Morgunblaðið - 19.12.2011, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.12.2011, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Václav Ha-vel, fyrr-verandi forseti Tékkóslóv- akíu og Tékk- lands, var óvenju- legur stjórnmálamaður. Hann var ekki endilega upplagður sem slíkur og þegar þau urðu samt örlög hans forðaðist hann að týna sjálfum sér í kófi upp- hefðar og valda. Oft glitti því í gamla leikritaskáldið, and- ófsmanninn og ólíkindatólið við opinber ræðuhöld. Hann skar sig úr og löngum var meiri eft- irvænting yfir því sem hann kynni að segja en „stórmennin“ frá fyrirferðarsamari löndum. Hann var tékkneskur and- ófsmaður, þátttakandi og for- ystumaður í Charta 77, hópi fólks sem storkaði yfirvöldum og andæfði kúgun þeirra og brotum gegn mannréttindum. Bak við rimlana mátti Havel því dúsa oftar en einu sinni. En eftir því sem frægð hans og hróður fór vaxandi utan landa- mæra Tékkóslóvakíu áttu yfir- völd erfiðara með að beita hann því harðræði. Og þegar komm- únisminn sprakk loks á sínu limmi í Evrópu varð Havel for- seti Tékkóslóvakíu og svo Tékklands eftir að Slóvakía varð sjálfstætt ríki. Havel kom til Íslands bæði sem fyrirmenni lands síns og í fyrirsvari fyrir leikrit sitt sem sýnt var í Þjóðleik- húsinu. Þeim sem kynntust honum þá fyrst og þó mun betur síðar gat ekki annað en þótt til um hann. Hann var flókin persóna, oftast nær alúðlegur, auðlesinn og tilgerð- arlaus og leiftrandi af lífsgleði og sköpunarkrafti, en átti til að vera allt að því feiminn og hverfa eins og um stund í sjálf- an sig og sína þanka. Hugtakið „Íslandsvinur“ er nú aðeins notað til að hafa í flimtingum og síst við hæfi að hafa það um Havel. En áhuga- samur var hann um Ísland og sögu þess, sjálfstæðisvilja og sjálfstæðisþrjósku. „Þótt ein- hverjir kunni að hafa komið óorði á fölskvalausa tryggð manns við sína þjóð, elsku og eftirlæti, eiga slíkir síst með að setja ofan í við hina,“ sagði hann afslappaður í fámennum hópi á Þingvöllum. „En föður- landsást og virðingu er fráleitt að nota til að sneiða að öðrum, ellegar að æsa til oflætis og rembings. Þeir sem það gera eru ekki sannir í sinni virðingu og sinni þjóðarást og í raun ónytjungar því sem þeir segj- ast elska.“ Þegar þetta var dvaldi Havel forseti um hríð í sumarbústað í Grímsnesi og safnaði kröftum fjarri ys og þys. Nú er hann horfinn úr heimi en minning hans lifir. Havel forseti var táknmynd nýrra tíma í gömlu Austur-Evrópu} Václav Havel Norræna vel-ferðar- stjórnin sem tók við stjórnartaum- unum á Íslandi fyrir tæpum þrem- ur árum hefur tryggt þúsundum Íslendinga norræna velferð. Eins og öll- um öðrum en forsætisráð- herra Íslands er kunnugt um hafa þessar þúsundir þó orðið að sækja velferðina til annarra landa á Norðurlöndum. Þeir sem hafa ákveðið að þrauka af sér hina nýju ís- lensku útgáfu norrænu vel- ferðarstjórnarinnar hafa á hinn bóginn kynnst allt öðrum veruleika. Skattar og gjöld á almenn- ing eru hækkuð úr hófi á hverju ári eins og dapurleg dæmi er að finna um í nýsam- þykktum lögum helgarinnar. Þá er klipið af bótum þvert á loforð og þrætt fyrir til að kór- óna ósvífnina. Nýtt dæmi um skerðingu bóta var til umfjöllunar í frétt- um í gær, þar sem haft var eft- ir hagfræðingi BSRB að barnabætur hefðu rýrnað um fimmtung á þrem- ur árum. Þessi talsmaður BSRB sagði frá því að jafnvel þeir sem væru á lágmarks- launum fengju ekki fullar bætur. Nú er löngu ljóst að sú vel- ferð sem ríkisstjórnin kennir sig við vísar ekki til velferðar atvinnu- eða efnahagslífs, því að ríkisstjórnin hefur lagt sig í framkróka um að halda um- svifum í atvinnulífinu í lág- marki. Æ betur er að koma í ljós að velferðin vísar ekki heldur til almennings, hvorki þeirra sem meira eða minna hafa á milli handanna, hinna skuldugu eða skuldlausu. Sama hvar borið er niður finnst enginn hópur manna hér á landi sem finnur fyrir velferðinni. En ef ríkisstjórnin heldur áfram á sömu braut er hætt við, þó að forsætisráðherra muni ekki verða þess var, að sá hópur Íslendinga sem finn- ur fyrir hinni hefðbundnu nor- rænu velferð muni fara vax- andi. Fjöldi Íslendinga hefur fundið nor- rænu velferðina hjá frændþjóðunum} Norræna velferðarstjórnin E inn harðasti gagnrýnandinn á landsdóm er Jóhanna Sigurðar- dóttir forsætisráðherra sem sagði um málið gegn Geir H. Haarde í RÚV á föstudag: „Þetta er yfir hundrað ára gömul löggjöf, hún er úrelt og úr sér gengin og þetta mál á ekki að vera fyrir Alþingi.“ Þrátt fyrir það að hún sé þeirrar skoðunar að landsdómur sé „mjög óeðlilegur“, þar séum við „á rangri leið“ og að löggjöfina um hann eigi að endurskoða „við fyrsta tækifæri“, þá sér hún samt ekkert athugavert við að málinu gegn Geir sé haldið til streitu og réttlætir óréttlætið með því að Alþingi hafi þegar ákveðið það: „Sko, við erum náttúrlega komin í málið núna, og það er á grundvelli landsdóms og þeirra laga sem við höfum. En ég held að í framhaldinu hljótum við að hugleiða það [að breyta lögum um lands- dóm þannig að Alþingi komi ekki að því að kæra ráð- herra].“ Jóhanna er því þeirrar skoðunar að óeðlilegt sé að taka málið úr óeðlilegum farvegi! En hún vill koma í veg fyrir að þeir ráðherrar sem nú sitja í ríkisstjórn, þar á meðal hún sjálf, verði dregnir til ábyrgðar fyrir ákvarðanir sínar í ráðherrastóli. Hafa ber í huga, að hún sat í sömu ríkis- stjórn og Geir H. Haarde. Víst má Jóhanna eiga að hún greiddi atkvæði gegn því að hann yrði dreginn fyrir landsdóm, en á móti kemur að í því máli gerði hún ekkert til þess að „smala köttum“. Þvert á móti tók hún ekki afstöðu til þess sem formaður Samfylkingarinnar hvernig atkvæði féllu innan þingflokksins. Fyrir vikið var Geir kærður einn ráðherra, einu atkvæði munaði að Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra sætti sömu meðferð, en ráðherrar Samfylkingar- innar nutu flokksskírteinis. Það er hjartnæmt að heyra hversu miklar áhyggjur hún hefur af eigin þingmönnum þeg- ar þeir standa fyrir pólitískum réttarhöldum – enda getur það nagað samviskuna. „Hugsið ykkur sko, þetta er óskaplega viðkvæmt mál, mjög erfitt fyrir mjög marga …“ sagði hún í viðtalinu og gagnrýndi að þingmenn hefðu fáa daga til að taka afstöðu. En kannaðist um leið við að ríkisstjórnin hefði tamið sér slík vinnu- brögð: „Við erum undir stöðugri gagnrýni frá þessum sömu aðilum fyrir að leggja mál fram of seint, [fyrir að] ætlast til þess að þessi eða hin erfiðu mál séu afgreidd [á skömmum tíma]…“ Annars var létt yfir Jóhönnu. „En ég held að það sé fyrst og fremst, að fólk hugsi nú hvað er nú þingið að gera með þessu inngripi núna?“ sagði hún hlæjandi. „Síðan er, þetta hefur verið svo erfitt mál fyrir aðra, að vera að róta upp í þessu núna, að ég held að það sé sprengja inn í þingið á þessum síðasta degi.“ Auðvitað er það ekki sprengja inn í þingið að fram komi tillaga um að draga til baka óeðlilega kæru til landsdóms. Sprengihættan er mun meiri af því að halda slíkri kæru til streitu. pebl@mbl.is Pétur Blöndal Pistill Sprengjan í þinginu STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon BAKSVIÐ Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Þ egar þeir 523 ein- staklingar, sem hafa ver- ið þrjú ár eða lengur án vinnu, eru skoðaðir nán- ar eftir fyrri störfum, menntun og atvinnugrein þá kemur í ljós að flestir störfuðu áður í verslun, eða 107. Af þeim eru 58 karlar og 49 konur. Næstflestir, eða 85, voru áður við störf í byggingariðnaði, þar af 73 karlar og 12 konur. Af þessum 523 langtímaatvinnulausum eru 311 karl- ar og 212 konur. Samkvæmt starfaflokkun Vinnumálastofnunar er verkafólk fjölmennasti hópurinn meðal lang- tímaatvinnulausra, eða 21% af þess- um 523, næst eru það sölu- og af- greiðslustörf, eða 15%, og loks iðnaðarmenn 14%. Skipt eftir mennt- un hafa langflestir grunnnám að baki eða grunnskólapróf, eða 282 af 523 (54%). Löggilt iðnnám hafa 14% og háskólanám 12%. 4.500 án vinnu í meira en ár Eins og fram kom í Morgun- blaðinu sl. miðvikudag hefur fjölgað hratt í hópi langtímaatvinnulausra. Fyrir tæpum þremur árum, eða í janúar 2009, höfðu 40 manns verið atvinnulausir í þrjú ár eða lengur. Í júlí 2010 voru 11 í þessum hópi, ári síðar nærri 100 og nú í lok nóvember sl. 523 samkvæmt yfirliti frá Vinnu- málastofnun. Samanlagt voru 12.354 atvinnulausir, eða 7,1% af vinnu- markaði. Af þessum hópi hafa um 4.500 verið án vinnu lengur en í þrjú ár. Um 5.600 manns hafa verið at- vinnulausir skemur en hálft ár. Ef fram heldur sem horfir stefnir í að um 2.000 manns hafi á næsta ári verið lengur frá vinnu en þrjú ár. Lengst er hægt að vera sam- fellt á atvinnuleysisbótum í fjögur ár og hættu stjórnvöld við áform um að stytta þennan tíma niður í þrjú og hálft ár og taka fólk af bótum í þrjá mánuði. Fjögurra ára viðmiðunar- tími hefur verið framlengdur út næsta ár, samkvæmt nýgerðu sam- komulagi ríkisstjórnarinnar, aðila vinnumarkaðarins og sveitarfélaga, og hrundið verður af stað sérstöku átaki, Til vinna!, sem ætlað er að auðvelda atvinnulausum að komast út á vinnumarkaðinn á ný. Sem liður í átakinu verður efnt til svonefndrar atvinnumessu í febr- úar nk. þar sem leiða á saman at- vinnulausa, vinnumiðlanir, fyrir- tæki, sveitarfélög og stofnanir og kynna þau vinnumarkaðsúrræði sem í boði eru. Vonast stjórn- völd til að með þessum hætti takist að skapa um 1.000 störf og samanlagt um 1.500 á næsta ári. Samanlagt er þessum að- gerðum ætlað að lækka at- vinnuleysisstigið um 0,7% á næsta ári en þjóðhagsspá gerir ráð fyrir 6,4% atvinnu- leysi að jafnaði á næsta ári. Flestir úr verslun án vinnu lengur en þrjú ár Störf og menntun langtímaatvinnulausra Þeir sem verið hafa atvinnulausir í 3 ár eða lengur, nóvember 2011 Störf Stjórnendur 8% Sérfræðingar 4% Sérmenntaðir 12% Skrifstofufólk 11% Þjónustustörf 7% Sölu- og afgr.störf 15% Bændur Fiskimenn 1% Iðnaðarmenn 14% Vélafólk 6% Verkafólk 21% Menntun Grunnnám - grunnskólapróf 54% Styttra starfsnám (yfirleitt<ár) 1% Starfsnám 9% Löggilt iðnnám 14% Nám til stúdentsprófs 10% Háskólanám 12% Landbúnaður/fiskvinnsla 9 Matvælaframleiðsla 23 Iðnaður 43 Byggingariðnaður 85 Verslun 107 Flug, flutningar, póstdr. 24 Veitinga- gistihús 14 Útgáfust. uppl.tækni 22 Fjármálaþj. og tryggingast. 12 Fasteignaviðskipti 20 Sérfræðiþjónusta 17 Ýmis þjónusta og leigust. 40 Opinber þjónusta 31 Félagastarfs./menning 28 Alls - uppl. um starfsst. 475 Óvíst 48 Samtals 523 Atvinnugrein Fjöldi 8% 4% 12% 11% 7% 15%1% 14% 6% 21% 54% 12% 10% 14% 9% 1% Heimild: Vinnumálastofnun Stefán Einar Stefánsson, for- maður VR, segir það ekki koma sér á óvart að versl- unarmenn séu fjölmennastir í röðum langtímaatvinnulausra. Þetta sé svipað hlutfall þeirra og af fjölda atvinnulausra í heild, eða um 2.500 félags- menn í VR af um 12.000 á atvinnuleysisskrám í landinu. „Við höfum verið mjög ugg- andi yfir þessu ástandi en sem betur fer tókst að koma í veg fyrir þetta sveltiákvæði svonefnda, að taka fólk út af bótum í þrjá mánuði sem hef- ur verið lengi án vinnu,“ segir Stefán. Þessi hópur hafi verið lengi í þeirri stöðu að vera óvirkur á vinnumarkaði og leita þurfi meira afgerandi leiða til að virkja fólk bet- ur. Vonast Stefán til að VR fái eftir áramót umsjón með atvinnulausum fé- lagsmönnum. Þá verði sérstaklega hugað að þeim sem hafa verið án vinnu lengur en eitt ár. Uggandi yfir ástandinu FORMAÐUR VR Stefán Einar Stefánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.