Morgunblaðið - 24.12.2011, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2011
Margt er sérkennilegt í lífinu oger pólitíkin þar ekki undan
skilin eins og menn þekkja. Aldrei
hefur hún þó verið eins sérkennileg
og nú um stundir. Í Morgunblaðinu í
gær mátti rekast á nokkur dæmi um
þetta, svo sem þessi tvö:
Fram kom að í forsætisnefnd Al-þingis sæti enn föst beiðni um-
hverfis- og samgöngunefndar þings-
ins um að Hagfræðistofnun HÍ verði
fengin til að vinna úttekt á Vaðla-
heiðargöngum.
Mikið lá á að fá einn milljarð tilgangagerðarinnar á auka-
fjárlögum og var stjórnin nánast að
veði. Síðan hefur allt verið gert til að
hindra að málið sé skoðað, fyrst hjá
Ríkisendurskoðanda, sem aldrei
þessu vant taldi sig vanhæfan, og nú
strandar málið hjá forsætisnefndinni
að beiðni fjármálaráðuneytisins.
Um svipað leyti urðu gríðarleglæti yfir því að einn ráð-
herranna ákvað að fara að lögum og
leyfa ekki stórfellda landsölu til er-
lends aðila. Talað var um stjórnarslit
vegna þessa og fullyrt að nú væri
hinn kínverski fjárfestir runninn Ís-
lendingum úr greipum.
Tjónið var sagt mikið en síðanhafa borist ítrekaðar fréttir af
því að fjárfestirinn hafi enn áhuga.
Nú síðast í viðtali við eitt af mál-
gögnum kínverska kommúnista-
flokksins.
Þau síendurteknu upphlaup,taugaveiklunarlegu viðbrögð
og hótanir um stjórnarslit sem ein-
kenna stjórnmálin í dag geta ekki
verið til góðs. En því miður bendir
ekkert til að þeim fari fækkandi.
Sérkennileg pólitík
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 23.12., kl. 18.00
Reykjavík -2 hagl
Bolungarvík -2 snjóél
Akureyri -1 skýjað
Kirkjubæjarkl. -5 skýjað
Vestmannaeyjar 2 léttskýjað
Nuuk -7 snjókoma
Þórshöfn 3 léttskýjað
Ósló 2 alskýjað
Kaupmannahöfn 7 þoka
Stokkhólmur 5 alskýjað
Helsinki 2 skýjað
Lúxemborg 6 súld
Brussel 7 skýjað
Dublin 5 skúrir
Glasgow 2 léttskýjað
London 11 skúrir
París 8 alskýjað
Amsterdam 8 súld
Hamborg 8 súld
Berlín 8 þoka
Vín 4 súld
Moskva -5 snjókoma
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 12 heiðskírt
Barcelona 15 heiðskírt
Mallorca 17 heiðskírt
Róm 12 heiðskírt
Aþena 7 skýjað
Winnipeg -7 alskýjað
Montreal -2 snjókoma
New York 8 skýjað
Chicago -1 léttskýjað
Orlando 25 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
24. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:24 15:32
ÍSAFJÖRÐUR 12:10 14:55
SIGLUFJÖRÐUR 11:55 14:36
DJÚPIVOGUR 11:02 14:52
Sigrún Rósa Björnsdóttir
sigrunrosa@mbl.is
„Rannsóknir hafa sýnt að einstæðir
foreldrar eru sá hópur sem er verst
staddur fjárhagslega í kjölfar krepp-
unnar og gjaldskrárhækkunum á
leikskólum er ekki bætandi á þann
hóp,“ segir Kristín Erna Arnardótt-
ir, formaður Félags einstæðra for-
eldra. Þótt einstæðir foreldrar fái af-
slátt á dagvistargjöldum séu gjöldin
samt sem áður að hækka.
Lilja Dögg Jónsdóttir, formaður
Stúdentaráðs Háskóla Íslands, segir
ráðið eiga eftir að kynna sér betur
boðaðar gjaldskrárhækkanir.
„En í rauninni er það svoleiðis að
alltaf þegar gjöld hækka, sérstak-
lega eins og með skráningargjöldin í
Háskólanum, er talað um einhverja
námslánahækkun, sem er ekki það
mikil,“ segir Lilja Dögg og bætir við
að námsmenn hafi það erfitt fjár-
hagslega og megi ekki við frekari
gjaldahækkunum. „Leigumarkaður-
inn er líka erfiður þannig að margir
borga miklu hærri leigu en maður
myndi vilja sjá,“ segir hún.
Engin hækkun á Ísafirði
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu vísa sveitarfélög til verðlags-
breytinga þegar fyrirhugaðar hækk-
anir leikskólagjalda eru rökstuddar.
Síðustu 12 mánuði hefur verðlag
hækkað um 6% en á mörgum stöðum
hækka leikskólagjöldin meira. Þegar
kannaðar eru fyrirhugaðar gjald-
skrárbreytingar hjá fimm sveitar-
félögum af handahófi má sjá allt frá
óbreyttum gjöldum upp í 16% gjald-
skrárhækkun.
Ísafjarðarbær hefur löngum verið
með hæstu leikskólagjöld á landinu.
Það vekur því athygli að bærinn ætl-
ar ekki að hækka gjaldskrá vegna
leikskóla á nýju ári. „Það var ákveðið
að hlífa foreldrum við frekari hækk-
unum og koma til móts við þá á þess-
um niðurskurðartímum,“ segir Hálf-
dán Bjarki Hálfdánsson, upplýsinga-
fulltrúi Ísafjarðarbæjar. Þó verður
lagður af sá afsláttur sem verið hefur
síðustu ár fyrir fjögurra tíma vistun
fimm ára barna í leikskólum Ísa-
fjarðarbæjar.
Breytingar á afslætti
Auk gjaldskrárhækkana eru einn-
ig ýmsar breytingar á afslætti. Yf-
irleitt njóta námsmenn og einstæðir
foreldrar afsláttar af leikskólagjöld-
um. Þegar litið er á gjaldskrár Kópa-
vogsbæjar sést að nú er þess krafist
frá áramótum að báðir foreldrar séu
í námi til að njóta afsláttar. Einnig
verði felldur niður systkinaafsláttur
af afsláttargjaldi. Mosfellsbær er
ekki á grafinu hér til hliðar en þar
hefur verið tilkynnt að afsláttur
verði frá áramótum tekjutengdur og
geti þá numið 20%-40% af dvalar-
gjöldum. Fæði er þar ekki talið með.
Einstæðir foreldrar ráða
illa við hækkun gjalda
Sveitarfélög hækka gjaldskrár sínar um allt að 16% um áramótin Talsmenn
námsmanna og einstæðra foreldra segja þá ekki mega við frekari gjaldahækkunum
Gjaldskrár leikskóla - 8 tímar með fullu fæði
Almennt gjald Afsláttargjald
1. janúar 2011
1. janúar 2012
35.000
30.000
25.000
20.000
15.000
10.000
5.000
0
G
ja
ld
ík
ró
nu
m
27
.1
30
21
.7
60 2
6.
80
3
25
.0
78
34
.3
42
31
.4
80
24
.5
0
1
29
.5
60
26
.8
15
34
.3
42
22
.0
10
25
.4
80
12
.8
60
14
.4
77 20
.0
43
21
.9
92
19
.6
18
20
.9
46 25
.5
98
25
.5
98
+16%
+13%
+10%
+7%
0%
+16%
+13%
+10% +7%
0%
Re
yk
jan
es
bæ
r
Re
yk
jav
ík
Ak
ure
yra
rbæ
r
Kó
pa
vo
gu
r
Ísa
fjö
rða
rbæ
r
Re
yk
jan
es
bæ
r
Re
yk
jav
ík
Ak
ure
yra
rbæ
r
Kó
pa
vo
gu
r
Ísa
fjö
rða
rbæ
r
(Breyting milli ára)
Morgunblaðið/Ómar
Í leikskólanum Börnin í Hagaborg una sér glöð í sandkassanum.