Morgunblaðið - 24.12.2011, Qupperneq 25
FRÉTTIR 25Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2011
• Starfsfólk Orkuveitu Reykjavíkur óskar þér gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. www.or.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
57
60
5
12
/1
1
VIÐ ERUM Á VAKTINNI
ALLAN SÓLARHRINGINN
Við erum
til taks Við treystum sjaldan meira á orkuna en um jól og áramót. StarfsfólkOrkuveitu Reykjavíkur er í viðbragðsstöðu til að tryggja þér birtu og ylum hátíðirnar. Gleðilega hátíð!
Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody’s
staðfesti í gær, að lánshæfiseinkunn
íslenska ríkisins haldist óbreytt, Baa3
með neikvæðum horfum.
Þrátt fyrir að deilunni um inn-
stæðutryggingar hafi verið vísað til
EFTA-dómstólsins hefur það ekki
áhrif á lánshæfismatið þar sem end-
urheimtur úr þrotabúi Landsbankans
séu meiri en upphaflega var gert ráð
fyrir, segir Moody’s.
Matsfyrirtækið mun fylgjast
grannt með því hvaða áhrif hugsanleg
aflétting gjaldeyrishafta muni hafa á
gengi krónunnar og fjármálastöðug-
leika á Íslandi.
Fram kemur í Morgunkorni Ís-
landsbanka að í raun sé lítið nýtt í
þessari tilkynningu Moody’s og inni-
hald hennar hið sama og þegar það
birti álit um lánshæfiseinkunnir rík-
issjóðs um miðjan síðasta mánuð.
Þar kom fram að það sem getur
leitt til þess að lánshæfiseinkunn
verði hækkuð eru merki um kröftug-
an og varanlegan efnahagsbata, að-
hald í ríkisfjármálum og stöðug króna
á meðan á afléttingu gjaldeyrishaft-
anna stendur. Það sem getur leitt til
lækkunar er ef slakað yrði á aðhaldi í
ríkisfjármálunum eða ef Icesave leiðir
til miklu hærri skuldbindingar fyrir
hið opinbera en nú er vænst.“
Morgunblaðið/Kristinn
Icesave Deilan hefur ekki áhrif.
Moody’s staðfestir óbreytta
lánshæfiseinkunn Íslands
Vísun Icesave til EFTA-dómstólsins hefur ekki áhrif
Niðurstöðukrafa í útboði Lánasjóðs
sveitarfélaga (LSS) á LSS24-skulda-
bréfaflokknum var sú langlægsta frá
upphafi, en þó reyndist áhugi fjár-
festa á útboðinu nú minni en í síðasta
útboði sjóðsins sem fram fór í lok
októbermánaðar. Frá þessu er greint
í Morgunkorni Íslandsbankana
Alls bárust tilboð fyrir 705 millj-
ónir króna í skuldabréfaútboðinu
sem haldið var á miðvikudaginn.
Ávöxtunarkrafan var á bilinu 2,9%-
3,4%. Ákveðið var að taka tilboðum
að nafnvirði 255 milljónir króna á
ávöxtunarkröfunni 2,91%. Til saman-
burðar var niðurstöðukrafan 3,41% í
síðasta útboði LSS, en hæst hefur
hún farið í 6,63% á vordögum árið
2009.
Fram kemur í Morgunkorni Ís-
landsbanka að þetta sé í annað sinn
sem krafan í útboði LSS er undir
3,5% uppgjörsviðmiði lífeyrissjóð-
anna. Það vekur athygli enda hafa
ríkistryggð skuldabréf verið þau einu
á verðtryggða skuldabréfamarkaðin-
um sem gengið hafa kaupum og söl-
um á kröfu undir þessu viðmiði. „Gef-
ur þetta vísbendingu um það að
fjárfestar horfi í minna mæli á upp-
gjörsviðmið lífeyrissjóða og þá held-
ur meira í þá umframávöxtun sem
LSS-bréfin gefa gagnvart íbúðabréf-
um.“
Útboð LSS var það síðasta á árinu.
Krafan
aldrei lægri
2,91% ávöxtunar-
krafa í útboði LSS
Aðalhagfræðing-
ur Evrópska
seðlabankans,
Jürgen Stark,
hefur varað við
því að Alþjóða-
gjaldeyrissjóður-
inn (AGS) verði
látinn bjarga illa
stöddum ríkjum á
evrusvæðinu.
Óskað hefur verið eftir því að ríki
leggi sjóðnum til meira fé.
Í viðtali við þýska blaðið Die Welt í
gær segir Stark, sem brátt lætur af
störfum hjá bankanum, að með því
að láta AGS sjá um björgunina sé
verið að fara á skjön við reglur seðla-
bankans sem gilda um beina fjár-
hagslega aðstoð til ríkja á evrusvæð-
inu.
Þrátt fyrir að það komi ekki beint
fram, þá snúist þetta um að veita
þeim stuðning, því ljóst sé að það séu
evruríkin sem eigi eftir að fá pen-
ingana.
Ósáttur við
þátt AGS
Jürgen Stark
Seðlabanki Rússlands hefur lækkað
stýrivexti bankans um 0,25 prósent-
ur – úr 8,25% í 8%. Þetta er í fyrsta
skipti síðan í júnímánuði 2010 sem
Seðlabankinn lækkar stýrivexti þar
í landi.
Fram kemur í tilkynningu frá
bankanum að rekja megi lækk-
unina til óvissu sem ríkir um hag-
vaxtarhorfur á heimsvísu um þess-
ar mundir.
Samkvæmt hagspá Efnahags- og
framfarastofnunarinnar (OECD) er
gert ráð fyrir 4% hagvexti í Rúss-
landi á þessu ári og því næsta.
Verðbólga mælist hins vegar um
8%.
Rússar
lækka vexti