Morgunblaðið - 24.12.2011, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 24.12.2011, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2011 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Kirkjuklukkur klingdu og sírenur vældu þegar útför Václavs Havels fór fram frá dómkirkju frá fjórtándu öld í Prag í gær. Fjölmargir þjóðar- leiðtogar voru viðstaddir útförina og allt þjóðlífið stöðvaðist í Tékklandi þegar landsmenn vottuðu minningu forsetans fyrrverandi virðingu sína. Forsetar sextán Evrópuríkja voru viðstaddir útförina í Vitusarkirkj- unni, auk ráðherra og þingforseta frá fjölmörgum löndum, þeirra á meðal Ásta Ragnheiður Jó- hannesdóttir, forseti Alþing- is. Á meðal annarra í kirkj- unni voru Hillary Clinton, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, og eiginmaður hennar og fyrrverandi forseti, Bill. Made- leine Albright, fyrr- verandi utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sem fæddist í Tékklandi, flutti ræðu við útförina. „Hann hafði frelsið í há- vegum, leit ekki á það sem markmið í sjálfu sér, heldur leið til að knýja fram sigur sannleikans,“ sagði hún. Erkibiskupinn í Prag las bréf frá Benedikt XVI páfa sem minntist baráttu hans fyrir mannréttindum, andófs hans gegn kommúnista- stjórninni í Tékkóslóvakíu og þáttar hans í flauelsbyltingunni sem lauk með því að hann varð forseti landsins í lok ársins 1989. Havel var forseti Tékkóslóvakíu til 1992 og síðan Tékklands til 2003 eftir að þjóðernis- sinnum í Slóvakíu tókst að knýja fram skiptingu gamla sambands- ríkisins í tvö ríki. Lýst var yfir þjóðarsorg í Slóvakíu í gær í tilefni af útförinni. Rokk til heiðurs risanum Nicolas Sarkozy, forseti Frakk- lands, lýsti Havel sem „risa“ sem hefði átt stóran þátt í því að koma á lýðræði í austanverðri Evrópu og „barðist alltaf fyrir endursamein- ingu álfunnar“. Havel var mikill rokkunnandi og því var ákveðið að halda rokktón- leika honum til heiðurs í gærkvöldi í Lucerna-höll, sem afi hans reisti í byrjun aldarinnar sem leið. Lík Havels var brennt síðar um daginn. Tékkneska dagblaðið DNES sagði að aska hans yrði sett í graf- hvelfingu fjölskyldu hans í kirkju- garði í Prag við athöfn eftir jólin, hugsanlega á þriðjudaginn kemur. Frelsishetjan kvödd  Fjölmargir þjóðhöfðingjar og fyrrverandi leiðtogar voru viðstaddir útför Václavs Havels  Allt þjóðlífið stöðvaðist í Tékklandi og þjóðarsorg í Slóvakíu Reuters Útför Madeleine Albright, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, flytur ræðu við útför Václavs Havels í Vitusarkirkjunni í Prag í gær. Stjórnvöld í Sýr- landi sögðu í gær að yfir 40 manns hefðu beðið bana og 150 særst í tveimur sjálfs- vígsárásum á byggingar ör- yggissveita í Damaskus. Ríkis- stjórn landsins sagði að liðs- menn al-Qaeda hefðu verið að verki en andstæðingar hennar sökuðu hana um að hafa staðið fyrir árás- unum til að villa um fyrir eftirlits- mönnum sem komu til landsins í gær á vegum Arababandalagsins. Stjórnin kvaðst búast við því að eftirlitsmennirnir myndu staðfesta fullyrðingar hennar um að hún ætti einkum í höggi við „vopnaða hryðjuverkamenn“ en ekki frið- sama mótmælendur eins og mann- réttindahreyfingar hafa sagt. Kenna al-Qaeda um blóðbað í Damaskus Fulltrúar Araba- bandalagsins. SÝRLAND Indónesísk stúlka, Mary Yuranda, sem týndist í flóð- bylgjunni ógur- legu árið 2004, er nú loksins komin heim til sín í Aceh-héraði, sjö árum eftir nátt- úruhamfarirnar. Þegar stúlkan fannst hafði hún búið hjá ekkju sem neyddi hana til að betla á götunum og misþyrmdi henni. Stúlkan er nú fjórtán ára. Fannst sjö árum eftir flóðbylgjuna Mary Yuranda INDÓNESÍA Rússneskur gervihnöttur hrapaði til jarðar í Síberíu í gær, nokkrum klukkustundum eftir að honum var skotið á loft með eldflaug af gerðinni Soyuz-21B. Slys- ið varð vegna bil- unar í eldflauginni. Geim- ferðastofnun Rússlands hefur orðið fyrir hverju áfallinu á fætur öðru á árinu. Gervihnöttur hrapaði til jarðar Soyuz-eldflaug skotið á loft. RÚSSLAND Örlátur og fótlipur fíll í jólasveinsbúningi dreifir jólagjöfum með tilþrifum í barnaskóla í borginni Ayutthaya í Taílandi. Reuters Gjafmildur jólafíll Franska heilbrigðisráðuneytið sagði í tilkynningu í gær að sílíkon- púðar frá fyrirtækinu Poly Implant Prothése (PIP) ykju ekki líkurnar á krabbameini. Engu að síður var um 30.000 konum, sem hafa fengið slíka brjóstapúða í Frakklandi, ráðlagt að láta fjarlægja þá, að sögn fréttaveitunnar AFP. Franskir læknar hafa fundið átta tilfelli æxla hjá konum sem höfðu gallaða brjóstapúða frá PIP. Í til- kynningunni sagði þó heilbrigðis- ráðuneytið að konur með brjósta- púða frá PIP væru ekki líklegri til að fá krabbamein en konur sem hafa fengið sílikonpúða frá öðrum fyrirtækjum. Hins vegar hefði ver- ið sannað að púðarnir frá PIP ættu það frekar til að rifna en aðrir sílíkonpúðar. Að sögn AFP ráðlagði franski heilbrigðisráðherrann Xavier Bertrand konum með púða frá PIP að láta fjarlægja þá í varúðarskyni en lagði áherslu á að það teldist ekki „lífsnauðsynleg“ aðgerð. Hafi samráð við lækni PIP er nú gjaldþrota og vörur fyrirtækisins voru bannaðar í fyrra þegar í ljós kom að það hafði notað óleyfilegt iðnaðarsílíkon í stað hreins sílíkons í púðana. Tugir þúsunda kvenna í fleiri en 65 löndum hafa gengist undir brjóstaaðgerðir þar sem notaðir voru púðar frá PIP, flestar í Suð- ur-Ameríku og Vestur-Evrópu. Lyfjastofnun hefur hvatt konur, sem hafa farið í brjóstaaðgerð hér á landi, til að hafa samráð við lækni sinn og leita upplýsinga um hvaða fyrirtæki framleiddi sílíkon- púðana sem notaðir voru í aðgerð- inni. Brjóstapúðarnir auka ekki líkur á krabbameini  Franskar konur samt hvattar til að láta fjarlægja þá Reuters Gallaður Brjóstapúði frá PIP. Mikið margmenni var í mið- borg Prag í gær þegar borgarbúar komu þar saman til að fylgjast með útför leikskáldsins og forset- ans fyrrverandi. Margir þeirra voru með borða í tékknesku fánalit- unum.„Þetta er eins og að missa mjög nákominn ættingja,“ hafði fréttaveitan AFP eftir ungri konu sem var á meðal syrgjendanna. „Ef til vill fer nú fólk að líta á Havel sem heimspeking, ekki að- eins stjórnmálamann. Það hefur ekki verið svigrúm til þess hingað til,“ sagði 38 ára karlmaður. Tugir þúsunda Tékka vottuðu minningu Havels virðingu sína í vikunni þegar lík hans var til sýnis í gamalli kirkju og seinna í Prag- kastala þar til í fyrrakvöld. Margir fylgdust með útförinni „EINS OG AÐ MISSA MJÖG NÁKOMINN ÆTTINGJA“ Ekkja Havels, Dagmar Havlova.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.