Morgunblaðið - 19.01.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2012
Óvíst er hvaða örlög þingsályktun-
artillaga sjálfstæðismanna kann að
hljóta en í röðum þingmanna heyrist
sú skoðun að hver sem niðurstaðan
verði þá verði að öllum líkindum
mjög mjótt á mununum. Ýmsir þing-
menn sem kusu með ákærunum á
hendur Geir og þremur öðrum fyrr-
verandi ráðherrum haustið 2010
hafa lýst því yfir að þeir ætli að
styðja þingsályktunartillögu sjálf-
stæðismanna um að ákæra á hendur
Geir verði dregin til baka. Eins er
búist við að einhverjir þeirra þing-
manna sem lögðust gegn ákærunum
á sínum tíma muni leggjast gegn nið-
urfellingu ákærunnar.
Það sjónarmið mátti einnig heyra
hjá þingmönnum að óháð því hvaða
niðurstöðu þingsályktunartillagan
fengi væri málið allt til þess fallið að
veikja enn ríkisstjórnarsamstarfið
og auka á samskiptaerfiðleika innan
þingflokka stjórnarflokkanna sem
og þeirra á milli. Nokkuð sem nóg
hafi verið af fyrir. „Einn naglinn enn
í kistu stjórnarinnar,“ sagði einn
þingmaður.
Tvöfaldur taugatitringur
Grein Ögmundar um landsdómsmálið eins og sprengja inn í umræðuna
Þingmenn segja málið allt til þess fallið að veikja enn ríkisstjórnarsamstarfið
Morgunblaðið/Kristinn
Umræður Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Oddný Harðardóttir fjármálaráðherra í þingsal í gær.
FRÉTTASKÝRING
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
Ljóst er að mikill og vaxandi tauga-
titringur er í herbúðum ríkisstjórn-
arflokkanna vegna þingsályktunar-
tillögu sjálfstæðismanna um að
Alþingi dragi til baka landsdóms-
ákæruna á hendur Geir H. Haarde,
fyrrverandi forsætisráðherra, sem
samþykkt var haustið 2010. Gert er
ráð fyrir að tillagan verði tekin til
umræðu á morgun, föstudag, en
samþykkt var fyrir jól að taka hana á
dagskrá þingsins og að hún væri þar
með þingtæk.
Eins er ljóst að grein Ögmundar
Jónassonar innanríkisráðherra í
Morgunblaðinu síðastliðinn þriðju-
dag um landsdómsmálið þar sem
hann lýsti þeirri skoðun sinni að
rangt hefði verið að ákæra Geir hef-
ur aukið enn á þann taugatitring sem
fyrir var og auk þess hleypt illu blóði
í marga. Af samtölum við þingmenn í
gær má ráða að greinin hafi komið
eins og sprengja inn í umræðuna um
þingsályktunartillöguna og hafi mál-
ið þótt nógu slæmt fyrir. Augljóst er
að ófáir stjórnarþingmenn, ekki síst í
þingflokki Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, hugsa Ögmundi
þegjandi þörfina.
Vilja tillöguna af dagskrá
Fyrir liggur að ýmsir í röðum
stjórnarþingmanna eru mjög
óánægðir með að þingsályktunartil-
laga sjálfstæðismanna hafi verið tek-
in á dagskrá þingsins. Fram hefur
komið að hópur þingmanna vinni að
því að leggja fram svokallaða rök-
studda dagskrártillögu um að þings-
ályktunartillagan verði tekin af dag-
skrá. Það verður þó ekki fyrr en að
lokinni fyrstu umræðu um þings-
ályktunartillöguna verði dagskrár-
tillagan lögð fram þar sem þings-
ályktunartillagan er komin á
dagskrá.
Hvað grein Ögmundar áhærir
hafa stjórnarþingmenn sem Morg-
unblaðið hefur rætt við valið að nota
missterk orð til þess að lýsa afstöðu
sinni til hennar. Þannig kallaði Þrá-
inn Bertelsson, þingmaður VG, eftir
því í gær að Ögmundur segði af sér
vegna málsins í samtali við mbl.is á
meðan Jónína Rós Guðmundsdóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar,
sagði greinarskrifin valda sér veru-
legum vonbrigðum. Steingrímur J.
Sigfússon, formaður VG, kaus á hinn
bóginn að orða það svo að gerðir Ög-
mundar og skrif hans væru á hans
eigin ábyrgð.
Mjótt á mununum
Þá hafa ýmis aðildarfélög stjórn-
arflokkanna sent frá sér sterkorðað-
ar ályktanir um málið í vikunni þar
sem þingmenn þeirra eru hvattir til
þess að styðja ekki þingsályktunar-
tillögu sjálfstæðismanna og í ein-
hverjum tilfellum hafa fulltrúar
slíkra félaga gengið svo langt að hóta
þingmönnum slæmu gengi í næstu
prófkjörum að öðrum kosti.
Munur á ráðstöfunartekjum milli lífeyrisþega í almenna
kerfinu og opinberra starfsmanna er um 6% þegar dæm-
ið er reiknað til enda. Er þetta minni munur en oft hefur
verið haldið fram. Þetta kemur í skýrslu sem dr. Bene-
dikt Jóhannesson vann að beiðni BHM, BSRB og KÍ um
samspil lífeyrisgreiðslna og almannatrygginga.
Ríkið og sveitarfélögin greiða hærra iðgjald til opin-
berra lífeyrissjóða en vinnuveitendur greiða vegna
starfsmanna sem starfa á almennum markaði. Auk þess
er ríkisábyrgð á opinberu lífeyrissjóðunum og því kemur
ekki til þess að réttindi opinberra starfsmanna verði
skert þó að halli sé á rekstri sjóðanna.
Í skýrslu Benedikts er komist að þeirri niðurstöðu að
munurinn sé um 6% þegar búið er að taka tillit til
greiðslna frá Tryggingastofnun. Almannatryggingabæt-
ur eru tekjutengdar og því fær sá sem er með hærri
greiðslur úr lífeyrissjóði minna frá TR.
Benedikt tekur dæmi af opinberum starfsmanni sem
er með 300 þúsund krónur í mánaðarlaun. Þegar hann
kemst á lífeyri fær hann 216.600 kr. úr lífeyrissjóði. Hann
fær 28.794 kr frá TR og þegar búið er að greiða skatta
sitja eftir 196.999 kr. Maður með sömu laun á almennum
markaði fær 167.600 kr. úr sínum lífeyrissjóði og 57.171
kr. frá TR. Eftir skatta sitja eftir 184.656 kr. Það er 6,3%
minna en opinberi starfsmaðurinn fær. egol@mbl.is
Munur á ráðstöfunar-
tekjum eftir kerfum um 6%
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Lífeyrisþegar Munur eftir kerfum er um 6%.
Markús Sig-
urbjörnssson,
forseti Hæsta-
réttar, varð sjálf-
krafa nýr forseti
landsdóms þegar
hann tók við
embættinu hinn
1. janúar sl.
Þorsteinn A.
Jónsson, skrif-
stofustjóri
Hæstaréttar og ritari landsdóms,
staðfestir það. Er það í samræmi við
ákvæði laga um landsdóm en þar er
kveðið á um að forseti Hæstaréttar
sé sjálfkjörinn forseti landsdóms.
Ingibjörg Benediktsdóttir, sem
gegndi embætti forseta Hæstaréttar
á undan Markúsi, situr áfram í
landsdómi. Stefnt er að því að máls-
meðferð fyrir landsdómi hefjist 5.
mars að sögn Þorsteins.
sigrunrosa@mbl.is
Markús
forseti
landsdóms
Markús
Sigurbjörnsson
Fylgir embætti
forseta Hæstaréttar
Ofurtalan kom upp þegar dregið var
í Víkingalottóinu í gærkvöldi en hún
kom síðast upp 18. maí sl. Að þessu
sinni var hún 45 en í ofurtölupott-
inum voru rúmlega 3,9 milljarðar.
Sex voru með allar tölurnar réttar,
einn Finni og fimm Norðmenn, og
fær því hver þeirra tæpar 655 millj-
ónir í sinn hlut.
„Norðmenn kaupa mest í Vík-
ingalottóinu miðað við íbúafjölda,
þeir eru langöflugastir,“ segir Stef-
án Konráðsson, framkvæmdastjóri
Íslenskrar getspár. „Finnarnir koma
þar á eftir. Það er mjög mikil sala í
lottóinu þegar pottarnir eru orðnir
svona stórir en við viljum fara að fá
pottinn heim,“ segir hann.
Íslendingur vann 1. vinning í sept-
ember sl. og féll tæp 51 milljón í
hans hlut. Athygli vakti að um var
að ræða einnar raðar miða sem var
keyptur í Jolla í Hafnarfirði og kost-
aði aðeins 50 kr.
5 Norðmenn
fengu 655
milljónir hver
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
„Fólk telur margt að þessi rétt-
arhöld yfir Geir H. Haarde snúist
um eins konar uppgjör um hina
pólitísku vídd í aðdraganda hruns-
ins. Allsherjaruppgjör við hrunið.
Því fer fjarri lagi,“ sagði Ögmund-
ur Jónasson innanríkisráðherra í
samtali við mbl.is í gær spurður
um þá gagnrýni sem komið hefur á
grein hans í Morgunblaðinu í
fyrradag þar sem hann lýsti þeirri
skoðun sinni að rangt hefði verið
að ákæra Geir H. Haarde, fyrrver-
andi forsætisráðherra, fyrir lands-
dómi.
Réttarhöldin yfir Geir snerust
að hans sögn um yfirborðið, síð-
ustu mánuðina fyrir bankahrun, en
uppgjörið við hrunið væri hins veg-
ar miklu stærra og víðtækara mál
með mun lengri aðdraganda. „En
að taka þarna einn mann út úr og
hengja hann upp, það finnst mér
að vissu leyti vera afvegaleiðing.“
Ekki uppgjör við hrunið
INNANRÍKISRÁÐHERRA
Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is
TILBOÐ
Hugræn teygjuleikfimi
ásamt heilsumeðferð
Hópa- og einkatímar
• opnar orkuflæði
• slökun
• losar um spennu og kvíða
• dregur úr verkjum
• styrkir líkamann
• jafnvægi fyrir líkama og sál
• o.fl.
Leiðbeinandi: Qing
TAI CHI
INNIFALIÐ