvær klarínettur, tvö óbó, tvö fagott og tvö horn, eftir annars vegar Mozart og hins vegar Beethoven. Auk þess verða flutt lög úr Töfraflautunni eftir Mozart sem eru útsett fyrir blásaraoktett. „Þetta eru útsetningar frá tíma tónskáldsins sem urðu slagarar þess tíma og voru spilaðar úti í „Allir fara mjög glaðir heim“  Blásarakvintett Reykjavíkur og félagar leika í Fríkirkjunni í kvöld kl. 20.00  Á efnisskránni eru m.a. kvöldlokkur eftir W.A. Mozart og L. Beethoven Morgunblaðið/Golli Aðventutónleikar Blásarakvintett Reykjavíkur ásamt Vovka Ashkenazy. Kvintettinn er skipaður Jósef, Daða, Bernharði (en Hallfríður hefur reglulega hlaupið í skarðið fyrir hann), Einari og Hafsteini. görðum og heldri manna sölum. Þannig gat alþýðan kynnst óp- erutónlistinni og aríunum. Þetta eru stutt og grípandi atriði, en flestir þekkja þessa tónlist.“ Að sögn Einars er komin hefð fyrir því að ljúka tónleikunum á Ave verum corpus eftir Mozart, en það er lítil mótetta sem hefur verið útsett fyr- ir blásaraoktett. „Þetta er tónlist sem smýgur inn í innstu sál- arkirnur þannig að allir fara mjög glaðir heim,“ segir Einar. Að- spurður segir hann að með árunum hafi myndast fastur kjarni áheyr- enda sem mæti alltaf á aðventu- tónleika Blásarakvintettsins. „Og sumir segja að jólin komi ekki fyrr en þeir hafa heyrt kvöldlokkurnar,“ segir Einar og tekur fram að sér þyki vænt um það. Hópurinn mun einnig flytja Lit- anei eftir F. Schubert. „Með þeim hætti viljum við minnast Gunnars Egilsonar klarínettuleikara og fyrr- verandi tónlistarstjóra Sinfón- íuhljómsveitar Íslands, en hann lést nú á haustmánuðum. Hann var einn af þessum brautryðjendum sem lögðu ótrúlega hart að sér við að koma hér upp öflugu tónlistar- lífi, tónlistarskólum og sinfón- íuhljómsveit,“ segir Einar og tekur fram að Gunnar hafi einnig verið ötull baráttumaður fyrir byggingu tónlistarhúss og því hafi verið ánægjulegt að hann náði að upplifa alla dýrðina í Hörpu áður en hann lést. Þess má að lokum geta að gestir Blásarakvintettsins í kvöld eru þeir Sigurður I. Snorrason sem leikur á klarínettu, Peter Tompkins á óbó, Rúnar Vilbergsson á fagott og Þorkell Jóelsson á horn. 30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2011 Upp á líf og dauða er góðurtitill á fróðlegri bók, semlætur ekki mikið yfir sér.Þrír höfundar fyrir norð- an leggja í púkk og segja frá því hve harðsótt sjómennska getur orðið. Fjarri fer að alltaf sé koppalogn á sjónum og uppgrip að hafa. Sjósókn fylgja mannraunir og miskunn- arleysi. Í bók þessari, sem frekar ætti kannski að kalla kver, segir Jón Hjaltason sagnfræðingur frá því þegar Akureyrartogarinn Harð- bakur lenti í ótrúlegum ofsa Ný- fundnalandsveðursins í febrúar 1959. Vindhraðinn fór í hundrað hnúta, átján metra öldur risu og því fylgdi mikil ísing sem hafði nánast kaffært skipið. „Ofsafengin barátta er háð við veðurguðina,“ segir í kafla sem er fróðlegur og spennandi. Og það eru hinir kaflarnir líka. Sigurður Ægisson skrifar um það er Siglufjarðartogarinn Elliði fórst út af Öndverðanesi í febrúar 1962 – og með honum tveir menn þó aðrir í áhöfninni björguðust nánast fyrir heppni – eða sakir forsjónar. „Þótti björgunin ævintýri líkust, sem hún jú var,“ segir höfundur. Þá er sömuleiðis fengur í viðtali Júlíusar Kristjánssonar á Dalvík við Gylfa Björnsson á Dalvík sem horfði á eftir vinum sínum út í veðurofsa og bjargaðist sjálfur með félaga sínum naumlega í aprílveðrinu 1963, sem kostaði sextán sjómenn af fjórum skipum lífið. Er frásögn Gylfa sér- staklega áhrifamikil – þar sem hann lýsir öllum þeim hugsunum sem á hann leituðu úti á úfnu hafi og ekki síður í eftirleiknum. Óhætt er að mæla með bókinni Upp á líf og dauða. Þetta er vel skrif- uð alþýðusagnfræði af atburðum sem þurfa að lifa í minni manna. Til bóta hefði verið að koma með ör- stuttan útdrátt um alla helstu mála- vexti og á það sérstaklega við t.d. um kafla Júlíusar Kristjánssonar – sem klárlega hefði mátt vinna betur og gera efnismeiri. Það rýrir nokkuð gildið að frásagnir þessar skuli að- eins vera í litlu kveri, því efnið hefði staðið undir veglegri bók. Upp á líf og dauða bbbnn Höfundar: Sigurður Ægisson, Júlíus Kristjánsson og Jón Hjaltason. Völuspá, Akureyri, 2011. 72 bls. SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON BÆKUR Mannraunir og miskunnarleysi Jón Hjaltason Sigurður Ægisson Júlíus Kristjánsson Sigrún Guð- mundsdóttir myndlist- armaður, sem starfar í Rotter- dam, mun fjalla um list sína og þróun hennar í listamannaspjalli í Flóru í Lista- gilinu á Akureyri í kvöld, þriðju- dagskvöld, klukkan 20.00. Sigrún hefur undanfarið dvalið í gesta- vinnustofunni og hélt í lok nóv- ember sýninguna Ókyrrð í Populus Tremula. Myndlistarfélagið, Gesta- vinnustofan og Flóra standa að listamannsspjalli Sigrúnar. Sigrún kynn- ir list sína Sigrún Guðmunds- dóttir við verk sitt. Jólaandinn ríkir þessa dagana í Tjarnarsal Ráð- húss Reykjavík- ur, þar sem standa 52 jólatré fagurlega skreytt með um- hverfisvænum jólaskreytingum sem nemendur nokkurra skóla gerðu. Alla daga fram að jólum lesa rithöfundar og þýðendur úr verk- um sínum í salnum. Í dag kl. 13.00 mæta Viðar Hreinsson, sem les úr bók sinni Eldhugi við ysta haf um Bjarna Þorsteinsson, Ólafur Gunn- arsson, sem les úr Meistaraverkinu og fleiri sögum, og Elín Hirst og Guðrún Ebba sem lesa úr bókinni Ekki líta undan. Lesa upp í Ráðhúsinu Viðar Hreinsson Blásarakvintett Reykjavíkur var stofnaður árið 1981 af núver- andi meðlimum hans sem eru Bernharður Wilkinson er leikur á flautu, Daði Kolbeinsson á óbó, Einar Jóhannesson á klar- ínettu, Hafsteinn Guðmundsson á fagott og Jósef Ognibene á horn. Þeir eru allir fastráðnir hljóðfæraleikarar við Sinfón- íuhljómsveit Íslands, nema Bernharður sem býr og starfar í Færeyjum. Blásarakvintett Reykjavíkur STOFNAÐUR ÁRIÐ 1981 Þann 4. janúar kemur út glæsilegt sérblað um menntun, skóla og námskeið sem mun fylgja Morgunblaðinu þann dag MEÐAL EFNIS: Háskólanám. Verklegt nám og iðnnám. Endurmenntun. Símenntun. Listanám. Sérhæft nám. Námsráðgjöf og góð ráð við námið. Kennsluefni. Tómstundanámskeið og almenn námskeið. Nám erlendis. Lánamöguleikar til náms. Ásamt fullt af öðru spennandi efni. –– Meira fyrir lesendur PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, miðvikudaginn 21. des. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Sími: 569-1105 Í blaðinu verður fjallað um menntun og þá fjölbreyttu flóru sem í boði er fyrir þá sem vilja auðga líf sitt og möguleika með því að afla sér nýrrar þekkingar og stefa því á nám og námskeiða. Skólar & námskeið SÉRBLAÐ Skólar & námske ið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.