Morgunblaðið - 13.12.2011, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.12.2011, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2011 ✝ Klara Klængs-dóttir fæddist í Reykjavík 24. ágúst 1920. Hún lést að Hlaðhömrum 30. nóvember 2011. Klara var dóttir hjónanna Rann- veigar Eggerts- dóttur, frá Stapa í Tálknafirði, sem lést 1981 og Klængs Jónssonar, frá Árbæ í Ölfusi, sem lést 1920. Bróðir Klöru var Gunnar Klængsson, fæddur 29. október 1914, látinn 28. júní 1986. Klara fluttist að Álafossi með móður sinni eftir andlát föður aldur. Ætla má að Klara hafi kennt fleiri Mosfellingum að lesa en nokkur annar kennari. Klara bjó að Brúarlandi allan sinn starfstíma sem kennari og tók virkan þátt í lífi sveitunga sinna. Henni var falið að synda vígslusund Varmárlaugar 17. júní 1964 og var heiðursgestur við vígslu nýrrar sundlaugar Mosfellsbæjar, Lágafellslaug, 43 árum síðar, eða árið 2007. Nokkru eftir að Klara lauk starfsferli sínum við Varmárs- kóla flutti hún í íbúðir aldraðra að Hlaðhömrum og naut þar einstakrar umhyggju og umönnunar starfsmanna og undi hag sínum vel. Klara Klængsdóttir var ógift og barn- laus. Útför Klöru Klængsdóttur verður gerð frá Lágafellskirkju í dag þriðjudaginn 13. desember 2011, og hefst athöfnin klukkan 14. en bróðir hennar fór í fóstur. Klara ólst upp hjá móður sinni og var á yngri árum mikil sund- kona, setti ýmis Ís- landsmet og kenndi meðal annars sund fimmtán ára gömul við gömlu sund- laugina á Álafossi. Klara útskrifaðist frá Kennaraskóla Íslands árið 1939 og hóf það haust kennslu við Brúarlands- skóla. Klara starfaði síðan við barnakennslu og sundkennslu við Brúarlandsskóla og síðar Varmárskóla allan sinn starfs- Elsku Klara. Fá hef ég skrifað þér bréfin árin sem við höfum þekkst, en þau má mæla þannig að nú er ég jafngömul og þú varst þegar ég sá þig fyrst 1983. Árin eru líka nokkurn veginn jafn mörg og ég átti með mömmu minni. Þú varst þá dekkri á hár, grönn og nokkuð stórskorin í andliti og augun horfðu rannsakandi á þessa barnsmóður Gunnars frænda þíns. Gunnar var þér kær sonur bróður þíns og hafði margoft dvalið á Brúarlandi í Klörusveit sem barn. Þið náðuð svo vel saman í þurrum húm- ornum, þú kunnir líka þá list að vera ekki að gera veður út af engu og sjá það skondna í til- verunni. Runólfi mínum 4 ára tókstu strax af alkunnri ljúf- mennsku þinni, Kötlu litlu og síðar Klængi á sama hægláta en ákveðna hátt. Þau brostu og elskuðu þig á móti. Ég á mynd í huga mér þar sem þú situr við tjaldborð fyrir kirkjudyrum Landakotskirkju og skálar við okkur í kampavíni, raketturnar fljúga um og kirkjuklukkurnar hringja inn nýja öld. Sömuleiðis í samkvæmisleik, einnig á gaml- árskvöld, þá áttirðu að geta hver þú varst. Það tókst í fyrstu atrennu: er ég kona, núlifandi, þekkt af mörgum? Svarið lá strax á vörum þínum: er ég El- ísabet Englandsdrottning? Drottning varstu. Í kennslu- stofunni þar sem þú kenndir fjölmörgum á löngum kennara- ferli að lesa, skrifa og reikna. Í sundlauginni þar sem þú gerðir Mosfellinga synda. Þú ríktir í lokin ein á Brúarlandi, á erfiðu tímabili í lífi þínu, en varðst síð- an miðpunktur við borðið á Hlaðhömrum. Hlaðhamrar voru þitt athvarf í ellinni, allir boðnir og búnir að aðstoða þig. Mar- gréti verður seint þakkað sem skyldi og frú Valgerður, eins og þú kallaðir forstöðukonuna vakti yfir öllu. Betra dvalar- heimili finnst ekki, þar leið þér vel og allt gert fyrir þið nema eitt, eins og þú orðaðir það sjálf „að gifta þig“. Klara, þú ert órjúfanlegur þáttur af okkar lífi og okkur efst í huga, gæska þín, góðvild, skemmtilegheit, jákvæðni og artarsemi. Þú fórst með reisn, við sökn- um þín. Vertu ævinlega blessuð og sæl. Þín, Móeiður Gunnlaugsdóttir (Móa.) Elsku Klara okkar, Klara frænka. Hversu margar góðar minn- ingar eigum við ekki um dvölina hjá þér í uppvextinum, bæði á Laugaveginum og á Brúarlandi. Þú varst drottning í eðli þínu og svo varstu náttúrulega sundd- rottning í orðsins fyllstu merk- ingu. Allt sem þú áttir var eðal, pelsarnir í fatskápnum, allar silkislæðurnar vandlega brotnar saman í röðum. Þú kenndir okk- ur endalausar gátur, 10 toga fjóra.. kenndir okkur að prjóna, sast með okkur við að teikna. Dagarnir voru langir og hægir, hraði dagsins í dag náði þér aldrei, á veggnum gekk klukkan sín hægu skref, eilífð, eilífð… Við lögðum okkur um eftirmið- daginn, það var notalegt og verndandi að kúra í skjóli þínu en maður mátti alls ekki hreyfa sig, varð að liggja alveg kyrr og hlusta á andardráttinn og þögn- ina. Að skoða í búrið þitt var leyndardómur sem enn er ljós- lifandi í minningunni og fylgir okkur alla tíð. Allir litlu heillandi og barnslegu hlutirnir sem þú safnaðir að þér, kúlu- spilið sem klingdi á baðherberg- ishurðinni, hefðardaman með hvolpana sína, bangsarnir og brúðurnar, allt var þetta svolítið eins og af öðrum heimi, eins og þú. Þú varst landsfræg fyrir Klörusokkana þína og við syst- urnar vorum öfundaðar af þeim, þessum fallegu, litríku, útprjón- uðu sokkum sem við höfðum endalausan aðgang að. Öll börn- in í fjölskyldunni nutu þess að læra eitthvað af þér enda varstu barnakennari allt þitt líf. Síðast var það Kría litla sem skynjaði glæsileika þinn og reisn. Hún vildi líkjast þér, hún dáðist að bleikrósóttu kjólunum þínum. Hún var kvefuð í vor og mamma setti slæðu um hálsinn, þá sagði Kría „Þá verð ég svona fín eins og Klara“. Elsku Klara, við kveðjum þig með þökkum fyrir þá góðu reynslu og minningar sem þú gafst okkur, sem við berum áfram með okkur. Við kveðjum liðna tíð með söknuði, því nú er ákveðnum kafla lokið. Rannveig og Margrét. Allt frá því að ég man eftir mér hefur komið yfir mig sér- stakur ljómi þegar nafn Klöru Klængsdóttur hefur verið nefnt og ég held að ég sé ekki einn um það. Klara hóf kennslustörf í Brúarlandi hjá afa mínum, Lárusi Halldórssyni, veturinn 1939-40, þá aðeins 19 ára göm- ul, áður hafði hún verið þar nemandi. Hún kenndi móður minni að lesa og kenndi með föður mínum, bæði í Brúarlandi og Varmárskóla. Góð vinátta ríkti alla tíð á milli Klöru og fjölskyldu minnar og naut hún mikillar og verð- skuldaðrar virðingar. Klara var engum lík og einstakur kennari. Án vafa er hún mjög minnis- stæð öllum þeim sem nutu hennar leiðsagnar. Þrír ættliðir lærðu að lesa hjá Klöru hér í bæjarfélaginu og einnig var hún um tíma sundkennari, lærði móðir mín m.a. að synda hjá henni í gömlu Álafosslauginni hér á árum áður. Nú styttist í jólin og langar mig hér að nefna eina af mörg- um eftirminnilegum jólagjöfum frá Klöru. Meðal þessara fal- legu gjafa hennar voru jóla- sveinar, skornir út í pappa, og eru þeir okkur systkinunum ávallt minnisstæðir og í miklu uppáhaldi. Jólasveinarnir gömlu og fallegu minna okkur alltaf á Klöru og munu gera um ókomna tíð. Fallegar gjafir gleðja en upp úr standa alltaf góð kynni af einstakri mann- eskju sem lét veraldleg gæði aldrei hafa áhrif á sitt líf. Hlýja brosinu og fallega hjartalaginu gleyma engir sem kynntust Klöru. Blessuð sé minning Klöru Klængsdóttur. Karl Tómasson. Ég held að það hafi verið um haustið árið 1942 sem fundum okkar Klöru bar fyrst saman, er ég feimið einbirni frá Leirvog- stungu var að fara í skóla í fyrsta sinn. Þetta skólaár vorum við nem- endur hennar 15 talsins, þetta voru krakkar víðs vegar að úr sveitinni, af bæjum í Mosfells- dal, Reykjahverfi og Suðursveit og víðar. Þá var Mosfellshrepp- ur víðfeðmari en í seinni tíð, hann náði niður að Elliðaám fyrir 88 árum síðan og oddvit- inn bjó í Grafarholti til ársins 1946. Um þetta leyti og í mörg ár eftir þessi fyrstu voru ekki sérstakir skólabílar til að koma börnum að og frá skóla. Um þetta leyti var Brúar- landsskólinn og umhverfi hans hersetið, eins og víðar í Mos- fellshreppi um þessar mundir, en það hafði ekki teljandi áhrif á skólahaldið. Það er skemmst frá því að segja að frá fyrstu tíð urðum við Klara góðir vinir sem varði þar til yfir lauk. Þessu var hald- ið við með árlegum jólakveðj- um, það var unun að lesa kortin frá henni, þar var einatt eitt- hvað sérstakt, hún var lista- skrifari. Hún var mjög góður kennari og kenndi krökkunum strax hvernig átti að halda á blýanti og penna við skriftir, vísifing- urinn átti að vera beinn. Það var ekki hennar stíll að nemendur hefðu vísifingurinn krepptan inn í lófann eins og al- gengt er að sjá nú til dags. Við hefðum ekki komist upp með það hjá henni. Hún kenndi einnig sund í Álafosslauginni og svo þegar ár- in liðu kenndi hún við unglinga- skólann sem ég fór í eftir barnaskólann ásamt nokkrum mér eldri nemendum sem not- færðu sér þessa nýbreytni. Sund lærði ég ekki að ráði hjá Klöru, nema nokkrum sinnum í rólunni sem hún hafði á okkur fyrst í stað meðan sundtökun- um var náð. Ég greindist með snert af berklum og var bannað að fara í sund og skóla í hálft annað ár. Á þessu erfiða tímabili heima komu krakkarnir úr bekknum hennar Klöru með bókina um Bláskjá eftir Franz Hoffmann til að stytta mér stundir, fag- urlega áritaða af henni „Frá yngri deildinni í Brúarlands- skóla“. Þetta var Klara Klængs- dóttir Mér er alltaf minnisstætt þegar jólatrésskemmtanirnar voru haldnar í salnum í Brú- arlandskjallaranum við hliðina á kennslustofu Klöru, þá voru yf- irhafnir okkar og foreldra geymdar á efri hæðinni, í kennslustofunni hans Lárusar, þar gat að líta hillu á aust- urveggnum hvar var röð af upp- stoppuðum fuglum, þvílík dýrð. Í þessari kennslustofu, hjá fuglunum, nam ég seinna eftir dvölina hjá Klöru. Ég nefndi í upphafi að ég hefði verið feiminn, dæmi um það er að ég sat á kexkassa frá Frón bak við hurðina í eldhús- inu í Brúarlandskjallaranum, en mamma var þar ásamt fleiri kvenfélagskonum sem sáu um jólatrésskemmtunina. Það fór af þegar Klara sótti mig og gekk með mér kringum jólatréð inn í sal. Þetta var Klara Klængs- dóttir. Að lokum tek ég mér það bessaleyfi að mæla fyrir hönd nemenda hennar á þessum ár- um. Við erum öll bættari eftir ár- in með þér. Haf þú kæra þökk, far þú í friði, Guðmundur Magnússon. Kveðja frá Vorboðum Við komum hér glaðir á góðvinafund, til gamans við gleði og söng og huga við lyftum á hverfandi stund frá hversdagsins ys og þröng. En stundin er liðin, hún leið svo hratt við ljóðhreim og strengja slátt, Því kveðjumst við öll meðan allt er glatt, og aftur við hittumst brátt. (Freysteinn Gunnarsson.) Kór eldri borgara í Mos- fellsbæ hefur nú starfað í rúm 20 ár og félögum fækkar sem komu þar fyrst að málum. Klara Klængsdóttir var ein af þeim sem tóku þátt í því góða starfi og hefur fylgt kórnum eftir og hvatt kórfélaga til dáða, samt stóð hún aldrei á palli með kórnum en fylgdi honum eftir nánast hvert sem hann fór og á æfingum sat hún fyrir aftan kórinn og söng með og kór- félagar nutu hennar góðu nær- veru. Klara Klængsdóttir hafði svo sannarlega góða nærveru, alltaf jákvæð og glöð og svo var hún kennarinn sem hafði kennt þremur og jafnvel fjórum ætt- liðum hér í Mosfellsbæ og þeir eru fáir sem ekki þekktu Klöru. Nú er Klara okkar farin til Sumarlandsins og örugglega búin að finna kór til að styðja við bakið á en við Vorboðar munum sakna hennar og geyma minningu um sérstaka konu í hjörtum okkar, ættingum og vinum sendum við innilegar samúðarkveðjur. F.h. Vorboða, Úlfhildur Geirsdóttir formaður. Klara Klængsdóttir Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Gisting Gisting allt árið í notalegum bústöðum Heitir pottar og notalegheit. Þú átt það skilið að slappa af fyrir jólin. Fjölskyldur og hópar. Minniborgir.is Gisting á góðum stað. Upplýsingar í síma 868 3592. Heimilistæki Frábært úrval saumavéla við allra hæfi. Toyota, EVA-Royal, Bernina. Samtals 17 gerðir fyrir byrjendur jafnt sem fatahönnuði. Skoðaðu úrvalið á "saumavelar.is" eða hringdu í 892 3567 e.h. alla daga. Sumarhús Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Tómstundir Fjarstýrðar innanhússþyrlur og margt fl. Mikið úrval af fjarstýrðum innanhúss- þyrlum á góðu verði. Netlagerinn slf. Verslun í Dugguvogi 17-19, 2. hæð. Sími 517-8878. Vefsíða Tactical.is Frí heimsending til jóla. Frábært poolborð frá RILEY 5-6 og 7 feta borð á lager Kúlur – kjuðar – þríhyrningur – krít fylgja hverju borði. www.billiard.is Suðurlandsbraut 10 (2. h.), 108 Reykjavík, s. 568 3920. Fótboltaspil 120 cm 35.600 kr. Fínt að reisa upp eftir notkun, kemst alls staðar fyrir. www.pingpong.is Suðurlandsbraut 10 (2. h.), 108 Reykjavík. Sími 568 3920. Eigum poolkjuða í úrvali Frábær verð. www.billiard.is Suðurlandsbraut 10 (2. h.), s. 568 3920 / 897 1715. Þjónusta ÞÝÐINGAR - TRANSLATIONS HALLSTEINN ehf. Halldór Jónsson verkfræðingur 892-1630 Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Bílaþjónusta SÖLUSKOÐANIR BIFREIÐA Ertu að kaupa bíl? Láttu fagmenn greina ástand hans áður en þú gengur frá kaupunum. Skoðunin kostar frá kr. 9.900. Ekki þarf mikið til að hún borgi sig margfalt. Fáðu aukna vissu í bílakaupin með söluskoðun Frumherja. Tímapantanir í síma 570 9090. Frumherji – örugg bifreiðaskoðun. Húsviðhald Tek að mér ýmis smærri verkefni Sími 847 8704, manninn@hotmail.com

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.