Morgunblaðið - 24.12.2011, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 24.12.2011, Blaðsíða 48
48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2011 100/1 „MERRILY OUT OVER-THE-TO -ENTERTAINME FRÁBÆR RÓMANTÍSK GAMANMYND SEM KEMUR ÖLLUM Í HÁTÍÐARSKAP Sarah Jessica PARKER Jessica BIEL Ashton KUTCHER Zac EFFRON Michelle PFEIFFER Robert DE NIRO Halle BERRY Sofia VERGARA Katherine HEIGL Josh DUHAMEL Hilary SWANK Jon BON JOVI Abigail BRESLIN Chris "Ludacris" BRIDGES Hector ELIZONDO Seth MEYERS Lea MICHELE Til SCHWEIGER á allar sýningar merktar með grænu SPARSPARBÍÓ 3D 1.000 kr. SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLLSÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL - MARA REINSTEIN / US WEEKLY HHHH -BOXOFFICE MAGAZINE HHHH -THE HOLLYWOOD REPORTER HHHH MÖGNUÐ ÞRÍVÍDDARMYND KLIKKAÐASTA GRÍNMYND ÁRSINS SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI GLEÐ ILEG JÓL Lokað 24. og 25. desember - sýn in JÓLAM YND FJÖLSK YLDUN NAR Í Á R Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Jólaplata KK og Ellen, Jólin eru að koma, skreið undan vetrarfeldi fyr- ir sex árum. Um fyrstu sameig- inlegu plötu þessara tónelsku systkina var þá um að ræða. Þau hafa síðan þá haldið reglulega jóla- tónleika og því tími kominn á nýtt efni að sögn KK. „Ég er að keyra. En hef fulla stjórn. Er með viðeigandi búnað til að tala í,“ segir hinn löghlýðni KK glaðhlakkalega er blaðamaður slær á hann í morgunsárið á Þorláks- messunni. Hann rifjar upp tildrög þess að hann og systir hans hafi lagt í jólaplötu á sínum tíma. „Það var sannarlega kominn tími á þetta þá. Við settumst niður og vorum að pæla í því hvernig systkinaplötu við ættum að gera. Og þetta þróaðist mjög náttúrulega út í jólaplötu. Með þessari plötu erum við svo að svara ákveðinni eft- irspurn, við höfum verið að halda jólatónleika í fimm ár og gott að fá eitthvert nýtt efni inn.“ KK segir að þau hafi farið í gegn- um lagabunka í sumar, valið úr og spáð í hvað hentaði þeim best. „Maður fer eftir tilfinningu. Það er ómögulegt að sjá fyrir fram hvað gengur upp og hvað ekki í þessum efnum. Við tíndum saman óhemju- mikið af lögum en maður kemst ekki að því hvað virkar fyrr en maður tekur á þeim. Það voru þarna mjög falleg lög sem síðan felldu sig ekki að okkar stíl. Við sem flytjendur náðum ekki sambandi við þau.“ KK segir það að sönnu skringilegt að taka upp jólaplötu á hásumri og hlær dillandi hlátri þegar hann rifjar það upp. „Svolítið skrítið, óneitanlega,“ segir hann. „Að vera með tugi jólalaga í eyr- unum í júní og júlí.“ Leið KK og Ellen að þessum lög- um er mörkuð þessum kunnuglega stíl sem tónlistarunnendur þekkja, útgáfurnar eru sefandi og hátíðlega, mínimalískar eins og KK bendir á. „Stíllinn kemur af sjálfu sér,“ seg- ir hann. „Það er mikilvægt, finnst mér, að þegar maður byrjar á einhverju verkefni kemur að þeim tímapunkti að verkefnið sjálft fer að ráða för. Maður verður að vera opinn fyrir því að það taki eigin stefnu og maður á alls ekki að berjast á móti því og reyna að neyða það inn á línu sem það vill ekki fara í.“ KK nefnir að Eyþór Gunnarsson, maður Ellenar, hafi tekið þátt í þess- ari plötu og hans einkenni liggi líka yfir henni. „Hann spilar meðal annars á harmóníum, gamalt pumpuorgel. Hans áhrif á plötunni eru bæði góð og gegn.“ Þessar jólaplötur systkinanna eru ábyggilega fastagestir um hátíð- arnar á mörgum heimilum en hvað um KK sjálfan? „Það er plata með Golden Gate Quartet,“ svarar hann umyrðalaust. „Hún hefur verið á fóninum á mín- um heimilum síðan ég man eftir mér.“ Sefandi hátíðleiki Samheldni Systkinin KK og Ellen eiga nú að baki tvær jólaplötur og jólatónleikar þeirra eru vinsælir.  Jólin er önnur jólaplata systkinanna KK og Ellenar  Undarlegt að vinna jólaplötu að sumri segir KK  Mikilvægt að leyfa verkefninu að fara sína leið „Ég vil fá Mugison í jólagjöf!“ „Status kvöldsins er án vafa: Ég vil ekki fá plötuna með Mugison í jóla- gjöf. Ég vil fá Mugison í jólagjöf!“ Þannig hljómaði fésbókarfærsla Sólveigar Arnarsdóttur leikkonu eftir tónleika Mugisons í Hörpu. Fjöldi manna mærði Mugison á þeim vettvangi eftir tónleikana enda voru þeir í beinni útsendingu í Sjónvarpinu. Sóley Stefánsdóttir hefur tilkynnt að tónleikadagskrá fyrir árið 2012 sé komin í hús. Söngkonan lýsir enn fremur yfir ánægju sinni með til- högun mála á opinberu fésbók- arsetri sínu og segir tónleika verða „víðsvegar um heim“. Viðbrögð við þessu hafa verið þónokkur, m.a. að utan, en plata hennar, We Sink, hef- ur fengið lofsamlega dóma. Sóley um heim allan á næsta ári

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.