Morgunblaðið - 27.01.2012, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 27.01.2012, Blaðsíða 23
V i n n i n g a s k r á 39. útdráttur 26. janúar 2012 A ð a l v i n n i n g u r Kr. 3.000.000 kr. 6.000.000 (tvöfaldur) 6 3 4 4 V i n n i n g u r Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 2 8 8 3 4 3 7 6 5 3 4 5 7 5 5 7 8 9 5 1 V i n n i n g u r Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 5733 9071 38411 60614 68096 74230 7013 30255 48658 63016 72270 76325 V i n n i n g u r Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur) 1 2 2 8 8 0 8 7 2 4 4 0 7 3 7 1 8 4 4 6 5 4 8 5 5 2 3 7 6 9 4 6 4 7 5 1 4 9 1 5 0 8 1 0 0 1 2 2 6 3 3 8 3 7 8 9 2 4 6 6 6 9 5 6 1 1 5 6 9 6 0 2 7 5 5 6 1 3 2 1 1 1 4 3 1 9 2 7 6 6 2 3 8 2 0 9 4 7 4 0 0 5 6 7 9 0 6 9 9 0 7 7 6 2 3 5 3 6 5 4 1 5 5 4 6 2 9 9 0 6 3 9 4 1 4 4 9 4 1 1 6 1 0 6 7 7 0 5 9 4 7 6 8 9 8 5 3 0 3 1 5 6 0 8 3 0 2 8 6 3 9 9 0 1 4 9 8 2 8 6 1 9 2 5 7 0 9 7 7 7 7 3 0 5 5 3 5 5 1 8 3 3 6 3 1 0 0 5 4 1 7 8 6 5 0 4 0 3 6 2 7 1 2 7 1 1 4 8 7 8 0 5 1 5 6 0 8 1 9 0 5 9 3 1 2 1 7 4 2 1 7 2 5 1 3 3 4 6 3 3 3 0 7 2 0 7 4 7 8 1 5 4 6 8 8 7 1 9 1 4 8 3 2 9 5 7 4 2 3 5 1 5 1 3 5 8 6 5 1 9 9 7 2 1 4 6 7 8 1 8 3 7 0 0 7 1 9 8 3 8 3 6 7 0 8 4 4 7 2 1 5 1 3 7 1 6 5 9 0 6 7 2 9 1 8 7 8 4 5 0 7 2 3 2 1 9 8 4 4 3 7 0 7 5 4 6 2 1 0 5 3 9 5 1 6 8 5 6 7 7 4 4 2 5 7 9 2 8 7 V i n n i n g u r Kr. 9.000 Kr. 18.000 (tvöfaldur) 6 7 5 9 4 4 3 2 0 6 5 9 3 0 3 9 1 3 9 2 3 0 5 0 4 6 7 6 0 4 8 7 7 1 7 9 0 1 0 5 4 9 9 4 2 2 0 8 3 8 3 0 5 3 7 4 0 0 0 3 5 0 6 6 3 6 0 6 9 2 7 2 6 6 0 1 2 5 7 1 0 4 7 9 2 0 8 7 0 3 0 6 6 7 4 0 4 7 7 5 0 7 9 5 6 0 9 0 5 7 2 6 8 8 1 9 0 4 1 0 5 5 1 2 0 9 1 2 3 0 9 3 4 4 0 5 8 5 5 0 8 6 2 6 0 9 3 5 7 2 9 0 7 2 2 0 3 1 0 8 0 3 2 1 1 2 8 3 0 9 5 0 4 1 2 7 3 5 0 9 2 3 6 1 6 5 1 7 3 0 7 0 2 2 3 1 1 0 8 1 6 2 1 1 4 7 3 1 0 7 0 4 1 8 8 6 5 1 0 7 8 6 2 0 7 0 7 3 2 5 1 2 7 5 5 1 1 0 5 9 2 1 3 1 1 3 2 2 6 4 4 2 3 0 3 5 1 0 9 6 6 2 2 8 3 7 3 3 9 0 2 8 8 6 1 1 0 8 9 2 1 6 6 2 3 2 4 6 3 4 2 5 3 0 5 1 4 8 1 6 2 5 1 7 7 3 6 1 8 2 9 5 2 1 1 4 2 0 2 1 7 1 5 3 2 6 4 3 4 2 6 3 5 5 1 7 3 4 6 2 9 8 6 7 3 9 8 8 3 0 7 7 1 1 7 2 9 2 1 7 8 1 3 2 7 4 8 4 2 8 6 7 5 1 7 3 5 6 2 9 9 8 7 4 0 2 7 3 3 6 3 1 2 1 2 4 2 2 2 0 2 3 3 0 2 2 4 2 9 9 3 5 2 7 7 3 6 3 3 1 2 7 4 3 8 8 3 5 4 7 1 2 4 0 8 2 3 2 7 8 3 3 1 5 2 4 3 0 1 9 5 2 7 9 3 6 3 5 5 7 7 5 3 4 0 3 6 2 7 1 2 4 1 7 2 4 0 4 6 3 3 4 5 5 4 3 9 9 4 5 3 2 8 9 6 3 5 6 7 7 5 5 3 6 4 1 1 2 1 2 5 3 0 2 4 1 7 0 3 3 5 8 8 4 4 6 7 2 5 3 5 8 4 6 3 9 1 5 7 6 1 7 9 4 5 0 4 1 2 8 4 1 2 4 5 1 8 3 3 8 2 3 4 5 4 4 9 5 3 7 0 4 6 4 8 6 7 7 6 3 6 2 4 9 5 4 1 3 0 4 1 2 4 8 0 1 3 3 8 9 0 4 5 5 5 8 5 3 7 7 3 6 5 1 5 3 7 7 0 1 4 5 0 9 6 1 3 3 4 8 2 5 6 0 9 3 3 9 2 5 4 5 5 7 5 5 4 2 6 0 6 5 1 8 7 7 7 8 0 6 5 7 2 2 1 4 3 5 9 2 5 8 8 6 3 3 9 3 2 4 5 8 3 1 5 4 9 3 4 6 5 2 6 9 7 7 8 3 8 5 8 3 2 1 4 9 9 5 2 5 9 8 3 3 4 1 6 6 4 6 1 1 1 5 4 9 7 8 6 6 6 9 8 7 7 8 4 7 6 2 7 2 1 5 0 9 7 2 6 0 0 4 3 4 6 8 7 4 6 1 8 9 5 5 0 7 5 6 6 8 3 8 7 7 8 7 6 6 4 6 0 1 5 2 9 3 2 6 0 3 8 3 4 7 0 9 4 6 5 7 3 5 6 5 2 8 6 6 9 9 6 7 8 5 6 7 7 1 6 8 1 5 3 7 0 2 6 1 0 3 3 4 8 9 4 4 6 5 8 3 5 7 2 0 5 6 7 7 9 2 7 8 9 5 4 7 1 7 3 1 5 5 3 9 2 6 3 8 0 3 5 5 0 2 4 6 9 2 6 5 7 2 5 2 6 7 8 0 8 7 9 0 6 8 7 3 9 5 1 6 5 4 8 2 7 2 2 9 3 6 3 9 4 4 7 4 9 1 5 7 4 6 2 6 8 9 5 4 7 9 2 1 1 7 4 1 5 1 6 8 0 5 2 7 3 1 4 3 6 6 0 8 4 7 7 4 7 5 8 5 2 7 6 9 7 1 7 7 9 7 4 6 7 8 5 4 1 7 0 2 4 2 7 8 5 1 3 6 9 3 7 4 7 7 4 9 5 8 6 1 9 6 9 7 3 5 7 9 8 1 2 8 0 2 9 1 7 2 0 2 2 8 2 7 0 3 8 5 3 3 4 8 2 1 3 5 8 7 8 2 6 9 7 3 7 8 3 1 3 1 7 3 1 5 2 8 4 6 2 3 8 5 7 2 4 8 3 8 1 5 8 8 5 7 6 9 8 1 2 8 3 8 1 2 0 1 6 0 2 8 4 9 5 3 8 6 0 6 4 8 4 8 5 5 9 1 0 0 7 0 0 9 0 8 5 9 4 2 0 1 6 6 2 8 5 4 6 3 9 0 1 3 4 8 6 5 3 5 9 1 9 5 7 0 4 5 7 9 1 4 9 2 0 2 9 9 2 9 5 6 1 3 9 1 7 0 4 8 9 8 8 6 0 1 5 0 7 0 5 2 4 9 4 1 6 2 0 5 7 1 3 0 1 0 3 3 9 1 8 8 4 9 9 2 6 6 0 4 4 1 7 1 5 7 4 Næsti útdráttur fer fram 2. febrúar 2012 Heimasíða á Interneti: www.das.is MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2012 ✝ Unnur El-ísdóttir var fædd í Sælingsdal í Dalasýslu 21. mars 1936. Hún andaðist á Hrafn- istu í Hafnarfirði 14. janúar síðast- liðinn. Foreldrar henn- ar voru hjónin Jens Elís Jóhanns- son, bóndi í Sæ- lingsdal, f. 10. febrúar 1904 á Smyrlahóli í Haukadalshreppi, d. 2. apríl 1989, og Guðrún Valfríður Oddsdóttir hús- freyja, f. 31. desember 1916 á Efri-Brunná í Saurbæj- arhreppi, d. 2. mars 2000. Systkini Unnar eru: Elínborg Ósk, f. 10. apríl 1935, Ástvald- ur, f. 23. september 1937, Halldóra Valfríður, f. 9. febr- úar 1939, Jóhann Oddur, f. 27. október 1940, Gyða, f. 2. apríl 1942, d. 28. júlí 2000, Bjart- mann, f. 9. nóvember 1944, d. 16. febrúar 1953, Fanney, f. 23. apríl 1947, Guðborg, f. 30. september 1948, Jens, f. 14. maí 1951, Bjartmann, f. 1. júní 1954, Guðmundur, f. 29. nóv- ember 1955, Ólafur Sævar, f. 3. maí 1957, Erla, f. 7. nóv- ember, tvíburabróðir Erlu dó í Steinar Örn, f. 8. ágúst 1978, sambýliskona hans er Olga Kristín Pétursdóttir, f. 2. ágúst 1980, þau eiga eina dótt- ur. c)Helena Rós, f. 10. mars 1984, sambýlismaður hennar er Jón Óskar Halldórsson, f. 25. janúar 1980, þau eiga einn son. d) Tinna Björg, f. 25. febrúar 1989. 3) Auður, f. 9. desember 1961, gift Snorra Pálmasyni, f. 14. maí 1959, börn þeirra eru: a)Ásta Sól- lilja, f. 2. júní 1981, eig- inmaður hennar er Hallgrímur Örn Arngrímsson, f. 20. mars 1979, þau eiga tvö börn. b) Pálmi Viðar, f. 9. júlí 1982, sambýliskona hans er Elín Birna Skarphéðinsdóttir, f. 25. febrúar 1982, þau eiga eina dóttur. 4) Bára, f. 22. maí 1965, gift Bergþóri Karlssyni, f. 29. janúar 1963, dætur þeirra eru: a) Barbara Rut, f. 30. september 1986, sambýlis- maður hennar er Einar Þór Steinarsson, f. 1. september 1983, þau eiga einn son. b) Birgitta Brá, f. 11. júlí 1994. Sambýlismaður Unnar var Sigfús Ingimundarson, f. 8. júlí 1922 í Borgarholti í Stokkseyrarhreppi, d. 22. des- ember 2007. Börn Sigfúsar eru: Jónas Rúnar, Guðni Birg- ir, Ingólfur Arnar, Örn, Ingi- mundur, Sigurjón Bjarni, Bryngeir og Lovísa Guðrún. Útför Unnar verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 27. janúar 2012 og hefst at- höfnin kl. 13. fæðingu, Elís Þröstur, f. 31. júlí 1962. Unnur gift- ist Kristjáni Svav- ari Jenssyni bif- vélavirkja, f. 3. febrúar 1931 á Minna-Garði í Mýrahreppi í V- Ísafjarðarsýslu, d. 26. september 2002. Þau slitu samvistir. Unnur og Kristján áttu fimm dætur. Eina misstu þau í fæðingu en hinar eru: 1) Guðrún Ásta, f. 7. október 1956, gift Ísleifi Tómassyni, f. 3. júlí 1955, börn þeirra eru: a)Unnar Kári, f. 25. febrúar 1976, eiginkona hans er Þórunn Hreinsdóttir, f. 22. apríl 1974, þau eiga tvo syni og Unnar á einn son frá fyrra hjónabandi. b) Kristján Ingi, f. 30. ágúst 1979, sam- býliskona hans er Lilja Mar- grét Snorradóttir, f. 11. mars 1980, þau eiga þrjú börn. c) Vilhelm Smári, f. 5. september 1986. d) Valgerður Helga, f. 27. mars 1992. 2) Elín Hrefna, f. 24. janúar 1958, gift Frið- þóri Kr. Eydal, f. 23. sept- ember 1952, börn þeirra eru: a) Svavar Þór, f. 20. október 1976, d. 27. ágúst 1977. b) Unnur Elísdóttir, tengda- móðir mín, ólst upp í stórum systkinahópi í Sælingsdal í Döl- um og stundaði nám við Hér- aðsskólann að Laugum og Hús- mæðraskólanum á Staðarfelli. Hún giftist Kristjáni Jenssyni og bjuggu þau lengst af í Kefla- vík. Er leiðir skildi flutti Unnur með dæturnar í Kópavog og starfaði hún lengi sem matráð- ur, m.a. í Vogakaffi, hjá Rík- isútvarpinu og í leikskólum. Sambýlismaður Unnar var Sig- fús Ingimundarson og bjuggu þau í Kópavogi en síðustu árin sem bæði lifðu í Hafnarfirði. Unnur var sérlega hlý og glaðvær í viðkynningu, ráða- góð, hjálpsöm og tók því sem að höndum bar af æðruleysi. Hún var vinamörg en hafði hag dætra sinna tengdasona, barna og barnabarna ætíð í fyrirrúmi. Hugur hennar stóð einnig mjög til átthaganna í Dalasýslu og hún var m.a. ötul í starfi Breið- firðingafélagsins í Reykjavík. Hún naut dyggrar aðstoðar Sigfúsar við að reisa sér nota- legt sumarhús í sveitinni og dvöldu þau þar hvenær sem færi gafst, oft með börnum og barnabörnum. Unnur hafði yndi af ferðalögum og lágu leið- ir þeirra Sigfúsar víða, m.a. til Norðurlanda, Vestur-Evrópu og Suður-Afríku. Við leiðarlok er ofarlega í huga sérstök umhyggja sem Unnur bar fyrir ættmennum sínum og afkomendum. Dætr- um sínum og okkur tengdason- unum var hún góð móðir og fé- lagi og ávallt reiðubúin að létta undir þar sem þurfti. Barna- börnin nutu samvista við Unni ömmu og voru stolt hennar og endurguldu umhyggjusemina. Heimilið var jafnan miðstöð fjölskyldunnar á hátíðarstund- um á meðan heilsan leyfði og verður hennar sárt saknað. Ég þakka tengdamóður minni sam- fylgdina og blessuð sé minning hennar. Friðþór Eydal. Elsku litla, yndislega amma mín. Það er sárt að hugsa til þess að nú sértu farin, að nú sé bar- áttu þinni við illvígan sjúkdóm lokið. Söknuðurinn er mikill, en honum fylgir þó léttir. Léttir við því að nú sértu loksins orð- in frjáls. Elsku amma, þú varst besta amma sem hægt er að hugsa sér. Svo hlý og blíð og geðgóð kona, sem vildir allt fyrir alla gera. Þú hafðir alla kosti þess að vera hin fullkomna amma og var aldrei hægt að finna það hjá þér að þú ættir 11 stykki af barnabörnum. Þú lést okkur alltaf finnast við vera sérstök, að nóg væri til af kossum og kjassi og alltaf varstu tilbúin til að hlusta. Það var yndislegt að eiga ömmu sem var jafn stór partur af lífi okkar og þú varst. Það leið aldrei langur tími á milli heimsókna og í æsku varstu alltaf nálægt. Ef þú varst ekki í Kópavoginum, þá var öruggt að þú varst þar sem þér leið best, í Sælingsdalnum. Þú varst vest- ursjúk og vá hvað ég skil það vel. Bestu minningar um þig eru frá þeim yndislegu tímum sem við áttum með þér í litla notalega bústaðnum sem Sigfús afi smíðaði fyrir þig. Þar varst þú í essinu þínu. Alltaf eitthvað að bardúsa, en aðallega að njóta lífsins með öllum ástvin- um þínum. Ófáar voru berja- tínsluferðirnar og á þeim tíma árs var öruggt að þig væri að finna í einhverri brekkunni, með berjabláar hendur. Enda varstu mikill sælkeri og er greinilegt að ég hef erft ást þína á mat og berjatínslu. Ég var alltaf svo stolt af þér, amma mín. Stolt af því að eiga svona unga og flotta ömmu og sérstaklega stolt af því að eiga svona ótrúlega fyndna ömmu sem hafði fundið galdurinn á bak við það að láta okkur grísl- ingana haga sér vel, með því að setjast ofan á okkur og sleikja okkur í framan. Og það vildi sko enginn. Ég er svo stolt af litlu, sterku, sjálfstæðu konunni sem þú varst og efast ég ekki um að við allar stelpurnar þín- ar höfum þetta frá þér. Elsku amma mín. Ég vildi óska þess að þú hefðir fengið að njóta efri áranna þinna bet- ur. Það var svo erfitt að sætta sig við það að horfa upp á allt það sem einkenndi þig hverfa, þó svo mikil huggun sé í því að þú hafir átt langan og góðan tíma með okkur. Í gegnum öll þín veikindi varstu alltaf svo geðgóð og blíð og glataðir þú aldrei hlýjunni sem einkenndi þig. Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt þig að, amma mín. Þakklát fyrir að hafa fengið að njóta hlýjunnar þinnar svona oft í veikindum þínum og í gegnum allt mitt líf og þakklát fyrir að Halldór Nökkvi hafi fengið að kynnast þér. Þá er ég sérstaklega þakklát dætrum þínum fyrir að hafa hugsað svona vel um þig, sem sýnir hversu mikið þeim þótti vænt um þig og okkur öllum. Elsku amma mín. Lífið verð- ur fátæklegra án þín. Dalirnir verða aldrei samir án þín. Þín verður svo sárt saknað af svo mörgum. En ég trúi því að þú sért komin á góðan stað, þar sem þú getur hreyft þig og tal- að að nýju, þar sem þú ert frjáls. Ég mun ávallt muna þig og varðveita allar þær góðu minn- ingar sem ég á um þig. Hvíldu í friði, elsku hjartans amma mín. Þar til við hittumst aftur, þín Helena Rós. Nú er komið að kveðjustund, elsku amma. Guð hefur kallað til sín engilinn sinn sem barðist svo hetjulega við grimman sjúkdóm síðustu ár og kominn er tími fyrir þennan engil til að hvíla sig. Í gegnum táraflóðið sprettur fram eitt og eitt bros er ég rifja upp hinar ótal mörgu minning- ar sem ylja mér um hjartaræt- ur á þessari erfiðu stundu. Ég minnist þín í berjabláum buxum og gúmmístígvélum þar sem þú varst nýoltin úr berja- brekkunni í Sælingsdal. Í sveit- inni fannst þér best að vera og alltaf var jafn gott að dvelja þar hjá þér. Undanfarin ár hafði verið erfitt fyrir þig að komast vestur og í hvert skipti sem ég átti stund í sveitinni fannst mér eitthvað vanta; það vantaði sínöldrandi ömmu mína. Mikið gat maður sem krakki furðað sig á nöldrinu í þeirri gömlu en í seinni tíð hef ég komist að því að það er ein leið okkar kvenna í fjölskyld- unni til að tjá þá miklu ást sem við höfum að gefa. Eftir að hafa alið upp fjórar dætur kunnirðu þitt fag og tókst virkan þátt í uppeldi okkar systkina á milli þess sem þú dekraðir við okkur eins og þér einni var lagið. Þú brýndir fyrir mér mikilvægi þess að vera alltaf góð við móð- ur mína, ég átti það til að gleyma því og geri stundum enn. Kennslan við að borða gúllas gekk þó ekki jafn vel. Þau voru ófá skiptin sem þú reyndir að koma því ofan í mig en allt kom fyrir ekki. Ég get þó sagt þér það núna að nýlega byrjaði ég að borða gúllas og alltaf hugsa ég glottandi til ákveðnu ömmu minnar. Þegar ég byrjaði í grunn- skóla þótti mér notalegt að vita af þér hinum megin við götuna í vinnunni á leikskólanum, ég gat alltaf rölt yfir til þín þegar mig vantaði ömmuumhyggju. Ég fór líka reglulega í göngu- ferðir heim til þín og átti þar góðar stundir með þér. Mér er það sérstaklega minnisstætt þegar þú stríddir mér eitt skiptið sem við spiluðum. Ég reyndi oftar en ekki að svindla svolítið eins og börn eiga til en mikið óskaplega varð ég hissa á að mín eigin amma skyldi svindla á mér. Eftir þetta uppá- tæki hætti ég snarlega að svindla. Krökkunum í vinnunni hjá þér þótti gríðarlega vænt um þig og kölluðu þig ömmu. Ég fann fyrir örlítilli eigingirni en fyrst og fremst fylltist ég stolti, þú varst yndislega amma mín. Það er erfitt að fylgjast með hrörnunarsjúkdómi herja á kæran ástvin og ég bið þig að fyrirgefa mér hversu sjaldan ég heimsótti þig eftir að þú fluttir á Hrafnistu. Ég átti góða stund með þér og mömmu skömmu áður en þú kvaddir jarðlífið og þótt ég hafi heimsótt þig sjaldnar en á varð kosið dreym- ir mig þig oft og iðulega. Í draumum mínum ertu heilbrigð og spjallar við mig með bros á vör. Þegar ég vakna man ég ennþá góða ilminn af þér. Þótt þessi kveðja sé mér erf- ið veit ég að þú hvílir heilbrigð og hamingjusöm með afa, Sig- fúsi og litlu stelpunni þinni sem fór frá þér of snemma. Ég vil þakka þér fyrir allar góðu stundirnar okkar, elsku amma, og þau ómældu áhrif sem þú hafðir í lífi mínu. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig og ég er þakklát fyrir að hafa verið svo heppin að eiga þig að. Við sjáumst aftur þegar tím- inn er réttur. Tinna Björg Friðþórsdóttir. Elsku besta amma okkar Það er alltaf erfitt að kveðja þó að við vitum að þú hafir orð- ið hvíldinni fegin eftir erfið veikindi undanfarin ár. Það var ekki auðvelt að horfa upp á þig þegar veikindin hófust. Fyrst að eiga erfitt með mál og síðan hægt og bítandi að missa tengslin við umhverfið. Það voru allir í kringum þig dugleg- ir að heimsækja þig á Hrafn- istu og reyna að létta undir með þér og stytta þér stundir. Þá sáum við vel að starfsfólkið þar var duglegt að reyna að gera sitt besta til þess að þér liði sem best. Nú ertu komin á þann stað þar sem allir eru jafnir og laus- ir við sín veikindi. Í himnaríki er örugglega til þinn Sælings- dalur þar sem þú getur dundað þér í bústaðnum sem þú hafðir svo gaman af að fara í og varðir flestöllum þínum frístundum í meðan þú hafðir heilsu til. Þú átt líka örugglega eftir að prjóna margar peysur og sokkapör. Jafnvel veiða fleiri talandi páfagauka. Það gerir enginn nema þú. Litla amma okkar, það var mikil gæfa fyrir okkur þegar þú fluttir ásamt Sigfúsi afa til okkar í kjallarann í Suður- hvamminum. Við munum aldrei gleyma því hversu gott var að hreiðra um sig hjá þér þegar okkur leið illa. Þá var besta lausnin að fá ömmu mjúku til að halda utan um okkur og þerra tárin. Það var ófáa sunnudaga sem við fundum lyktina af lambahrygg eða lambalæri leggja úr kjallaran- um um hádegi en þar áttum við ótal margar dýrðarstundir með ykkur afa. Þú sagðir okkur skemmtilegar sögur, kenndir okkur ýmsar spilakúnstir, spjallaðir og bjargaðir okkur frá nöldrinu í mömmu og pabba. Við nutum hverrar ein- ustu stundar með þér og gerum okkur grein fyrir því hversu heppnar við vorum að fá að vera í svona nánu sambandi við ykkur afa þau ár sem við bjuggum saman. Það hefði ver- ið gaman ef börnin okkar hefðu geta kynnst þér og fengið eitt- hvað af þeirri ást og hlýju sem þú gafst okkur og öllum. Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý og hógvær göfgi svipnum í. Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt og hugardjúpið bjart og stillt. Loks beygði þreytan þína dáð, hið þýða fjör og augnaráð; sú þraut var hörð – en hljóður nú í hinsta draumi brosir þú. (Jóhannes úr Kötlum.) Við elskum þig, elsku amman okkar, Þínar Barbara og Birgitta. Unnur Elísdóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Neðst á for- síðu mbl.is má finna upplýsingar um innsending- armáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeig- andi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánu- degi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Minningargreinar Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.