Morgunblaðið - 13.12.2011, Side 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
6 5 7
9 1 8 4
4 3 6
1 6
5 4 7 3 9
8 5
6 8
9
8 3 6
5 4 2 7
8 1
8 7 9 3
8 1 9
5
9 2 1 5
9
4 8 1
7 2
2 9 3
5 4
2 3
5
4 8 1 5
1 9 8
5 8 6
1 3
3 2 8
7 1 2 8 3 5 6 9 4
4 9 6 2 1 7 8 3 5
3 8 5 9 6 4 2 1 7
9 6 4 5 7 3 1 8 2
5 3 1 6 8 2 7 4 9
2 7 8 1 4 9 5 6 3
6 4 9 7 2 1 3 5 8
1 5 7 3 9 8 4 2 6
8 2 3 4 5 6 9 7 1
4 8 9 3 5 1 2 7 6
2 7 5 6 8 9 4 3 1
1 6 3 2 7 4 8 5 9
3 4 2 7 9 5 6 1 8
8 9 1 4 6 3 7 2 5
7 5 6 8 1 2 3 9 4
5 3 4 9 2 8 1 6 7
6 1 8 5 3 7 9 4 2
9 2 7 1 4 6 5 8 3
4 1 7 5 9 8 3 6 2
3 6 9 7 2 4 5 1 8
5 2 8 1 3 6 9 4 7
6 7 5 3 8 1 2 9 4
2 8 4 6 7 9 1 5 3
1 9 3 4 5 2 8 7 6
7 3 1 8 6 5 4 2 9
8 4 2 9 1 7 6 3 5
9 5 6 2 4 3 7 8 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 13. desember,
347. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður,
að þér elskið hver annan. Eins og ég
hef elskað yður, skuluð þér einnig
elska hver annan. (Jóh. 13, 34.)
Víkverji varð fyrir vægu áfalli umhelgina þegar prinsessan á
heimilinu upplýsti að hún tryði ekki
lengur á jólasveininn og það þyrfti
ekkert endilega að setja áfram eitt-
hvað í skóinn í herbergisglugganum.
„Hvaða vitleysa, jólasveinninn heldur
áfram að setja eitthvað í skóinn, ef þú
verður stillt og prúð,“ sagði Víkverji
og ætlaði ekki að gefa sig í fyrstu til-
raun. „Ég veit alveg sko,“ sagði
ungfrúin og gaf föður sínum lúmskt
augnaráð, eins og hún hefði komist að
hinum stóra sannleik.
Víkverji hristi hausinn og hnussaði,
reyndi að eyða talinu með þeim orð-
um að jólasveinninn ætti áreiðanlega
eftir að koma með eitthvað gott í skó-
inn, sem og hann gerði. Stekkjar-
staur gaf sig ekki og kom við með
þetta fína naglaskraut. Prinsessan
meðtók gjöfina að morgni en spennan
og eftirvæntingin í augunum var
horfin. Það er af sem áður var, og
spurning hve lengi jólasveinarnir
munu koma við á þessum bæ. En þeir
hafa í mörg hús að venda og Víkverji
getur huggað sig við það að þeir geta
þá glatt önnur barnshjörtu og -sálir.
x x x
Jólaandinn var svo sannarlega svíf-andi yfir Árbæjarsafni um
helgina, er Víkverji lagði þangað leið
sína ásamt fleirum. Sérstök jólasýn-
ing hefur verið alla sunnudaga á að-
ventunni og full ástæða til að mæla
með heimsókn á safnið þann sunnu-
dag sem eftir er fyrir jól. Sannir ís-
lenskir jólasveinar voru á sveimi,
dansað var kringum jólatré undir
tunglsljósinu og hægt að hlusta á kór-
söng og upplestur og sjá hvernig tólg-
arkerti voru unnin forðum daga.
Víkverji var ekki lengi að þefa uppi
jólahangikjötið, sem gestir fengu að
smakka, og í öðru húsi mátti fá laufa-
brauð í lófa. Er þá fátt eitt upptalið af
því sem Árbæjarsafnið hefur upp á
bjóða. Víkverji komst heill frá heim-
sókninni ef frá er talin kúla á hausn-
um. Mælt er með því að gestir safns-
ins yfir 180 cm á hæð fái
öryggishjálma á ferðum sínum um
safnhúsin. Þetta hafa verið meiru
stubbarnir, þessir forfeður okkar og
-mæður! víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 sjá eftir, 4 hnik-
ar til, 7 hraðans, 8 blauð-
um, 9 beita, 11 deila, 13
lagleg, 14 árstíð, 15 kná, 17
ókyrrð, 20 agnúi, 22 lítið
herbergi, 23 urg, 24 sefast,
25 vægar.
Lóðrétt | 1 skass, 2 langt
op, 3 kvenfugl, 4 þyrnir, 5
undirokar, 6 plássið, 10 mik-
ið af einhverju, 12 ílát, 13
léttir, 15 fjáður, 16 samtala,
18 vindhviðan, 19 sér eftir,
20 höfuðfat, 21 síki.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 lúsarlegt, 8 lepps, 9 nefna, 10 ann, 11 rænan, 13 augað,
15 hólar, 18 slasa, 21 ell, 22 riðli, 23 afann, 24 hafurtask.
Lóðrétt: 2 úlpan, 3 ausan, 4 linna, 5 göfug, 6 flór, 7 garð, 12 aka,
14 ull, 15 harm, 16 liðna, 17 reiðu, 18 slakt, 19 arans, 20 Anna.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Áhættulaus millileikur. S-Allir.
Norður
♠DG1064
♥Á10543
♦75
♣4
Vestur Austur
♠95 ♠82
♥KD98 ♥G6
♦Á94 ♦K10632
♣K752 ♣G1083
Suður
♠ÁK73
♥72
♦DG8
♣ÁD96
Suður spilar 4♠.
Hvernig á að melda norðurhöndina á
móti 15-17 punkta grandopnun? Flott
væri að geta sýnt báða háliti og skorað
á makker í geim, en fá pör búa yfir
slíkri tækni. Í einföldu kerfi er góð
hugmynd að nota Stayman og lyfta
hálitasvari í 3-4 eftir smekk, en segja
2♥ við 2♦ til að gefa til kynna veika há-
litahönd.
En nóg um sagnir. Suður endar í 4♠
og fær út tromp. Keppnisformið er tví-
menningur og sagnhafi hefur ekkert á
móti yfirslag.
Það er alltof gróft að svína ♣D, en
hitt getur ekki spillt að taka fyrsta
slaginn í borði og spila tígli að litlu
hjónunum. Hvað vinnst með því? Ja,
það er aldrei að vita nema vestur fari á
taugum og skipti yfir í lauf – frá hans
sjónarhóli gæti suður átt ♦K-D-G, en
ekki ♣Á.
13. desember 1922
Hannes Hafstein lést, 61 árs.
Hann var ráðherra frá 1904 til
1909 og aftur frá 1912 til 1914.
Meðal ljóða hans eru Sprettur
(Ég berst á fáki fráum) og
Stormur. Útförin var gerð
með mikilli viðhöfn. Minn-
isvarði um Hannes var afhjúp-
aður við Stjórnarráðshúsð 1.
desember 1931.
13. desember 1945
Ferðabók Sveins Pálssonar
kom út í fyrsta sinn, en hún
hafði þá „legið í handriti í 150
ár“, eins og sagði í auglýsingu.
13. desember 1988
Sjötug kona í Reykjavík fékk
25 milljóna króna vinning á
trompmiða í Happdrætti Há-
skólans og var það stærsti
happdrættisvinningur sem um
getur hérlendis. „Mig dreymdi
fyrir því að eitthvað myndi
gerast í dag,“ sagði hún í sam-
tali við Morgunblaðið, „en ég
átti ekki von á þessu“.
13. desember 1992
Orgel Hallgrímskirkju í
Reykjavík var vígt. Það er
stærsta hljóðfæri á Íslandi, 17
metrar á hæð, vegur 25 tonn
og í því eru 5.200 pípur.
Kostnaður við smíðina nam
tæpum 100 milljónum króna.
13. desember 1998
Sjötíu metra hár reykháfur
við fiskimjölsverksmiðjuna á
Kletti í Reykjavík var felldur
með sprengingu. Hann var
560 tonn á þyngd og reistur
1963.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Birgir Thomsen, prestur á Sólheimum, eyðir af-
mælisdeginum í vinnunni en til að gera sér daga-
mun mun hann eflaust bjóða vinnufélögunum upp á
tertu og gera vel við sig í mat í kvöld. Aðspurður
segir hann eftirminnilegasta afmælisdaginn vera
þegar hann varð 10 ára. „Þá sagði amma mín að nú
væri fyrsti tugurinn búinn. Margir aðrir afmæl-
isdagar eru einnig eftirminnilegir, svo sem 60 ára
afmælið sem ég hélt upp á hér á Sólheimum, en
þetta með fyrsta tuginn man ég alltaf,“ segir Birgir.
Þegar hann var ungur var oft haldið sameiginlega
upp á afmæli hans og systur hans, sem á afmæli 1.
desember. „Þann dag var auðvitað gefið frí í skóla og flaggað og þegar
systir mín var yngri hélt hún gjarnan að það væri út af því að hún ætti
afmæli,“ segir hann.
Birgir býr og starfar á Sólheimum ásamt eiginkonunni Erlu Thom-
sen, sem er verkstjóri í kertagerðinni og meðhjálpari Birgis í kirkjunni.
„Hér er búin að vera mikil dagskrá á aðventudögum. Síðustu helgi hélt
Lionsklúbburinn Ægir í Reykjavík hér sína árlegu jólaskemmtun.“ Auk
þess að vera prestur er Birgir einnig afeindavirkjameistari. „Það nýtist
allt hér sem maður hefur lært á ævinni.“ ylfa@mbl.is
Birgir Thomsen prestur 65 ára
Mikil dagskrá á aðventunni
Nýirborgarar
Reykjavík Þór-
arinn fæddist
23. september
kl. 21.29. Hann
vó 14 merkur
og var 51 cm
langur. For-
eldrar hans eru
Þórdís Steins-
dóttir og Hall-
dór Þór Snæ-
land.
Flóðogfjara
13. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 1.41 0,6 7.52 4,0 14.11 0,7 20.14 3,6 11.13 15.32
Ísafjörður 3.45 0,3 9.46 2,2 16.21 0,3 22.12 1,8 11.57 14.57
Siglufjörður 0.20 1,1 6.01 0,3 12.09 1,2 18.35 0,1 11.42 14.38
Djúpivogur 5.10 2,1 11.26 0,4 17.20 1,8 23.28 0,3 10.51 14.52
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Áhugaverður einstaklingur kemur
róti á tilfinningar þínar. Taktu tillit til þess
sem vinir þínir segja.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Enginn er fullkominn og þá þú ekki
heldur. Dragðu strik yfir fortíð þína – lifðu í
nútíðinni og njóttu þess.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þér er óhætt að láta eitthvað eftir
þér í tilefni farsælla verkloka. Vertu op-
inská/r gagnvart ættingjum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Óvæntar fréttir berast langt að sem
gleðja þig. Þú ert á fullu í félagslífinu –
hvernig væri að hægja aðeins á?
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Ekki einblína á það sem þú heldur að
þú getir ekki breytt. Veltu fyrir þér gæðum
lífsins. Þér finnst þú bundin/n í báða skó að
mörgu leyti.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þetta er góður dagur til að leggja
upp í langferð bæði í bókstaflegum og tákn-
rænum skilningi. Reyndu ekki að sýnast
meiri.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er heppilegt að skipuleggja
skemmtanir í dag. Getur þú ekki sett þig í
spor maka þíns? Ef maður er veikur á mað-
ur að fara til læknis.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það getur stundum verið erfitt
að drífa sig áfram. Hlýja þín er hjálp hinna
ráðalausu. Þú rembist eins og rjúpan við
straurinn í jólaundirbúningnum. Ekki fara yf-
ir strikið.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er engin ástæða til þess að
láta aðra komast upp með að borga ekki
skuldir sínar. Nú er mikill ys og þys og
skammdegið svart svo það er öllum fyrir
bestu að fara varlega.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert nógu klár til að eyða ekki
gæðatíma í smáverkefni. Verið getur að þú
þurfir að ræða alvarlega við nágranna þína.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Farðu að æfa. Til þess að ná
árangri þarftu að vera raunsæ/r og gera þér
glögga grein fyrir því hvað er mögulegt og
hvað ekki. Þú átt nóg til af þolinmæði.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Láttu það ekki fara í taugarnar á þér
þótt aðrir viti ekki alltaf hvað þeir vilja. Þú
flýrð á náðir bóka í skammdeginu.
Stjörnuspá
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rc6 5. Rc3 Dc7 6. Be3 a6 7. Dd2 Rf6 8.
O-O-O Bb4 9. f3 Re7 10. Rde2 d5 11.
Bg5 dxe4 12. Bxf6 gxf6 13. Dd4 exf3 14.
Dxb4 fxe2 15. Bxe2 f5 16. Hd6 Rc6 17.
Df4 De7 18. Bf3 O-O 19. Hhd1 e5 20.
Dh6 Be6
Staðan kom upp í Evrópukeppni
taflfélaga sem lauk fyrir nokkru í Ro-
gaska Slatina í Slóveníu. Kínverski
stórmeistarinn Hua Ni (2670) hafði
hvítt gegn alþjóðlega meistaranum Da-
nilo Polajzer (2293) frá Slóveníu. 21.
Hd7! Db4 22. Rd5 Bxd5 23. Dg5+ Kh8
24. Df6+ Kg8 25. Bxd5 Df4+ 26. Kb1
og svartur gafst upp enda taflið t.d.
tapað eftir 26…Rxd8 27. Hxd8 Haxd8
28. Bxf7+.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is