Morgunblaðið - 24.12.2011, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.12.2011, Blaðsíða 18
Morgunblaðið/RAX Í landi Við Reykjavíkurhöfn í gær, en ekkert fiskiskip verður á sjó yfir jólin. Öll eru þau komin í land og fara flest ekki á sjó aftur fyrr en eftir áramót. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Ekkert fiskiskip verður á sjó yfir jól- in, samkvæmt upplýsingum frá Vaktstöð siglinga, og voru öll skipin komin í höfn á hádegi í gær, enda út- lit fyrir bræluveður. Flest munu skipin verða í landi fram yfir áramót en helst verða það flutningaskip og ferjur sem vaktstöðin þarf að fylgj- ast með yfir jólin. Í gær voru aðeins fjögur erlend fiskiskip innan ís- lensku lögsögunnar og einhver þeirra á heimleið. Að sögn Sævars Gunnarssonar, formanns Sjómannasambands Ís- lands, er skýrt kveðið á um það í kjarasamningum sjómanna að þeim ber að vera í landi yfir jólin, að und- anskildum flutningaskipum, varð- skipum og öðrum en fiskiskipum. Undantekningin er ef skipin eru að sigla með aflann til sölu erlendis en Sævar segir þær siglingar einnig hafa lagst niður hin síðari ár, og ekki verið stundaðar síðan skipið Breki frá Eyjum var og hét. Var þá jafnan von á góðri fisksölu erlendis á þess- um árstíma, einkum í Hull og Grimsby strax upp úr áramótum. „En þetta er liðin tíð,“ segir Sævar. Stormur á miðunum Samkvæmt upplýsingum frá Vaktstöð siglinga byrjuðu skipin að tínast heim hvert af öðru í byrjun vikunnar, þar til að öll voru komin í gær. Stormi er spáð á öllum miðum í dag, aðfangadag, og ofsaveðri á suð- austurmiðum, eða allt að 33 metrum á sekúndu síðdegis á aðfangadag. Það stefnir því í rólega daga á vaktstöðinni, sem starfrækt er á vegum Landhelgisgæslunnar og Neyðarlínunnar, í samstarfi við Landsbjörg. Að jafnaði eru um 300 skip og bátar á sjó kringum landið og mest yfir sumarið þegar strand- veiðar fara fram. Þá fer fjöldinn um og yfir 1.000 fleytur og því nóg um að vera á Vaktstöð siglinga. Fiskiskipaflotinn í landi um jólin  Ekkert fiskiskip á sjó um hátíðirnar  Voru öll komin í höfn í gær og aðeins flutningaskip og ferjur á ferð  Siglingar á erlenda markaði liggja einnig niðri 18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2011 Lilja Kjalarsdóttir varði nýverið doktorsritgerð sína frá UT Southwestern Medical Center í Dallas, Texas. Titill ritgerðarinnar er „Áhrif D-vítamíns á seytingu insúlíns og virkni betafrumna“. Á næst- unni verða birtar í vísinda- tímaritum greinar um áhrif D- vítamíns á betafrumur og syk- ursýki þar sem Lilja er fyrsti höfundur og byggjast þær á efni ritgerðarinnar. Rann- sóknir hennar eru þær fyrstu sem lýsa lífvirkni D-vítamíns í betafrumum, en hún hefur fundið fjölmjörg gen, undir stjórn D-vítamíns, sem gætu haft jákvæð áhrif á starfsemi betafrumna og þar með heilsu.  Lilja fæddist árið 1982, dóttir Særúnar Sigurgeirsdóttur ritara og Guðmundar Kjalars Jónssonar skipstjóra. Eiginmaður hennar er Svavar Sigursteinsson og eiga þau einn son. » FÓLK Doktor í lífvísindum Minh Van Nguyen hefur varið dokt- orsritgerð sína við matvæla- og næringarfræði- deild Háskóla Ís- lands. Titill rit- gerðarinnar er „Áhrif mismunandi verkunarferla á eðlis- og efnaeiginleika full- verkaðs saltfisks“. Undanfarið hefur söltunarferli saltfisks þróast. Gulumyndun sem rekja má til þránunar á vöðvanum getur valdið mikilli gæðarýrn- un. Því hefur áhugi framleið- enda á notkun aukefna, s.s. fjölfosfats, sem dregið geta úr þránun, aukist. Rannsóknin leiddi m.a. í ljós að megnið af viðbættum og náttúrulegum fosfötum skolaðist úr vöðv- anum við útvötnun en munur var á niðurstöðum eftir mæli- aðferðum.  Minh Van Nguyen fæddist árið 1977 í Víetnam. Frá árinu 2000 hefur hann kennt matvælafræði við Nha Trang-háskólann. Hann er giftur Hoang Hai Yen og eiga þau tvær dætur. Doktor í matvælafræði Ólöf Guðný Geirsdóttir hefur varið doktors- ritgerð sína í næringarfræði við Háskóla Ís- lands. Ritgerðin heitir „Hreyfing og næring eldra fólks í sjálfstæðri búsetu – tengsl við líkamssamsetn- ingu, vöðvastyrk, hreyfigetu og aðra heilsutengda þætti.“ Markmiðið var að auka þekkingu á næringu og hreyf- ingu á meðal eldra fólks. Var öldruðum boðin styktarþjálfun þrisvar í viku í 12 vikur. Nið- urstöður sýndu að regluleg hreyfing og þátttaka í styrkt- aræfingunum jók vöðvamassa, vöðvastyrk og hreyfifærni marktækt, auk þess sem heilsutengd lífsgæði jukust.  Ólöf Guðný fæddist árið 1968. Hún starfar sem næringarfræð- ingur á Landspítalanum og einnig sem stundakennari við HÍ. Eig- inmaður Ólafar er Karl Ólafur Karlsson lögmaður og eiga þau þrjú börn. Doktor í næringarfræði ÚR BÆJARLÍFINU Atli Vigfússon Þingeyjarsýsla Jólafríið í skólunum er kærkomin tilbreyting hjá sveitabörnunum enda margt að gera. Í Aðaldal heimsóttu nemendur 8. bekkjar alla sem eru 80 ára og eldri í sókninni fyrir jólin og færðu þeim glaðning í tilefni hátíð- arinnar. Heimsóknir þessar hafa verið fastur liður undanfarin ár og hafa þær mælst vel fyrir. Stundum er þá boðið inn fyrir dyrnar, spurt um ætt og uppruna, hlegið dátt og kíkt á konfekt. Fyrir sum jól hafa nemendur skorið laufabrauð með eldri borgurum í sveitinni og lært að skera með vasahníf eins og tíðkaðist hér áður fyrr. Þetta hefur öllum fundist gaman.    Jólatré vaxa víða í Þingeyjarsýslu og er skógrækt á undanförnum árum farin að skila sér. Furur og greni frá ýmsum skógarreitum héraðsins prýða híbýli fólks og víða þarf að grisja enda hefur miklu verið plantað. Líkt og undanfarin ár bauð Skóg- ræktarfélag Reykdæla upp á að kaupa og sækja jólatré að eigin vali í skógræktargirðinguna ofan við Litlu- laugaskóla og höfðu allir ánægju af því að ganga upp í brekkuna og fá sér tré á hóflegu verði.    Jólaskreytingar í sveitunum eru miklar og vekja sumar athygli þar sem öll útihús eru skreytt með ljósaseríum. Sums staðar fá gamlir súrheysturnar nýtt líf með stórum ljósastjörnum og jólaljósin loga líka í mjólkurhúsum. Lítill endir virðist á frumlegheitum í því að lífga upp á skammdegið í tilefni hátíðarinnar og er gaman að aka um á kvöldin og virða fyrir sér dýrðina.    Jólaheyið er nokkuð sem allar skepnur þurfa að fá og það er alltaf tilhlökkunarefni að bera fram besta heyið og sjá skepnurnar njóta góð- gætisins. Margir bændur taka til töðuna áður en hátíðin fer í hönd og gefa það grænasta og besta alla jóla- dagana til að gleðja málleysingjana. Þá eru hestum á útgangi færðar heilar heyrúllur til þess að éta sig sadda. Hænsnin, sem ekki éta hey, fá hins vegar góðgæti af borðum mannanna, leifar af búðingi, tertu eða einhverju öðru mjög góðu með- an heimilishundar naga heljarstór bein.    Jólasveinar hafa sést á sveimi og á litlu jólunum í Hafralækj- arskóla dönsuðu þeir við krakka og gerðu mikla lukku. Sums staðar hafa þeir verið á skíðum eða vélsleðum, farið á bæi, guðað á glugga og gefið krökkum gjafir. Þeim finnst gaman á jólunum eins og fram kemur í gam- alli þingeyskri vísu:    Jólasveinar, jólasveinar, jól í byggðum þrá. Flykkjast fram úr fjöllum, feikn af skrýtnum köllum, skoppa skíðum á. Dýrin fá besta heyið á jólunum Morgunblaðið/Atli Vigfússon Jólalegt Kálfurinn hjá Elfu Mjöll Jónsdóttur og Elsu Dögg Stefánsdóttur fékk slaufu í tilefni jólahátíðarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.