Morgunblaðið - 13.12.2011, Side 11

Morgunblaðið - 13.12.2011, Side 11
Ljósmynd/Gísli Harðarson Úr boðgöngu Á Skíðamóti Íslands apríl 2011. Gunnar Birgisson gekk fyrsta sprett fyrir Ull og er hér fremstur. Þarf að ná góðu jafnvægi Þóroddur segir að skíðagöngu sé hægt að skipta í flokka. „Sumir eru á svokölluðum ferðaskíðum, sem er breiðari gerð skíða, oftast með stálköntum og á þeim er hægt að fara nánast hvert sem er. En svo er sá hópur sem við stílum inn á, þeir sem vilja ganga í spori, en þá er búið að troða og þjappa snjóinn og leggja skíðaspor sem eru sniðin fyrir mjórri skíði. Þá er miklu meiri hraði en alla jafna á ferðaskíðum og þörf á meiri tækni, ég vil meina að fólk fái miklu meira út úr því líkamlega heldur en að ganga á ferðaskíðum en ég hef einn- ig mikla ánægju af að fara um á þeim,“ segir Þóroddur og bætir við að allir geti lært að ganga á skíðum. „En það þarf að ná töluverðu jafn- vægi, sem er hægt að bæta t.d. með því einfaldlega að standa á öðrum fæti og sveifla hinum og styrkja þannig ökkla og hné, en best er auð- vitað að skreppa á skíðin sem oftast. Einnig er mikilvægt að fólk komist á námskeið og fái tilsögn í grundvall- aratriðum. Ullur ætlar að reyna að bjóða upp á slíkt eftir áramótin, að- allega uppi í Bláfjöllum en hugs- anlega líka hér á höfuðborgarsvæð- inu ef snjóalög leyfa.“ Mikilvægt að leggja spor víða Ullur hefur verið að vinna að því að innan höfuðborgarsvæðisins verði lögð skíðaspor eins og gert var fyrir nokkrum árum. „Til dæmis er á vegum GKG oft lagt spor á golf- vellinum í Garðabæ og einnig hafa þeir hjá skógræktinni í Heiðmörk lagt spor þegar þeir hafa tíma. Þar er reyndar mikil hefð fyrir því að ganga án skíða og þetta tvennt fer ekki saman, því skíðasporið skemmist ef fólk fer í það fótgang- andi. Hefðin er hjá göngufólki í Heiðmörkinni og við viljum alls ekki vera í samkeppni um göngu- stígana. En við höfum verið að ræða við þá í Heiðmörk um nýjan stíg sem verið er að leggja, að hann verði frá byrjun eingöngu ætlaður til skíðagöngu. Við erum líka í við- ræðum við Hjálparsveit skáta í Kópavogi um að afla leyfa til að leggja spor í Fossvogsdalnum og kanna hvort þeir geta notað vél- sleða sína við það, en það er mjög mikilvægt að leggja spor sem víð- ast innan höfuðborgarsvæðisins. Við höfum líka gert smá tilraun með að nota sexhjól við að draga sporann. Á kvöldin og um helgar sér maður fólk hér og þar á ferðinni á gönguskíðum, meðfram strönd- inni, í Laugardalnum og víðar.“ Reglulegar æfingar „Við höfum verið með æfingar á þriðjudögum, fyrst á hjólaskíðum í haust í borginni en eftir áramót verða æfingar væntanlega tvisvar í viku. Þær verða einkum hugsaðar fyrir þá sem vilja æfa fyrir Íslands- gönguna, Vasagönguna og annað slíkt. En einnig er stefnt að nám- skeiðum fyrir þá sem vilja fá tilsögn í grundvallaratriðum,“ segir Þór- oddur og bætir við að 35 Íslend- ingar séu skráðir í Vasagönguna á næsta ári í Svíþjóð og að líklega fari átta einstaklingar úr Ulli í gönguna. Birgir keppir á vetrar- ólympíuleikum ungmenna Tvær meginaðferðir eru not- aðar í skíðagöngu. „Í hefðbundinni göngu er gengið í spori en með frjálsri aðferð er skautað á svæði þar sem eru engin spor. Á mótum er síðan einnig keppt í boðgöngu og er- lendis einnig í skíðaskotfimi sem mörgum finnst ein skemmtilegasta skíðakeppnin til að horfa á í sjón- varpi, auk svokallaðrar sprett- göngu, sem gæti í raun farið fram í miðbænum ef snjórinn væri til stað- ar.“ Gunnar Birgisson er 17 ára fé- lagi í Ulli og hann hefur verið valinn til að keppa í skíðagöngu fyrir Ís- lands hönd á fyrstu Vetrarólymp- íuleikum ungmenna sem haldnir verða í Innsbruck 13.-22. janúar á næsta ári. „Gunnar er afreksmaður og hefur staðið sig feikilega vel. Hann er nánast fæddur á skíðum, pabbi hans mikill skíðamaður og Sævar bróðir hans er í landsliði full- orðinna.“ www.ullur.is www.ullur.wordpress.com DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2011 Aðsókn í Berlínarmaraþonið haustið 2012 hefur slegið öll met en nú þegar er orðið fullbókað í maraþonið. Þau 40.000 rásmerki sem í boði voru seldust upp á mettíma. Yfirleitt hefur fólk getað skráð sig fram á vor en nú er sumsé orðið uppselt, níu mán- uðum áður en maraþonið á sér stað. Einhverja miða ku þó enn vera hægt að fá í gegnum ferðaskrifstofur. Þetta kemur fram á vefsíðu danska dagblaðsins Politiken. Berlínarmaraþonið er eitt það vin- sælasta í heimi og var hlaupið í fyrsta sinn í október árið 1974. Hraðast hef- ur Berlínarmaraþonið verið hlaupið á tveimur klukkustundum, þremur mínútum og 38 sekúndum. Tíma- mörkin eru þó upp í sex klukkustund- ir og korter. Aðsóknarmet Morgunblaðið/Eggert Reykjavíkurmaraþon Fjölmargir hlaupa og æfa fyrir maraþon víða um heim. Fullbókað í Berlínarmaraþonið Á heimasíðu Frjálsíþróttasambands Íslands kemur fram að nýjar keppnis- reglur í frjálsíþróttum séu komnar út. Þetta er í 22. sinn sem þær eru gefn- ar út á íslensku og í 15. sinn sem Birgir Guðjónsson hefur veg og vanda af útgáfu og þýðingum á þess- um reglum. Reglurnar eru birtar á heimasíðu FRÍ og hægt að skoða og prenta út í pdf-formi. Vakin er sér- stök athygli á breytingum á keppnis- áhöldum í flokki 16-17 ára stúlkna. Þar er þyngd áhalda breytt. Spjót verður 500 g, kúla og sleggja 3 kg. Allar breytingar á keppnisreglum taka gildi 1. janúar 2012, en nokkrar mikilvægar breytingar tóku gildi 1. nóvember síðastliðinn. Nýjar keppnisreglur í frjálsíþróttum Morgunblaðið/Kristinn Öflug Helga Margrét Þorsteinsdóttir býr sig undir að varpa kúlunni. Kúla og sleggja verða 3 kíló G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | w w w. h e y r n a r t æ k n i . i s Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu í síma 568 6880 og fáðu Intiga til prufu í vikutíma Intiga eru ofurnett heyrnartæki og hönnuð með það fyrir augum að gera aðlögun að notkun heyrnartækja eins auðvelda og hægt er. Hljóðvinnslan er einstaklega mjúk og talmál verður skýrara en þú hefur áður upplifað. Með Intiga verður minna mál að heyra betur í öllum aðstæðum! *Í flokki bak við eyra heyrnartækja sem búa yfir þráðlausri tækni og hljóðstreymingu Heyrnartækni kynnir ... Minnstu heyrnartæki í heimi*

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.