Morgunblaðið - 28.12.2011, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 28.12.2011, Blaðsíða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2011 EINSTAKUR LEIKHÓPUR FRÁ LEIKSTJÓRA PRETTY WOMAN OG VALENTINE'S DAY FRÁBÆR RÓMANTÍSK GAMANMYND SEM KEMUR ÖLLUM Í HÁTÍÐARSKAP Sarah Jessica PARKER Jessica BIEL Ashton KUTCHER Zac EFFRON Michelle PFEIFFER Robert DE NIRO Halle BERRY Sofia VERGARA Katherine HEIGL Josh DUHAMEL Hilary SWANK Jon BON JOVI Abigail BRESLIN Chris "Ludacris" BRIDGES Hector ELIZONDO Seth MEYERS Lea MICHELE Til SCHWEIGER 100/100 „MERRILY OUTRAGEOUS, OVER-THE-TOP FUN“ -ENTERTAINMENT WEEKLY á allar sýningar merktar með grænu SPARSPARBÍÓ 3D 1.000 kr. SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLLSÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG AKUREYRI - MARA REINSTEIN / US WEEKLY HHHH SÝND Í EGILSHÖLL OG KEFLAVÍK -BOXOFFICE MAGAZINE HHHH -THE HOLLYWOOD REPORTER HHHH MÖGNUÐ ÞRÍVÍDDARMYND KLIKKAÐASTA GRÍNMYND ÁRSINS SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI "EIN BESTA MYND ÁRSINS ÞÖKK SÉ FÆRUM LEIKSTJÓRA, LEIKURUM OG HANDRITSHÖFUNDI." - MAGNÚS MICHELSEN, BÍÓFILMAN.IS HHHH "ÞAÐ FER EKKERT ÚRSKEIÐIS HJÁ FINCHER AÐ ÞESSU SINNI" - RAGNAR JÓNASSON, KVIKMYNDIR.COM HHHH HHH - TÓMAS VALGEIRSSON, KVIKMYNDIR.IS / SÉÐ & HEYRT SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI GLEÐ ILEG JÓL JÓLAM YND FJÖLSK YLDUN NAR Í Á R Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is Fyrir tuttugu árum kom út kvik- myndin Fanný og Alexander eftir einn fremsta leikstjóra heims, Ing- mar Bergman. Þetta átti að vera kveðjumynd Bergmans og þakk- arvottur hans til leikhússins. Myndin hlaut fern Óskarsverðlaun en það þótti og þykir enn eftirtektarvert þegar um er að ræða kvikmynd sem ekki er á ensku. Nú standa yfir æf- ingar í Borgarleikhúsinu á leikriti byggðu á myndinni og verður það frumsýnt hinn 6. janúar næstkom- andi. Leikritið Fanný og Alexander var heimsfrumsýnt í þjóðleikhúsi Norðmanna í Ósló í nóvember 2009 og er uppfærslan sú vinsælasta í sögu leikhússins. Ida Rún Eyþórsdóttir fór með hlutverk Fannýjar í Ósló en hún á íslenskan föður og norska móð- ur. Hún bjó hér á landi til sjö ára ald- urs en flutti þá til Noregs með fjöl- skyldu sinni. Ida var aðeins níu ára þegar sýningar hófust í Noregi en er nú ellefu ára. Sýnt var yfir hundrað sinnum í 750 manna sal og því óhætt að segja að Ida sé þrátt fyrir ungan aldur orðin mikill reynslubolti þegar kemur að leikhúslífinu. „Ég er í söngleikjanámi í Bårdars- listdansskólanum. Þjóðleikhúsið í Ósló leitaði til Bårdars þegar það var verið að leita að einhverjum til að leika Fanný og ég var ein af þeim sem voru sendar í áheyrnarprufu. Og svo fékk ég bara hlutverkið,“ segir Ida þegar hún er innt eftir því hvern- ig það kom til að hún landaði þessu stóra hlutverki. Ida átti sér draum um að verða söngkona áður en hún kynntist leiklistinni en nú hefur draumurinn stækkað og breyst þar sem hún stefnir á að gera bæði tónlist og leiklist að atvinnugrein sinni. Lyktin og stemningin sitja eftir En hvernig fannst henni að standa á sviði fyrir framan fullan sal af fólki kvöld eftir kvöld? „Mér fannst ekki eins og ég stæði á sviðinu. Mér fannst meira eins og ég væri Fanný og leik- ritið varð líf mitt. Ég sá ekki allt fólk- ið sem sat í myrkrinu úti í salnum.“ Ida Rún segir reynslu sína dýrmæta og að hún hafi kynnst mörgu fólki sem henni þykir vænt um í dag. „Eft- irminnilegast er allt leikhúslífið, lykt- in og stemningin baksviðs,“ segir Ida Rún. Litla leikkonan er þó hvergi nærri hætt að leika og var einmitt rétt í þessu að ljúka við að leika lítið hlutverk í norskum sjónvarpsþætti. Framundan hjá henni er stórt hlut- verk þegar hún bregður sér í ljónslíki og hlutverk Nölu í sýningunni Kon- ungi ljónanna sem Bårdar setur á svið. Líkt og ætíð verða Íslendingar að forvitnast um hvort Idu Rún finnist einhver munur á að búa í Noregi og á Íslandi. „Á Íslandi er himinninn svo stór en í Noregi eru trén svo stór. Annars finnst mér munurinn ekki svo mikill.“ Aðspurð hvort hún ætli að sjá uppsetningu Borgarleikhússins á Fanný og Alexander þykir henni það ólíklegt þar sem hún sér ekki fram á Íslandsför á næstunni en hana langar samt sem áður mikið til þess. En á hún einhver ráð fyrir ungu leikkon- urnar tvær sem munu skipta með sér hlutverki Fannýjar hér á Íslandi? „Það sem ég gerði alltaf áður en ég fór í fyrsta búninginn minn var að ganga einn hring um mannlaust svið- ið og líka leikhúsið sjálft. Þegar leik- ritið byrjaði leit ég yfir fyrstu rað- irnar, síðan sneri ég mér við og þá voru áhorfendurnir horfnir fyrir mér. En það var bara mín leið. Það verður hver og einn að finna út hvað hentar honum. Þær eiga aðallega að hafa gaman af því að vera á sviðinu og leika.“ „Leikritið varð líf mitt“  Ida Rún var aðeins níu ára þegar hún lék Fannýju í uppsetningu norska þjóðleikhússins á Fanný og Alexander Hæfileikarík Ida í hlutverki Fannýjar og meðleikari hennar. Leikhúslíf Það er oft líf og fjör á fjölunum en Ida segir stemninguna baksviðs eftirminnilega líka.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.