Morgunblaðið - 19.12.2011, Side 4

Morgunblaðið - 19.12.2011, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2011 BAKSVIÐ Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Á lokaspretti þingsins fyrir jólafrí var hart deilt um fjölda mála og reyndist helst greina á milli stjórn- ar- og stjórnarandstöðuflokkana í skattahækkunum ríkisstjórnarinn- ar og áformum um að hækka kol- efnisgjald. Guðlaugur Þór Þórðar- son, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, segir að almennar skattahækkanir ríkisstjórnarinnar bitni á öllum þeim sem hafi rúm 200 þúsund krónur í laun eða hærra. „Auk þess að hækka skatta á tekjur fólks þá er sérstakur eignaskattur ríkisstjórnarinnar sem hún kýs að kalla auðlegðar- skatt hækkaður úr 1,25 prósentum í 1,5 prósent. Þar að auki eru við- miðunarmörkin lækkuð í 75 millj- ónir fyrir einstaklinga og 100 millj- ónir fyrir hjón.“ Enn fremur segir Guðlaugur Þór að fram hafi komið í efnahags- og viðskiptanefnd að fólk sé farið að flytja lögheimili sitt úr landi vegna auðlegðarskattsins. „Það eina sem haldið er fyrir utan eru lífeyrisréttindum en það kem- ur sér staklega vel fyrir stjórn- málamenn sem hafa verið lengi á þingi. Einhver myndi kalla þetta sérhagsmunagæslu fyrir stjórn- mála- og embættismenn,“ segir Guðlaugur Þór. Gunnar Bragi Sveinsson, þing- flokksformaður Framsóknar- flokksins, segir að framsóknar- menn hafi fyrst og fremst reynt að malda í móinn við allar gjaldskrár- og skattahækkanir því þær séu mjög íþyngjandi fyrir hagkerfið og muni auk þess hækka lán heimila landsins um nokkra miljarða. Kolefnisgjald og stimpilgjöld „Framsóknarflokkurinn lagði áherslu á að framlengja ákvæði um stimpilgjöld sem gerir fólki kleift að skipta um lán án þess að þurfa að greiða stimpilgjöld vegna skipt- anna,“ segir Gunnar Bragi og bæt- ir því við að mikilvægi þess að ná fram þessari framlengingu sé ekki síst vegna áforma Íbúðalánasjóðs um að bjóða upp á óverðtryggð lán á næsta ári. Þá eru Gunnar Bragi og Guðlaugur Þór sammála um mikilvægi þess að hætt hafi verið við hækkun á kolefnisgjaldi. „Þrátt fyrir að ekki hafi orðið af hækk- uninni eru mengunarskattar hér á landi 30 prósent hærri en annars staðar og það bitnar á neytendum hér á landi,“ segir Guðlaugur Þór. Þá var komið í veg fyrir veigamikl- ar breytingar á kolefnisskatti á af- urðir sem fluttar eru inn vegna vinnslu í kísil- og járnblendiverk- smiðjum landsins. Tugir annarra mála lágu fyrir Alþingi fyrir þinglok og ræddu þingmenn m.a. lengi um hækkun á greiðslu til Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins en samkomulag náðist um að fresta því máli fram yfir áramót. Eins var máli um staðgöngumæður frestað til janúar en Alþingi kemur aftur saman 16. janúar. Morgunblaðið/Ómar Alþingi Fjöldi þingmála var tekinn fyrir á laugardag, síðasta dag fyrir jólahlé, en þing kemur saman að nýju 16. janúar næstkomandi. Hærri skattar í jólagjöf  Skattahækkanir og stimpilgjöld voru meðal þess sem rætt var um á loka- spretti Alþingis fyrir jól  Sérstakur eignaskattur hækkaður og viðmið lækkuð „Í ár og næsta ár eru einn og hálfur milljarður inni á samgönguáætlun til að byrja á Norðfjarðar- göngum og ég vil að við það sé stað- ið,“ segir Kristján Möller, þingmað- ur Samfylkingar og fyrrverandi samgönguráðherra, en hann segist ekki geta stutt sam- gönguáætlun sem lögð var fyrir Al- þingi af Ögmundi Jónassyni innan- ríkisráðherra. Að hans sögn er það skoðun allra þingmanna Norðaust- urkjördæmis að setja skuli fram- kvæmd Norðfjarðarganga í forgang í kjördæminu en með fyrirliggjandi samgönguáætlun frestast fram- kvæmd þeirra svo opnun ganganna mun dragast til ársins 2018 hið minnsta. „Ég minni á að núverandi vegur um Oddskarð er einn hættu- legasti vegur landsins að mínu mati,“ segir Kristján. Stórframkvæmdir slegnar út Að auki er Kristján ósáttur við að áður fyrirhugaðar stórframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu hafi verið slegnar út af borðinu en þær fram- kvæmdir áttu að kosta um 30 millj- arða króna og fjármagnaðar með láni frá lífeyrissjóðum. „Ég vil fyrst og fremst að staðið verði við Norðfjarðargöng, að meiru fé sé varið til samgöngumála og að farið sé í þessar framkvæmdir á höf- uðborgarsvæðinu eins og unnið var að á vegum ríkisstjórnarinnar allt þar til að Ögmundur Jónasson sló það út af borðinu,“ segir Kristján en að hans sögn hefur sjaldan svo litlu fé verið varið til stofnframkvæmda í almenna vegakerfinu eins og mun verða næstu ár. khj@mbl.is Meira fé fari í sam- göngumál  Getur ekki stutt samgönguáætlun Kristján Möller Alþingi samþykkti á laugardag að veita 24 einstaklingum íslenskan rík- isborgararétt en umsóknir voru alls 42. Meðal þeirra sem fengu ríkis- borgararétt er Mehdi Kavyanpoor, 53 ára Írani, sem kom hingað til lands frá Íran árið 2005. Þá fékk Si- im Vitsut ríkisborgararétt en hann er tveggja ára sonur Hannesar Þórs Helgasonar, sem var myrtur á síð- asta ári. Siim er fæddur í Eistlandi og hefur tvöfaldan ríkisborgararétt. 24 fengu ríkis- borgararétt „Við höfum langt mikla áherslu á að það verði skýrt fyrir jól hvernig fyr- irsvar verði háttað í Icesave-málinu því við teljum að Árni Páll, efnahags- og viðskiptaráðherra, hafi haldið vel á því frá síðustu þjóðaratkvæðagreiðslu,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson, þing- flokksformaður Framsóknarflokksins, en þingmenn Framsóknar- og Sjálf- stæðisflokks hafa krafist fundar í utan- ríkismálanefnd um stöðuna í Icesave. Gunnar telur samstöðuna um málið í dag í hættu verði það fært yfir til utan- ríkis- eða fjármálaráðherra. Ólöf Nor- dal, varaformaður Sjálfstæðisflokks- ins, tekur í sama streng og segir mikilvægt að haldið verði á málinu með mikilli festu. „Árni Páll hefur haldið afskaplega vel á þessu máli og hann hefur haft það á sinni könnu frá því að þjóðin hafnaði síðasta Icesave- samningi ríkisstjórnarinnar. Það er á vegum hans ráðuneytis sem rök- semdafærslan hefur verið lögð á borð- ið í málinu og mér finnst eðlilegt að hann haldi þessu máli áfram í nánu samstarfi við Alþingi,“ segir Ólöf sem telur auk þess að vegna sérstöðu máls- ins sem í tvígang hefur verið borið undir þjóðina þurfi að vinna málið í nánu samstarfi við Alþingi. Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismála- nefndar, telur mikilvægt að ná sátt um meðferð málsins en segir jafnframt að mál séu ekki vistuð hjá einstökum ein- staklingum heldur fari það eftir lögum og reglum í landinu hvaða ráðuneyti fylgi málinu eftir. „Fyrirsvar gagnvart alþjóðlegum dómstólum samkvæmt forsetaúr- skurði um skiptingu verkefna í stjórn- arráðinu heyrir undir utanríkisráðu- neytið. Það er alveg sama hvaða langanir menn kunna að hafa um að einhver tiltekinn einstaklingur sinni málinu, þú breytir ekki hver hefur um- sjón með því að lögum.“ vilhjalmur@mbl.is Treysta Árna í Icesave  Stjórnarandstaðan vill að Árni Páll Árnason fylgi eftir Ice- save-málinu til enda  Krefjast fundar í utanríkismálanefnd Morgunblaðið/Eggert Ráðherra Árni Páll Árnason. Mikil óánægja er meðal fólks í ferðaþjónustu vegna breytinga á lögum um fólksflutninga og farmflutn- inga á landi. Breytingin felur það í sér að verið er að útvíkka einkaleyfi sem sveitarfélög hafa út fyrir mörk þeirra þ.e. út fyrir þéttbýli og staðarmörk. Þá er bara einkaleyfishöfum heimilt að stunda reglubundna fólksflutninga nema með sérstöku leyfi einkaleyf- ishafa „Eins og þetta lítur út núna þá geta sveit- arfélög eða samtök sveitarfélaga tekið til sín allar ferðir og boðið þær út. Jafnvel leiðir sem eru í sam- keppnisrekstri í dag eins og rútan til Keflavík- urflugvallar. Þessi breyting er til þess fallin að styðja við einokun sveitarfélaga,“ segir Gunnar Valur Sveinsson, hjá Samtökum ferðaþjónustunnar. Enn fremur bendir Gunnar á að sveitarfélag eins og Blá- skógabyggð gæti ef það vildi fengið öll einkaleyfi inn- an sveitarfélagsins og boðið út til eins aðila að aka t.d. að Gullfossi og Geysi. „Leiðir í Þórsmörk og á aðra vinsæla staði gætu verið boðnar út í kjölfarið á þessum breytingum.“ Þórir Garðarsson, sölustjóri Iceland Excursions, segir þessa aðferð ekki til þess fallna að halda uppi samkeppni þrátt fyrir útboð á einkaleyf- isleiðum. Auk þess bendir Þórir á að þetta leiði til tekjutaps fyrir ríkissjóð. „Allir sem keyra á einka- leyfi fá endurgreidd 85% af greiddu olíugjaldi þannig að þetta leiðir til útgjaldaauka fyrir ríkissjóð,“ segir Þórir. Ennfremur bendir hann á að stjórnvöld séu haldin þeim fortíðardraug að samkeppninni sé ekki treystandi til að halda uppi þjónustu við neytendur. „Þessi aðferð er jafn gáfuleg og ef aðeins ein verslun fengi að vera opin í hverju sveitarfélagi burtséð frá því hvaða verð hún býður neytendum,“ segir Þórir. Í átt til aukinnar einokunar í fólksflutningum LAGABREYTING FORTÍÐARDRAUGUR EINOKUNAR Þórir Garðarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.