Morgunblaðið - 28.12.2011, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 8. D E S E M B E R 2 0 1 1
Stofnað 1913 304. tölublað 99. árgangur
AUÐKÝFINGAR,
HERJÓLFUR OG
ÍSLENSKUR MATUR
SKARPAR
LÍNUR OG
GERVIAUGNHÁR
LÉK FANNÝ
Í NORSKA
ÞJÓÐLEIKHÚSINU
ÁRAMÓTAFÖRÐUNIN 10 „LEIKRITIÐ VARÐ LÍF MITT“ 32PÖR ÁRSINS 31
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Félag forstöðumanna ríkisstofnana
(FFR) íhugar málshöfðun á hendur
ríkinu vegna brota kjararáðs á
skyldum sínum og bíður jafnframt
eftir niðurstöðu vegna kvörtunar til
umboðsmanns Alþingis.
Formaður FFR, Magnús Guð-
mundsson, segir ákvörðun kjararáðs
frá 21. desember, þegar launalækk-
un embættismanna frá 2009 var aft-
urkölluð, engu breyta um áform fé-
lagsins um málshöfðun. Vilja ríkis-
forstjórar að afturköllun launalækk-
unar gildi frá 1. desember 2010, sam-
kvæmt ákvæði laga um lækkunina
sem átti að vera tímabundin í tvö ár,
en ekki aftur til 1. október sl. eins og
kjararáð ákvað fyrir jól. Telur FFR
jafnframt að kjararáð hafi brotið lög
í júní sl. þegar það frestaði úrskurði
um afturköllun launalækkana. Við
ákvörðun kjararáðs 21. desember sl.
skilaði einn fulltrúi af fimm í kjara-
ráði séráliti, þess efnis að afturköll-
un launalækkunar ætti að gilda frá 1.
desember 2010.
Ríkisforstjórar eru ríflega 200 en
hjá ríkinu starfa alls um 20 þúsund
manns. Guðlaug Kristjánsdóttir, for-
maður BHM, bindur vonir við að
ákvörðun kjararáðs hafi áhrif á end-
urskoðun kjarasamninga og stofn-
anasamninga og kjör ríkisstarfs-
manna verði leiðrétt.
MForstöðumenn ríkisstofnana »4
Áforma að kæra ríkið
Ríkisforstjórar telja kjararáð hafa brotið lög Telja að launalækkun hafi átt að
afturkalla frá 1. desember 2010 Ríkisstarfsmenn vonast eftir launaleiðréttingu
Ákvörðun kjararáðs
» Kjararáð ákvað 21. desem-
ber sl. að afturkalla launalækk-
anir þingmanna, ráðherra og
embættismanna frá 2009.
» Nær afturköllunin til 1. októ-
ber sl. en ríkisforstjórar vilja
miða við 1. desember 2010.
Útsölur eru hafnar í nokkrum verslunum, ein þeirra er Epli.is, Apple á Ís-
landi, sem auglýsti í gær talsverðan afslátt af nokkrum vörutegundum. All-
ar vörurnar sem voru á afslætti seldust upp á innan við klukkustund og
fengu færri en vildu. Daníel Gauti Georgsson, 14 ára, mætti fyrir utan
verslunina árla dags, nokkru áður en hún var opnuð, og keypti tölvu með
miklum afslætti.
Tölvukaupin fjármagnaði hann sjálfur, en einnig fékk hann nokkurn lið-
styrk foreldra. „Ég var búinn að vera að safna fyrir henni og hélt að ég
gæti keypt hana í fyrsta lagi á jólunum á næsta ári,“ segir Daníel Gauti
kampakátur með kaupin. Hann setur það ekki fyrir sig að hafa beðið í
meira en tvær klukkustundir. „Ég sparaði meira en 100 þúsund krónur,
þannig að þetta er ágætis tímakaup.“ »16
„Þetta er ágætis tímakaup“
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Jörð í höfuðborginni hefur ver-
ið alhvít í 25 daga af 27 í desem-
bermánuði og er útlit fyrir
áframhaldandi snjókomu. Þó
má gera ráð fyrir stuttu hlý-
indaskeiði um áramótin með
rigningu.
Trausti Jónsson veður-
fræðingur segir í samtali við
Morgunblaðið að hiti á höf-
uðborgarsvæðinu hafi verið
undir meðallagi í desember-
mánuði en slíkt er einnig raun-
in á Akureyri. Bendir hann
jafnframt á að vik frá með-
allagi eigi sér fyrri for-
dæmi. Trausti segir ýmislegt
geta orsakað það kuldaskeið
sem ríkt hefur undanfarið.
Má þar t.a.m. nefna að hin
svokölluðu meginskil hafa
verið sunnan við landið og
því hafi ekki margar djúpar
lægðir gengið yfir að und-
anförnu.
Mesta snjódýpt sem
mælst hefur í
höfuðborginni
er talin vera frá
árinu 1937 en þá reyndist hún
55 cm. Í Reykjavík mælist
snjódýptin nú 21 cm. »9
Alhvít jörð í höfuðborginni 25 daga af
27 dögum í desember og áfram snjóar
Skúli Hansen
Una Sighvatsdóttir
„Miðað við það verð sem sambærileg
virkjun fengi í Noregi væri þetta
blússandi flott framkvæmd,“ segir
Níels Sveinsson, sem rannsakaði kosti
sjávarfallavirkjunar í Hvammsfirði
fyrir lokaverkefni sitt í meistaranámi
við alþjóðlega orkuskólann REYST.
Helsta niðurstaðan er sú að slík
virkjun væri raunhæfur möguleiki og
gæti framleitt nóg rafmagn fyrir öll
heimili landsins, ef miðað er við með-
alrafmagnsnotkun á íslenskum heim-
ilum. Framkvæmdin er þó ekki hag-
kvæm eins og er sökum þess að
raforkuverð á Íslandi er of lágt.
Engin hljóð- og sjónmengun
Nýtnihlutfallið fyrir sjávarfalla-
virkjun á borð við þá sem er til skoð-
unar í Hvammsfirði yrði svipað og í
meðalvindorkuvirkjun, eða 25-30%.
Til samanburðar má nefna að í hefð-
bundinni vatnsaflsvirkjun er nýtni-
hlutfallið um 90%. Þá séu sjávar-
fallavirkjanir umhverfisvænn kostur,
vegna þess að sjón- og hljóðmengun
sé engin og lítil sem engin röskun á
dýralífi.
Mikið magn ódýrrar orku hér á
landi er lykilástæða þess að áhuginn á
sjávarfallavirkjunum hefur verið tak-
markaður, að sögn Níelsar. Hann seg-
ir þær þó raunhæfan framtíðarkost,
enda ekki óeðlilegt að gefa sér að þró-
unin verði til þess að ná niður kostnaði
eins og t.d. í vindorkunni. »14
Sjávarföllin gætu knúið heimilin
Raunhæft að virkja sjávarföll ef raforkuverð væri hærra
Þrátt fyrir að sala á nýjum
fólksbílum hafi aukist um meira
en 62% það sem af er árinu benda
forsvarsmenn stærstu bílaumboð-
anna á að enn sé mjög langt í að
salan komist aftur í eðlilegt horf.
Hún er heldur meiri en þeir gerðu
ráð fyrir í ársbyrjun en hafa verði
í huga að markaðurinn sé afar lít-
ill og því þurfi ekki mikla sölu til
að það skili sér í hárri prósentu.
Hinn 22. desember sl. höfðu
5.019 nýir fólksbílar selst á árinu
borið saman við 3.095 árið áður. Á
síðustu tuttugu árum hefur sala á
nýjum bílum hins vegar að með-
altali numið tæplega ellefu þús-
undum.
Bílaumboðin spá hóflegum vexti
á næsta ári – 10-20% – og að sala
á nýjum fólksbílum muni líkast til
ekki fara umfram tíu þúsund bíla
fyrr en á árinu 2014. »18
Sala á fólksbílum
aukist um meira en
62% á þessu ári
Morgunblaðið/RAX
Hóflegur vöxtur Fólksbílasala hefur
verið meiri en spáð var í ársbyrjun.
Hafrann-
sóknastofnun
hefur verið gert
að endurmeta
grunn ráðgjafar
sinnar hvað
varðar ýsuafla.
Sjávarútvegs-
ráðuneytið hefur
sent stofnuninni
bréf þess efnis en í því er meðal
annars bent á að Landssamtök smá-
bátaeigenda telji að það sem af er
fiskveiðiárinu hafi ýsugengd á
grunnslóð verið mun meiri en á
sama tíma 2010.
Farið er fram á að niðurstöðu
Hafró verði skilað til ráðuneytisins
fyrir 20. janúar nk. »6
Endurmeti grunn
ráðgjafar vegna ýsu