Morgunblaðið - 24.12.2011, Page 38

Morgunblaðið - 24.12.2011, Page 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2011 Atvinnuauglýsingar Afgreiðsla Óska eftir starfsmanni, ekki yngri en 18 ára, til afgreiðslu í sjoppu í Kópavogi. Vinnutími frá 10-18. Upplýsingar í síma 564 2325. Bílstjóri Embassy driver Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu bílstjóra lausa til umsóknar. Umsóknar- frestur er til og með 30. desember 2011. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sendiráðsins: http://iceland.usem- bassy.gov/vacancies.html The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking an individual for the position of Embassy Driver.The closing date for this position is December 30, 2011. Application forms and further information can be found on the Embassy’s home page: http://iceland.usem- bassy.gov/vacancies.html Please send your application and resumé to: reykjavikvacancy@state.gov Sérfræðingur í frjálsum og opnum hugbúnaði Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings í frjálsum opnum hugbúnaði. Um er að ræða fullt starf tímabundið í eitt ár er skiptist á milli verkefna á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis og innanríkisráðuneytis. Verkefni á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis felast í uppbyggingu gagnagrunna og upplýsingaveita sem byggja á opnum og frjálsum hugbúnaði og innleiðingu frjáls og opins hugbúnaðar í skólum. Verkefni hjá innanríkisráðuneyti lúta að framkvæmd aðgerðaráætlunar fyrir inn- leiðingu frjáls og opins hugbúnaðar hjá opin- berum aðilum. Leitað er að einstaklingi með háskólamenntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði, tölvu- verkfræði eða aðra sambærilega menntun. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi víðtæka reynslu af notkun og þekkingu á frjálsum og opnum hugbúnaði og opnum stöðlum eins og HTML 5. Góð forritunarþekking á Python/Django/JavaScript er nauðsynleg. Reynsla og góð þekking á kvikri hugbúnaðarþróun (Agile) og stjórnun á hug- búnaðarverkefnum er æskileg. Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, góð kunn- átta í ensku og einu Norðurlandamáli eru nauðsynlegir kostir ásamt ritfærni og hæfni í mannlegum samskiptum. Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun greiðast samkvæmt launakerfi Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnar- ráðsins. Nánari upplýsingar veitir Jens Pétur Hjaltested á fjármála- og upplýsingasviði. Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist mennta- og menningar- málaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2012. Vélavörður óskast Vélavörður óskast á Arnarberg ÁR-150 sem gerir út á línu í vetur (vélarstærð 478 kW). Skipið er gert út frá Þorlákshöfn. Umsóknir sendist á; audbjorg@audbjorg.is óskar landsmönnum  og farsældar á komandi ári Lilja Margrét Oddgeirsdóttir ✝ Lilja MargétOddgeirs- dóttir, kölluð Lillý af sínum nánustu, fæddist í Reykjavík 6. júní 1928. Hún lést á heimili sínu Hólmgarði 33 4. desember 2011. Útför Lilju Mar- grétar fór fram frá Bústaðakirkju 19. desember 2011. Elskuleg frænka er látin. Hún var sjálfstæð alla tíð, vann mikið og var ósérhlífin og hún var sjálfri sér nóg. Aðspurð leið henni alltaf vel en sagðist stundum vera löt. Þá hafði hún of- keyrt sig og þurfti á hvíld að halda. Lillý var afskap- lega hlý og rausnarleg við fjöl- skylduna og hafði mikinn áhuga á velferð og uppvexti barnanna og lífi fullorðna fólksins. Barna- og barnabörn bræðra hennar kynntust henni sem Lillý ömmu. Annað kom aldrei til greina. Lillý annaðist foreldra sína af stakri alúð sem og móð- ursystur sína síðustu æviár þeirra. Þá var líka kisan á neðri hæðinni afar hænd að henni og sóttist eftir að vera hjá henni. Lillý var einstaklega fjölhæf, listhneigð og greind kona. Hún var líka mjög söngelsk og hafði yndi af tónlist. Allt lék í hönd- unum á henni og hún var með frjóan huga alveg til hinstu stundar. Margs konar hand- verk liggur eftir hana og einnig móður hennar. Þá var gott að leita til hennar ef uppskrift stóð í manni og fá leiðsögn. Fyrir fáeinum árum komst rússneskt hekl í tísku og marg- ir hafa verið að læra það. Móðir mín dró fram peysu sem var unnin á þennan hátt og sagði mér að Lillý hefði heklað á hana á bróður minn, fjögurra ára, 1956. Mér var skemmt yfir nýjunginni. Í áratugi var hún sjálfboða- liði í Bústaðakirkju í starfi aldraðra og var leiðbeinandi. Hún teiknaði á dúka sem fólkið málaði á og svo, ef fólk vildi, lagði hún lokahönd á dúkana. Þeir fengu sérlega fallegt yf- irbragð við það. Yfir hæðinni þar sem hún bjó er háaloft. Henni fannst heldur kalt og næða þar og fyr- ir 10-15 árum tók hún sig til og einangraði þar uppi með frauði undan mjólkurvörum. Það gerði hún sjálf með heftibyssu. Þá var einnig þakið lagað á svip- uðum tíma og þegar verkáætl- un lá fyrir kom hún með ein- faldari og betri hugmynd að mati verktakans og eftir henni var farið og tókst vel til. Þá er eftir að nefna áhuga hennar á garðrækt sem hún sinnti fram á síðustu ár. Enn er ótalinn ferðaáhugi hennar og hún hafði núna í mörg ár haft landabréfabók nærri sér, þar sem hún fletti upp og skoðaði hvar hinir ýmsu staðir í heim- inum voru, sem voru í fréttum eða dýralífsmyndum. Lillý var mjög skipulögð og ótrúlegt að skoða í skápa og hirslur, ísskápinn og frysti- kistu. Sama hvert litið var, þá var öllu raðað á skipulegan hátt og auðvelt að finna það sem leitað var að. Lilly hélt dagbók alla tíð yfir allt sem gerðist og hafði búið til merkjakerfi sem hún notaði til að flýta fyrir. Eitt merki tákn- aði að hringt var í hana og ann- að þegar hún hringdi. Þá hélt hún bókhald yfir allt sem hún keypti inn og reiknaði virðis- aukaskattinn af því. Alltaf með kollinn í lagi. Hún átti enda- lausa aðdáun mína í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Ég kveð kæra frænku með söknuð í hjarta og þakklát fyrir hennar hlutdeild í lífi fjölskyldu minn- ar. Drottinn helgi minningu hennar í hjörtum allra sem þekktu hana. Anna Þóra og Páll.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.