Morgunblaðið - 28.12.2011, Page 16

Morgunblaðið - 28.12.2011, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2011 Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Útsölutímabil stóru verslana- miðstöðvanna hefst fljótlega eftir ára- mót, en nokkrar verslanir tóku for- skot á sæluna og hófu útsölur sínar á fyrsta opnunardegi eftir jól, í gær. Þannig hófst útsalan í IKEA í gær, en þar er afsláttur á bilinu 10- 70%. Stefán Dagsson, verslunar- stjóri IKEA á Íslandi, segir að versl- unin hafi verið með útsölu á þessum tíma árs í fjölda ára. „Við erum að fylgja dagatali sem er sett upp af IKEA erlendis. Við megum halda tvær útsölur á ári; eina í lok sumars og aðra eftir jól,“ segir Stefán. Hann segir að þessi tími sé valinn til að losna við ýmislegt sem tengist jólum og til að rýma fyrir nýjum vörum, en þær koma í verslunina í febrúar. Að sögn Stefáns eru allir vöruflokkar verslunarinnar á útsölunni og um einn fjórði hluti alls varnings er nú á niðursettu verði. „Hér var allt fullt í morgun,“ sagði Stefán í gær. „Það hefur líklega verið um 70% nýting á bílaplaninu, sem er miklu meira en á venjulegum þriðjudegi.“ Útsalan hófst einnig í húsgagna- versluninni ILVA í gær. Þar er af- sláttur á bilinu 20-60% og nær hann til varnings úr öllum vöruflokkum. „Þetta eru alltaf stórir og annasam- ir dagar á milli jóla og nýárs,“ segir Róbert Valtýsson framkvæmda- stjóri. ILVA er dönsk versl- unarkeðja og Róbert segir að útsal- an í Danmörku hafi hafist fyrir jól. „En það er helst til snemmt.“ Útsala í tæpan klukkutíma Epli.is, Apple á Íslandi, auglýsti í gær umtalsverðan afslátt af nokkr- um vörutegundum. Það virðist hafa vakið áhuga margra, en þegar versl- unin var opnuð biðu tugir manna fyrir utan búðina í von um að fá tölvur með meira en 100 þúsund króna afslætti. Þeir allra hörðustu höfðu beðið í á þriðja tíma. Að auki var hægt að fá ýmsar sýning- arvörur, eins og iPad 2 og iPod með 20-40% afslætti og Apple-aukahluti með verulegum afslætti. Allar þær vörur sem voru á tilboði í Epli.is seldust á fyrsta klukkutímanum eft- ir að verslunin var opnuð klukkan eitt. Morgunblaðið/Árni Sæberg Góð kaup Allmargir lögðu leið sína í IKEA í Kauptúni í gærdag og fram á kvöld til að gera sem best kaup á útsölunni. Eins og í fleiri verslunum voru fjölmargar vörur á lækkuðu verði. Útsölunni lauk á innan við klukkutíma Morgunblaðið/Sigurgeir S. Biðraðir Íslendingar eru þolinmóðir þegar kemur að því að bíða á útsölum enda þýðir ekkert annað í örtröð. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Útsala Tugir manna tóku sér stöðu fyrir utan Epli.is, Apple á Íslandi, í gær en þar var ýmis varningur boðinn á lækkuðu verði. Allar þær vörur, sem voru á útsölunni, seldust á innan við klukkutíma eftir að hún hófst. Tugir innpakkaðra jólagjafa lágu enn undir jólatrénu í Smáralind í gær, en gjafirnar höfðu verið gefnar í hina árlegu söfnun Pakkajól Bylgj- unnar. „Pakkarnir eru að safnast saman alveg fram á aðfangadag. Það er alltaf nokkuð um afgangs- pakka,“ segir Kristján Þórir Hauks- son, sölu- og auglýsingastjóri hjá út- varpssviði 365. Hann segir að pakkarnir verði líklega sóttir í dag. „Þetta verður þá notað sem af- mælisgjafir yfir árið, Mæðrastyrks- nefnd og Fjölskylduhjálp sjá um að útdeila þeim eins og þau kjósa.“ annalilja@mbl.is Morgunblaðið/Sigurgeir S. Afgangspakkar undir tré

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.