Morgunblaðið - 28.12.2011, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2011
OPNUNARTÍMI
UM HÁTÍÐIRNAR
Nánari upplýsingar um opnunartíma er að finna á vinbudin.is
Vínbúðirnar á höfuðborgarsvæðinu,
Akureyri, Reykjanesbæ og Selfossi
Miðvikudagur 28. des. kl. 11.00 - 18.00
nema Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur kl. 9.00 - 20.00
Fimmtudagur 29. des. kl. 11.00 - 19.00
nema Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur kl. 9.00 - 20.00
Föstudagur 30. des. kl. 11.00 - 20.00
nema Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur kl. 9.00 - 20.00
Laugardagur 31. des. kl. 10.00 - 13.00
Sunnudagur 1. jan. Lokað
Mánudagur 2. jan. Lokað vegna talningar
Opið eftir talningu í eftirtöldum Vínbúðum:
Skeifan kl. 16.00 - 20.00
Austurstræti, Borgartún,
Mosfellsbær, Stekkjarbakki, Akureyri,
Selfoss og Reykjanesbær kl. 16.00 - 18.00
E
N
N
E
M
M
/S
ÍA
/N
M
49
00
0
Mikil mildi þótti að rúmlega eins
árs barni skyldi ekki takast að setja
upp í sig ró sem það náði af barna-
vagni sem það lá í, en atvikið átti
sér stað hjá dagmóður.
Í tilkynningu frá Herdísi L. Stor-
gaard, verkefnastjóra Árvekni –
slysavarna barna og unglinga, seg-
ir að atvikið hafi verið tilkynnt
Neytendastofu. Sjálf telur Herdís
að frágangur á rónni sé ekki full-
nægjandi. Bendir hún foreldrum og
forráðamönnum barna á þessa
hættu meðan málið er grandskoðað
af hálfu Neytendastofu. Biður hún
um að þess sé gætt að allar rær á
barnavögnum, kerrum eða öðrum
búnaði sem er notaður fyrir börn
séu hertar.
Morgunblaðið/Golli
Barnavagn Lausar rær eru varasamar.
Varasamar rær
Grunnskólanemum með lögheimili
á höfuðborgarsvæðinu gefst nú
kostur á að kaupa nemakort Strætó
bs. en hingað til hafa þau einungis
verið í boði fyrir nema á framhalds-
og háskólastigi.
Nemakortið verður persónukort,
sem nemar á aldrinum 6-18 ára fá
keypt með staðfestingu á aldri sam-
kvæmt þjóðskrá. Nemar 18 ára og
eldri geta líkt og fyrr keypt sín kort
samkvæmt staðfestingu á skólavist
frá viðkomandi skóla.
Sala á nemakortunum hefst 27.
desember á www.strætó.is. Þau
taka gildi 1. janúar 2012 og gilda til
31. maí. Aðeins verður hægt að
greiða fyrir kortið með kreditkorti.
Nemakortið kostar 15.000 kr. fyrir
önnina og verður sent heim til
þeirra sem það kaupa.
Grunnskólanemar fá
nemakort í Strætó
Náttúruverndarsamtök Suðvest-
urlands fagna nýlegri ákvörðun
Grindavíkurbæjar um stofnun jarð-
minjagarðs, eða Geopark, á Reykja-
nesi.
Þau telja að slík ráðstöfun sé vel
til þess fallin að auka almenna vit-
und um mikilvægi náttúruverndar
á svæðinu. „Verði rétt á málum
haldið getur slíkur garður auðveld-
lega skapað fjölda starfa og tæki-
færa í ferðaþjónustu enda liggur
Reykjanesskaginn vel við slíku.“
Fagna jarðminja-
garði á Reykjanesi
Byrjað verður að
taka á móti efni í
áramótabrennur
Reykjavíkur í
dag og verða
þær á sömu stöð-
um og í fyrra. Í
tilkynningu frá
borginni segir að
vel sé fylgst með
því hvað fari á
brennurnar og
eru um það skýrar reglur hvað má
fara í bálkestina. Best sé að fá
hreint timbur á brennurnar en
plast, gúmmí og unnið timbur á
ekki erindi á köstinn.
Starfsmenn hverfastöðvanna
verða á vettvangi og leiðbeina þeim
sem koma með efni. Hætt verður að
taka á móti efni þegar brennurnar
eru orðnar hæfilega stórar.
Tekið á móti efni
í áramótabrennur
Brenna Hreint
timbur er vel þegið.
STUTT
Vilhjálmur Andri Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa lagt
fram þá tillögu í Íþrótta- og tómstundaráði að
skipaður verði starfshópur vegna framtíðar-
skipulags Vesturbæjarlaugar. „Hugmyndir um
viðbyggingu við Vesturbæjarlaug með innisund-
laug á neðri hæð og líkamsræktarstöð á vegum
einkaaðila á efri hæð eru hluti af hugmyndum
okkar um það hvernig starfsemi laugarinnar og
sundlaugartúnsins verði sem best nýtt til fram-
tíðar í þágu barna- og fjölskylduvænnar tóm-
stundaiðkunar,“ segir Kjartan Magnússon, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, aðspurður um
mögulega viðbyggingu við Vesturbæjarlaug.
Áætlað er að 500 milljónir króna fari í viðhald
og endurbætur á sundlaugum Reykjavíkur á
næsta ári og falla fyrirhugaðar tillögur ekki undir
þá fjárhæð. Eva Einarsdóttir, borgarfulltrúi
Besta flokksins og formaður íþrótta- og tóm-
stundaráðs, telur að skoða þurfi tillögur Sjálf-
stæðisflokksins mjög vel og fá umsögn frá hverf-
isráði Vesturbæjar áður en málið fari lengra
innan stjórnkerfis borgarinnar. „Það eru margir
spennandi möguleikar og tækifæri í sundlaugum
borgarinnar en þegar fara á út í stórar fram-
kvæmdir sem snúa ekki að viðhaldi er m.a. æski-
legt að heyra sjónarmið íbúa í grennd við laug-
arnar,“ segir Eva sem ennfremur telur að í
sundlaugunum borgarinnar séu fólgin ýmis tæki-
færi, meðal annars í því að laða að erlenda ferða-
menn og skoða aukna þjónustu þar sem við á bæði
með og án þátttöku einkaaðila.
Viðbygging við Vesturbæjarlaug
Morgunblaðið/Jim Smart
Sund Vesturbæjarlaugin, ein elsta sundlaug
borgarinnar, varð 50 ára á þessu ári.