Morgunblaðið - 19.01.2012, Page 10

Morgunblaðið - 19.01.2012, Page 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2012 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is V ið getum bara alls ekki hætt að koma saman og spila, þetta er okkur lífsnauðsynlegt,“ segja þeir Helgi Sigurðsson, Runólfur Birgir Leifsson, eða Biggi, Jón Yngvi Björnsson og Stefán E. Petersen, en þeir skipa hljómsveit- ina Blúsbrot. „Músík er svo góð fyrir sálina. Þetta er innri þörf hjá okkur og svo er það líka afstressandi að spila saman. Félagsskapurinn er góður og við hlæjum mikið á æfingum.“ Blúsbrot hefur verið að spila undanfarin sex ár og einvörðungu fyrir ánægjuna. „Við æfum einu sinni í viku, drekkum mikið kaffi og spilum blús, ýmist blússtandarda eða frumsamið efni. Blúsinn er svo frábær af því það er hægt að tjá til- finningar í gegnum hann. En við er- um kannski ekki nógu blúsaðir í lifn- aðarháttum, við drekkum kaffi en ekki viskí. Við erum sennilega mjög heilbrigð hljómsveit, enginn okkar reykir og hún Linda passaði alltaf upp á að við værum edrú þegar við vorum að spila á böllunum í gamla daga,“ segja þeir og skellihlæja en Linda grípur þetta á lofti og minnir þá á að þeir hafi fyrir vikið fengið nóg að gera. „Af því að það skiptir máli að standa sig,“ segir hún og bætir við með mikilli væntumþykju: „Þetta eru strákarnir mínir. Þeir voru bara sautján ára þegar ég söng með þeim fyrst á balli í MH. En núna geri ég mér ferð hingað heim til Íslands á hverju ári til að syngja með þeim á árlegu tónleikunum þeirra,“ segir Linda sem er systir Jóns og hefur búið í Englandi í ára- tugi. Hún söng með Hauki Mort- hens og fleiri stórkanónum í den, þeim Árna Schewing, Ragga Bjarna, Guðmundi Ingólfs og fleir- um. Sveitaböll og Keflavíkin „Þrír okkar byrjuðu að spila saman fyrir þrjátíu og tveimur ár- um, þegar við vorum ungir piltar. Þá vorum við danshljómsveitin Stælar og við spiluðum mikið í Þórskaffi, á árshátíðum, þorrablótum, skólaböll- um og þvældumst líka um allt land til að spila á sveitaböllum. Það var mikið fjör. Ég spilaði líka með öðr- um mönnum í Klúbbnum á Vellinum í Keflavík,“ segir Helgi. Stefán vann lengi við að spila svokallað dinner- tónlist á Hótel Sögu, en í dag starfar hann sem tónmenntakennari. Einn- ig var Biggi framkvæmdastjóri sin- fóníunnar á sínum tíma. Þeir hafa því allir lifað og hrærst í tónlist meira og minna um ævina. „Við vor- um í áraraðir í þessum ballbransa allar helgar, en við urðum þreyttir á því þegar við vorum komnir með fjölskyldur,“ segja þeir vinirnir og Við getum bara alls ekki hætt að spila Þeir voru bara smástrákar þegar þeir byrjuðu að spila saman og í mörg ár þvældust þeir um landið sem hljómsveitin Stælar og léku fyrir dansi á sveitaböllum. Enn hittast þeir, í hverri viku, til að njóta þess að grípa í hljóðfærin, núna sem hljómsveitin Blúsbrot. Árlegir tónleikar þeirra verða á morgun. Morgunblaðið/Golli Gleðin við völd Helgi: trommur og söngur, Jón: bassi og söngur, Linda: söngur, Biggi: gítar, Stefán: hljómborð. Chezlarson er skemmtileg bloggsíða Benitu sem búsett er í Stokkhólmi. Þar hefur hún nýlega fest kaup á gömlu húsi sem hún dundar sér við að gera fínt og leyfir lesendum að fylgjast með framkvæmdum. Hún deilir meira að segja tossalistanum sínum á síðunni og þar má sjá að það verður nóg að gera hjá Benitu næstu mánuðina. Benita er mikil áhuga- manneskja um fallega hönnun og inn- anhússarkitektúr. Hún er líka óhrædd við að gera hlutina sjálf og á síðunni má fá leiðbeiningar um hvernig eigi að smíða húsgögn og koma hlutum haganlega fyrir skref fyrir skref með góðum skýringarmyndum. Vefsíðan www.chezlars- son.com/myblog Smart Látlaust en skemmtilegt. Framkvæmda- gleði Benitu Innovit tekur nú á móti umsóknum í Gulleggið frumkvöðlakeppni. Markmið keppninnar er að hjálpa ein- staklingum að láta hug- myndir sínar verða að veruleika. Allir þeir sem luma á viðskipta- hugmynd eru því hvatt- ir til þess að senda hana í keppnina og fá í kjölfarið aðstoð við að breyta hugmyndunum í fullbúnar við- skiptaáætlanir. Þátttakendum stendur til boða að sækja vinnusmiðjur og námskeið á vegum keppninnar. Á námskeiðunum fá þátttakendur fræðslu og að- stoð við að byggja upp viðskiptahugmynd og viðskiptaáætlun. Keppnin er auk þess kjörinn vettvangur til að hitta og komast í samband við aðra frumkvöðla. Verðlaun eru veitt fyrir þrjár bestu viðskiptaáætlanirnar en einnig eru vegleg aukaverðlaun veitt. Heildarverðlaun nema um fimm milljónum íslenskra króna. Nánari upplýsingar um keppnina má nálgast á innovit.is og einnig á Facebook undir Innovit. Gulleggið frumkvöðlakeppni Hugmyndir verða fullbúnar áætlanir Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. KORTIÐ GILDIR TIL 31.01.2012 MOGGAKLÚBBURINN – MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR Allir fastir áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa félagar í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða. Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn. Hafðu samband í síma 569 1122 hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér. FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT EÐA Í SÍMA 569 1122 FORSÖLUTILBOÐ: 25% AFSLÁTTUR Á „SÖGU ÞJÓÐAR“ MOGGAKLÚBBUR Moggaklúbbsmeðlimum býðst 25% afsláttur af miðum sem keyptir eru fyrir fyrstu sýningu 27. janúar nk. í Borgarleikhúsinu Hin þjóðþekkta og þjóðlega hljómsveit Hundur í óskilum fer yfir Íslandssöguna á hundavaði með leik og tónlist í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Upplýsingar um sýningar í miðasölu Borgarleikhússins í síma 568 8000 eða á www.borgarleikhús.is Í grein í Daglegu lífi miðvikudaginn 18. janúar um örráðstefnuna Kynlíf og krabbamein láðist að nefna að ráðstefnan verður haldin í húsnæði Ráðgjafarþjónustu Krabbameins- félags Íslands, Skógarhlíð 8 í Reykjavík og hefst klukkan 16:30 í dag. Örráðstefnan kynlíf og krabbamein

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.