Morgunblaðið - 18.01.2012, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 18.01.2012, Qupperneq 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 2012 Elsku vinkona. Kallið þitt kom allt of snemma, ég ætlaði að heilsa upp á þig um sl. helgi á Grensás, var búin að fylgjast með að austan. Pabbi sagði mér að þú hefðir brosað svo fallega til sín þegar hann hitti þig þar. Vinskapur okkar hefur staðið í 25 ár en við bjuggum í sama húsi fyrst á Þinghólsbrautinni og síðar á Hraunbrautinni. Oft var glatt á hjalla hjá okkur. Þegar ég setti upp jólaskraut- ið í byrjun desember fór ég að María Schjetne ✝ María Schjetnefæddist í Reykjavík 5. des- ember 1951. Hún lést á gjörgæslu- deild Landspítalans við Hringbraut 7. janúar. Útför Maríu fór fram frá Kópavogs- kirkju 16. janúar 2012. rifja upp með hverjum ég hafði föndrað hina og þessa hluti og þá komst þú oft upp í hugann enda leidd- ist okkur ekki að sitja við eldhús- borðið og föndra. Elsku Mary, síð- ustu ár hafa verið þér erfið, mikil veikindi, en alltaf stóðstu upp aftur svo dugleg. Þú varst svo óendanlega stolt af fjölskyldu þinni enda mjög náið sambandið hjá ykkur, miss- ir þeirra er mikill. Elsku Axel, Gerður, Örlygur, tengdabörn og barnabörn, ég og fjölskylda mín sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur. Gengin er góð kona. Guð veri með ykkur. Kær kveðja, Lára Björnsdóttir, Fáskrúðsfirði. Elsku fjölskylda, nú hefur María kvatt þetta líf eftir meira en þriggja ára baráttu við erf- iðan sjúkdóm. María tókst alltaf á við baráttuna af miklu og aðdáunarverðu æðruleysi. Hún var alltaf jákvæð og tilbúin að berjast við sjúkdóminn af mikilli innri stillingu og aldrei kveink- aði hún sér. Við kynntumst fyrst Maríu og eiginmanni hennar, Axel, fyrir næstum 20 árum þegar dóttir þeirra, Gerður Rós, fór að rugla saman reytum með Gunnari bróður Jóns. María var alltaf mætt þegar fjölskyldan hittist í afmælum eða á öðrum skemmti- legum stundum, t.d. Eurovison- kvöldum hjá Gerði og Gunna. Hún hafði góða frásagnarhæfi- leika og gaman var að sitja með henni og spjalla um daginn og veginn. Barnabörnin dáðu hana bæði og munu sárt sakna henn- ar. Samvinna, samvera og vænt- umþykja voru samheiti á sam- bandi þeirra allra í gegnum árin. Fjölskyldurnar Axel og María og Gerður og Gunni ásamt barnabörnunum Maríu Rós og Gunnari Axel áttu saman mjög margar góðar stundir bæði hér heima og erlendis. Þau fóru saman í ferðir til Spánar og glatt var þar alltaf á hjalla, þær stundir eru örugglega eitthvað sem oft verður minnst með hlý- hug í hjarta. María, Gerður og María Rós fóru oft saman um helgar að gera það sem Maríu fannst skemmtilegast að versla og kíkja í búðir, það verður örugglega erfitt fyrst í stað fyrir þær mæðgur að rölta um Kringluna en þá er gott að minnast allra skemmtilegu augnablikanna með Maríu. Hún var alltaf boðin og búin að passa barnabörnin, fara með þau eitthvað skemmtilegt eða prjóna á þau hlýja flík, en margar slíkar liggja eftir hana. Elsku Axel, Gerður, Gunnar, María Rós, Gunnar Axel, Örlyg- ur og Regína, þið hafið misst mikið og alltof snemma. Megi góðar minningar ylja ykkur og hugga í sorginni. Með samúðarkveðjum, Jón Þór, Erna og börn. Það er mikil gæfa að kynnast góðu fólki á lífsleiðinni. Ég hef verið lánsöm hvað það varðar og Þorbjörg sem ég kveð í dag er ein af þeim manneskjum sem upp úr standa og hafa haft jákvæð áhrif á líf mitt og minna. Þegar ég kynntist Garpi, fyrir tuttugu og átta árum, bjó hann hjá henni og hafði gert frá tólf ára aldri. Samband þeirra var mjög náið en það byggðist á gagn- kvæmri virðingu, enda voru þau lík í eðli sínu. Garpur varaði mig við áður en hann kynnti mig fyrir ömmu sinni, sagði að hún kynni allar reglur í mannlegum samskipt- um því hún ætti ameríska bók um mannasiði. Ég kveið því eðlilega fyrir að hitta þessa fínu frú sem ég óttaðist að myndi mæla mig út og dæma. Óttinn reyndist ástæðulaus, Þorbjörg var langt því að vera fín með sig og tók öllum sem á Þorbjörg Ólafsdóttir ✝ ÞorbjörgÓlafsdóttir fæddist í Bakka- gerði í Borgarfirði eystra 17. desem- ber 1917. Hún lést 6. janúar 2012. Útför Þor- bjargar fór fram frá Háteigskirkju 16. janúar 2012. vegi hennar urðu sem jafningjum. Hún var virðuleg í fasi en frjálslynd í hugsun og kom það meðal annars fram í einlægum áhuga hennar á jafnrétti kynjanna og kvenfrelsi. Hún hafði líka mikinn áhuga á þjóð- félagsmálum og var jafnaðarmaður í eðli sínu. Þorbjörg var einstaklega skipulögð og vinnusöm og aldr- ei varð ég vör við að hún hefði mikið fyrir hlutunum eða heyrði hana kvarta um þreytu eða álag. Á þessum tíma vann hún á Thorvaldsensbasarnum en þar vann hún þangað til hún var komin hátt á áttræðisaldur. Auk þess var hún gjaldkeri fé- lagsins og virk í félagsstarfinu þar. Hún var einstaklega ung- leg og lengst af heilsuhraust. Það sópaði að henni þegar hún arkaði áfram eftir götum bæj- arins, á miklum hraða, og þurftu þeir sem yngri voru að hlaupa til að halda í við hana. Heimilið var hlýlegt og bar með sér listaáhuga og smekk- vísi húsráðenda en það var nánast óbreytt í nærri sextíu ár. Þorbjörg undi sér vel heima; las, leysti krossgátur úr dönsku blöðunum og hún tefldi líka og spilaði, meðal annars við okkur Garp og síðar börnin okkar. Eftir að við Garpur fórum að búa fylgdist hún vel með, hringdi nærri daglega og spurði frétta. Hún bauð okkur í hádegismat alla sunnudaga í á annan áratug. Í huga barna minna lagaði hún besta matinn og fáum við foreldrarnir reglu- lega að heyra að lambalærið, sósan og jólamaturinn sé miklu betri hjá ömmu en okkur. Börnin löðuðust að henni en hún sýndi þeim áhuga og kenndi margt. Þótt hún væri í raun langamma þeirra var hún aldei annað en amma fyrir þeim. Þær Ylfa voru góðar vin- konur og fór hún oft til hennar eftir skóla, ýmist til að æfa sig á píanóið eða spjalla. Þorbjörg var hjá okkur síðastliðið að- fangadagskvöld, var hress og tók virkan þátt í hátíðahöld- unum þótt hún væri orðin veik- burða. Það er gott fyrir börnin og okkur að eiga þá minningu. Þorbjörg og Sólveig, móðir mín heitin, urðu góðar vinkon- ur þótt ólíkar væru. Mamma bar mikla virðingu fyrir Þor- björgu og gekk í Thorvaldsens- félagið eftir hvatningu hennar og fengu þær mikinn fé- lagsskap út úr því starfi. Þor- björg reyndist mömmu góð vin- kona. Ég þakka vináttu, umhyggju og tryggð sem Þorbjörg sýndi mér og minni fjölskyldu. Lífið verður vissulega tómlegra án hennar en minning um góða konu mun lifa. Lilja Þorkelsdóttir. Baldur birtist mér sem blanda af evrópskum mennta- manni og jarðbundnum sveita- pilt af Hólsfjöllum. Áður en ég kynntist honum þekkti ég hann úr sjónvarpskennsluþáttum í þýsku. Þýskukennarinn á skján- um virkaði formfastur. Það var samt einhver hlýja sem skein í gegnum formfestuna sem gerði að verkum að ég treysti honum áður en ég hitti hann fyrst. Og hann brást aldrei því trausti þá næstum þrjá áratugi sem ég hef verið tengdadóttir hans. Hann var karlsson úr kotinu sem fór út í heim. Á reiðhjóli yf- ir sandinn með góða heiman- fylgju, sjálfstraust og eigurnar sínar í bakpoka. Fyrst lærði hann húsgagnabólstrun þótt hugurinn stefndi annað því vart kom til greina að efnalaus piltur færi í menntaskóla. Sem iðn- Baldur Ingólfsson ✝ Baldur Ingólfs-son fæddist á Víðirhóli á Hóls- fjöllum í Norður- Þingeyjarsýslu 6. maí 1920. Hann andaðist á hjúkr- unarheimilinu Droplaugarstöðum 5. janúar 2012. Útför Baldurs var gerð frá Nes- kirkju 16. janúar 2012. nemi var hann hins vegar byrjaður að segja menntaskóla- nemum á Akureyri til í tungumálum. Hann hafði nefni- lega lært þýsku af þáttum Jóns Ófeigssonar í út- varpinu, en hann taldi útvarpið ásamt gúmmístíg- vélum heyra til mestu framfara á fyrstu áratug- um 20. aldar. Að loknu stúdentsprófi fékk hann styrk til háskólanáms í Zürich þar sem hann lagði stund á þýsku, frönsku og ítölsku. Eftir fjögurra ára nám kom hann heim og kenndi á Ak- ureyri. Þar kynntist hann El- isabeth Bahr, ungri þýskri konu sem dvaldi hjá Grethe föður- systur sinni sem hafði sest þar að á fjórða áratugnum. Þau voru glæsilegt par, giftust, fóru til Þýskalands þar sem Baldur hélt áfram námi, settust síðar að í Reykjavík og eignuðust þrjá syni. Elisabethu, sem hafði lært kjólasaum og var afar smekkleg og falleg kona, vegnaði framan af vel á Íslandi. Hún átti þegar á leið við heilsuleysi að stríða og lést árið 1965. Baldur og synir hans héldu sínu striki og bjó hann þeim gott heimili og hugs- aði vel um þá. Þeir héldu nánum tengslum við fjölskyldu Elisa- bethar í Þýskalandi. Faðir hennar, prestur, kom nokkrum sinnum til Íslands og nýtti hluta dvalarinnar til að fara um landið og heimsækja þýskar konur sem höfðu sest hér að eftir seinna stríð. Baldur bjó yfir góðri verk- kunnáttu, gat eldað, saumað og smíðað sem hann miðlaði til sona sinna. Samfara því skilaði hann drjúgu dagsverki sem þýskukennari í MR, námsbóka- höfundur, dómtúlkur og skjala- þýðandi og mikilvirkur þýðandi verka nokkurra helstu höfunda á þýska tungu, eins og Max Frisch, Friedrich Dürrenmatt, Heinrich Böll og Sigfried Lenz. Síðasta áratuginn bjó Baldur við líkamlega skerðingu eftir heilablóðfall en var alltaf jafn duglegur. Hann liðsinnti erlend- um starfsmönnum á hjúkrunar- heimilum þar sem hann bjó með íslenskunám, þýddi bækur, las mikið og hlýddi á tónlist enda mikill fagurkeri. Það var gott að heimsækja hann því honum fylgdi í senn einbeiting og ró. Synir hans minnast minnislista þar sem stóð að hann langaði að fara til Akureyrar, að kaupa sér rafskutlu og að komast enn einu sinni til Ítalíu. Þetta tókst ekki allt en sýndi eldhug. Hann var karlssonurinn úr ævintýrunum sem leysti allar þrautir sem voru lagðar fyrir hann. Baldur naut lífsins, var sonardóttur sinni besti afi, sonum sínum og tengdadætrum stuðningur og skildi sáttur við. Sigríður Þorgeirsdóttir. Ömmur geta gefið barna- börnum sínum margt gott og gagnlegt. Imma amma mín heit- in gaf mér svo sannarlega merkilegar bækur, falleg leik- föng, gómsætt sælgæti, uppá- haldskjötkássuna mína og ís í Eden. En það besta var tíminn sem hún gaf mér. Hann var Ingibjörg Snæbjörnsdóttir ✝ Ingibjörg Snæ-björnsdóttir fæddist á Hvamms- tanga í Vestur- Húnavatnssýslu hinn 15. janúar 1927. Hún lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði 24. sept- ember 2011. Utför Ingibjarg- ar fór fram frá Há- teigskirkju 3. októ- ber 2011. ómældur og honum var ævinlega vel varið. Amma átti nægan tíma fyrir okkur barnabörnin sín þegar við vor- um að vaxa úr grasi. Hún var á góðum aldri, hress í skapi og sístarf- andi. Á þessum ár- um vann hún samt aldrei úti, hún var heima í Safamýrinni og hugsaði um heimilið fyrir þau afa Hjölla. Hjá henni ömmu lærði ég að lesa, skrifa og teikna. Hún gerði tilraunir til að kenna okkur ensku og dönsku, brúðugerð, hnýtingar, vefnað, útsaum og fatasaum að ógleymdri gerð sandlistaverka í flöskum og varð okkur oftast vel ágengt hjá henni. Hún var bæði þolinmóð og blíð og vildi hag okkar allra sem mestan. Hvatning hennar var einnig mikils virði, því hún hafði óbilandi trú á sínu fólki. Amma Imma var náttúru- barn sem baðaði sig upp úr dögginni á Jónsmessunni. Hún var sveitastúlka sem las drauga- og tröllasögur fyrir alla sem vildu heyra. Hún var elsk að ritlist og ljóðum, sérstaklega hafði hún dálæti á ljóðum Dav- íðs Stefánssonar frá Fagra- skógi. Hún lagði sig eftir því að kynna þennan mikla snilling fyrir okkur börnunum: „Mamma ætlar að reyna að sofna, rökkrinu í“. Í kjölfarið komu svo Þórbergur Þórðarson og Steinn Steinarr og áttu greiða leið að barnshugum í mótun. Hún stóð með sínum mönnum hún amma Imma og lagði sig eftir að gefa afkom- endum sínum bækurnar þeirra. Þær gjafir fara ekki forgörðum. Gjafir ömmu Immu hafa allar skilað sér í góðum minningum um góða konu, sem var líka skemmtileg og uppátækjasöm og gat svo sannarlega verið ákveðin og örgeðja á stundum. Það er svo stutt síðan við gátum setið með henni og afa og hlegið að vitleysunni í sjálfum okkur og sagt henni fréttir af ættbog- anum sem út frá þeim er kom- inn. Það er svo stutt síðan þau voru reffileg eldri hjón, sem keyrðu á sínum bíl á milli af- komenda og tóku hús á þeim. Síðastliðin misseri voru um- breytingasöm, því þau eltust hratt og urðu gleymin eins og gengur. En í síðasta skipti sem ég hitti ömmu bæði hló hún og gaf gaum að langömmubörnun- um sem röltu um gólfið hjá henni á elliheimilinu. Þetta voru hennar helstu aðalsmerki til hinsta dags: ástin á fjölskyld- unni og hláturmildin. Ég er þakklát fyrir að hafa átt svo sérstaka konu sem Ingibjörgu Snæbjörnsdóttur að ömmu. Ég mun sakna hennar alla tíð um leið og ég þakka fyrir að hún yf- irgaf okkur og þetta jarðlíf sátt við guð og menn, að loknu góðu dagsverki. Guð blessi minningu Immu ömmu. Eva María Jónsdóttir. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, INGIGERÐAR JÓNSDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki og heimilisfólki á Droplaugarstöðum fyrir sam- fylgdina síðastliðið ár. Egill Á. Kristbjörnsson, Auður Egilsdóttir, Einar Guðlaugsson, Kristbjörn Egilsson, Ólafur Guðbrandsson, Guðbjörg Egilsdóttir, Steingrímur Þormóðsson, Logi Egilsson, Anna Guðmundsdóttir og fjölskyldur. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, BÁRA SIGRÚN BJÖRNSDÓTTIR, Safamýri 50, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum Hringbraut laugardaginn 31. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir fyrir hlýhug. Pétur Þór Sigurðsson, Jónína Bjartmarz, Birna Sigurðardóttir, Björn Óli Pétursson, Sigurður Birkir Sigurðsson, Sigrún Vésteinsdóttir, Sólveig Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar yndislegi eiginmaður, faðir, sonur, bróðir, barnabarn og tengdasonur, VALDIMAR VIÐAR TÓMASSON, Fjallalind 147, Kópavogi, sem lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut að morgni laugardagsins 7. janúar, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 20. janúar kl. 13.00. Anna Karen Kristjánsdóttir, Tómas Hrói Viðarsson, Kristján Ari Viðarsson, Steinar Viðarsson, Tómas Sveinbjörnsson, Sigurður S. Tómasson, Eva María Grétarsdóttir, Pétur Valdimarsson, Anna Lára Hertervig, Kristján Halldórsson, Olga Guðnadóttir og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.