Morgunblaðið - 24.12.2011, Side 1
Morgunblaðið/Ómar
Gleðileg jól
Börnin fara að hlakka til Bræðurnir Hákon og Hinrik Dagur Gunnarssynir slá taktfasta tóna í tilefni þess að jólin eru í þann mund að ganga í garð.
L A U G A R D A G U R 2 4. D E S E M B E R 2 0 1 1
Stofnað 1913 302. tölublað 99. árgangur
www.jolamjolk.is
SKYRGÁMUR OG
BJÚGNAKRÆKIR
Á VAPPI
MUGISON Í
MÁLI OG
MYNDUM
UNDARLEGT
AÐ VINNA JÓLA-
PLÖTU AÐ SUMRI
SUNNUDAGSMOGGINN JÓLAPLATA KK OG ELLENAR 48ENDURNAR VILJA EKKI SKYR 10
Anna Lilja Þórisdóttir
Börkur Gunnarsson
Íslenskt athafnafólk hefur náð ár-
angri í rekstri á ýmsum sviðum
erlendis. Nefna má fiskverslanir í
Kaupmannahöfn og nágrenni og í
Stokkhólmi reka Íslendingar fjóra
skyndibitastaði.
Systkinin Vigdís og Björgvin
Finnsbörn reka keðju fiskverslana
á Kaupmannahafnarsvæðinu undir
nafninu Boutique Fisk. Fyrsta
verslun þeirra var opnuð í jan-
úarmánuði 2007 og síðan hafa
þrjár verslanir verið opnaðar til
viðbótar og um tuttugu manns
ráðnir til vinnu. Ein verslananna
er til húsa í Magasin du Nord við
Kóngsins Nýjatorg og hinar þrjár
í matvöruverslunum Super Best
víðsvegar um borgina. Úrvalið
verður að teljast til fyrirmyndar, í
boði eru ýmsar ferskar fiskafurðir
á borð við rauðsprettu og lax en
einnig eru réttir á borð við fiski-
salat og tapas-rétti á boðstólum.
Æskuvinirnir Einar Örn Ein-
arsson og Emil Lárusson, stofn-
endur Serrano á Íslandi, hafa nú
opnað fjóra veitingastaði í Stokk-
hólmi, höfuðborg Svíþjóðar, til við-
bótar við sex Serrano-staði hér á
landi. Fyrsti veitingastaður þeirra
í Stokkhólmi var stofnaður árið
2009.
Hasla sér völl í sölu á
fiski og skyndibitum
Hafa náð árangri í rekstri á ýmsum sviðum erlendis
Gæði og fjölbreytni
» Boutique Fisk fiskversl-
anirnar leggja mikla áherslu á
gæði matvörunnar og fjöl-
breytni í úrvali.
» Stofnendur Serrano útiloka
ekki að þeir opni fleiri veit-
ingastaði.
MHollusta erlendis »22, 24
Veðurstofan spáir slæmu veðri
um allt land í dag, aðfangadag.
Veður verður slæmt í öllum lands-
hlutum á mismunandi tímum í dag.
Sunnan til er spáð úrkomu og
talsverðu hvassviðri undir morgun
og fram yfir hádegi má búast við
hvassri norðanátt á Vestfjörðum
með snjókomu. Á austurhluta
landsins er spáð NV stormi með
snjókomu seinnipart dags og geta
vindhviður farið yfir 40 m/s undir
kvöld. Á fréttavef Morgunblaðsins,
mbl.is, verður náið fylgst með frétt-
um af veðri og færð fram eftir degi.
Morgunblaðið/RAX
Óveður Varað er við slæmu veðri í dag.
Vonskuveðri spáð
um allt landið