Morgunblaðið - 30.12.2011, Page 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2011
✝ HólmfríðurJónasdóttir
fæddist í Reykja-
vík 24. október
1917. Hún lést á
Landspítala Foss-
vogi 21. desember
2011.
Hólmfríður var
dóttir Jónasar
Páls Magn-
ússonar, f. 18.
maí 1885, d. 11.
nóvember 1955, bókbindara
og tónlistarmanns í Reykjavík
og konu hans Guðbjargar
Gísladóttur, f. 1. júní 1897, d.
5. desember 1974, en hún var
ættuð úr Hornafirði. Systkini
Hólmfríðar voru Sigríður,
Ragnar, Birgir, Jón og Páll
Magnús en þau eru nú látin.
Eftirlifandi bróðir Hólm-
fríðar er Karl.
dætur, tíu barnabörn og átta
barnabarnabörn. 4) Rögn-
valdur, f. 4. júní 1947. Hans
maki var Kristjana Emilía
Kristjánsdóttir, þau skildu,
þau eiga þrjú börn og sex
barnabörn. 5) Gísli Jónas, f.
8. desember 1951. Hans maki
er Lucrecia Dugay og eiga
þau tvö börn.
Hólmfríður vann sem hús-
móðir meðan börnin voru að
vaxa úr grasi, en fór síðan að
vinna úti, fyrst á Elliheim-
ilinu Grund, síðan við Þjón-
ustuíbúðir aldraðra við Dal-
braut 27 og að lokum á
Rannsóknastofu Borg-
arsjúkrahússins. Hólmfríður
og Ingólfur bjuggu lengst af
á Bakkastíg 5 en fluttu síðan
að Kambsvegi 16 þar sem
þau bjuggu sér fallegt heim-
ili. Hólmfríður gat búið
heima nánast fram á síðasta
dag án mikils opinbers stuðn-
ings.
Útför Hólmfríðar verður
gerð frá Áskirkju í dag, 30.
desember 2011, og hefst at-
höfnin kl. 11.
Hún giftist
(Sveini) Ingólfi
Rögnvaldssyni
hinn 18. mars
1939. Þau eign-
uðust sex börn en
eitt þeirra stúlka
dó skömmu eftir
fæðingu. Eftirlif-
andi börn Ingólfs
og Hólmfríðar
eru 1) Anna, f.
10. ágúst 1939.
Hennar maki er Jörgen Sig-
urjónsson, þau eiga eitt barn
og tvö barnabörn. 2) Þor-
björg, f. 1. september 1941.
Hennar maki er Hilmar
Bergsteinsson, þau eiga þrjú
börn. Áður átti Þorbjörg
einn son. Barnabörnin eru
12. 3) Guðbjörg, f. 19. júní
1945. Hennar maki er Bragi
Finnbogason, þau eiga fjórar
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens.)
Elsku mamma við Jörgen
þökkum þér fyrir allt.
Guð veri með þér. Hittumst í
Sumarlandinu.
Þín
Anna.
Elsku mamma er látin, 94 ára,
eftir stutta sjúkrahúslegu. Nán-
ast fram á síðasta dag var hún
að sinna heimili sínu og áhuga-
málum. Hún hafði nýlokið við að
baka smákökur og brauð fyrir
jóladag, en þá hittumst við
systkinin, tengdabörn og barna-
börn hjá henni og var mömmu
mikið í mun að halda þessum sið.
Mamma hafði mikinn áhuga á
handavinnu, saumaði dúka og
myndir, prjónaði og heklaði og
allt svo fínlegt og fallegt. Síðasta
áratuginn þegar líða tók að jól-
um fór hún að vinna í jólatrés-
teppum og eigum við systkinin
og mörg af barnabörnunum jóla-
trésteppi undir jólatré eftir
hana. Mamma hafði yndi af tón-
list og hlustaði gjarnan þegar
hún var að vinna í höndunum.
Eftir að pabbi lést fyrir 4 árum
fór hún að heimsækja fé-
lagsstarfið á Dalbraut 27, sem
gaf henni mikið. Þegar mamma
var 71 árs og hætt að vinna utan
heimilis lærði hún bókband.
Næstu 2 áratugina á eftir batt
hún inn bækur og lagfærði, en
mamma hafði svo gaman af að
gera við og lagfæra hluti, bækur,
styttur og hvaðeina, allt var
þetta gert af mikilli natni og
vandvirkni.
Mamma var mjög trúuð og
hjálpaði hennar staðfasta trú
henni á erfiðum stundum og
veitti henni styrk, sem hún miðl-
aði okkur börnunum sínum og
tengdabörnum og alltaf gátum
við leitað til hennar með okkar
vandamál. Mamma var alltaf svo
þakklát fyrir allt sem fyrir hana
var gert og þegar Bragi tengda-
sonur keyrði hana einhverra er-
inda sagði hún „Þú ert eins og
besti sonur, Bragi minn“ enda
samfylgdin orðin yfir 50 ár. Móð-
ur og tengdamóður þökkum við
samfylgdina og stuðninginn
gegnum lífið. Skarð er rofið í
fjölskylduna, sorg okkar og
söknuður er sár. Við biðjum góð-
an Guð að blessa og varðveita
minningu góðrar móður og
tengdamóður
Guðbjörg og Bragi.
Látin er nú í hárri elli móðir
mín Hólmfríður Jónasdóttir.
Hún bjó ein eftir að pabbi lést
árið 2007. Hún var ótrúlega dug-
leg kona og gat búið heima án
mikils opinbers stuðnings nánast
til síðasta dags. Þau pabbi og
mamma nutu alls stuðnings sem
við systkini og makar gátum
veitt þeim á efri árum. Eftir að
ég flutti til Brussel árið 2008
hafa þau systkinin gert allt sem í
þeirra vald hefur staðið til að
létta henni lífið. Ég er þeim
óendanlega þakklátur fyrir það.
Eitt af því síðasta sem mamma
gerði var að handsauma jóladúk
sem hún síðan sendi okkur í jóla-
gjöf.
Það er margs að minnast frá
ævi mömmu og pabba en ég er
þakklátur fyrir alla gestrisnina,
hjálpina og móttökurnar sem við
fjölskyldan sem bjuggum lengi í
Búðardal fengum alla tíð frá
mömmu og pabba á Bakkastíg.
Eftir að ég flutti út varð það
fastur liður er ég og ítalskur
kollegi minn komum í vinnuferð-
ir til Íslands að byrja ferðina í
kaffi hjá mömmu. Þau höfðu
ákaflega gaman af að ræða sam-
an en hún hafði ótrúlega hæfi-
leika til að laða að sér fólk og
tala af skilningi við jafnt unga
sem aldna. Þess má geta að
mamma hafði gott vald á ensku
og dönsku þrátt fyrir að formleg
skólaganga væri ekki löng. Til
gamans má geta að hún hjálpaði
mér við dönskunámið allt til
stúdentsprófs í MR.
Frá Brussel varð Skype „líf-
línan“ okkar. Við töluðum oft
saman og oftar en ekki um lífið
og tilveruna gegnum árin. Hún
hafði ung að árum dvalist hjá
móðurfólki sínu á Hornafirði og
þar vorum við síðan í sveit systk-
inin. Bæði á Borg og í Hoffelli en
þar bjuggu systur Guðbjargar
ömmu. Ragna bjó í Hoffelli, en
þar dvaldi systir mín nokkur
sumur. Ég og bróðir minn vorum
á Borg hjá Sigríði og sonum
hennar. Móðurfólkið okkar á
Hornafirði sýndi okkur frænd-
systkinunum úr Reykjavík ein-
staka góðvild og hlýju.
Við ræddum einnig kreppuna
sem hófst haustið 1967 en þá var
ég að hefja dýralæknanám í Nor-
egi. Hún var líklega ekki betri en
sú kreppa sem hófst 2008. Ég
get seint fullþakkað mömmu
hvernig stuðningur hennar í
gegnum fyrstu tvö árin af nám-
inu gerði mér kleift að halda því
áfram.
Mamma var svo lánsöm að
halda andlegum eiginleikum og
styrk alveg fram í andlátið. Hún
var umvafin stórri fjölskyldu
sem elskaði hana og saknar nú
sárt. Vegna óviðráðanlegra
ástæðna og stutts fyrirvara
kemst sá er þetta ritar ekki í út-
förina, en það hefði hún skilið
manna best.
Guð blessi minningu hennar.
Rögnvaldur.
Hér eru nokkur fátækleg orð
til minningar um Fríðu ömmu.
Ég sendi ömmu jólakort um
miðjan desember og þá hvarflaði
ekki að mér að hún yrði farin frá
okkur um jólin. Ég vona að hún
hafi opnað það og lesið kveðjuna
frá mér.
Svona er víst lífið. Enginn veit
hvað morgundagurinn færir okk-
ur. Ömmu hitti ég í síðasta sinn í
sjötugsafmæli mömmu minnar í
september síðastliðnum. Mikið
er ég glöð að hafa knúsað hana
og kysst vel þá.
Í þessum töluðu orðum hef ég
fyrir framan mig kort sem amma
skrifaði mér í mars síðastliðnum,
daginn sem ég varð fertug og
gifti mig óvænt án þess að nokk-
ur vissi. Þá gaf hún mér rétt
tæplega 60 ára gamlan blóma-
vasa sem hún sjálf hafði fengið í
35 ára afmælisgjöf frá langömmu
minni og afasystrum. Hún segir í
kortinu að vasinn hafi alltaf verið
henni mjög hjartfólginn vegna
þess að hann minnti hana alltaf á
vorið. Ég hef geymt þennan
dýrðargrip ásamt kortinu sem
honum fylgdi í fína spariskápn-
um mínum síðan. Slíkar gjafir
eru ómetanlegar og í raun þykir
mér kortið frá ömmu jafn mikils
virði og gjöfin sjálf. Mér þótti
svo ótrúlega vænt um þessa gjöf
frá henni og var svo þakklát fyrir
að hafa hana hjá okkur á þessum
gleðidegi.
Það eru ekki margir sem eiga
ömmur fram á fimmtugsaldurinn
en amma varð fjörgömul, 94 ára.
Ég minnist hennar með hlýju og
vildi óska að ég hefði gefið mér
meiri tíma til að heimsækja hana
í dagsins önn.
Það er góð gjöf að geta eytt
ellinni innan veggja síns eigin
heimilis og það gat amma fram á
síðasta dag. Ég vona að ég verði
svo heppin þegar kemur að mér
að eyða ævikvöldinu. Ég þakka
ömmu samfylgdina í gegnum líf-
ið og sendi öllum þeim sem
standa henni næst innilegar
samúðarkveðjur.
Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir.
Amma mín var einstaklega hlý
kona. Ég minnist þess þegar ég
var krakki og fór í heimsókn til
ömmu og afa á Bakkastígnum.
Hún faðmaði mig alltaf innilega
þegar ég kom í heimsókn og
bauð upp á góðar veitingar.
Stundum fékk ég að leika mér
með pottana og pönnurnar í eld-
hússkápunum. Sem fullorðinn
kynntist ég henni betur. Ég
hafði alltaf gaman af því að koma
til hennar í kaffi og spjalla. Hún
tók alltaf á móti gestum með
mikilli ánægju og hlýju. Við
spjölluðum um daginn og veginn.
Þrátt fyrir háan aldur var hún
einstaklega skýr í kollinum og
minnug. Hún fylgdist vel með
því sem ég var að fást við. Við
höfðum bæði mikinn áhuga á
tónlist og hún sýndi mínu tónlist-
arnámi mikinn áhuga. Hún sagði
mér frá föður sínum Jónasi sem
var hæfileikaríkur hljóðfæraleik-
ari. Hann spilaði á orgel og lék í
lúðrasveit.
Mér finnst aðdáunarvert hvað
hún stóð sig vel eftir að afi féll
frá árið 2007. Þrátt fyrir að vera
komin yfir nírætt bjó hún ennþá
á eigin heimili og bar sig alltaf
vel.
Elsku amma mín, þín verður
sárt saknað.
Sigurður Þór Rögnvaldsson.
Hólmfríður
Jónasdóttir
✝ Haraldur Guð-björn Þórð-
arson fæddist í
Reykjavík 16. júlí
1925. Hann lést á
Heilsugæslustöð
Sauðárkróks 14.
desember 2011.
Hann var sonur
hjónanna Guð-
rúnar Marínar
Guðjónsdóttur f.
13.8. 1905, d. 3.3.
1983, og Þórðar Ellerts Guð-
brandssonar, f. 26.12. 1899, d.
21.2. 1997.
Haraldur var næstelstur sex
systkina, hin eru Magnea Katr-
ín f. 27.6. 1923, Lína Guðlaug
f. 27.7. 1927, Guðbrandur
Kjartan f. 19.3. 1929, Guð-
mundur Jón f. 15.6. 1930 og
Katrín Þ. Wallace f. 9.9. 1931,
d. 13.11.2007. Haraldur ólst
frá tveggja til átján ára aldurs
Haraldar og Rögnu eru 4 tals-
ins. Haraldur og Ragna hófu
búskap sinn á Siglufirði en
fluttu árið 1950 til Ólafsfjarðar
og bjuggu þau þar til ársins
1987 þegar þau fluttu alfarið
til Sauðárkróks. Haraldur
gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir samfélög sín. Á
Ólafsfirði var hann formaður
sóknarnefndar í áratug og eins
sat hann í bæjarstjórn eitt
kjörtímabil. Bæði á Ólafsfirði
og á Sauðárkróki var hann
meðhjálpari um árabil.
Trúr og traustur félagi var
Haraldur bæði í Rótarýhreyf-
ingunni og í Frímúrararegl-
unni. Þá var hann mjög virkur
í starfi sjálfstæðismanna. Har-
aldur var lærður vél-
virkjameistari og starfaði hann
í upphafi starfsævi sinnar við
iðn sína en síðar varð hann
framkvæmdastjóri Hraðfrysti-
húss Ólafsfjarðar og Útgerð-
arfélags Ólafsfjarðar. Á Sauð-
árkróki gegndi Haraldur starfi
forstjóra hjá Fóðurstöðinni.
Útför Haraldar fór fram frá
Sauðárkrókskirkju þriðjudag-
inn 20. desember 2011.
upp hjá móð-
urömmu sinni og
afa í Vest-
mannaeyjum. Þau
voru Nikolína
Guðnadóttir og
Guðjón Pétur
Jónsson. 14. ágúst
1948 kvæntist Har-
aldur eftirlifandi
konu sinni, Rögnu
Hólmfríði Páls-
dóttur, f. 16. maí
1925 á Siglufirði. Börn þeirra
eru þau Elín Hólmfríður f. 26.
mars 1950 og Þórður Gunnar
f. 28. september 1963. Elín var
gift Bjarka Sigurðssyni f. 1944
og eiga þau Harald Pál f. 18.7.
1968, Rögnu Rós f. 17.11. 1971
og Jón William f. 9.12. 1979.
Þórður Gunnar býr í Banda-
ríkjunum með sambýlismanni
sínum Joseph Piskura f. 12.
janúar 1957. Barnabarnabörn
Látinn er Haraldur Þórðar-
son eftir harða lokahríð. Hinn
stóri og virðulegi eiginmaður
móðursystur minnar, sem
kunni af list að sveigja járn í
eldi, hlaut að lúta boði sláttu-
mannsins slynga um síðir líkt
og okkur öllum er áskapað. Ég
tel víst að viðmót Haraldar til
þess gests, sem engan spyr
leyfis um inngöngu, hafi ein-
kennst af stillingu, hógværð og
reisn líkt og til annarra gesta
er hann sóttu heim um ævina
jafnt og til allra annarra sam-
ferðamanna. Haraldur var al-
vörugefinn maður en kímnigáfu
hafði hann ríka. Hann var af
þeirri kynslóð sem vissi hvað
það var að hafa fyrir lífinu,
mátti aldrei vamm sitt vita og
prúðmennska var honum í blóð
borin.
Halli, eins og hann var kall-
aður í fjölskyldunni, kom ungur
maður að sunnan norður á
Siglufjörð til að nema í vél-
smiðju. Á Siglufirði nam hjarta
hans staðar hjá Rögnu móð-
ursystur minni. Halli og Ragna
bjuggu allan sinn búskap á
Norðurlandi, lengst af á Ólafs-
firði, þar sem Halli átti mörg
handtökin við að koma fjöl-
skyldunni upp góðu og glæsi-
legu íbúðarhúsi uppi á brekk-
unni. Halli, Ragna og Elín
Hólmfríður, dóttir þeirra, voru
frá því ég man fyrst eftir mér
títtnefnd af móður minni en á
þeim árum hömluðu vegalengd-
ir milli landshluta tíðum sam-
vistum þeirra systra mun meira
en nú gerist. Því meiri gleði og
ánægja fylgdi endurfundum á
nokkurra ára fresti eftir löng
ferðalög og kært var á milli
fjölskyldnanna. Ég átti því láni
að fagna sem unglingur að fá
að dvelja hjá þeim á Ólafsfirði
sumarpart árið sem sonurinn
Þórður Gunnar var á fyrsta
árinu; það var góður og
ánægjulegur tími hjá góðum
hjónum og Elínu stóru systur
þar sem leikið var við Þórð
Gunnar, litla bróður. Alla tíð
voru þau höfðingjar heim að
sækja.
Síðustu 20 ár bjuggu Halli
og Ragna á Sauðárkróki, nú
allra síðustu ár á dvalarheim-
ilinu á Sauðárhæðum þar sem
þau nutu alúðar og umhyggju í
hvívetna.
Að leiðarlokum þakka ég ein-
staka viðkynningu alla tíð og
votta Rögnu móðursystur
minni og allri fjölskyldunni
innilega samúð. Blessuð sé
minning Haraldar G. Þórðar-
sonar.
Hver vegur að heiman
er vegur heim.
Hratt snýst hjól dagsins,
höllin við lindina
og tjaldstæðin hjá fljótinu
eru týnd langt að baki,
það rökkvar og sigðin
er reidd að bleikum stjörnum.
En handan við fjöllin
og handan við áttirnar og nóttina
rís turn ljóssins
þar sem tíminn sefur.
Inn í frið hans og draum
er förinni heitið.
(Snorri Hjartarson.)
Anna Sigríður
Einarsdóttir.
Haraldur Guðbjörn
Þórðarson
✝
Elskulegur faðir okkar,
JÓN ÁGÚST SIGMUNDSSON
STRANDBERG
stýrimaður og tollvörður,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þriðjudaginn
27. desember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurður Örn Jónsson,
Sigríður Jónsdóttir,
Ólöf Jónsdóttir.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HÖRÐUR DAVÍÐSSON
rafvirkjameistari,
Víghólastíg 5,
Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítala Landakoti
laugardaginn 17. desember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Harpa Harðardóttir, Gunnar Gunnarsson,
Gígja Harðardóttir, Gylfi Guðmundsson,
Andrea Sigrún Harðardóttir,
barnabörn og langafabörn.
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR