Morgunblaðið - 24.12.2011, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.12.2011, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2011 VIÐTAL Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Búseta Íslendinga í Kaupmannahöfn á sér langa og viðburðaríka sögu. Eitt sinn voru það helst stúdentar, sem hugðu á Garðvist við Kaupmannahafnarháskóla, sem settust að í borginni við sundið. Flestir til skamms tíma, en aðrir ílentust þar. Eins og gengur. Rétt eftir aldamótin síðustu gerðust svo þau undur og stórmerki að íslenskir kaupsýslu- menn keyptu nánast hvert einasta danskt fyrirtæki sem einhver slægur þótti í, auk margra sögufrægra bygginga sem prýtt höfðu borgina um aldaraðir. Að auki fór fjöldi íslenskra fyrirtækja af ýmsu tagi í út- rás til Kaupmannahafnar. Ekki er laust við að farið hafi um margan Danann við þessa þróun. Var búið að hafa endaskipti á hlut- unum og gamla nýlendan orðin herraþjóð? Hér heima var blásið á alla gagnrýni sem barst frá þessum fyrrverandi höfuðstað okk- ar; þetta var auðvitað ekkert nema öfund í Dananum. En þetta varði ekki lengi eins og alþjóð veit og mörg þessara fyrirtækja hafa nú skipt um eigendur og athafnir íslenskra útrásarvíkinga eru ekki lengur fyrsta frétt í dönskum fréttatímum. En ekki eru allir Íslendingar í rekstri í Danmörku útrásarvíkingar. Fjöldi Íslend- inga er með ýmiskonar rekstur í Danmörku, bæði stórtækan og smærri í sniðum, enda er þetta það land sem flestir Íslendingar eru búsettir í, utan Íslands. Margir þeirra hafa hlotið viðurkenningar og hafa komið með ýmsar nýjungar. Hverjum dytti annars í hug að stofna fiskbúð í þessu helsta höfuðvígi svínakjötsneyslu? Það gleymist líka stundum að Danmörk er það land sem Ísland á einna mest viðskipti við á margan hátt og að mati sendiherra Íslands í Danmörku er sá mark- aður síður en svo mettaður. Ekki bara útrásarvíkingar  Íslenskir fisksalar slá í gegn í Danaveldi  Íslensk menning hefur margföldunaráhrif á ýmsan hátt  Um tíu þúsund Íslendingar búa í Danmörku  Finna ekki fyrir fordómum í sinn garð eftir hrun Ljósmynd/Getty Jólin Verslun og viðskipti Íslendinga í Danmörku hafa verið mikil í gegnum árin. Viðskiptin eru af ýmsum toga, bæði stór og smá í sniðum. Hverjum dettur í hug að opna fisk- búð í landi þar sem svínakjöt er þjóðarrétturinn? Þessa hugmynd fengu íslensku systkinin Vigdís og Björgvin Finnsbörn. Þau fram- kvæmdu hugdettuna og reka nú keðju fiskverslana á Kaup- mannahafnarsvæðinu undir nafninu Boutique Fisk. Fyrsta verslunin var opnuð í Fre- deriksberg janúar árið 2007 og núna eru verslanirnar orðnar fjórar. Þar af er ein í matardeild vöruhússins víðfræga Magasin du Nord við Kóngsins Nýjatorg í Kaupmanna- höfn og hinar þrjár eru í mat- vöruverslununum Super Best víðs vegar í Kaupmannahöfn. Tæplega 20 manns starfa hjá fyrirtækinu. „Við erum alhliða fiskbúð og selj- um allan ferskan fisk eins og til dæmis rauðsprettu, þorsk og lax. Svo erum við með tilbúna rétti sem þarf að hita upp, svokallaða „make- away“ rétti sem eru algjör nýjung hérna í Danmörku,“ segir Vigdís, spurð um það sem er á boðstólum í Boutique Fisk. „Við erum líka með ýmsa tapas-rétti, fiskisalöt og sushi. Fiskurinn kemur víða að, en við fáum hann af fiskmörkuðum.“ Vissum ekki mikið um fisk Vigdís hefur verið búsett í Dan- mörku í 12 ár og fyrstu átta árin þar starfaði hún sem grunnskólakenn- ari, en hún er menntuð sem slíkur. Björgvin bróðir hennar er garð- yrkjufræðingur og íþróttakennari og fluttist til Danmerkur þegar þau hófu undirbúninginn að opnun versl- ananna. „Ég veit stundum ekki hvernig okkur datt þetta í hug,“ segir Vig- dís, en hugmyndin kviknaði upp- haflega í samræðum á milli Björg- vins og dansks eiginmanns Vigdísar sem heitir Jesper Lehmann. „Þegar Danir fara út að borða fá þeir sér fisk, þeim finnst hann lúxusvara en þeir eru ekki vanir jafn góðum fisk og við Íslendingar. Okkur langaði til að Danir fengju að upplifa það sama og við og allt í einu vorum við komin á fullt í þetta. Við vissum í sjálfu sér ekkert mikið um fisk, en köstuðum okkur bara út í þetta verkefni og í dag kann maður alveg ótrúlega mik- ið,“ segir Vigdís. Þau hafa lagt gríðarmikla vinnu í uppbyggingu fyrirtækisins, forðast eftir mætti að taka lán og reyna að gera sem mest sjálf. „Auðvitað hefur þetta verið rosalega erfitt. En samt svo skemmtilegt,“ segir Vigdís. Hún segir að þau hafi verið „mjög dönsk“ í allri sinni vinnu við fyr- irtækið. „Þó að við séum íslensk, þá erum við danskt fyrirtæki og vorum aldrei í þessum „2007 gír“. Við tók- um t.d. veð í íbúðinni okkar í upp- hafi og engin há lán. En sumir Danir höfðu áhyggjur af rekstrinum hjá okkur þegar allt hrundi heima. Þá höfðu birgjar okkar samband við okkur og spurðu hvort við gætum ekki örugglega borgað.“ Gæði og fjölbreytni Sérstaða Boutique Fisk felst fyrst og fremst í gæðunum og fjölbreytn- inni. „Við vitum vel að við erum ekki ódýrasta búðin. En líklega sú besta og við erum öðruvísi. Við leggjum mikið upp úr samræmdu útliti búð- anna og t.d. eru allir starfsmenn eins klæddir.“ Mikil vinna er lögð í að þróa nýja rétti og framsetningu og Vigdís segir að hugmyndirnar komi alls staðar að; á ferðalögum, þegar þau fara út að borða, með því að horfa á sjónvarp eða skoða tímarit. Flaggskip Boutique Fisk er svo- kölluð „store in store“ í matardeild Magasin du Nord sem af mörgum er talin vera mekka sælkerans í Kaupmannahöfn. Þar fæst sælke- ravara frá ýmsum fremstu fram- leiðendum vandaðrar matvöru heims. Vigdís segir reksturinn passa vel inn í það umhverfi. „Þetta er góð búð fyrir okkur, þó að við borgum nokkuð mikið fyrir að vera hérna. Annars höfum við breytt aðeins um stefnu síðan við opnuðum fyrstu búðina. Ég ætlaði til dæmis aldrei að vera með tilboð, en það er bara svo stór hluti af viðskiptahátt- um hérna, þannig að nú bjóðum við upp á tveir fyrir einn og alls konar afslætti, rétt eins og allir aðrir. Við erum að selja matvöru sem er í dýr- ari kantinum og Danir halda að sér höndum í kreppunni. En við höfum lifað vegna þess að við erum skyn- söm.“ Höfum lært af reynslunni Boutique Fisk hefur fengið mikla athygli á þeim tæpum fimm árum síðan fyrsta verslunin var opnuð og fengið talsverða umfjöllun í dönsk- um fjölmiðlum. Vigdís segir að það hafi mikil áhrif og sé góð auglýsing, en þau hafa ekki auglýst mikið. „Til dæmis hélt þekktur tískukóngur í Danmörku matarboð í sjónvarps- þætti í fyrra og hann keypti allan matinn hjá okkur. Eftir þann þátt jókst salan gríðarlega. Allt svona skiptir miklu máli.“ Vigdís segir erfitt að segja til um hvernig fyrirtækið muni þróast. „Það skiptir máli að vera opinn fyrir öllu og tilbúinn að læra af reynsl- unni. Við ætluðum aldeilis að sparka upp einhverjum hurðum þegar við byrjuðum og kenna Dönum að borða fisk. En það er ekki rétta viðhorfið til að komast áfram og við rákum okkur fljótt á það. Auðmýkt er mik- ilvæg í svona rekstri og að bera virð- ingu fyrir kúnnunum. Svona höfum við lært af reynslunni. Ég sá sjálfa mig aldrei fyrir mér í eigin rekstri, en hér er ég núna og það er frábært að fá að vinna við áhugamálið sitt.“ Boutique Fisk býður upp á fjöl- breytt úrval af sjávarfangi. Selja Dönum fisk í Magasin du Nord Fisksalar Systkinin Vigdís og Björgvin Finnsbörn selja Dönum fisk og ýmsa sjávarrétti og reka verslanir á fjórum stöðum á Kaupmannahafnarsvæðinu. Vigdís og Björgvin Finnsbörn Íslendingar í Kaupmannahöfn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.