Morgunblaðið - 30.12.2011, Síða 10

Morgunblaðið - 30.12.2011, Síða 10
Tískusýning Karls Lagerfelds fyrir Chanel sem fram fór nýlega bar yfirskriftina Bombay-Paris. En líkt og nafnið gefur til kynna gætti þar áhrifa frá borgunum tveimur. Lagerfeld var ekkert að draga úr glæsilegheitunum en tískusýningin var haldin í Grand Palais í París sem hafði verið breytt í eitt stórt, indverskt matarboð. Þannig gengu fyrirsæturnar meðfram borðum hlöðnum veitingum sem gestir gátu gætt sér á á meðan. Gestir hafa sjálfsagt átt fullt í fangi með að einbeita sér bæði að fatnaðinum og umhverfinu en allar skreytingar voru mjög íburðamiklar. Höfuðskartið sem fyrirsæturnar báru var áberandi ind- verskt og mikið var um kjóla bæði í skærum litum og hvítu. Fatnaðurinn var hinn glæsilegasti enda þykir Lag- erfeld vita hvað hann syngur þegar kemur að tískunni. Bombay og París mætast Reuters Íburður Gestir snæddu af drekkhlöðnu veisluborði á meðan fyrirsæturnar sýndu það nýjasta úr smiðju Lagerfelds. Tíska 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2011 Morgunblaðið/Sigurgeir S. Hekl Tinna veit fátt betra en að setjast niður með heklunál og skapa. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Mér fannst bráðvanta góðaheklbók svo ég ákvað aðganga bara sjálf í máliðog bæta úr því,“ segir Tinna Þórudóttir Þorvaldsdóttir en hún gaf út nú fyrir jólin forláta hekl- bók sem heitir Þóra – Heklbók. „Ég hef verið að kenna á hekl- námskeiðum undanfarin tvö ár, bæði á kaffihúsum og í Félagsmiðstöð Vesturbæjar, og ég fann hvað þörfin fyrir svona bók var mikil. Það er svo frábærlega skemmtilegt hannyrða- æði í gangi hjá þjóðinni núna og það hafa komið út margar prjónabækur undanfarið, og ég sá að nú væri lag að búa til heklbók. Maður á jú að skapa sér sín eigin tækifæri, er það ekki,“ segir Tinna og hlær. „Fólk hef- ur verið mjög ánægt með að í bókinni sýni ég grundvallaratriði heklsins myndrænt, skref fyrir skref, eins og til dæmis hvernig á að fitja upp. Bók- in nýtist því ekki aðeins þeim sem eru lengra komnir heldur líka byrj- endum. Fólki þarf að finnast þetta yfirstíganlegt og skýringarnar þurfa því að vera aðgengilegar. Hekl- uppskriftir geta nefnilega verið svo- lítið flóknar í uppsetningu og þess vegna setti ég þetta upp myndrænt, munstrin eru bæði teiknuð og skrif- uð. Ég vil fá sem flesta til að taka til við heklið og útgáfa bókarinnar er því partur af því að breiða út fagn- aðarerindið.“ Flinkar systur sáu um útlitið Tinna lagði mikið upp úr því að hafa bókina fallega og grafíkina að- laðandi. „Frá því ég fékk hugmynd- ina að því að gera bókina vissi ég hverjar ég vildi fá í lið með mér að hanna hana og sjá um útlitið. Ég á of- boðslega klárar vinkonur, systurnar Breiðir út fagnaðar- boðskap heklsins Þóra langamma hennar kenndi henni að hekla þegar hún var tíu ára og hún hef- ur heklað alla tíð síðan. Hún vill halda heklinu á lofti og miðla því áfram og þess vegna gaf hún út heklbók sem hún kennir við Þóru langömmu sína. Það er eiginlega ómissandi að vera með skemmtilegan hatt á höfðinu á gamlárskvöld. Í þessu veðurfari gefst kjörið tækifæri til að vera inni og búa til sinn eigin skrautlega hatt. Það má nota ýmislegt sem til er á heimilinu eins og afgang af glimmer úr jóla- föndrinu eða fallega litað pakkaband. Einnig er hægt að búa til confetti úr jólapappírsafgöngum en það getur verið frekar leiðinlegt að hreinsa það upp. Víða á netinu má finna upp- skriftir og leiðbeiningar að flottum höttum. Á bloggsíðunni laur- endenglert.tumblr.com er ekkert ver- ið að auðvelda hlutina. Þar er hatta- gerðin komin á næsta stig og þarf dálítið til af hráefnum auk þess að vera dálítið flinkur í höndunum. En þá er bara að vanda sig og fylgja leið- beiningunum frá a til ö. Hattarnir eru búnir til úr þykkum, brúnum pappír og skreyttir í anda áramótanna. Vefsíðan www.laurendenglert.tumblr.com Hráefni Ýmiskonar skemmtilega hatta má búa til úr pappa og skrauti. Flottir gamlárshattar Sjálfsagt ætla einhverjir að taka for- skot á sæluna og kíkja út á lífið í kvöld. Meðal viðburða í kvöld eru tón- leikar þar sem hljómsveitirnar Moses Hightower og Forgotten Lores leiða saman hesta sína á sameiginlegum tónleikum. Tónleikarnir verða haldnir á Faktorý og hefjast klukkan 23 en miðasala hefst klukkutíma fyrr. Síðast komu sveitirnar fram sam- an á Þykkum þrettánda í janúar þar sem þær smekkfylltu Faktorý. Á ein- hverjum tímapunkti munu hljóm- sveitirnar renna saman í eina ólgandi heild og m.a. frumflytja lag sem þær hafa nýlokið við að taka upp saman. Endilega … … kíkið á ólg- andi tónleika Á tali? Moses Hightower. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Í góðu áramótapartíi er nauðsynlegt að hafa góðar ídýfur með snakkinu. Ýmist kaldar eða heitar. Hér eru tvær uppskriftir að ídýfum af uppskrifta- vefnum food.com. Sú fyrri er í líkingu við heitu, mexíkönsku ídýfuna með salsasósu, rjómaosti og osti sem er alltaf jafnvinsæl. Pitsuídýfa 230 gr rjómaostur 230 gr sýrður rjómi 230 gr pitsusósa 230 gr rifinn ostur Aðferð Blandið saman sýrða rjóman- um og rjómaostinum og smyrjið blöndunni síðan í eldfast form. Pitsu- sósunni er síðan smurt yfir og loks er ostinum dreift yfir. Ídýfan er síðan sett í ofninn við 180 gráðu hita í um korter eða þar til osturinn er orðinn gullbrúnn. Köld, mexíkósk ídýfa Notaðu jafnmikið af rjómaosti, sýrð- um rjóma, tacosósu og rifnum osti. Síðan þarf 3-4 niðurskorna tómata og slatta af ólífum. Blandaðu saman rjómaostinum og sýrða rjómanum og smyrðu í mót. Ofan á fer síðan sósan, osturinn, tómatar og ólífur, gott er að fínsaxa líka niður rauðlauk. Uppskriftir Ljósmynd/Norden.org Ídýfa Gott er að nota lauk, tómata, ólífur og fleira í kalda ídýfu. Ídýfumeistarar slá í gegn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.