Morgunblaðið - 30.12.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2011
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
Útlit er fyrir að desember í ár verði
metmánuður þegar kemur að heita-
vatnsnotkun borgarbúa og skrifast það
á langvarandi vetrarveður. Þegar kalt
er í veðri leyfa flestir heita vatninu að
flæða óhindrað um lagnir heimilisins og
er fylgnin svo greinileg að við liggur að
mælar Orkuveitu Reykjavíkur séu jafn-
áreiðanlegir og hitamælar til að segja til
um hitastigið. „Það má segja að það sé
óvenjumikil notkun í desember og gæti
alveg orðið met, en mánuðurinn er ekki
búinn enn,“ segir Benedikt Einarsson,
forstöðumaður stjórnstöðvar OR.
Á veturna nota borgarbúar að jafnaði
um 11 þúsund rúmmetra af heitu vatni á hverri
klukkustund, en síðustu vikur hefur umtalsvert meira,
eða um 14 þúsund rúmmetrar, runnið um kerfið að
meðaltali á klukkustund. Hinn hefðbundni jólabaðs-
toppur kom fram á mælunum stuttu áður
en jólin voru hringd inn. „Þessi baðtoppur
er árviss milli klukkan fjögur og fimm en
hann fór ekki svo hátt í þetta skiptið, var
um 14 þúsund rúmmetrar,“ segir Bene-
dikt.
Mest var notkunin á sjöunda tímanum
föstudagskvöldið 9. desember, þegar rúm-
lega 15.500 rúmmetrum af heitu vatni var
dælt um kerfið enda var talsvert kaldara
þá en á aðfangadag. Sá toppur slær hins-
vegar ekki metið í heitavatnsnotkun borg-
arbúa á einni klukkustund, sem stendur
enn frá því í febrúar 2008. „Laugardaginn
2. febrúar 2008 var hæsti toppur sem ver-
ið hefur, þá var mjög kalt í borginni,
frostið í kringum 16 stig, og notkunin
varð 15.619 rúmmetrar á klukkustund,“
segir Benedikt. Kerfi Orkuveitunnar hefur verið
styrkt og endurbætt síðustu ár og ræður vel við
sveiflurnar. „Auðvitað reynir svona mikið álag á kerf-
ið en það hefur allavega haldið.“
Skrúfað frá heita vatninu
Stefnir í metnotkun á heitu vatni þennan vetrarmánuð
sé eining um það innan þingflokks
Samfylkingarinnar hvort Árni Páll
eða Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráð-
herra taki við því embætti. Morg-
unblaðið hefur einnig heimildir úr
herbúðum stjórnarflokkanna um að
töluverðar líkur séu á auknum úr-
sögnum úr Vinstri grænum verði
Jón Bjarnason látinn víkja úr emb-
ætti, enda beri margir flokksmenn
mikið traust til hans vegna afstöðu
hans til aðildarviðræðna Íslands við
Evrópusambandið.
Ásmundur Einar Daðason, þing-
maður Framsóknarflokksins, segir
blasa við að verið sé að stokka upp í
röðum Vinstri grænna að kröfu
Samfylkingarinnar. Með ólíkindum
sé hvernig formaður og forysta VG
láti undan kröfum samstarfsflokks-
ins. „Það hefur verið ótrúlegt að
fylgjast með því hvernig Samfylk-
ingin hefur hamast á Jóni Bjarna-
syni vegna skoðana hans í Evrópu-
sambandsmálum án þess að
formaður flokksins svo lítið sem lyfti
litla fingri honum til varnar,“ segir
Ásmundur Einar, sem áður sat á
þingi fyrir Vinstrihreyfinguna –
grænt framboð. „Margir hljóta einn-
ig að spyrja sig hvort þjóðin myndi
ekki fremur vilja losna við Jóhönnu
og Steingrím en þá ráðherra sem
rætt er um að setja út nú.“
Fyrstu tvo dagana eftir að jóla-
hátíðinni lauk áttu oddvitar ríkis-
stjórnarflokkanna í viðræðum við
þingmenn Hreyfingarinnar þar sem
farið var yfir mögulega aðild flokks-
ins að ríkisstjórninni. Þór Saari,
þingmaður Hreyfingarinnar, segir
viðræðurnar vera á frumstigi og
þær geti vart talist formlegar. „Það
var farið yfir sjónarmið og hversu
langt menn væru tilbúnir að ganga.
Ég held að það gefi augaleið að þau
væru ekki að tala við okkur nema af
því að þau eru að reyna að halda
meirihluta. Það er uppi mikil óvissa í
stjórnarliðinu vegna fyrirhugaðra
breytinga á ráðherraliðinu.“
Gera ekki kröfu til embætta
Þór segir skuldamál heimilanna
þránd í götu mögulegs samstarfs.
„Það strandaði á því máli eins og
svo mörgum öðrum. Okkur fannst
VG og Samfylkingin ekki vera tilbú-
in að ganga nógu langt í þessum
málum,“ segir Þór.
Margrét Tryggvadóttir, flokks-
systir Þórs, segir að Hreyfingin eigi
að hluta til mikla samleið með
stjórnarflokkunum, til dæmis í
stjórnarskrármálinu. Hún vísar því
á bug að Hreyfingin geri það að
kröfu að Jón Bjarnason víki úr
stjórninni. „Við höfum ekki gert
neina kröfu um að fá sjálf embætti
né að ráðherrar víki. Við höfum hins
vegar komið því á framfæri að við
erum ekki ánægð með stjórn þings-
ins en höfum ekki minnst á Jón í við-
ræðunum.“
Morgunblaðið/Ómar
Ráðherraspilin stokkuð
Talið að Jón og Árni fari úr stjórn Óánægja innan Samfylkingarinnar
Viðræður við Hreyfinguna um aðild að ríkisstjórn Rætt um nýtt ráðuneyti
Flokksstjórn Samfylk-
ingarinnar hefur verið
boðuð á fund í kvöld
og er aðeins eitt mál á
dagskrá; áform um
breytingar á ríkisstjórn.
Flokksráðsfundur VG hefur einn-
ig verið boðaður klukkan 19 í
kvöld og er sama mál þar á dag-
skrá, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins.
„Nú eins og í september 2010
þegar breytingar voru gerðar á
ríkisstjórn er boðað til flokks-
stjórnarfundar,“ segir í
auglýsingu á vefsíðu
Samfylkingarinnar. Fé-
lagar í Samfylkingunni
hafa seturétt á flokks-
stjórnarfundum.
Í flokksráð VG eru kjörnir
fjörutíu fulltrúar á landsfundi, en
auk þeirra eiga sæti í ráðinu allir
kjörnir sveitarstjórnarfulltrúar,
alþingismenn, formaður Ungra
vinstri-grænna, formenn svæð-
isfélaga og formenn kjördæm-
isráða.
Flokksstjórn og flokksráð
BOÐAÐ TIL FUNDA UM BREYTINGAR Á RÍKISSTJÓRN
Anna Lilja Þórisdóttir
Baldur Arnarson
Skúli Hansen
Ráðherrum ríkisstjórnarinnar
fækkar úr tíu í átta gangi eftir það
sem víst þótti í gær, að Árni Páll
Árnason, efnahags- og viðskiptaráð-
herra, og Jón Bjarnason, landbún-
aðar- og sjávarútvegsráðherra, yfir-
gefi ríkisstjórnina og aðrir komi
ekki í þeirra stað.
Nokkurrar óánægju gætti með
þessar breytingar innan Samfylk-
ingarinnar, s.s. að veikja ráðuneyti
efnahagsmála og einnig með að
setja Árna Pál út úr ríkisstjórn.
„Þessu verður ekki tekið þegjandi
og hljóðalaust,“ sagði einn heimild-
armaður Morgunblaðsins.
Mikið var fundað í gær og fram á
kvöld en fáir voru tilbúnir að tjá sig
undir nafni. „Ég tjái mig ekkert um
þetta á þessu stigi mála,“ sagði
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
VG, í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum innan ríkisstjórnarflokkanna
þykir líklegt að á þingflokksfundum
stjórnarflokkanna síðdegis í dag
verði lagðar fram tillögur um að
þessir tveir ráðherrar víki úr emb-
ættum.
Stokka upp fyrir Samfylkingu?
Sömu heimildir herma að vænt-
anlega verði einnig stefnt að stofnun
nýs atvinnuvegaráðuneytis en ekki
Hagnaður Rík-
isútvarpsins ohf.
á reiknings-
tímabilinu 1.
september 2010
til 31. ágúst 2011
nam rúmum sex-
tán milljónum
króna, að því er
segir í ársreikn-
ingi hlutafélagsins opinbera sem
birtur var í gær. Í skýrslu stjórnar
segir að niðurstaðan sé í samræmi
við áætlanir félagsins.
Einnig segir í ársreikningnum að
eignir félagsins nemi um 5,5 millj-
örðum króna og bókfært eigið fé í
lok reikningstímabilsins sé
736.764.925 króna. Eiginfjárhlutfall
RÚV er 13,25%.
Þegar rýnt er í reikninginn kemur
í ljós að auglýsingatekjur hins op-
inbera hlutafélags námu rúmum 1,5
milljörðum króna, kostun 180 millj-
ónum króna og þjónustugjöld þrem-
ur milljörðum króna.
Heildarlaun og þóknanir til tíu
helstu stjórnenda félagsins námu
94,4 milljónum króna, þar af runnu
13,3 milljónir króna til útvarps-
stjóra. Laun útvarpsstjóra rekstr-
arárið 2009-2010 voru 15 milljónir
króna.
Sextán
milljónir
í hagnað
RÚV fékk 1,5 millj-
arða í auglýsingar
Lögreglan á höf-
uðborgarsvæðinu
kom tveimur
gangandi vegfar-
endum, er voru
illa á sig komnir
vegna vímu-
efnaneyslu, til
bjargar í fyrri-
nótt.
Annar fannst í snjóskafli í einu af
úthverfum borgarinnar og hefði get-
að farið illa hefði hann ekki fundist.
Sá fékk að gista fangageymslur til
morguns.
Hinn átti erfitt með að standa í
fæturna vegna ástands síns auk þess
að vera illa klæddur til útiveru. Sá
tók afskiptum lögreglu fálega og
þurfti að færa hann með valdi í lög-
reglubifreið. Maðurinn náði áttum í
bílnum og var ekið til síns heima.
Þar skildi hann við lögreglumenn-
ina, sáttur við þá og störf þeirra.
Fannst illa
á sig kominn
í snjóskafli