Morgunblaðið - 19.01.2012, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2012
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Of sein viðbrögð hjálparstofnana
og þjóða heims við yfirvofandi
hungursneyð kostuðu þúsundir
manna lífið í Austur-Afríku á liðnu
ári, að því er fram kemur í nýrri
skýrslu tveggja hjálparstofnana í
Bretlandi.
Hjálparstofnanirnar Oxfam og
Barnaheill segja í skýrslunni
„Hættuleg töf“ að það hafi tekið
hjálparstofnanir og ríki heims um
hálft ár að bregðast við vísbend-
ingum um að hungursneyð væri
yfirvofandi í austanverðri Afríku.
Í skýrslunni er vitnað í upplýs-
ingar frá breskum stjórnvöldum
sem áætla að 50.000 til 100.000
manns hafi dáið úr hungri í Kenía,
Eþíópíu og Sómalíu. Meirihluti
þeirra sem dóu voru börn undir
fimm ára aldri. Bandarísk stjórn-
völd áætla að meira en 29.000 börn
yngri en fimm ára hafi dáið úr van-
næringu í Austur-Afríkulöndunum
frá maí til júlí á liðnu ári.
Í skýrslunni kemur fram að
fyrst hafi verið varað við líklegri
hungursneyð í Austur-Afríku í
ágúst 2010. Ekki hafi verið brugð-
ist við af fullum þunga fyrr en tæpu
ári síðar, eða í ágúst á liðnu ári.
Skýrsluhöfundarnir segja að
margar hjálparstofnanir og ríkis-
stjórnir hafi talið sig hafa séð slíkar
viðvaranir mörgum sinnum áður og
viljað fá sönnun fyrir því að hung-
ursneyð væri yfirvofandi.
„Hægt hefði verið að draga úr
mannfellinum og þjáningum fólks-
ins, svo og fjárhagslega kostn-
aðinum, ef brugðist hefði verið fyrr
og af meiri þunga við fyrstu viðvör-
unum.“
Töfin kostaði þúsundir mannslífa
Sein viðbrögð við yfirvofandi hungursneyð í Austur-Afríku gagnrýnd í skýrslu hjálparstofnana
Áætlað er að 50.000 til 100.000 manns hafi dáið úr hungri, þar af rúmur helmingurinn ung börn
Reuters
Hungur og hallæri Kona með barn sækir matarskammt handa fjölskyldu
sinni í þorpi í Sómalíu þar sem hungursneyðin er alvarlegust.
Hættuleg töf
» „Við berum öll ábyrgð á
þessari hættulegu töf sem
kostaði mörg mannslíf í Afríku
og þurfum að draga lærdóma
af seinum viðbrögðum okkar,“
segir Barbara Stocking, fram-
kvæmdastjóri Oxfam.
» „Við getum ekki látið það
viðgangast að þetta afkáralega
ástand haldi áfram, þ.e. að
heimsbyggðin viti af yfirvof-
andi neyð en hunsi hana þar til
hún sér sjónvarpsmyndir af
skelfilega vannærðum börn-
um,“ segir Justin Forsyth,
framkvæmdastjóri Barnaheilla
í Bretlandi.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Norska öryggislögreglan kvaðst í gær vita
hverjir stæðu á bak við myndskeið þar sem ísl-
amskir öfgamenn hóta forsætisráðherra, utan-
ríkisráðherra og krónprinsi Noregs lífláti.
„Ó, Allah. Tortímdu þeim á kvalafullan
hátt,“ sagði meðal annars í texta sem birtist á
myndskeiðinu. Jens Stoltenberg forsætisráð-
herra, Jonas Gahr Støre utanríkisráðherra og
Hákoni krónprins er þar lýst sem óvinum ísl-
ams.
Norska blaðið Dagbladet kvaðst í gær hafa
heimildir fyrir því að norska öryggislögreglan
(PST) teldi sig vita hverjir stæðu á bak við
myndskeiðið sem var sett á YouTube í fyrra-
dag. Talið er að myndskeiðið tengist samtök-
unum Múslímar gegn hernámi sem hafa mót-
mælt þátttöku Norðmanna í hernaðinum gegn
talibönum í Afganistan. Samtökin hafa skipu-
lagt mótmæli sem eiga að fara fram við þing-
húsið í Ósló á morgun.
Samtök múslíma í Noregi (IRN) fordæmdu í
gær myndskeiðið og skoruðu á múslíma að
taka ekki þátt í mótmælunum í Ósló. „Efni
myndskeiðsins getur talist bein ógn við land
okkar og ráðamenn þess og IRN leggst alger-
lega gegn boðskap myndskeiðsins sem gengur
í berhögg við grundvallarreglur íslam,“ hefur
fréttavefur norska ríkisútvarpsins eftir fram-
kvæmdastjóra samtakanna, Mehtab Afsar.
Morðhótunin sögð „spaug“
Skýrt var frá því í gær að danska lögreglan
hefði handtekið 42 ára Norðmann vegna mynd-
skeiðs þar sem hann hótar að myrða saksókn-
ara sem rannsaka fjöldamorðin í Noregi 22.
júlí. Hann er sagður hafa lýst yfir stuðningi við
fjöldamorðingjann á Facebook-síðu. Maðurinn
neitar því að hann hafi ætlað að myrða sak-
sóknarana og segir að hótunin hafi aðeins verið
„spaug“, að sögn norska ríkisútvarpsins.
Janne Kristiansen, yfirmaður öryggis-
lögreglunnar, telur hættu á því að einhverjir
öfgamenn hermi eftir fjöldamorðingjanum
með nýrri sprengju- og skotárás í Noregi.
Hótuðu að myrða norska ráðamenn
Hótun Myndskeiðið sem sett var á YouTube.
Samtök múslíma í Noregi fordæma morðhótun íslamskra öfgamanna Talin tengjast samtökum
sem boða mótmæli í Ósló á morgun Norðmaður handtekinn eftir að hafa hótað saksóknurum lífláti
Spánverjinn Salva Luque þeysist með hundum
sínum í síðasta áfanga sleðahundakeppninnar La
Grande Odyssée í Frakklandi í gær. Tékkinn
Radek Havrda sigraði í keppninni. Hundarnir
hlupu alls um 1.000 km yfir Alpafjöllin í Frakk-
landi og Sviss á ellefu dögum. Keppninni er lýst
sem einni af erfiðustu alþjóðlegu hundasleða-
keppnum heimsins. Margir af bestu kúskum (ekl-
um hundasleða) heimsins taka þátt í henni.
Reuters
Hlupu þúsund kílómetra á ellefu dögum
Kúskar geystust á hundasleðum um Alpafjöll
Skipstjórinn á
skemmtiferða-
skipinu Costa
Concordia, Fran-
cesco Schettino,
segir að ástæða
þess að hann var
kominn í björg-
unarbát þegar
þúsundir farþega
og áhöfn skipsins
reyndu að kom-
ast frá borði sé sú að hann hafi
hrasað og dottið ofan í björgunar-
bátinn.
Skipstjórinn á yfir höfði sér
ákæru fyrir manndráp og að hafa
yfirgefið skipið áður en farþegum
var bjargað frá borði eftir að
skemmtiferðaskipið sigldi á sker
skammt frá eyjunni Giglio á Ítalíu á
föstudagskvöld. Minnst ellefu
manns biðu bana og 23 til viðbótar
er enn saknað.
Hermt er að Schettino hafi sagt
við yfirheyrslu í gær að hann hafi
lent í björgunarbátnum fyrir slysni.
„Skyndilega, þegar skipið hallaðist
um 60-70 gráður, hrasaði ég og
endaði ofan í einum bátanna.“
„Datt ofan
í björgun-
arbátinn“
Skipstjóri Costa
Concordia yfirheyrður
Francesco
Schettino
Sendiherra Bandaríkjanna í Ósló hefur
sent bandarískum ríkisborgurum í Noregi
bréf þar sem hann varar þá við því að vera
einir á götum norsku höfuðborgarinnar á
kvöldin. Í bréfinu skírskotar sendiherrann
til nokkurra árása í Ósló að undanförnu,
meðal annars hnífárásar á Solli-torgi 5.
janúar og tveggja hnífstungumála 10. jan-
úar.
Sendiherrann ráðleggur fólkinu meðal
annars að halda sig á upplýstum og mann-
mörgum svæðum, vera alltaf á varðbergi
og vera með farsíma til að geta óskað eftir
hjálp ef þörf krefur.
Varað við árásum
FÓLK HVATT TIL AÐ VERA Á VERÐI