Morgunblaðið - 19.12.2011, Side 31
DAGBÓK 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
8 1 5 2
1 6 4 9
5 8
7
2 6 9 7
1
6 7 5
4 8 9
6 7 5
1 8 9 5
1 5
9 8 7 3
5 2 3 8 9
8 1 7 3
4 3 8 5
4 7
7 1
8 9 1
2 6 4
5 2 9
8
8 9 6
1 4 6 5
1 8 5 3
5 2 8
9 4
1 7 9 4 3 6 2 8 5
2 3 4 5 8 1 6 7 9
6 8 5 2 7 9 4 3 1
8 5 6 9 2 7 1 4 3
4 2 7 3 1 8 5 9 6
3 9 1 6 5 4 8 2 7
9 4 8 7 6 5 3 1 2
5 1 3 8 9 2 7 6 4
7 6 2 1 4 3 9 5 8
1 3 8 5 9 4 7 6 2
9 2 4 7 3 6 8 5 1
6 5 7 2 1 8 3 9 4
2 8 6 1 5 3 4 7 9
3 7 1 4 6 9 5 2 8
4 9 5 8 7 2 1 3 6
7 6 2 3 4 1 9 8 5
8 1 3 9 2 5 6 4 7
5 4 9 6 8 7 2 1 3
7 2 1 6 9 5 3 8 4
3 9 8 4 7 2 6 5 1
6 4 5 3 1 8 7 2 9
5 3 6 9 2 4 1 7 8
8 1 2 5 3 7 9 4 6
9 7 4 1 8 6 5 3 2
2 6 7 8 5 9 4 1 3
1 8 9 7 4 3 2 6 5
4 5 3 2 6 1 8 9 7
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 19. desember,
353. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum
misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yð-
ar himneskur fyrirgefa yður. (Matt. 6,
14.)
Víkverji bíður þess nú í ofvæni aðdetta í jólagírinn. Jóla-
hreingerningin verður líklega eitt-
hvað minni en planlagningar í júní
gerðu ráð fyrir og ef frá er talin ein
lítil sería er eiginlega ekki hægt að
tala um jólaskraut á heimilinu.
Hreint hús og jólaskraut eru held-
ur ekkert nauðsynleg til að komast í
jólaskapið.
x x x
Ekki hefur Víkverji heldur gefiðsér tíma til að kaupa nýja leppa,
svo næsta víst er að hinn alræmdi
jólaköttur verður meðal gesta yfir há-
tíðirnar. Með heppni má plata hann
með lörfum fyrri ára og góðu steypi-
baði.
Jólafötin hjálpa líka til, en eru
heldur ekki nauðsynleg.
x x x
Einhver árangur hefur hins vegarorðið í jólagjafakaupum, þrátt
fyrir lágmarks ívilnan Víkverja.
Skiptir þar mestu dugnaður betri
helmingsins. Víkverji verður þó að
sýna einhvern lit, því hann fær jú
sjálfur gjafir um jólin, sem aðrir hafa
valið.
Jólagjafir ýta undir jólaskapið, en
þó er hægt að vera án þeirra.
x x x
Jólakort í pósti verða engin þettaárið frekar en þau fyrri. Víkverji
er þó ekki algjör Trölli, heldur sendir
rafræna kveðju til vina og ættingja
þegar nær dregur. Þeim finnst það
sumum ódýr lausn, en öðrum finnst
nóg að vita að til þeirra er hugsað.
Jólaskapið liggur því ekki í kort-
unum.
x x x
Áaðfangadag sest Víkverji svoniður með fjölskyldumeðlimum
og borðar kræsingar sem eldaðar eru
af alúð. Þá á Víkverji stund með sín-
um nánustu, sem ekkert fær truflað.
Þá hringir enginn sími, sjónvarpið
fær verðskuldað frí og aðeins ómur
inn af útvarpsmessunni rýfur
kyrrðina þegar sest er til borðs.
Í huga Víkverja snýst jólaskapið
um akkúrat þetta augnablik.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 erfitt að sigrast á,
8 flennan, 9 skottið, 10 blóm,
11 léttir til, 13 koma í veg
fyrir, 15 rannsaka, 18
mannsnafn, 21 hægur gang-
ur, 22 drögum, 23 fuglar, 24
skjálfti.
Lóðrétt | 2 skjall, 3 alda, 4
kroppa, 5 minnst á, 6 brodd-
ur, 7 venda, 12 beita, 14 ögn,
15 glaða, 16 svertingi, 17 ve-
sælar, 18 kvíslin, 19 hófu á
loft, 20 urgur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 njóli, 4 þekkt, 7 tjása, 8 órétt, 9 nár, 11 rita, 13 etja, 14
skært, 15 þrek, 17 agga, 20 fit, 22 kelda, 23 eisan, 24 teikn, 25
tórir.
1 notar, 2 ósátt, 3 iðan, 4 þjór, 5 klént, 6 totta, 10 ágæti, 12 ask,
13 eta, 15 þekkt, 16 efldi, 18 gosar, 19 annar, 20 fann, 21 tekt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Vörn eða sókn?
Norður
♠532
♥G104
♦ÁK73
♣DG4
Vestur Austur
♠D964 ♠–
♥97 ♥ÁKD853
♦D1062 ♦G85
♣873 ♣10952
Suður
♠ÁKG1087
♥62
♦94
♣ÁK6
Suður spilar 4♠.
Vestur kemur út með ♥9 í sögðum lit
makkers. Austur tekur tvo slagi á lit-
inn og spilar hjarta í þriðja sinn. Vörn
eða sókn?
Sagnhafi veit hvernig hjartað liggur
og trompar því með millispili, gosa eða
tíu. En vestur kann líka til verka og
hendir laufi. Suður leggur niður ♠Á og
sér leguna. Nú er innkast í trompinu
eina vonin og sagnhafi undirbýr verkið
með ♦Á-K og tígultrompun, en vestur
fylgir lúmskt með ♦D. Sagnhafi tekur
tvo slagi á lauf og þarf svo að gera upp
við sig hvort hann trompar fjórða tíg-
ulinn eða spilar strax laufi – hvort vest-
ur eigi lauf eða tígul eftir. Þá rifjast
upp að vestur henti laufi í þriðja hjart-
að, sem bendir til að hann hafi byrjað
með þrjú, en ekki fjögur. Suður tromp-
ar því fjórða tígulinn og spilar svo laufi:
tíu slagir.
19. desember 1901
Tólf hús brunnu á Akureyri og
meira en fimmtíu manns urðu
heimilislausir. „Mestur eldur
sem kviknað hefir á Íslandi,“
sagði blaðið Norðurland.
19. desember 1969
Aðild Íslands að Fríverslunar-
samtökum Evrópu (EFTA) var
samþykkt á Alþingi. Alls
greiddu 34 þingmenn atkvæði
með aðild (Sjálfstæðismenn,
Alþýðuflokksmenn og tveir
aðrir), 7 voru á móti (Alþýðu-
bandalagsmenn), 17 sátu hjá
(Framsóknarmenn) og 2 voru
fjarverandi. Tillaga um þjóð-
aratkvæðagreiðslu var felld
með 32 atkvæðum gegn 26.
Aðildin tók gildi 1. mars 1970.
19. desember 1983
Hjónin Ingibjörg Daðadóttir,
99 ára, og Sigurður Magnús-
son, 103 ára, áttu 75 ára hjú-
skaparafmæli, sem er eins-
dæmi hér á landi. Sigurður
lifði tæplega fimm mánuði
fram yfir þetta afmæli en Ingi-
björg í rúm fjögur ár. Þau
bjuggu í Stykkishólmi.
19. desember 2006
Flutningaskipið Wilson Muuga
strandaði í Hvalsnesfjöru á
Reykjanesi. Skipverjunum tólf
var bjargað í land, en átta
menn af danska varðskipinu
Triton lentu í sjávarháska við
björgunarstörf. Einn lést en
þyrla Landhelgisgæslunnar
bjargaði hinum. Skipið náðist
á flot í apríl.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Ég held að það verði akkúrat engin breyting. Mér
líst bara vel á þetta,“ sagði Guðmundur Árnason,
söðlasmíðameistari á Selfossi, aðspurður hvernig
honum þætti það að verða fertugur. Hann á 40 ára
afmæli í dag. Guðmundur reiknaði með að mæta til
vinnu í dag en taldi að ekki yrði mikið úr afmælis-
haldi. Það væri lítill tími til þess í vikunni fyrir jól.
Hann sagði að það hefði haft sín áhrif að eiga af-
mæli svona rétt fyrir jólin.
„Maður fékk oft stóran pakka í jóla- og afmælis-
gjöf, sérstaklega þegar maður var lítill. Í minning-
unni fékk maður ekki jafnmarga pakka og hinir
þegar allt var talið,“ sagði Guðmundur.
Það eru ekki margir söðlasmíðameistarar á Íslandi sem starfa við
fagið í fullu starfi, að sögn Guðmundar. Hann starfar hjá Hesta-
vöruversluninni Baldvini og Þorvaldi ehf. á Selfossi. Starf hans felst
mest í smíði reiðtygja og viðgerðum en ekki lengur í smíði hnakka,
hvað þá söðla. Nóg er að gera í viðhaldi reiðtygja og vinna einn til tveir
starfsmenn við það. Guðmundur hefur útskrifað þrjá sveina í söðlasmíði
en er ekki með neinn nema sem stendur. Hann sagði að nokkrir áhuga-
samir væru á biðlista eftir að komast á námssamning. gudni@mbl.is
Guðmundur Árnason söðlasmíðameistari
„Mér líst bara vel á þetta“
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
19. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 0.41 3,3 6.56 1,2 13.06 3,3 19.28 1,1 11.21 15.30
Ísafjörður 2.43 1,7 9.00 0,6 14.59 1,8 21.31 0,5 12.08 14.52
Siglufjörður 5.16 1,1 11.14 0,3 17.32 1,0 23.48 0,2 11.53 14.33
Djúpivogur 3.57 0,6 10.04 1,6 16.21 0,5 22.51 1,7 10.59 14.50
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Leggðu spilin á borðið og láttu engan
velkjast í vafa um hvað það er sem þú ætlar
þér. Skáldsögur eða kvikmyndir verða þér
ánægjuleg afþreying í dag.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Fólk virðist vilja fá svör frá þér - svör
sem þú veist ekki hvernig á að gefa. Haltu
samt hógværð þinni, því hún er ásamt dugn-
aðinum þitt mesta aðalsmerki.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Láttu ekki hjá líða að sinna sam-
böndum þínum við þá sem standa þér næst.
Ekki halda að þú vitir best. Gleði þín og
ánægja snerta aðra.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það er stundum gaman að hlaupa á
eftir einhverri hugdettunni án þess að skeyta
nokkuð um tilefni eða tíma.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú ert svo upptekin/n af ákveðinni hug-
mynd í vinnunni að þú getur ekki með nokkru
móti sleppt henni. Ræddu málin við félaga
þína og drífðu svo í hlutunum.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú verður fyrir vonbrigðum í ásta-
málum í dag. Passaðu upp á sveigjanleikann
því þá kemstu allt sem þig langar til að fara.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú ert fullur af krafti og iðar í skinninu
eftir að koma öllu í verk sem er á biðlist-
anum. Allt sem til þarf er annar hugs-
unarháttur til að koma þér á stað.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Reyndu að skuldbinda þig ekki
eða lofa upp í ermina á þér er þú talar við vini
í dag. Þú þarft ekki að hlaupa til þótt fólkið í
kringum þig sé með einhver látalæti.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Einhver er tilbúinn til að aðstoða
þig í málefnum er varða ferðalög, lögin eða
menntun á háskólastigi.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Röddin sem dæmir þig hið innra,
kemur í veg fyrir að óskirnar rætist. Gríptu til
viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú þarft að endurskoða ferða-
áætlanir þínar og áætlanir sem tengjast list-
sköpun og vinnu með börnum.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Ráðagóður áhrifamaður verður á vegi
þínum í dag og góð ráð hans geta gagnast
þér. Sýndu því ástvinum þínum ræktarsemi
og þú munt fá hana margfalda aftur.
Stjörnuspá
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 a6
5. Rc3 Dc7 6. Bd3 Rf6 7. f4 d6 8. O-O
Rbd7 9. Kh1 Be7 10. De2 O-O 11. Bd2
Rc5 12. Hac1 b5 13. b4 Rxd3 14. cxd3
Dd7 15. g4 Bb7 16. g5 Re8 17. f5 d5 18.
e5 exf5 19. Rxf5 Rc7 20. d4 Re6 21.
Dh5 Bxb4 22. Hf3 g6 23. Rh6+ Kh8 24.
Dh4 Bc8 25. Hcf1 Rd8
Staðan kom upp í Evrópukeppni
taflfélaga sem lauk fyrir nokkru í Ro-
gaska Slatina í Slóveníu. Rússneski
stórmeistarinn Andrei Volokitin
(2686) hafði hvítt gegn þýska al-
þjóðlega meistaranum Maximilian Lo-
renz Drabke (2463). 26. Rxd5! Dxd5
27. Bxb4 He8 28. Df4 He6 29. Rxf7+
Rxf7 30. Dxf7 Bb7 31. Bf8 og svartur
gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.