Morgunblaðið - 19.01.2012, Page 36

Morgunblaðið - 19.01.2012, Page 36
Arnfríður segir Björk hafa verið afar virka í þróun verkefnisins en hún hefur m.a. fundað með aðstandendum þess, útskýrt hugmyndafræðina á bak við Biophiliu og lagt til hugmyndir að útfærslu kennslunnar. Björk mun á næstunni standa fyrir Biophiliu-tónleikum í New York en þangað fylgir tónlistarmaðurinn Curver henni og heldur utan um fjögurra vikna tónvísindasmiðju fyrir börn en hann hef- ur verið fulltrúi Bjarkar í verkefninu hér heima. Tónvísindasmiðjan til New York Á FERÐ OG FLUGI Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir Morgunblaðið/Árni Sæberg Fróðleikur Kennslugögnin má nota til að læra um svarthol, kontrapunkt og allt milli himins og jarðar. Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Það má með sanni segja að Biophiliu-verkefni tónlistarkonunnar Bjarkar Guðmundsdóttur haldi áfram að vaxa og dafna en nú er í undirbún- ingi farandútgáfa af tónvísindasmiðjunni sem sett var upp í Hörpu í október síðastliðnum, í tilefni útgáfu samnefndrar plötu. Tónvísindasmiðjan, og raunar platan sjálf, byggjast á hugmyndafræði Bjarkar um samspil tónlistar, náttúruvísinda og tækni en hún er m.a. sprottin upp úr tónlistarskólaupplifun Bjarkar, þar sem áherslan var lögð á aga og tæknilega getu. Tónvísindasmiðjan gengur hins vegar út á að læra með því að skapa. „Skóla- og frístundaráð samþykkti í desember að taka Biophiliu inn í grunnskólana og nú erum við að vinna að því að setja saman verkfærakistu sem mun innihalda spjaldtölvurnar sem notaðar voru í Hörpu, vísindafyrirlestra á myndbandi, alls konar tæki og tól til að gera tilraunir og svo kennsluhugmyndir,“ segir Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir, verkefnastjóri barnamenningar hjá Reykjavíkurborg. Sköpun sem rannsóknaraðferð Arnfríður segir að til standi að prufukeyra verkefnið á vorönninni en síðan muni verkfæra- kistan fara á milli grunnskóla borgarinnar næstu þrjú árin, frá og með haustinu. Þeir kennarar og vísindamenn sem komu að verkefninu í Hörpu, ásamt fulltrúum frá aðstandendum þess; Reykja- víkurborg, Háskóla Íslands og tónlistarkonunni sjálfri, munu setja saman leiðbeiningar og hug- myndir um notkun á innihaldi kistunnar en skól- unum verður síðan í sjálfsvald sett hvernig þeir útfæra kennsluna. „Aðalinntakið í hugmyndafræðinni er að nota sköpun sem rannsóknaraðferð. Þetta er í raun lærdómur gegnum leik og þú lærir með því að prófa þig áfram en ekki bara með því að sitja og hlusta,“ útskýrir Arnfríður. Um sé að ræða al- gjöra nýsköpun, sem felist m.a. í því að lögin á Bi- ophiliu hafi verið gefin út í formi appa, sem hægt sé að fikta í og leika sér með. Verkefnið er að mestu leyti fjármagnað með styrkjum og segir Arnfríður að umfang þess muni að einhverju leyti ráðast af hvernig þeir heimtast. Ferðalag verkfærakistunnar muni fyrstu árin takmarkast við borgarmörkin en vel sé hugs- anlegt að hún gerist víðförlari eftir það. Byltingarkennd Biophilia  Tengja tónlist, náttúruvísindi og tækni í skapandi kennslu FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 19. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Lýst eftir dreng 2. Hætt að drekka 3. Af hverju felur hún handarbökin? 4. Andlát: Þorbjörn Karlsson »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Í kvöld verða haldnir tónleikar á Barböru og fram koma Kima- listamennirnir Snorri Helgason, Just Another Snake Cult og Nolo. Tónleik- arnir byrja 21.00 og eru allir vel- komnir, enda frítt inn á staðinn. Snorri Helgason á Barböru í kvöld  Ben Foster, sem er rísandi stjarna í Hollywood og einn aðalleikenda í Contraband, tjáir sig um myndina á fréttamiðlinum Collider. Foster talar um myndina í löngu og ítarlegu viðtali. Hann fer yfir samstarf sitt við Mark Wahlberg og ræðir einnig um Baltasar Kormák leikstjóra og ber honum vel söguna. Ben Foster tjáir sig um Contraband  Í tilefni 69 ára af- mælis Janis Joplin verður söngkonan heiðruð á Gauk á Stöng í kvöld. Bryndís Ás- mundsdóttir mun ásamt hljómsveit flytja lög eftir Janis Joplin og Andrea Jóns- dóttir flytur formála. Janis Joplin heiðruð á Gauknum í kvöld Á föstudag Breytileg átt og stöku él, en slydda eða snjókoma um tíma S-lands. Frostlaust syðst, en annars 0 til 8 stiga frost. Á laugardag Ákveðin norðanátt með snjókomu eða éljum fyrir norðan, en björtu syðra. Hiti breytist lítið. SPÁ KL. 12.00 Í DAG NV 13-20 m/s NA-til en annars víða 8-15. Ofankoma N-lands en dálítil él syðra. Hiti um og undir frostmarki. VEÐUR „Ég ætlaði bara að troða boltanum í netið og það hafðist í þetta skiptið og það var vissulega ljúft að sjá hver staðan var eftir að ég skoraði,“ sagði Vignir Svavarsson eftir að hann skoraði geysilega dýrmætt mark Íslands undir lokin gegn Noregi á Evrópu- mótinu í handknattleik í Serbíu, þegar hann kom Ís- landi í 33:32 á síðustu mín- útu leiksins. »1 Ljúft að sjá hver staðan var Hallbera Guðný Gísladóttir, landsliðs- kona í knattspyrnu, sem hefur spilað með Val undanfarin ár, er búin að semja við sænska úrvalsdeildarfélagið Piteå til eins árs. „Mér fannst ég vera komin á hálfgerða enda- stöð hér heima og þurfa á nýrri áskorun að halda,“ sagði Hallbera, sem var einnig í viðræðum við sænsku meistarana í Malmö um að leika með þeim. »4 Fannst ég vera komin á hálfgerða endastöð Sóknarmaðurinn Kjartan Henry Finn- bogason úr meistaraliði KR í knatt- spyrnunni hélt til Englands í gær þar sem hann verður til skoðunar hjá enska B-deildarliðinu Coventry fram á sunnudag. „Coventry setti sig í samband við okkur í gær og fékk leyfi hjá okkur til að fá Kjartan út til æf- inga,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálf- ari KR. »1 Kjartan Henry á leiðinni frá KR til Coventry? ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.