Morgunblaðið - 24.12.2011, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.12.2011, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2011 Kaupfélag Skagfirðinga óskar starfsfólki, félagsmönnum, viðskiptavinum svo og landsmönnum öllum gleðilegra jóla. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. Kaupfélag Skagfirðinga Kannski voru þar einu sinni staflar af ís- lenskri skreið eða ullarreyfi stoltra íslenskra kinda. En nú er sendiráð Íslands í Danmörku til húsa í 18. aldar pakkhúsi í Kaupmanna- höfn. Þó að lopa- og fiskútflutning beri þar vafalaust á góma eru verkefni þessa elsta sendiráðs Íslendinga á erlendri grundu margvísleg og líklega fjölbreyttari en marg- an grunar. Enda er Danmörk það land sem flestir Íslendingar eru búsettir í utan Ís- lands. Sturla Sigurjónsson hefur verið sendi- herra Íslands í Danmörku í tæp tvö ár. Áður starfaði hann um árabil í utanríkisþjónust- unni og segir verksvið sendiráða hafa breyst talsvert undanfarin ár og áratugi. „Sendiráð þurfa, eðli sínu samkvæmt, að gæta ákveðinnar formfestu en þurfa samt líka að geta verið sveigjanleg. Núna eru verkefnin sem við sinnum mjög fjölbreytt; allt frá hefðbundinni fyrirgreiðslu við Íslend- inga í Danmörku og yfir í hápólitísk sam- skipti. Gríðarleg aukning hefur verið í út- gáfu og endurnýjun vegabréfa og sífellt fleiri leita á náðir sendiráðsins til að taka próf. Og þarna á milli er töluvert um við- skipti og mikið um menningartengsl. Þetta er þannig starfsemi að maður veit aldrei hvað morgundagurinn ber með sér,“ segir Sturla. Eðlilegur niðurskurður Að sögn Sturlu hefur verulega verið skor- ið niður í rekstri sendiráðsins, eins og flestra annarra opinberra stofnana eftir kreppu. Til dæmis hefur stöðugildum fækkað úr átta í fimm og hálft, en verkefnunum fjölgað á sama tíma. „Niðurskurðurinn var bæði viðbúinn og eðlilegur, en hann kallar á for- gangsröðun verkefna. Við höfum tekið við verkefnum frá öðrum aðilum að hluta til, t.d. rak Ferðamálastofa skrifstofu hér í Kaup- mannahöfn með tveimur starfsmönnum, henni var lokað og þau verkefni fluttust að verulegu leyti til okkar,“ segir Sturla. Um tíu þúsund íslenskir ríkisborgarar eru skráðir til heimilis í Danmörku og um helm- ingur þeirra er á Kaupmannahafnarsvæðinu. Sturla segist þó telja að enn fleiri Íslend- ingar séu búsettir í landinu, því að nokkuð sé um að fólk haldi þar til í nokkurn tíma en sé með lögheimili sitt á Íslandi. „Fólk er mikið að koma og fara og staldrar mislengi við, en ég held að ég geti fullyrt að allflestir Íslend- ingar spjari sig mjög vel hér. Danir hafa oft á orði hversu vel þeir aðlagist samfélaginu.“ Enginn týpískur Íslendingur Sturla segir að alls ekki sé hægt að tala um einhvern „týpískan Íslending“ í Dan- mörku. „Þetta er mjög fjölbreyttur hópur. En það kemur nokkuð á óvart að Íslend- ingum sem flytjast til Danmerkur hefur fjölgað að undanförnu, því að atvinnu- ástandið hér er ekki gott. Mér skilst líka af rektorum danskra háskóla að Íslendingum í námi hafi fækkað. Það er því erfitt að segja hvað skýrir þessa fjölgun, en hugsanlega er fólk að fara í styttra nám í sérskólum og kemur jafnvel oft með stórar fjölskyldur með sér.“ Stundum heyrist að Íslendingar séu illa þokkaðir í Danmörku, ekki síst eftir hrun. Einnig að mörgum Dananum hafi þótt kreppan makleg málagjöld þjóðar sem lagði undir sig stóran hluta Kaupmannahafnar með digurbarkalegum yfirlýsingum um eigið ágæti. „Ég hef ekki orðið var við fordóma gagn- vart Íslendingum hér í Danmörku eftir hrun- ið, og ég held að tal um slíkt sé nokkuð orð- um aukið. En það var mikið gert með neikvæða afstöðu Dana til Íslendinga. Sumir Danir gætu verið tortryggnir gagnvart ís- lenskum fjármálastofnunum og bönkum, en jákvæðir gagnvart öðru sem frá landinu kemur, eins og til dæmis menningunni.“ Kynning á íslenskri menningu er veiga- mikill þáttur í starfsemi sendiráðsins og Sturla segir að verk íslenskra listamanna eigi mikið erindi við aðrar þjóðir. „Ég leyfi mér að fullyrða að menningin hefur marg- földunaráhrif. Til dæmis gæti sá, sem les bók eftir íslenskan höfund, fengið áhuga á að lesa fleiri íslenskar bækur, hlusta á íslenska tónlist eða heimsækja Ísland. Þetta gleymist stundum þegar verið er að tala um að kynna íslenska menningu á alþjóðavettvangi.“ Norrænt samstarf mikilvægt Norrænt samstarf er eitt af stærri verk- efnunum. „Norrænu tengslin eru mikilvæg og ég tel að norrænt samstarf standi enn á mjög traustum grunni. Kannski má segja að það hafi liðið fyrir of góðan árangur, þ.e.a.s. það er orðið svo sjálfgefið að við tökum varla eftir því lengur. Auðvitað hefur ytra umhverfi eins og aukin hnattvæðing og Evr- ópusambandið alltaf áhrif á svona staðbund- ið samstarf en slíkar breytingar geta líka orðið til þess að þétta samstarfið,“ segir Sturla. Danmörk er eitt stærsta viðskiptaland okkar Íslendinga og Sturla segir að útflutn- ingur Íslendinga til Danmerkur hafi numið um 15 milljörðum í fyrra. Til samanburðar má nefna að útflutningur til Bandaríkjanna nam um 25 milljörðum. „Við erum annars vegar að tala um þjóð, þar sem fimm og hálf milljón býr og hins vegar 300 milljóna þjóð. Þetta sýnir hvað þetta er mikilvægur mark- aður og þetta er nærmarkaður; umhverfi sem við þekkjum og ég er sannfærður um að möguleikarnir séu langt frá því að vera tæmdir. Ferðamálin eru mjög mikilvæg og þar hefur gengi krónunnar auðvitað haft áhrif. Mér skilst að það sé 8% fjölgun danskra ferðamanna til Íslands á fyrstu tíu mánuðum ársins og Danir eyða miklu á Ís- landi, eða um 440 milljónum í fyrra.“ Aðstoða við tengslamyndun Sendiráðið aðstoðar lítil og meðalstór ís- lensk fyrirtæki við að koma sér á framfæri, við tengslamyndun og að komast í samstarf við danska aðila. Það hefur í samstarfi við Dansk-íslenska viðskiptaráðið staðið að svo- kölluðu viðskiptaneti íslenskra fyrirtækja í Danmörku, sem ætlað er að stuðla að auk- inni upplýsingamiðlun til þeirra um að- stæður og tækifæri í Danmörku. En það hef- ur líka milligöngu á milli danskra aðila og íslensks viðskiptalífs. Sturla segir vaxandi áhuga vera meðal Dana á fjárfestingum á Ís- land, ekki síst á loðdýrarækt. „Danskir loð- dýrabændur horfa til Íslands og stórir hópar þeirra fara gagngert þangað til að kynna sér loðdýrarækt. Þetta hefur ekki farið hátt, en íslensk skinn þykja afbragðsgóð og gæði þeirra þykja á við það sem best þekkist í Danmörku.“ Verkefnin eru greinilega mörg og misjöfn. En er hægt að taka hlutverk sendiráðsins saman í einni setningu? „Það má eiginlega segja að sendiráðið sé eins og upphafinn sýslukontór án nokkurra valdheimilda,“ seg- ir Sturla. Sturla Sigurjónsson Á kontórnum Sturla Sigurjónsson, sendi- herra Íslands í Danmörku. Upphafinn kontór í gömlu pakkhúsi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.