Morgunblaðið - 28.12.2011, Qupperneq 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
9 3
4 8 2
5 7
4 7 6 3 8
4 5
6 3 7
9 5 8
8 2 7 4 9 5 6
3 8 4
1 7 3
6 9
6 7 3 2 9
9 4 8 6 2
1 8
4 1 7
8 3 2
2 8 4
9 6 5
1 4
6 4
6 2 3 9
8
1 8 9 3
4 6 8 1
2
8 2 3 7 6 9 4 1 5
1 4 6 2 5 8 9 7 3
9 5 7 1 4 3 6 2 8
7 6 8 4 1 5 2 3 9
5 1 4 9 3 2 8 6 7
3 9 2 8 7 6 1 5 4
2 8 1 5 9 7 3 4 6
6 7 9 3 2 4 5 8 1
4 3 5 6 8 1 7 9 2
9 2 6 5 4 8 7 1 3
3 5 8 1 7 2 4 6 9
1 4 7 3 9 6 5 2 8
5 6 2 4 1 3 8 9 7
4 9 1 8 6 7 2 3 5
7 8 3 9 2 5 1 4 6
2 3 9 7 8 1 6 5 4
6 7 4 2 5 9 3 8 1
8 1 5 6 3 4 9 7 2
7 1 2 3 9 8 4 5 6
6 4 3 2 1 5 8 7 9
9 8 5 7 4 6 2 3 1
1 6 7 5 8 2 3 9 4
4 3 8 1 7 9 5 6 2
5 2 9 6 3 4 7 1 8
3 5 4 8 6 1 9 2 7
2 9 6 4 5 7 1 8 3
8 7 1 9 2 3 6 4 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 28. desember,
362. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Biðjið og yður mun gef-
ast, leitið og þér munuð finna, knýið
á, og fyrir yður mun upplokið verða.
(Matt. 7, 7.)
Það er alveg sama hvað Víkverjiklæðir sig vel, alltaf verður hon-
um kalt á nefinu þegar hann hættir
sér út í frostið. Annars er Víkverji
ánægður með snjóinn og fannfergið.
Heimurinn verður miklu kyrrlátari í
snjónum, sem dempar öll hljóð og
kæfir. Snjórinn dregur líka úr
myrkrinu þessa dimmustu daga árs-
ins og ekki er verra að fá hvít jól.
x x x
Annars er með ólíkindum hvaðfólk lætur snjóinn lítið á sig fá.
Ekkert er vitaskuld eðlilegra en að
fólk drífi í að draga fram skíðin þeg-
ar snjó festir, en maður hefði haldið
að hlauparar myndu nota tækifærið
til að slaka á þegar brjótast þarf í
gegnum skafla til að komast leiðar
sinnar. En það er öðru nær. Eitt
dæmi er kirkjuhlaup Trimmklúbbs
Seltjarnarness, sem hlaupið var ann-
an í jólum. Sjötíu manns tóku þátt í
hlaupinu og fóru 14 kílómetra. Eins
og heitið gefur til kynna er hlaupið
fram hjá kirkjum í þessu hlaupi. Lá
leiðin fram hjá rússnesku rétttrún-
aðarkirkjunni, Landakotskirkju,
Hjálpræðishernum, Dómkirkjunni,
Fríkirkjunni, kirkju aðventista,
Hallgrímskirkju, Háteigskirkju,
kirkju óháða safnaðarins, Fossvogs-
kapellu, Neskirkju og Seltjarnar-
neskirkju. Á laugardag verða síðan
haldin gamlárshlaup víða um land.
Þá má búast við að hiti verði yfir
frostmarki víðast hvar, en sennilega
væri ekki verra að hlaupa á nagla-
skóm ef slíkur fótabúnaður væri á
boðstólum og yfirhöfuð leyfilegur
vegna hættunnar á svifryksmyndun.
x x x
Víkverji hætti sér ekki í kirkju-hlaupið annan í jólum, en fór þó
í gönguferð og varð einmitt frekar
kalt á nefinu. Stöku maður varð á
vegi hans, en ekki var fjölmennt á
götunum. Nokkrir útlendingar villt-
ust um innan um innfædda og flestir
virtust ekki geta beðið eftir að kom-
ast einhvers staðar inn. Kannski er
það einmitt aðdráttarafl þess að fara
út að ganga í frosti og byl; tilhugs-
unin um að komast aftur inn í
hlýjuna. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 útlit, 4 amstur, 7 í
átt til baka, 8 óskar eftir, 9
veggur, 11 hluta, 13 lofs, 14
huldumaður, 15 spotta, 17
hrópar, 20 tímabils, 22 jöfn-
um höndum, 23 hljóðfærum,
24 skyldmennið, 25 rás.
Lóðrétt | 1 stutt ræða, 2
Danir, 3 regla, 4 skúrar, 5
afkimi, 6 vesalings, 10 jarð-
arför, 12 ginning, 13 lík, 15
fjöl, 16 verkfærið, 18 hænan,
19 hæsi, 20 svifdýrið, 21
gauf.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 þarfaþing, 8 lagar, 9 íhuga, 10 gef, 11 sötra, 13 aftan,
15 starf, 18 skálm, 21 lát, 22 fitla, 23 iðinn, 24 þankagang.
Lóðrétt: 2 aðgát, 3 farga, 4 þrífa, 5 naumt, 6 slys, 7 barn, 12 rýr,
14 fák, 15 sefa, 16 aftra, 17 flakk, 18 sting, 19 árinn, 20 máni.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Flotta leiðin. V-Allir.
Norður
♠Á543
♥K7
♦ÁG6
♣10652
Vestur Austur
♠96 ♠K1087
♥ÁD96432 ♥G10
♦D74 ♦10952
♣8 ♣K73
Suður
♠DG2
♥85
♦K83
♣ÁDG94
Suður spilar 5♣.
Spurt var í gær: Hvernig er hægt að
tapa 5♣ eins góð og legan er? Vestur
vakti á 3♥, hóf svo vörnina með ♥Á og
meira hjarta.
Spilið er frá úrslitaleik Hollands og
Bandaríkjanna á Sport Accord-
leikunum fyrr í þessum mánuði, sem
hollensku heimsmeistararnir unnu
með rúmlega hundrað stiga mun í 48
spilum. Hér tóku þeir níu slagi í 3G, en
á hinu borðinu varð Alan Sontag sagn-
hafi í 5♣. Sontag fór flottu leiðina nið-
ur. Hann hleypti fyrst ♣10 (og lét
níuna nákvæmt undir heima). Svínaði
næst ♣D, tók ♣Á, fór svo inn í borð á
♣6 (með vel geymdum fjarka) til að
spila litlum spaða. Austur dúkkaði. Nú
las Sontag austur réttilega með fjórlit í
spaða og sá fyrir sér innkastsþvingun:
tók síðasta trompið og toppaði tígulinn
þegar austur henti tígli. Óheppinn.
28. desember 1393
„Braut Hólakirkju og stöp-
ulinn, allt saman í grund,“
sagði í Nýja annál. „Deyði einn
djákni í kirkjunni.“ Dómkirkj-
an sem fauk í ofviðri þennan
dag var kennd við Jörund Þor-
steinsson biskup og reist um
1280.
28. desember 1894
Ofsaveður gerði af vestri með
allmiklum skaða. Mikið sjáv-
arflóð og hafrót var í Reykja-
vík, sjór gekk upp í Hafn-
arstræti og skemmdir urðu á
húsum og skipum. Loftþrýst-
ingur féll um meira en 60
millibör á einum sólarhring,
sem er sjaldgæft.
28. desember 1964
Samgöngutruflanir urðu á
höfuðborgarsvæðinu vegna
snjókomu og hvassviðris. Lög-
reglan taldi þetta versta
ástandið í mörg ár. Daginn
eftir urðu sextíu ökumenn að
yfirgefa bíla sína á leiðinni
milli Reykjavíkur og Hafn-
arfjarðar.
28. desember 1965
Eyja reis úr hafi skammt frá
Surtsey en hvarf í október
1966. Eyjan var nefnd Jólnir
vegna þess að goshrinan hófst
annan í jólum.
28. desember 1967
Borgarspítalinn í Fossvogi var
tekinn í notkun þegar fyrsti
sjúklingurinn var lagður inn á
lyfjadeildina. Skurðdeild var
opnuð árið eftir.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
„Ég ætla að njóta afmælisdagsins með fjölskyld-
unni minni. Við förum líklega í útreiðartúr en mað-
urinn minn gaf mér hest í afmælisgjöf fyrir fimm
árum þegar ég varð fertug og nú erum við komin
með fleiri hesta og hesthús. Síðan spilum við alltaf
milli jóla og nýárs og á því verður engin und-
antekning í dag. Þessi tími er tilvalinn til þess að
gefa tölvunum frí og spila með fjölskyldunni,“ seg-
ir Björk Jakobsdóttir, leikkona, aðspurð hvað hún
ætli að gera á afmælisdaginn sinn. „Síðan er aldrei
að vita nema að eiginmaðurinn komi mér á óvart
og bjóði mér út að borða eða geri eitthvað
skemmtilegt og fallegt fyrir mig.“ Margir bíða nú með eftirvæntingu
eftir því að kaupa flugelda og skjóta þeim upp á gamlárskvöld og ef-
laust myndi einhver freistast til þess að skjóta nokkrum upp á afmæl-
isdaginn sinn svona nærri áramótum en Björk segist ekki hrifin af
slíku. „Ég held árlega ræðu yfir karlmönunum á heimilinu hvernig allt
eins mætti brenna upp fimmþúsund króna seðlum eins og að skjóta upp
raketum en hvorki eiginmaðurinn né synirnir hlusta, þetta er eins og
að tala við vegg að ræða þessi mál við þá. Það er þó hægt að hugga sig
við að flugeldasalan styrkir gott málefni.“ vilhjalmur@mbl.is
Björk Jakobsdóttir er 45 ára í dag
Nýtur náttúrunnar og spilar
Flóðogfjara
28. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 2.26 0,5 8.44 4,1 15.02 0,5 21.06 3,7 11.23 15.37
Ísafjörður 4.28 0,3 10.35 2,2 17.10 0,2 22.59 1,8 12.08 15.01
Siglufjörður 1.00 1,1 6.45 0,2 13.05 1,3 19.23 0,0 11.53 14.42
Djúpivogur 5.52 2,1 12.09 0,3 17.59 1,8 11.01 14.57
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er ekki lifandi við það að vera
stöðugt að líta um öxl. Leitaðu tækifæra til
að láta gott af þér leiða. Engin dyggð nær
hámarki án iðni og ræktarsemi.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Hugmyndir yfirboðara verða þér hvatn-
ing til að gera endurbætur í vinnunni. Njóttu
stöðu þinnar sem er til eftirbreytni.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Reiddu þig ekki um of á aðra því
þegar til kastanna kemur þá er þetta þitt
hlutverk sem þú berð ábyrgð á. Nú þarftu að
sinna þeim verkefnum líka.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Eitthvað sem krabbinn er að spá í er
sennilega ekki mjög góð hugmynd. Þú getur
verið að gera það nákvæmlega sama og allir
aðrir, en það lítur ekki þannig út.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú þarft að beita hugkvæmni til þess
að hlutirnir fari að ganga á nýjan leik. Gerðu
þitt til að efla áhuga hjá sjálfum þér og öðr-
um.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Meyjan lyftir sér upp í dag. Svolítið
vantraust fær mann til þess að leggja meira
á sig og með því kemst þú lengra.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Hvort sem þú notar orkuna í vinnunni, til
að afla nýrra vina eða til að skemmta þér
mun allt ganga vel. Góð bók er gulli betri í
þeim efnum.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Ást við fyrstu sýn gæti orðið að
veruleika í dag. Einhverjar breytingar gætu
orðið til góðs. Þig langar til þess að eiga mik-
ilvægt samtal við einhvern nákominn.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Aðstæður þínar hafa breyst og
þú sérð að þú þarft að breyta klæðaburði
þínum. Annars fer allt úr böndunum. Hafðu
það í huga þegar þú ákveður framhaldið.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú verður að gefa þér tíma fyrir
einveru og hugleiðslu. Með slíkum aðgerðum
munt þú koma reglu á hlutina. Reyndu þó að
fara ekki allt of langt yfir strikið.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það er engin ástæða fyrir þig til
þess að bera ábyrgð á öllum í kringum þig.
Kannski átt þú að leggja spilin á borðið.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú veist hvers þú þarfnast og getur
metið af nákvæmni hver vill og er fær um að
veita þér það. Vertu þar sem innblásturinn er.
Stjörnuspá
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4. c3 Rf6
5. d4 exd4 6. e5 d5 7. Bb5 Re4 8. cxd4
Be7 9. Rc3 0-0 10. h3 Be6 11. 0-0 f5 12.
exf6 Bxf6 13. Dd3 Rb4 14. Dd1 c6 15.
Be2 a5 16. a3 Ra6 17. Db3 De7 18. Be3
Rd6 19. Bf4 b5 20. Be5 Rc4 21. Bxf6
Dxf6 22. Rd1 Dg6 23. Bd3
Staðan kom upp á Vetrarmóti öðl-
inga sem lauk fyrir skömmu í húsa-
kynnum Taflfélags Reykjavíkur. Björn
Freyr Björnsson (2.164) hafði svart
gegn Ágústi Páli Jónssyni (1.915).
23. … Hxf3! og hvítur gafst upp. Loka-
staða efstu manna varð þessi: 1.-3.
Benedikt Jónasson (2.237), Kristján
Guðmundsson (2.277) og Björn Freyr
Björnsson (2.164) 5½ vinning af 7
mögulegum. 4.-5. Þorsteinn Þor-
steinsson (2.237) og Halldór Pálsson
(1.974). Benedikt Jónasson varð sig-
urvegari mótsins eftir stigaútreikning.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is