Morgunblaðið - 19.01.2012, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2012
Í dag stendur Háskólinn í Reykja-
vík fyrir málþingi um flugvelli og
flugsamgöngur á Íslandi, með sér-
stakri áherslu á Reykjavíkur-
flugvöll og innanlandsflug. Mál-
þingið er haldið á Icelandair Hotel
Reykjavík Natura og hefst kl.
13.00.
Áform eru í gildandi aðal-
skipulagi Reykjavíkur um að leggja
niður starfsemi flugvallarins í
áföngum á næstu árum. Aðal-
skipulagið er nú í endurskoðun.
Á þinginu munu Pétur K. Maack
flugmálastjóri, Þorgeir Pálsson
prófessor og Þórólfur Árnason,
stjórnarformaður Isavia, flytja er-
indi. Auk þess munu tveir erlendir
fyrirlesarar fjalla um mismunandi
hlutverk stórflugvalla og borgar-
flugvalla. Þá munu þau Ásdís Hlökk
Theodórsdóttir, aðjúnkt við HR, og
Haraldur Sigþórsson, lektor við
HR, taka til máls. Að loknum fram-
söguerindum verða pallborðs-
umræður.
Morgunblaðið/Ernir
Framtíð Á flugvöllurinn að fara eða vera
er spurt á málþingi Háskólans í Reykjavík.
Málþing um framtíð
Reykjavíkurflugvallar
Alda – félag um sjálfbærni og lýð-
ræði er eitt er eitt þeirra félaga
sem koma að rekstri Grasrót-
armiðstöðvarinnar sem var opnuð í
Brautarholti 4 sl. haust. Næstkom-
andi laugardag, 21. janúar, munu
fulltrúar Öldu kynna tillögur sínar
um það hvernig skal standa að
stofnun og skipulagi lýðræðislegs
stjórnmálaflokks. Fundurinn byrj-
ar kl. 13 og stendur í tvo tíma.
Það er von þeirra sem að fund-
inum standa að þeir sem hafa í
hyggju að taka þátt í stofnun nýrra
framboða fyrir næstu kosningar
fjölmenni á fundinn.
Hvernig á að stofna
stjórnmálaflokk?
Hjálparstarf kirkjunnar hefur lagt
fram 17,5 milljónir króna til neyð-
arhjálpar vegna hungursneyðar í
Austur-Afríku. Af fjárhæðinni eru
10 milljónir frá utanríkisráðuneyt-
inu en afgangurinn er stuðningur
Íslendinga í gegnum safnanir
Hjálparstarfsins. Jólasöfnun sem
enn er ekki búið að taka saman fer
einnig í þetta verkefni.
Á sumum svæðum í Austur-
Afríku er neyðin enn mikil. Enn er
hægt að leggja söfnun fyrir neyð-
arhjálpinni lið með því að leggja
inn á: 0334-26-50886.
17,5 milljónir til
neyðarhjálpar
Stofnun dr. Sig-
urbjörns Einars-
sonar og Guð-
fræðistofnun HÍ
efna til málþings í
fyrirlestrasal
Þjóðminjasafnsins
á morgun, föstu-
dag, kl. 13-16.
Yfirskrift mál-
þingsins er: Trú og
trúarbrögð á 21. öld.
Aðalfyrirlestur flytur dr. Hjalti
Hugason, prófessor við guðfræði- og
trúarbragðafræðideild Háskóla Ís-
lands. Málþingið er öllum opið.
Málþing um trú og
trúarbrögð á 21. öld
Hjalti Hugason
STUTT
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
Íslenski skákdagurinn verður hald-
inn hátíðlegur í fyrsta skipti mánu-
daginn 26. janúar nk. Það eru Skák-
samband Íslands og Skákakademía
Reykjavíkur sem sameiginlega
standa að því að gera daginn hátíð-
legan, en vonir standa til þess að
hann verði haldinn ár hvert héðan í
frá. Dagurinn er haldinn til heiðurs
Friðriki Ólafssyni stórmeistara,
sem fæddist þennan dag árið 1935.
Friðrik er, eins og alþjóð veit,
fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák
og m.a. hvað þekktastur fyrir að
hafa tvívegis lagt að velli stórmeist-
arann Bobby Fischer. Friðrik var
um tíma forseti alþjóðaskák-
sambandsins, FIDE.
Skákviðburðir um allt land
Gunnar Björnsson, forseti Skák-
sambands Íslands, segir að þessi
ráðstöfun sé í samráði við Friðrik
og hann muni taka fullan þátt í deg-
inum, m.a. í fjöltefli. Gunnar segir
að dagskráin sé ekki fullmótuð og
hún verði kynnt á næstu dögum, en
vonir standa
til að sem
flestir haldi
upp á daginn
og hvetur
hann til þess
að skólar, fé-
lög og vinnu-
staðir, um
allt land,
standi fyrir
skákviðburðum af ýmsu tagi í tilefni
dagsins. Þá upplýsir hann að Tafl-
félag Reykjavíkur standi fyrir
skákmóti og Taflfélagið Hellir
heiðri Friðrik með því að halda
skákmót á netinu. Vonast Gunnar
til að þúsundir Íslendinga taki þátt
í deginum.
Skákfélag fjölskyldunnar
Gunnar upplýsir að þennan dag
verði Skákfélag fjölskyldunnar
stofnað sem sameiginlegur vett-
vangur aðstandenda barna sem
stunda skák. „Stuðningur foreldra
skiptir miklu og eykur líkurnar á
að krakkarnir standi sig betur og
séu lengur í skákinni,“ segir Gunn-
ar.
Skákdagurinn á afmæli Friðriks
Verður framvegis haldinn árlega á afmælisdegi fyrsta stórmeistarans
Teflir Friðrik Ólafsson.