Morgunblaðið - 19.12.2011, Síða 12

Morgunblaðið - 19.12.2011, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2011 BAKSVIÐ Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Aðsóknin í okkar þjónustu er gríðarleg og við höfum varla haft undan,“ segir Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Virk Starfsendurhæfingar- sjóðs, en frá því að sjóðurinn tók til starfa haustið 2009 hafa um 2.700 manns leitað sér aðstoðar til að komast aftur út á vinnumarkaðinn. Í lang- flestum tilvikum veitir Virk ráðgjöf og starfsend- urhæfingu fyrir þá sem hafa orðið fyrir heilsutjóni eða lent í slysum en einnig hafa langtíma- atvinnulausir leitað til Virk. Sjóðurinn starfar í samvinnu við stéttarfélög víða um land og eru nærri 30 ráðgjafar að störf- um. Til viðbótar eru 12 stöðugildi á skrifstofu sjóðsins og þá er hann með samning við um 60 sál- fræðinga og ýmsa fleiri sérfræðinga. Einnig vinn- ur fólk í verktöku í þverfaglegum matsteymum víða um land. Yfirlýst hlutverk sjóðsins er að draga mark- visst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnu- markaði vegna varanlegrar örorku með aukinni virkni, eflingu endurhæfingar og öðrum úrræðum sem í boði eru. 73% fá fulla vinnugetu á ný Meginverkefni Virk er að skipuleggja og hafa umsjón með störfum ráðgjafa, sem starfa aðallega á vegum sjúkrasjóða stéttarfélaganna og aðstoða einstaklinga sem þurfa á endurhæfingu að halda. Greiðir sjóðurinn kostnað af störfum ráðgjafanna ásamt því að hafa umsjón og eftirlit með starfi þeirra og veita faglegan stuðning. Einnig greiðir sjóðurinn kostnað af ráðgjöf ýmissa fagaðila og kostnað við endurhæfingu og fleiri úrræði, s.s. námskeið og viðtöl við sérfræðinga. Könnun hefur leitt í ljós mikla ánægju með þjónustu sjóðsins og það sýna líka reynslusögur sem birtar hafa verið á virk.is. Þar lýsir fólk því hvernig endurhæfingin og aðstoðin hefur komið því aftur til starfa á ný. Ríflega 900 einstaklingar hafa nú lokið þjón- ustu hjá sjóðnum og af þeim hafa um 73% fulla vinnugetu og fara í launað starf á vinnumark- aði, í lánshæft nám eða í atvinnuleit. Að sögn Vigdísar hafa um 240 manns af þessum 2.700 komið af atvinnuleysisskrá. Um 80 úr þessum hópi hafa klárað starfsendur- hæfingu eða aðra þjónustu sjóðsins og helm- ingur þeirra farið út á vinnumarkaðinn á ný í launað starf. Hinn helmingurinn er áfram í atvinnuleit og mjög fáir fara á örorkubætur. Virk er í góðu samstarfi við Vinnumálastofnun og Vigdís segir meginstarf- semina ganga áfram út á að aðstoða þá ein- staklinga sem orðið hafa fyrir heilsutjóni eða slys- um. Búast við fleiri langtímaatvinnulausum „Hins vegar eigum við von á að fá til okkar fleiri atvinnulausa. Auðvitað hefur langtíma- atvinnuleysi áhrif á fólk og við tökum á móti fólki með bæði andleg og líkamleg veikindi. Eftir því sem langtímaatvinnuleysið eykst hér á landi munu fleiri þurfa á okkar þjónustu að halda. Allar rannsóknir hafa sýnt að því lengur sem fólk er án atvinnu því hættulegra er það fyrir heilsuna,“ seg- ir Vigdís, en vonast samt sem áður til þess að flestir atvinnulausir bíði ekki tjón á heilsu sinni. Margskonar virkniúrræði Vinnumálastofnunar dragi úr hættunni á því að atvinnulausir verði fyr- ir heilsutjóni. Þar fari fram gríðarlega mikilvægt forvarnarstarf. Vigdís fagnar einnig átaki stjórnvalda og að- ila vinnumarkaðarins, Til vinnu, sem gengið var frá sl. föstudag og verður hrundið af stokkunum á næsta ári til að virkja betur þá einstaklinga sem hafa verið lengi frá vinnu. Starfsendurhæfingar- sjóður hefur vart undan  Um 2.700 manns hafa leitað sér aðstoðar hjá Virk og 900 lokið þjónustu þar Morgunblaðið/Golli Starfsendurhæfing Vigdís Jónsdóttir stýrir Virk Starfsendurhæfingarsjóði, sem hefur verið starf- andi í rúm tvö ár. Fjöldi fólks hefur með aðstoð sjóðsins komist út á vinnumarkaðinn á ný. „Það skiptir gríðarlegu máli að vera já- kvæður og gefast ekki upp. Mér hefur gengið vel að halda í jákvæðnina og hugsa gjarnan til þess að ég eigi enn rúm tuttugu ár eftir á vinnumarkaði. Ég er ekki tilbúin að leggja árar í bát. Þess vegna vil ég gera allt sem ég get til að ná bata,“ segir Hildur Sigurðardóttir, leik- skólakennari á Akureyri, á vefnum virk.is en hún útskrifaðist nýlega frá Virk eftir að bakveiki hafði hrjáð hana til margra ára, m.a. var hún tvisvar búin að fá brjósklos þótt hún sé að- eins 41 árs. Hildur er komin í aðra vinnu með eldri börnum í 70% stöðu. Sjá nánar á www.virk.is. Má ekki gefast upp NÝTTI SÉR ÞJÓNUSTU VIRK Hildur Sigurðardóttir Stórmeistarinn Henrik Danielsen fór með sigur af hólmi á Friðriksmóti Landsbankans, Íslandsmóti í hraðskák, sem fram fór í gær. Var Henrik með 9,5 vinninga í 11 skákum en Björn Þorfinnsson varð annar með 9 vinninga. Mótið í ár var mjög spennandi enda mættir til leiks einir sterkustu skákmenn landsins, m.a. Jón L. Árnason og Helgi Ólafsson, en alls tóku sjö stór- meistarar þátt í mótinu að þessu sinni. Yngri kynslóðin lét ekki sitt eftir liggja og tefldi fram mörgum af sínum sterkustu skákmönnum. Henrik Danielsen sigraði á Friðriksmóti Landsbankans í skák í gær Morgunblaðið/Árni Sæberg Teflt af miklum móð á Íslandsmóti Ráðgjafaskóli Íslands og Forvarna- skólinn útskrifuðu nýverið 26 nem- endur við hátíðlega athöfn sem fram fór í húsnæði Háskóla Íslands. Af 26 nemendum skólanna sem stunduðu þar nám í vetur voru 18 þeirra í ráð- gjafanámi og átta í forvarnanámi. Ráðgjafanámið undirbýr nemendur fyrir frekara nám í ráðgjöf og við- talstækni en forvarnaskólinn und- irbýr fólk fyrir þátttöku við gerð og útfærslu forvarnastarfs, áætlana- gerð eða aðra verkefnavinnu í for- vörnum, segir í fréttatilkynningu. Skólarnir hafa starfað síðan 2004, skólastjórar og aðalkennarar eru þeir Stefán Jóhannsson fjöl- skylduráðgjafi og Árni Einarsson, uppeldis- og menntunarfræðingur. Útskrift í ráðgjöf og forvörnum Útskrift Nemendur skólanna. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Þetta auðvitað breytir stöðunni þó- nokkuð […] maður hefur þetta ekki hangandi yfir höfði sér lengur en all- ur þessi ferill hefur ekki verið neitt annað en tölur á blaði,“ segir Júlíus Guðni Antonsson, bóndi á Auðunn- arstöðum í Víðidal, en þau hjónin keyptu á sínum tíma stofnfjárbréf fyrir dætur sínar þrjár í Sparisjóði Húnaþings og Stranda. Kaup bréf- anna voru fjármögnuð með skírnar- og erfðafé en við nýlega ákvörðun Landsbankans, um að fella niður lán einstaklinga og lögaðila vegna kaupa á nýju stofnfé í Sparisjóði Keflavík- ur, nam skuld þeirra einum 120 milljónum króna. Annarleg sjónarmið réðu för „Ég lít á þetta sem áfangasigur en alls ekki sem einhvern lokapunkt,“ segir Júlíus Guðni og bætir við að ákvörðun Landsbankans megi alls ekki verða til þess fallin að áhugi til að rannsaka orsök falls sparisjóð- anna minnki í kjölfarið. „Því að það er alveg ljóst í öllu þessu ferli að þarna voru annarleg sjónarmið á ferðinni. Nú liggur það fyrir að verið var að blekkja fólk,“ segir Júlíus Guðni og bendir á að mjög margir eigi enn um sárt að binda vegna þessa og því sé brýnt að farið sé gaumgæfilega yfir málið. „Það er ekki eins og komið sé fram hið endanlega og fullkomna rétt- læti.“ Léttir fyrir héraðið Hann segir þessa niðurstöðu vissulega vera mikinn létti fyrir hér- aðið og íbúa þess en bendir á að lengi hafi legið ljóst fyrir að ef geng- ið hefði verið að skuldbindingum fólks til fullnustu hefði slíkt haft í för með sér hræðilegar afleiðingar fyrir íbúa á svæðinu. „Síðan er það spurn- ingin: Er hægt að ganga að raun- verulegum eignum fólks þegar menn hafa verið að braska með loft?“ Morgunblaðið/Jim Smart Stofnfé Eigendur töpuðu miklu. „Aðeins áfanga- sigur“  Skuldin komin upp í 120 milljónir Um tíma í gær var Suðurlandsvegur illfær frá Breiðholtsbraut og austur að Sandskeiði en nokkur úrkoma varð þegar tók að hlýna eftir lang- varandi frostakafla. Stórhríð var á Sandskeiði og lentu sumir ökumenn í vandræðum. Þá lenti rúta á hliðinni við gatna- mót Vesturlandsvegar og Akranes- vegar í gær. Bílstjórinn var einn um borð í rútunni og að sögn lögregl- unnar í Borgarnesi reyndust meiðsli hans minniháttar en hann var fluttur á sjúkrahúsið á Akranesi. Hálka og krapi á veginum ásamt snörpum vindhviðum ollu slysinu. Að sögn lögreglu var rútan lítið skemmd þar sem hún var ekki á miklum hraða er óhappið varð. Spáð er éljagangi í dag vestan- lands og minnkandi frosti en er nær dregur jólum fer að kólna á ný. Rúta hafnaði á hliðinni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.