Morgunblaðið - 28.12.2011, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 28.12.2011, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2011 Jólasnjór Óhætt er að segja að það sé fallegt um að litast í höfuðborginni enda skjannahvítur snjór hvert sem litið er. Þá er um að gera að klæða sig vel, fara út og njóta fegurðarinnar. Golli Tókýó| Stjórnvöld í Norður-Kóreu til- kynntu 17. desember að „leiðtoginn ást- kæri“, Kim Jong-il, hefði dáið í járnbraut- arlest í einni af mörg- um skoðunarferðum sínum frá því að hann fékk heilablóðfall árið 2008 – ferðum sem virtust vera liður í til- raunum ráðamann- anna til að eyða óvissu um heilsu- far hans. Dauði leiðtogans ástkæra leiddi til valdaskipta innan fjöl- skyldunnar og athygli heimsins beindist ekki aðeins að syni og út- völdum arftaka Kims Jong-ils, Kim Jong-un, heldur einnig að því hver yrði raunverulegur leiðtogi landsins. Þótt Kim Jong-il hefði fengið völdin frá föður sínum, Kim Il- sung, fyrsta leiðtoga Norður- Kóreu, bendir sagan til þess að hrein valdatilfærsla frá föður til sonar sé undantekning frekar en regla. Á þrettándu öld varð Mina- moto Sanetomo þriðji shogun eða herstjóri Japans [shogun var titill japanskra yfirhershöfðingja af erfðastétt sem voru raunverulegir stjórnarherrar í Japan frá 1192 til 1867] á Kamakura-tímabilinu [1185–1333] og hann varð þar með æðsti maður samúræja, her- mannaaðalsins, tólf ára að aldri. Raunverulegu völdin voru þó í höndum Hojo Masako, tengdadótt- ur fyrsta herstjórans, og annarra í Hojo-ættinni, meðal annars föður hennar, Hojos Tokimasa. Sam- etomo var einfaldlega of ungur og óreyndur til að stjórna samúræj- unum. Hjá samúræjunum skipti bardagareynsla og aldur leiðtogans höfuðmáli. Samúræjar hefðu orðið argir ef þeir hefðu þurft að hlýða skipunum ung- mennis með enga bardagareynslu. Það var af þessari ástæðu sem Hojo-ættin komst til valda. Svipuð dæmi má finna í sögu Kína. Ríkisstjóri í tíð Gu- angxu keisara, sem varð ellefti keisari Qing-ættarinnar þriggja ára að aldri, var Cixi keisaraekkja. Guangxu var í raun strengbrúða Cixi þar til hann lést árið 1908. Bæði þessi dæmi varpa ljósi á ríkiserfðabaráttuna sem hafin er í Pjongjang. Kim Jong-un er 28 ára (eða 29 ára eins og Norður- Kóreumenn telja aldursárin), patt- aralegur ungur maður sem hefur enga bardagareynslu. Menn hafa því miklar efasemdir um að gömlu yfirmennirnir í her Norður-Kóreu, sem börðust margir hverjir í Kóreustríðinu fyrir sex áratugum, geti svarið ungum og óreyndum pappírshershöfðingja hollustu. Þetta hjálpar okkur að skilja hvers vegna áróðursvél ráðamann- anna í Norður-Kóreu leyndi raun- verulegu dánarorsökinni – Kim Jong-il dó af völdum krabbameins en ekki hjartaáfalls. Hann var orð- inn svo veikur að hann gat ekki tekið ákvarðanir undir lokin, þann- ig að systir hans, Kim Kyong-hui, tók ákvarðanirnar fyrir hönd hans. Með öðrum orðum var tvískipt valdakerfi að taka á sig mynd í Pjongjang fyrir dauða Kims Jong- ils. Til að mynda hefur Jang Sung- taek, eiginmaður Kim Kyong-hui, fengið mikla athygli frá dauða Kims Jong-ils. Á listanum yfir 232 menn sem áttu sæti í útfar- arnefndinni var Kim Jong-un í efsta sæti, Kyong-hui í fjórtánda og Jang Sung-taek í nítjánda. Kyong-hui var gerð að hershöfð- ingja eins og Kim Jong-un í sept- ember á síðasta ári. Hún á einnig sæti í forsætisnefnd Verka- mannaflokks Norður-Kóreu. Eiginmaður hennar var gerður að varaformanni landvarnaráðsins og á að fá sæti í forsætisnefndinni. Kim Kyong-hui er 65 ára dóttir Kims Il-sungs og Kim Jong-suk. Móðir hennar dó þegar Kyong-hui var fjögurra ára. Barnfóstrur ólu hana upp og flókið samband henn- ar við stjúpmóður sína og hálf- systkin eru talin hafa stuðlað að því að hún þykir ströng og harð- neskjuleg. Hún olli bróður sínum oft vandræðum. „Enginn getur stöðvað systur mína þegar hún hegðar sér illa, ekki einu sinni ég,“ á Kim Jong-il að hafa sagt um hana. Þótt Kim Jong-un sé lýst sem arftaka Kims Jong-ils er líklegt að völdin færist í raun til Kim Kyong- hui sem er þekkt fyrir að vera öf- undsjúk og hafa mikla unun af því að sigra aðra. Svo við snúum okk- ur aftur að dæmunum í sögu Jap- ans og Kína má benda á að Sane- tomo var síðar myrtur og Hojo tók völdin í sínar hendur og að Xinhai- byltingin varð til þess að Qing- ættin missti völdin í Kína þremur árum eftir að keisaraekkjan dó. Norður-Kórea 21. aldarinnar er auðvitað ekki Japan Kamakura- tímabilsins eða Kína Qing- ættarinnar, en þótt sagan end- urtaki sig ekki nákvæmlega getur þessi samanburður verið lærdóms- ríkur. Þótt Kimarnir hafi fært efnahag Norður-Kóreu aftur til miðalda er orðið algengara en áð- ur að Norður-Kóreumenn geti not- að netið og farsíma. Um milljón farsíma eru nú þegar í notkun í Norður-Kóreu og hægt er að sneiða hjá strangri ritskoðun og öðrum aðgerðum til að hindra upp- lýsingamiðlun með því að skiptast á upplýsingum nálægt landamær- unum. Einnig er hægt að koma upplýsingum til Norður-Kóreu með því að nota loftbelgi til að dreifa bæklingum. Haldi þessi þróun áfram færist Norður-Kórea nær dæmunum í sögu Japans og Kína. Fari svo er ef til vill ekki langt í byltingu í Norður-Kóreu, einkum ef tengslin milli gömlu hershöfðingjanna og Kim-ættarinnar byrja að trosna. Eftir Yuriko Koike » Þótt Kim Jong-un sé lýst sem arftaka Kims Jong-ils er líklegt að völdin færist í raun til Kim Kyong-hui sem er þekkt fyrir að vera öf- undsjúk og hafa mikla unun af því að sigra aðra. Yuriko Koike Höfundur er fyrrverandi varnar- málaráðherra Japans og þjóðarör- yggisráðgjafi. ©Project Syndicate, 2010. www.project-syndicate.org. Samúræja-reglur Norður-Kóreu Reuters Kim Jong-un „Arftakinn mikli“ (fyrir miðju), með nokkrum af æðstu yfir- mönnum hersins í Norður-Kóreu við minningarathöfn í Pjongjang.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.