Morgunblaðið - 19.01.2012, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2012
BAKSVIÐ
Andri Karl
andri@mbl.is
Stærsta fíkniefnamál ársins 2011
verður til lykta leitt í Héraðsdómi
Reykjavíkur í næsta mánuði. For-
vitnilegt verður að fylgjast með því,
ef marka má afstöðu sakborninga í
málinu en strax við þingfestingu
málsins stangaðist ýmislegt á. Fjór-
ir af sex sakborningum mættu fyrir
dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gærmorgun og gekk þinghald hratt
fyrir sig þrátt fyrir að ákæran telji
níu liði.
Rökrétt er að byrja á alvarleg-
asta ákæruliðnum. Þar eru tveir
menn, Geir Hlöðver Ericsson og
Sævar Sverrisson, fæddir 1967 og
1957, ákærðir fyrir stórfellt fíkni-
efnalagabrot og tolla-, lyfja- og lyf-
sölulagabrot með því að hafa staðið
saman að innflutningi á tæpum tíu
kílóum af amfetamíni, 8.100 e-töfl-
um, um tvö hundruð grömmum af
kókaíni og tæpum tólf grömmum af
MDMA. Einnig um ellefu þúsund
steratöflum og slatta af stungulyfj-
um.
Í ákærunni er Geir Hlöðveri gefið
að sök að hafa lagt á ráðin og skipu-
lagt innflutninginn. Hann hafi feng-
ið Sævar til að fara til Hollands,
sækja fíkniefnin og steralyfin og
koma þeim fyrir í vörugámi á veg-
um fyrirtækis sem hann starfaði
hjá.
Þegar dómari spurði Geir Hlöð-
ver út í afstöðu sína til sakarefn-
isins neitaði hann staðfastlega sök
og hafði ekki frekari orð um málið.
Játaði innflutning á sterum
Af orðum Geirs Hlöðvers má ráða
að eitthvað stangist á í framburði
hans og Sævars í málinu. Sævar er
nefnilega einnig ákærður fyrir
skipulagningu, og þá með Geir
Hlöðveri. Hann er einnig ákærður
fyrir að hafa tekið á móti fíkniefn-
unum og steralyfjunum í Hollandi
og fyrir að koma þeim í vörugám-
inn.
Sævar játaði sök að hluta við
þingfestinguna í gærmorgun. Hann
neitaði þeim eina þætti að hafa vit-
að að um fíkniefni væri að ræða en
gekkst greiðlega við því að hafa
flutt til landsins steralyfin. Sævar
sagðist raunar alls ekki hafa haft
hugmynd um að fíkniefni væru
einnig í gámnum.
Þó svo hann hafi ekki verið
spurður um það sérstaklega má
gefa sér að Sævar hafi því greint
skilmerkilega frá þætti Geirs Hlöð-
vers í málinu, þ.e. hvað varðar
skipulagningu innflutningsins. Ekki
verður tekin afstaða til þess hvort
hann hafi vitað að um fíkniefni væri
að ræða.
Hvað sem öðru líður er fullvíst að
báðir munu þeir hljóta refsingu í
þessu máli. Sævar að minnsta kosti
fyrir innflutning steralyfja, en hann
játaði einnig vörslu eins gramms af
kókaíni sem fannst við leit á heimili
hans.
Svo má líta til dóma sem fallið
hafa í sambærilegum málum, en þar
hafa sakborningar sem borið hafa
við að hafa talið sig vera að flytja
inn stera í stað fíkniefna engu að
síður verið dæmdir fyrir fíkniefna-
innflutning. Hefur það verið á þeim
grundvelli að þeir hafi látið sér í
léttu rúmi liggja hvað þeir væru að
flytja inn og ekki gengið úr skugga
um hvert innihaldið var.
Var með 659 g af amfetamíni
Geir Hlöðver á einnig yfir höfði
sér refsingu, hvort sem hann verður
sakfelldur fyrir fíkniefnainnflutning
eður ei, en hann gekkst við að hafa í
vörslum sínum 659 grömm af am-
fetamíni og nokkur grömm af hassi
á heimili sínu síðasta sumar. Einnig
játaði hann vörslu á átta grömmum
af maríjúana sem fundust við leit á
heimili hans í lok september.
Hann kemur við sögu í einum
ákærulið til viðbótar, ásamt þremur
öðrum. Þar er öllum gefið að sök að
hafa komið að móttöku 255 gramma
af kókaíni – í lok september – sem
ætluð voru til söludreifingar. At-
burðarásin er samkvæmt ákæru á
þá leið að kona – sem ekki kom fyr-
ir dóminn en er engu að síður
ákærð – tók á móti kókaíninu og
kom þeim til Geirs og annars sak-
bornings, sem greiddu fyrir það að
hluta. Þeir hafi komið því til fjórða
manns – sem neitaði alfarið sök í
málinu þrátt fyrir að lögregla hafi
fundið kókaínið á heimili hans – en
héldu eftir rúmum ellefu grömmum.
Báðir voru þeir svo handteknir við
heimili Geirs. Þessi atburðarás ger-
ist öll sama dag.
Þegar dómari spurði Geir Hlöð-
ver út í þennan ákærulið sagðist
hann ekki átta sig á því út á hvað
ákæran gengi. Hann hefði vissulega
verið farþegi í bifreið þegar lög-
regluaðgerðir vegna málsins stóðu
yfir en ekki vitað af neinum fíkni-
efnum. Geir neitaði því sök að öllu
leyti.
Sakborningurinn sem var með
Geir í bifreiðinni, ók henni reyndar,
játaði hins vegar sök í þessum
ákærulið. Og einnig að hafa ekið
undir áhrifum vímuefna umrætt
sinn.
Kom ekki vegna veikinda
Eftir stendur einn ákæruliður en
í honum er karlmaður á 26. aldurs-
ári ákærður fyrir vörslu nokkurs
magns steralyfja. Sá er raunar
einnig ákærður fyrir flutning hluta
steralyfjanna sem komu með vöru-
gámnum til landsins.
Umræddur maður kom hins veg-
ar ekki fyrir dóminn í gær vegna
veikinda og er því alls óvíst um af-
stöðu hans til sakarefnisins. Hann
fær tækifæri til þess 26. janúar nk.
þegar næsta þinghald fer fram.
Afstaða höfuðpaura stangast á
Þingfesting í stærsta fíkniefnamáli ársins 2011 fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gærmorgun
Annar höfuðpaura játaði skipulagningu og innflutning stera en hinn neitaði alfarið aðkomu að málinu
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Fylgd Sævar Sverrisson huldi andlitið þegar hann gekk í dómsal ásamt verjanda sínum, Ómari Erni Bjarnþórssyni.
Við fyrirtökuna í gærmorgun
var rætt um hvenær aðal-
meðferð í málinu getur farið
fram. Fyrst þarf þó annað þing-
hald því tveir sakborningar voru
fjarverandi og eiga því eftir að
taka afstöðu til ákærunnar. Ef
verjendur óska eftir að skila
greinargerðum þarf einnig að
bæta við öðru þinghaldi.
Dómari stakk fyrst upp á að
aðalmeðferð færi fram 20. febr-
úar en því var mótmælt. Annars
vegar mótmælti verjandi Sæv-
ars Sverrissonar á þeim grund-
velli að skjólstæðingur sinn
væri í gæsluvarðhaldi og bað
því um að aðalmeðferð yrði
flýtt. Hins vegar er verjandi
annars sakbornings staddur er-
lendis.
Var sæst á að 16. febrúar
myndi henta betur og er áætlað
að aðalmeðferðin í málinu klár-
ist á einum degi.
Óvíst með
greinargerðir
STUTT Í AÐALMEÐFERÐ
Falinn Geir Hlöðver Ericsson neitaði sök hvað varðar innflutning mikils
magns fíkniefna en játaði vörslu á 659 grömmum af amfetamíni.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Búist er við gífurlegum fjölda
ferðamanna vegna Ólympíuleikanna
í London í sumar. Stærstu viðskipta-
vinir okkar í Bretlandi reikna því
með töluverðri söluaukningu á
þorski í fisk og franskar, þjóðarrétti
Breta,“ segir Friðleifur Friðleifsson,
umsjónarmaður frosinna afurða hjá
Iceland Seafood, um góðar söluhorf-
ur á þessum mikilvægasta markaði
Íslands fyrir þorsk og ýsu.
Tímasetningin góð fyrir Ísland
Leikarnir koma því á góðum tíma
fyrir sjávarútveginn en Friðleifur
svarar því til að ómögulegt sé að ætla
hver söluaukn-
ingin geti orðið.
„Það er reiknað
með að mikill
fjöldi ferðamanna
vilji prófa þennan
rétt. Meira vitum
við ekki á þessu
stigi. Hver aukn-
ingin verður kem-
ur í ljós í sumar.“
Að undanförnu
hefur nokkur umræða farið fram um
möguleg neikvæð áhrif efnahags-
þrenginganna í Evrópu á íslenskan
útflutning og eru sjávarafurðir þar
ekki undanskildar. Hvernig stendur
breski markaðurinn?
„Mér sýnist staðan vera ágæt á
breska markaðnum. Það eru þó blik-
ur á lofti með þorsk, því rætt er um
aukinn kvóta á þorski í Rússlandi og
í Noregi. Aukinn kvóti þrýstir verð-
inu yfirleitt niður nema menn finni
aðra markaði. Aukin eftirspurn
vegna leikanna kemur sér því vel,“
segir Friðleifur sem starfaði um
fimm ára skeið hjá dótturfélagi Ice-
land Seafood í hafnarborginni Hull.
Þúsundir veitingastaða
Að sögn Friðleifs selja hátt í 11
þúsund staðir fisk og franskar í
Bretlandi og er þar af stór hluti í
London. Mest fer af þorski til S-
Englands en mest af ýsunni til N-
Englands. Ísland er stærsti birginn
á markaðnum fyrir fisk og franskar.
Fisksalar horfa vongóðir
til Ólympíuleikanna
Friðleifur
Friðleifsson
OPIÐ HÚS
Ásbraut 9 - Kópavogi
LAUST STRAX
Mjög falleg og björt 103,4 fm þriggja til 4ra herbergja endaíbúð á fyrstu hæð í
góðu fjölbýlishúsi. Eigninni fylgir 24,2 fm bílskúr. Ásett verð er 22,9 millj.
Opið hús verður fimmtudaginn 19. janúar milli kl. 12:00 og 13:00
og aftur sama dag milli kl. 17:00 og 18:00.