Morgunblaðið - 18.01.2012, Side 10

Morgunblaðið - 18.01.2012, Side 10
María Ólafsdóttir maria@mbl.is Fólk hættir ekki að verakynverur þó að það grein-ist með krabbamein. Kyn-löngunin og kynlífið getur hins vegar breyst meðan á veik- indum og meðferð stendur. Í tengslum við samstarfsverkefni Novartis, Sanofi og Landspítala Há- skólasjúkrahúss, verður á morgun haldin örráðstefna um kynlíf og krabbamein. Á ráðstefnunni mun hollenski læknirinn og kynfræðingurinn Woet Gianotten fjalla um það hvernig krabbameinsmeðferð hefur áhrif á kynlíf og kyngetu og síðast en ekki síst um mikilvægi þess að ræða á eðlilegan og opinskáan hátt um krabbamein og kynlíf. Opinská umræða mikilvæg Steinar B. Aðalbjörnsson hefur af þessu persónulega reynslu sem hann mun deila á ráðstefnunni. Steinar, sem verður 42 ára í sumar, greindist með krabbamein í eista ár- ið 2000 eftir nokkuð langan aðdrag- anda. „Árið 1996 varð ég fyrir því óhappi að bolta var neglt af miklum krafti í punginn á mér. Þetta getur auðvitað alltaf komið fyrir þá sem stunda svona snertiíþróttir. En þetta var verulega vont og hitti eist- að mjög illa. Þegar heim kom pissaði ég blóði svo það var greinilega eitt- hvað að. Ég fór til læknis og fékk einhver lyf þar sem hvítu blóðkornin voru í ólagi. Eftir tíu daga fór ég síð- an aftur til læknis sem sagði að þetta væri allt á réttri leið en ég skyldi láta vita ef þetta lagaðist ekki. Síðan liðu fjögur ár og ég er bara þessi týpíski karlmaður sem lætur ekkert vita. Á þessum tíma myndaðist hnútur á annað eistað og svo gerðist það í ársbyrjun 2000 þegar ég settist niður að eistað klemmdist. Fram að því hafði þetta verið vont en ekki nógu slæmt til að þetta háði mér. Þarna hugsaði ég hins vegar að þetta gengi ekki leng- ur. Ég fór strax til heimilislæknis og Skilningur og um- hyggja nauðsynleg Mikilvægt er að þeir sem greinast með krabbamein geti rætt á eðlilegan og opin- skáan hátt um kynlíf sitt á meðan á veikindum og meðferð stendur. Sem skref til að opna umræðuna verður á morgun haldin örráðstefnan Kynlíf og krabbamein. Þar mun hollenski læknirinn og kynfræðingurinn Woet Gianotten halda erindi og þau Steinar B. Aðalbjörnsson og Hildur Björk Hilmarsdóttir deila reynslu sinni. Álag Steinar fann til aukinnar þreytu og missti áhugann á kynlífi um tíma. 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 2012 Fylgstu með Ebbu útbúa einfalda og bragðgóða heilsurétti í MBL sjónvarpi á hverjum miðvikudegi. - heilsuréttir Kattaunnendur og -eigendur ættu að kíkja inn á hina skemmtilegu vefsíðu moderncat.net. Þar er að finna ýmis- legt sem snýr að lífi nútímakattarins. Öllu meira umstang er nú í kringum gæludýrin en áður tíðkaðist. Meira er til af ýmiss konar dóti fyrir þau og sum hver af minni gerðinni eru klædd í föt svo þeim verði ekki kalt. Á mod- erncat-vefsíðunni er þó ekki ein- göngu að finna sniðuga hluti fyrir ketti heldur einnig ýmsa hluti skreytta með myndum af kisum. Þarna má t.d. finna kínaskó með kisueyrum og flottar prentanir af kis- um til að ramma inn og hengja upp. Fyrir ketttina sjálfa ber helst að nefna ýmiss konar bæli, kolla og meira að segja vínskáp sem kötturinn getur komið sér þægilega fyrir ofan á. Svo ekki sé minnst á ýmiss konar leikföng við hæfi kisa. Á vefsíðunni má einnig fá upplýs- ingar um kattaathvörf og allt það er snertir hagsmunamál katta. Ef svo má segja. Meðal annars getur fólk ættleitt heimilislausa ketti í gegnum síðuna. Moderncat.net er forvitnileg síða og fjölbreytt og margir geta örugglega haft gaman af að skoða hana. Vefsíðan www.moderncat.net Allt fyrir nútímaköttinn Hönnun Á hliðinni er klórugrind en hægt er að lyfta toppnum og þar er bælið. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Heimspekikaffi með Gunnari Her- sveini rithöfundi í Gerðubergi í kvöld mun að þessu sinni snúast um barátt- una á milli góðs og ills. En Gunnar Her- sveinn ætlar að efna til umræðu um hvaða siðareglur geti sameinað mann- leg samfélög og unnið bug á illskunni. Velt verður upp þeirri spurningu hvort nokkrar meginreglur dugi til að breyta heiminum til betri vegar og hvernig fólk byggi upp innri varnir gegn illskunni. Það er rithöfundurinn Þórdís Elva Þorvaldsdóttir sem verður gestur kvöldsins. Hún skrifaði bókina Ofbeldi á Íslandi: Á mannamáli sem var tilnefnd til Íslensku bókmennta- verðlaunanna, auk þess sem hún stofnaði jafnréttisátakið Öðlinginn. Gunnar Hersveinn hefur fengið við- urkenningu fyrir bækur sem hafa sett umtalsvert mark á hérlenda þjóð- félagsumræðu um gildi einstaklinga og samfélags. Þær heita Gæfuspor, Orðspor og Þjóðgildin. Heimspekikaffið hefst klukkan 20 í kvöld. Endilega … Barátta Geta siðareglur sameinað mannleg samfélög og sigrast á illskunni? … vinnið bug á illskunni Gunnar Hersveinn Þórdís Elva Þorvaldsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.