Morgunblaðið - 19.01.2012, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2012
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Útsalan
í fullum
gangi
NÝR ÞÁTTUR Í MBL SJÓNVARPI
ALLA FIMMTUDAGA!
Bonito ehf. Friendtex
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is
Opnunartími:
mánud.-föstud. kl. 11:00 - 18:00 laugardag 11.00-16.00
FYRIR2
BU
XU
R
KR
. 5
.00
0.
2.
FY
RI
R
1
1
ALLUR FATNAÐUR
Í VERSLUN MEÐ
40-70 % AFSL.
KAUPIR 2 OG GREIÐIR
FYRIR ÞÁ DÝRARI
ATH! EKKI HÆGT AÐ VELJA 2. MEÐ
SAMA VÖRUNÚMERI
NÚ ER HÆGT AÐ GERA
ÓTRÚLEG KAUP
FRÁ FIMMTUDEGI
TIL LAUGARDAGS
Skoðið sýnishornin á www.laxdal.is
Sparidress - Vetrardragtir - Peysur - Blússur - Bolir
Laugavegi 63 • S: 551 4422
STÓRÚTSALA
VETRARYFIRHAFNIR Í ÚRVALI
40-50%
AFSLÁTTUR
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
„Við Íslendingar höfum sýnt það og
sannað að við erum umburðarlynd
þegar kemur að mismunandi fjöl-
skylduformum. Við leyfum gagnkyn-
hneigðum og samkynhneigðum körl-
um og konum að ættleiða og fara í
tæknifrjóvgun og ég held að þegar
menn skoða þetta og tryggt hefur
verið að réttindi allra séu tryggð, þá
sé þetta eitthvað sem við munum
samþykkja sem samfélag,“ segir
Ragnheiður Elín Árnadóttir þing-
maður.
Alþingi samþykkti í gær þings-
ályktunartillögu sem Ragnheiður
Elín mælti fyrir, um að skipaður
verði starfshópur sem undirbúa
skuli frumvarp um að heimila stað-
göngumæðrun í velgjörðarskyni.
Við vinnu frumvarpsins skal, sam-
kvæmt tillögunni, lögð áhersla á að
tryggja hag og réttindi barnsins sem
og sjálfræði og velferð staðgöngu-
móðurinnar.
„Þetta er rétt
byrjunin,“ sagði
Ragnheiður Elín
þegar kosið var
um tillöguna í
gær. Næst taki
við ítarleg skoðun
á helstu álitamál-
um staðgöngu-
mæðrunar, þar
sem allir færustu
sérfræðingar, hagsmunaaðilar sem
og þingmenn fái tækifæri til að koma
sínum sjónarmiðum á framfæri.
Skiptar skoðanir voru á Alþingi
um tillöguna og fór afstaða þing-
manna ekki eftir flokkslínum. Mörð-
ur Árnason, þingmaður Samfylking-
ar, gagnrýndi að máli væri sett fram
sem þingsályktunartillaga þegar í
reynd væri um að ræða „frumvarp í
dulargervi,“ þar sem fyrst væri
kveðið á um að frumvarpið ætti að
gera með ákveðnum hætti, en álita-
málin rædd síðar. Ragnheiður Elín
segir hinsvegar að eftir að frumvarp-
ið, sem verður afsprengi starfshóps-
ins, hefur verið lagt fram hafi þingið
tækifæri til að taka það til meðferðar
eins og önnur þingmál. „Það er ekki
verið að binda hendur þess Alþingis
sem fær það frumvarp til meðferðar,
en það er verið að lýsa ákveðnum
vilja til að samþykkja [staðgöngu-
mæðrun] með því að veita heimild til
að skrifa frumvarp.“
33 þingmenn greiddu atkvæði með
tillögunni en 13 á móti, flestir þeirra
vinstri grænir. Árni Johnsen greiddi
einn sjálfstæðismanna atkvæði gegn
tillögunni og úr Samfylkingunni
voru Oddný Harðardóttir og Sigríð-
ur Ingibjörg Ingadóttir á móti.
Samkvæmt ályktuninni skal
leggja frumvarpið fram svo fljótt
sem verða má. Ragnheiður Elín seg-
ist vona að velferðarráðherra skipi
starfshópinn hið fyrsta, en vinnslu
frumvarpsins þurfi að taka alvarlega
og enginn tímarammi settur um hve-
nær henni skuli vera lokið.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Brjóstmylkingar Staðgöngumæðrun felur í sér að tæknifrjóvgun er framkvæmd á konu sem hyggst ganga með
barn fyrir aðra konu og að staðgöngumóðirin hafi fallist á það fyrirfram að láta barnið af hendi strax eftir fæðingu.
Lýsir vilja til að heimila
staðgöngumæðrun
Alþingi samþykkir skipun starfshóps til að semja frumvarp
Ragnheiður Elín
Árnadóttir
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
...þú leitar og finnur