Morgunblaðið - 19.12.2011, Page 1

Morgunblaðið - 19.12.2011, Page 1
M Á N U D A G U R 1 9. D E S E M B E R 2 0 1 1  Stofnað 1913  297. tölublað  99. árgangur  dagar til jóla 5 Bjúgnakrækir kemur í kvöld www.jolamjolk.is FRELSISHETJAN VACLAV HAVEL FALLIN FRÁ ARON Í STÓRU HLUTVERKI HJÁ KIEL VILDI VERÐA BÓHEM EINS OG KRISTINN ÍÞRÓTTIR FRÍÐA MÁLAR 10LEIÐTOGI 16, 18 Sigrún Rósa Björnsdóttir sigrunrosa@mbl.is Lögfræðiálit, sem forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, lét vinna vegna þingsályktunartillögu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæð- isflokksins, um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fyrir landsdómi, staðfestir að tillagan er þingtæk. „Ég lét vinna fyrir mig minnisblað um málið og það var mitt mat eftir að hafa fengið það í hendur að það væri eðlilegt að málið færi á dagskrá,“ seg- ir Ásta. Aðspurð segir hún að aðallög- fræðingur Alþingis hafi unnið það í samráði við fleiri. Um tilefni þess að álitið var unnið segir Ásta aðspurð að það hafi verið óskað eftir því. Að fengnu álitinu hafi hún samið við Bjarna um að málið færi á dagskrá 20. janúar á næsta ári. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins olli tillagan miklu uppnámi meðal stjórnarflokkanna og lögðu þeir allt kapp á að koma í veg fyrir að hún yrði tekin fyrir og báru því meðal annars við að hún væri ekki þingtæk. Líkti einn heimildarmaður því við að kjarnorkusprengju hefði verið varp- að inn á þingið. Tímasetningin verið mistök Björn Valur telur að það hve seint tillagan kom fram hafi verið „taktísk“ mistök hjá formanni Sjálfstæðis- flokksins sem hafi haft talsverð áhrif á afstöðu manna til að hún yrði tekin á dagskrá. „Það kom klárlega í ljós að allur Sjálfstæðisflokkurinn, fjöldi þingmanna Framsóknarflokks og jafnvel fleiri þingmenn vissu af þessu máli án þess að upplýsa það og að það væri í undirbúningi að leggja það fram með þessum hætti.“ Ögmundur Jónasson innanríkis- ráðherra telur eðlilegt að tillaga Bjarna fái þingræðislega meðferð og að lýðræðislegur vilji sé kannaður. Fráleitt sé að „læsa þetta mál í flokkspólitíska fjötra“. Reynt að hindra tillögu  Stjórnarflokkarnir lögðu allt kapp á að hindra þingsályktunartillögu Bjarna Benediktssonar  Þingforseti lét vinna lögfræðiálit sem sagði tillöguna þingtæka Morgunblaðið/Heiddi Alþingi Ásta R. Jóhannesdóttir lét vinna fyrir sig lögfræðiálit. MTitringur vegna tillögu »2 „Heyrðu, er þetta ekki Árni Sæberg?“ spurði Hurða- skellir ljósmyndara Morgunblaðsins, sem eðlilega var brugðið við spurninguna og greinilegt að jólasvein- arnir fylgjast vel með börnunum langt fram á fullorð- insár. Með Hurðaskelli í för var Askasleikir en þeir komu til byggða um helgina. Biðu þeir spenntir eftir fé- laga sínum, Skyrgámi, sem væntanlegur var í gær- kvöldi. Í kvöld er svo komið að Bjúgnakræki, nú þegar aðeins fimm dagar eru til jóla og spenningur lands- manna að ná hámarki, barna sem fullorðinna. Morgunblaðið/Árni Sæberg Biðu spenntir eftir Skyrgámi Hurðaskellir og Askasleikir saman á ferð í miðbænum í gær Heildarkostnaður við dýpkun í Landeyjahöfn verður að ári kominn í um 560 milljónir króna, gangi áætl- anir Siglingastofnunar eftir. Frá því að höfnin var tekin í notkun í júlí 2010 hefur kostnaður við dýpkun hafnarinnar verið um 345 milljónir króna. Þar af er áætlaður kostnaður þessa árs 266 milljónir. Í drögum að samgönguáætlun er gert ráð fyrir að kostnaður við dýpkunina verði 214 milljónir króna á næsta ári. Herjólfur náði síðustu daga að sigla til Landeyjahafnar, eftir að siglingar þangað höfðu legið niðri síðan í október. Dýpkunarskipin Skandia og Perlan hafa verið að störfum og Skandia nú upp á síð- kastið. Samkvæmt yfirliti yfir ferðir þessa árs hafa Herjólfur og Baldur siglt um 1.100 ferðir milli lands og Eyja frá áramótum. Alls hafa verið felldar niður 43 áætlaðar ferðir. Ferðir í Landeyjahöfn hafa verið 774, eða 67,6% allra áætlaðra ferða, og ferðir í Þorlákshöfn 328. Vegna óhagstæðrar ölduspár verður siglt til Þorlákshafnar næstu daga. bjb@mbl.is »6 Dýpkað fyrir 560 milljónir  Herjólfur í Land- eyjahöfn í 67,6% tilvika Morgunblaðið/Ómar Herjólfur Skipið siglir inn Land- eyjahöfn á leið frá Eyjum.  Þórir Her- geirsson varð í gær fyrsti Íslend- ingurinn til þess að verða heims- meistari í hand- knattleik þegar hann stýrði norska kvenna- landsliðinu til sigurs á HM í Brasilíu. Noregur vann Frakka, 32:24, í úrslitum og er handhafi stóru titlanna þriggja, þ.e. liðið er ríkjandi heims-, ólympíu-, og Evr- ópumeistari. Þórir, sem hefur búið í Noregi í aldarfjórðung, hefur verið aðalþjálfari norska landsliðsins í tæp þrjú ár en var aðstoðarþjálfari í nokkur ár á undan. „Ég er stoltur og glaður,“ sagði hann við norska sjónvarpið, TV2 þegar sigurinn var í höfn í gær. » Íþróttir Þórir fyrstur Íslend- inga heimsmeistari í handknattleik Þórir Hergeirsson  „Fyrirsvar gagnvart alþjóð- legum dóm- stólum sam- kvæmt forsetaúrskurði um skiptingu verkefna í stjórn- arráðinu heyrir undir utanrík- isráðuneytið. Það er alveg sama hvaða langanir menn kunna að hafa um að einhver tiltekinn ein- staklingur sinni málinu, þú breytir ekki hver hefur umsjón með því að lögum,“ segir Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar, um það hvaða ráðherra eigi að fylgja Icesave-málinu til enda. Tel- ur Árni Þór mikilvægt að sátt náist um meðferð málsins en stjórn- arandstaðan hefur krafist fundar í utanríkismálanefnd. »4 Fyrirsvar heyrir und- ir utanríkisráðherra Árni Þór Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.