Morgunblaðið - 24.12.2011, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2011
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
„Jólin verða afar ólík venjulegum ís-
lenskum jólum hjá okkur í ár. Við er-
um jú hér án stórfjölskyldu og vina
og verðum því bara fjögur saman
fjölskyldan í notalegheitum. Það er
voða skrýtið að halda jól í miðju
sumri, sól og hita. Ég gleymi því sí-
fellt að það séu að koma jól! Það
bara einhvern veginn passar ekki og
ég viðurkenni að ég er nú ekki í nein-
um sérstökum jólafíling. Jólastress-
ið er ekkert þar sem við höfum ekki
sent nema fáeinar gjafir heim því
það kostar sitt að senda pakka yfir
hálfan heiminn. Ég uppgötvaði það
bara í fyrradag að jólin eru á laug-
ardaginn!“ segir Erla Sigurlaug Sig-
urðardóttir, sem fagnar jólum ásamt
fjölskyldu sinni í Ástralíu.
Lítið um jólaskraut í Ástralíu
Að sögn Erlu er lítið um jóla-
skraut í Ástralíu. „Ástralir skreyta
alls ekki mikið, mollin hér eru voða
lítið skreytt og ég heyri enga jóla-
tónlist, það er ekkert skreytt á göt-
um úti, engin ljós og engin lifandi
jólatré hér í Brisbane að minnsta
kosti,“ segir Erla og bætir við að
hún hafi þó séð eitthvað af gervi-
jólatrjám til sölu í verslunum. Erla
segir að þau fjölskyldan hafi ekki
skreytt heimilið að þessu sinni ef frá
eru taldar heimatilbúnar jólamyndir
sem dóttir hennar hefur verið iðin
við að teikna.
„Þegar ég uppgötvaði allt í einu
um daginn að það væri komin að-
venta í 30 stigum og stingandi sól,
bara af því ég sá vini á facebook vera
að tala um aðventukransa, sem ég
hef nú reyndar ekki séð hér úti,
ákvað ég nú að reyna að vera aðeins
jóló fyrir krakkana og bakaði
myndakökur og málaði þær með
þeim,“ segir Erla og bætir við: „Á
meðan hlustuðum við á íslensk jóla-
lög, sungum „snjókorn falla“ og
skellihlógum svo því þetta átti eitt-
hvað svo skringilega við!“
Afslöppuð stemning
á jólaböllum
Erla segir jólaböll í Ástralíu vera
talsvert frábrugðin þeim sem haldin
eru hér heima, þannig séu t.d. engin
jólatré og lítið um skraut en einnig
mun afslappaðri stemning. „Skólinn
var mjög lítið skreyttur og boðið var
upp á hefðbundið Aussie-barbíkjú
með hamborgurum og pylsum og
vissulega var bjór og vín í boði fyrir
foreldrana, en það er venjan á skóla-
uppákomum hér. Ástralinn er svo af-
slappaður og um að gera að hafa
svolítið gaman að þessu!“ segir Erla
um jólaball sem haldið var í skól-
anum hjá dóttur hennar.
Að sögn Erlu eyðir hún jólunum
ásamt fjölskyldu sinni á ströndinni,
en þau fóru á „paradísareyjuna“
Moreton Island í gær á Þorláks-
messu og verða þar yfir jólin. „Þá
fær Vera, sjö ára dóttir okkar, tæki-
færi til að klappa og gefa villtum
höfrungum að éta á aðfangadags-
kvöld, en daman er mikill dýravinur
og höfrungar í miklu uppáhaldi. Við
förum á jólahlaðborð þar og ég
hlakka til að sjá hvað er á því, því ég
hef ekki hugmynd um hver jólamat-
urinn hér er!“ segir Erla aðspurð
hvað þau fjölskyldan ætli að gera á
Moreton-eyju um jólin.
Kóalabirnir í jólagjöf
Erla segir að krakkarnir hafi al-
mennt fengið litlar og fáar gjafir
enda sé fjölskyldan einungis búsett
þarna í takmarkaðan tíma og því erf-
itt fyrir þau að sanka að sér dóti.
Eitt barnanna fékk þó alveg ein-
staka jólagjöf. „Dóttir okkar er nú
þegar búin að fá jólagjöfina frá okk-
ur foreldrunum. Hún fékk að gjöf að
vinna sem dýragarðsvörður í einn
dag í kóaladýragarði hér í borg, en í
dýragarðurinn eru alls kyns áströlsk
dýr. Vera er mikill dýravinur og
þetta var draumurinn. Hún fékk
meðal annars að ganga með dingó-
hundana, gefa kengúrunum að éta,
knúsa kóalabirni og þrífa undan
emúunum. Daman vildi flytja í dýra-
garðinn eftir þetta!“ segir Erla.
Afslöppuð jól í Ástralíu
Eyða jólunum í sól og hita á ströndinni Fengu sér hamborgara, pylsur og
bjór á jólaballi Dóttirin fékk að vera dýragarðsvörður í einn dag
Strönd Erla hyggst eyða jólunum í sól og hita ásamt fjölskyldu sinni á ströndinni á Moreton-eyju.
Jólagjöf Dóttir Erlu var hæstánægð með jólagjöfina sína. Gjöfin fólst í því að
hún fékk að vera dýragarðsvörður í einn dag og passa m.a. upp á kólabirni.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Útflutningur á ferskum fiski til
Bretlands um hátíðarnar er mun
minni en á sama tíma í fyrra, að sögn
Jóns Steins Elíassonar, forstjóra
Toppfisks og formanns Samtaka
fiskframleiðenda og útflytjenda, Sfú.
Jón Steinn segir að samt sem áður
sé salan góð á Bretlandsmarkað en
núna leggi stóru verslunarkeðjurnar
meiri áherslu á að selja eldislax,
einkum frá Noregi og Síle, en fersk-
an þorsk og ýsu.
„Þetta hefur breyst,“ segir hann
og bendir á að kreppan ytra hafi
áhrif og samkeppnin sé meiri en áð-
ur. Í því sambandi nefnir hann sér-
staklega laxinn og frosinn fisk, sem
bresku keðjurnar kaupi af Norð-
mönnum, þíði og selji sem ferskan
fisk.
Gæftir hafa ekki verið góðar að
undanförnu en Jón Steinn segir að
Toppfiskur hafi fengið nóg hráefni
til að standa við gerða samninga.
Hins vegar hafi fyrirtækið þurft að
frysta meira að þessu sinni en í fyrra
vegna minni sölu í ferskfiski í Bret-
landi. Í fyrra hafi salan líka verið
minni en árin á undan en þá hafi
veðrið ytra líka haft áhrif á sam-
göngur og því sett strik í reikning-
inn.
Um 50% samdráttur
Jón Steinn segir að þessa vikuna
hafi Toppfiskur sent um 40-50 tonn
af ferskfiski til Bretlands og það sé
helmingi minna en á sama tíma und-
anfarin ár. Mjög lítið framboð hafi
verið á íslensku mörkuðunum þessa
vikuna, en áður hafi hann verið að fá
fisk alveg fram á aðfangadagsmorg-
un.
Ferskfiskurinn er bæði sendur út
með flugi og sjóleiðis. Jón Steinn
leggur áherslu á að Toppfiskur sendi
ekki vöru út nema búið sé að selja
hana. Hann bendir líka á að fisk-
urinn sé dýr á mörkuðunum og verð-
ið hafi áhrif á útflutninginn.
Útflutningur á
ferskum fiski
dregst saman
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í
gær tvo menn sem slösuðust í bíl-
slysi við Jökulsárlón á Breiðamerk-
ursandi. Samkvæmt upplýsingum
sérfræðings á slysadeild Landspít-
alans í Fossvogi, reyndust menn-
irnir ekki alvarlega slasaðir og var
reiknað með að þeir yrðu útskrif-
aðir í dag.
Landhelgisgæslunni barst kl.
11:40 beiðni frá Neyðarlínu um að
þyrla yrði sett í biðstöðu og fór
TF-LIF í loftið kl. 12:14. Þyrlan
hélt áleiðis til móts við sjúkrabíl.
Lent var kl. 13:11 við Freysnes í
Öræfasveit og voru hinir slösuðu
færðir yfir í TF-LIF. Þyrlan fór að
nýju í loftið kl. 13:23 og var lent við
Landspítala Háskólasjúkrahús í
Fossvogi kl. 14:45.
Ekki alvarlega
slasaðir eftir bílslys