Morgunblaðið - 27.01.2012, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 27.01.2012, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2012 við Skagamenn vorum að keppa í Evrópukeppninni við Bangor í Wales. Flogið var beint til Liver- pool. Í þessari ferð var Bjössi hrókur alls fagnaðar. Ég man það eins og það hafi gerst í gær þegar Bjössi leysti harmonikkuspilar- ann af fyrir utan einn veitinga- staðinn í Bangor. Krúsin sem harmóníkuspilarinn hafði haft á gagstéttinni var fljót að fyllast eft- ir nokkur lög hjá Bjössa. Bjössi átti sitt stæði á Akranes- velli og mætti yfirleitt á alla leiki, dyggur stuðningsmaður ÍA. Hann keyrði í ófáa útileiki með leikmenn og sýndi m.a. á þann hátt stuðning sinn í verki. Við hjá Olís á Suðurgötu á Akranesi komum líka til með sakna Bjössa sem kom hér eld- snemma flesta virka morgna í kaffi til lesa okkur pistilinn. Við eigum eftir að sakna þessara stunda. Við Sigga vottum Helgu Bjarnadóttur og fjölskyldu og Tryggva Björnssyni og fjölskyldu okkar dýpstu samúð. Fallin er góður drengur sem fór allof fljótt. Gunnar Sigurðsson. Kæri vinur, þá er komið að kveðjustundinni. Hörð og snörp glíma við vágestinn er á enda, von- ir um lækningu sem á tímabili lof- uðu góðu dugðu ekki þegar á hólminn var komið. Þannig er lífið oft og við því er ekkert að segja. Bjössi var einstakur maður, heiðarlegur, hjálpsamur, sjálfur nægjusamur og einstaklega trúr og traustur í öllu því sem hann tók sér fyrir hendur. Hann var frábær fjölskyldufaðir og mat sitt fólk mikils og vildi allt gera til að byggja traustan grunn fyrir þau út í lífið. Hann var vinamargur og hrókur alls fagnaðar þegar svo bar undir. Það er langur tími liðinn frá því okkar vinátta hófst og vitanlega hefur margt á daga okkar drifið. Við áttum í raun lítið sameiginlegt í upphafi, vorum ólíkir í flestu, en eitthvað togaði okkur saman, böndin styrktust frekar en hitt með aldrinum. Ekki sakaði að eig- inkonur okkar hafa frá fyrstu kynnum sínum verið nánar vin- konur. Á unglingsárunum brölluð- um við margt og oft var glatt á hjalla. Við tókum þátt í skátastarfi um árabil og vorum fjórir félagar sem mynduðum hóp sem nefndist Útlagar. Bjössi minntist þessara daga oft og vinátta okkar hélst alla tíð. Við þrír söknum vinar okkar og kveðjum hann með virðingu og þakklæti. Þegar ég tók við núverandi starfi mínu þurfti ég á manni að halda sem gæti sinnt viðskiptavin- um okkar sem tjónamatsmaður. Í slík störf þarf fólk með ríka þjón- ustulund og mikið traust. Mér fannst enginn vera betri í þetta starf en Bjössi og hann sló til og tók þetta að sér. Þetta var upphaf- ið að farsælum störfum hans fyrir Vátryggingafélag Íslands. Síðar eða árið 1999 réð hann sig síðan sem þjónustufulltrúi þegar við gerðum breytingar á þjónustu- kerfi okkar . Þar var hann svo sannarlega réttur maður á réttum stað og eins og áður fannst mér verkefnið sniðið fyrir hann. Þessu starfi sinnti hann svo til hinsta dags af fádæma orku og dugnaði. Hann þekkti þjónustusvæðið vel og kynntist stórum hópi fólks á þann hátt að það treysti honum fullkomlega. Hann ræktaði þessi tengsl sín vel og nú í veikindum hans höfum við samstarfsmenn hans orðið þess áþreifanlega vör hve margir báru hlýjan hug til hans og hrósuðu honum fyrir störf sín. Bjössi var fastheldinn á ýmsa hluti og íhaldssamur og vildi jafn- an hafa allt sitt á hreinu. Heimilið og fjölskyldan voru í hávegum hjá honum og hann gerði allt til að þeim liði sem best. Þau Helga voru samhent í einu og öllu og heimili þeirra bar þess glöggt vitni. Þegar fram liðu stundir og barnabörnin komu hvert af öðru þá var minn maður í essinu sínu og augasteinarnir hans áttu hug hans allan. Þeirra missir er nú mikill, en minningin lifir. Þetta er það sem ég hef að segja þegar ég minnist vinar míns á kveðjustund. Ég þakka af heil- um hug samverustundirnar. Mín fjölskylda þakkar honum góð kynni og margvíslega aðstoð á löngum tíma. Hugur okkar er með Helgu og fjölskyldunni og til þeirra sendum við innilegustu samúðarkveðjur og biðjum góðan guð að vaka yfir þeim. Minningin um minn kæra vin mun lifa. Jón Gunnlaugsson. Traustur vinur og vinamargur. Einlægur, hlýr en samt hrein- skiptinn við þá er hann þekkti. Greiðvikinn mjög við alla er til hans leituðu, hvort heldur það var á vettvangi starfs eða utan þess. Hann var einstaklega ósérhlífinn og röskur til flestra verka. Hans uppáhaldssetning var: „Bara að drífa í þessu og þá er það bingó og búið.“ Einstakt snyrtimenni var hann, þreif allt hátt og lát sem hann komst yfir, t.d. þreif hann allar bifreiðar fjölskyldunnar, þ.e. sína, foreldra sinna og tengda- móður, um hverja helgi ef því var við komið vegna frosts. Þannig var Bjössi Tryggva eins og við köll- uðum hann. Það var gott að eiga hann fyrir vin. Við kynntumst fyrst í starfi Skátafélags Akraness, hann var þar ungur sveinn í fyrsta ylfinga- hópi mínum (Ingvar) ásamt mörg- um öðrum góðum drengjum. Bjössi varð strax áhugasamur í skátastarfinu enda átti hann eftir að vinna til ýmissa afreka á þeim vettvangi. Starfið með þessum ágætu drengjum og reyndar með öðrum skátum varð áreiðanlega til þess að ég ákvað að hefja kenn- aranám nokkrum árum síðar. Samband okkar Bjössa rofnaði aldrei þó ég flyttist og byggi á Norðurlandi um tíma, t.d. heim- sótti hann okkur Gunnhildi í tví- gang norður í Hrísey. Eftir að við fluttum á Akranes fyrir 27 árum síðan styrktust vinaböndin enn frekar. Sérstaklega hefur sam- bandið verði náið eftir að við kom- um okkur upp húsbílum og þríeykið var stofnað. Þríeykið var; Bjössi og Helga og við undirrituð. Þráinn og Bjössi kynntust fyrst þegar þeir voru saman í Iðnskóla Akraness og hafa verið mjög nánir vinir síðan. Þær eru orðnar margar ferðirnar og ánægjustundirnar sem þessi hópur hefur átt saman og vonum við innilega að Helga verði áfram með okkur enda hefur hún sýnt að hún fullfær um að keyra húsbílinn. Ekkert var farið síðastliðið sumar af skiljanlegum ástæðum en sum- arið 2010 fórum við m.a. norður í Árneshrepp á Ströndum, heima- sveit Bjössa þar sem hann var átta sumur kaupamaður á Melum enda naut hann sín við að fræða okkur hin um lífið þar norður frá með sögum og lýsingum á mönnum og málefnum. Við þökkum fyrir að hafa fengið að kynnast góðum dreng og eiga með honum margar ánægjulegar stundir. Sendum Helgu, börnum, barnabörnum og tengdabörnum þeirra, foreldrum og systkinum Bjössa og fjölskyldum þeirra svo og tengdamóður hans innilegar samúðarkveðjur. Ingvar Ingvarsson, Gunnhildur Hannesdóttir, Dröfn Gísladóttir og Þráinn Sigurðsson. Elsku Bjössi Ég trúi því ekki að þú hafir kvatt okkur. Af hverju varst þú tekinn sem varst alltaf svo góður og vildir allt fyrir fólkið þitt gera? Við fjölskyldan á Víðigrund vorum svo heppin að vera hluti af þínu fólki, þú áttir svo mikið í okkur öll- um. Þú varst ekki eingöngu traustur vinur foreldra minna, þú vildir allt fyrir okkur systkinin gera og fylgdist með því sem við tókum okkur fyrir hendur. Það eru margar minningarnar sem koma upp í hugann og það má með sanni segja að þær fá mig til að brosa í gegnum tárin, því þú varst engum líkur. Öll gamlárs- kvöldin sem fjölskyldurnar okkar áttu saman, skemmtilegu húsbíla- ferðirnar sem ég og Martin smygluðum okkur með í og marg- ar skemmtilegar umræður við eld- húsborðið á Víðigrund þar sem þú og pabbi reynduð að æsa tjallann upp. Ég á sérstaklega eftir að sakna þess að koma upp á Akra- nes og að þú komir ekki inn um dyrnar á laugadags- eða sunnu- dagsmorgni með tilheyrandi lát- um. Því eins og Þröstur bróðir sagði við mig, þvílíkar innkomur sem hann Bjössi átti. Bjössi, þú varst engum líkur og við munum sakna þín sárt. Elsku Helga, Rúna, Bjarni Ingi, Guðrún, Elínborg og fjöl- skyldur. Guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Kær kveðja, Heiðrún Þráinsdóttir. Það bregður birtu í tilverunni þegar kvaddur er góður vinur og félagi Björn Tryggvason. Skaga- maður af Strandakyni, gleðigjafi, hressilegur í orði og athöfnum en umfram allt verkfús, greiðvikinn og úrræðagóður vinur. Hann veiktist á vordögum síðasta árs og eftir góða von um bata sló í bak- seglin og nú er kveðjustund. Ég, eins og svo margir Skaga- menn, kynntist Birni fyrst þegar hann vann um borð í Akraborg- inni auk þess sem hann lagði fús hönd á plóginn fyrir knattspyrn- una á Skaganum. Síðar vann Björn fyrir Spöl ehf. en síðustu ár- in fyrir VÍS. Alls staðar gat hann sér gott orð fyrir lipurð og velvilja. Hver sem átti Björn að vini átti þar hauk í horni og einstaklega skemmtilegan félaga. Í minningarsjóði geymast margar samverustundir, ferðir og ævintýri svo sem eins og þegar Skagaliðið lék gegn velska liðinu Bangor City. Í heimsókn til borg- arinnar Chester gengum við fram á harmonikkuleikara og skipti engum togum að Björn leigði nikkuna og þandi af list. Þá hljóm- aði „Kátir voru karlar“ sem aldrei fyrr og glaðlegur hlátur allra sem með fylgdust. Það var ætíð líflegt í kringum Björn og þegar spjallið beindist að knattspyrnunni var hann aldeilis ekki skoðanalaus – ekki síst um bræður sína frændur og frænkur sem gerðu garðinn frægan með Skagaliðinu og einn frændi hans gerir enn. Þegar vel gekk brosti hann sínu breiðasta og fór mikinn, en í andstreymi var hann kankvís óspar á það sem betur mátti fara – einkum hjá þeim sem stóðu hon- um næst. Brá þar fyrir hrein- skiptu og umbúðalausu tali Strandamannsins. En umfram allt vildi Björn öllum vel og sýndi það ávallt í verki því hjarta hans var hlýtt. Björn var léttur í lund og á stundum stríðinn í því skyni að örva umræðu um dægurmál og at- vik. Hann kallaði undirritaðan „Öreigaskáld“ og fékk tilfallandi kviðlinga og bögur um líðandi stund og atvik í samfélaginu. Margt fór í þeim efnum á milli sem báðir höfðu gaman af. Nú er vinur fallinn – langt um aldur fram – og við leiðarlok er þakkað fyrir allar góðar samverustundir hvort held- ur var á vettvangi vinnu eða vin- áttu. Eiginkonu hans, Helgu Bjarna- dóttur, börnum þeirra og fjöl- skyldu eru færðar innilegar sam- úðarkveðjur og huggunarorð, en Björns verður minnst fyrir vináttu hans, verk og liðsinni. Gísli Gíslason. Það var reiðarslag að fá fréttir af andláti vinar okkar og starfs- félaga, Björns Tryggvasonar nú í upphafi nýs árs. Vonir okkar um að hann myndi ná sér upp úr veik- indum eftir hetjulega baráttu voru miklar og héldum í þá von að hann væri kominn yfir erfiðasta hjall- ann. Því miður var það ekki svo. Bjössi hóf störf hjá Vátrygg- ingafélagi Íslands sem tjónaskoð- unarmaður í hlutastarfi árið 1990 en 1999 tók hann við sem þjón- ustufulltrúi í föstu starfi. Fyrst um sinn var megináhersla starfs hans að þjónusta bændur og búa- lið en fljótlega útvíkkaðist starfið meðal annars í þjónustu við sveit- arfélög og smábátasjómenn auk tjónaskoðunar sem hann var ein- staklega laginn við. Bjössi þekkti vesturlandsum- dæmið eins og lófann á sér. Ein af eftirminnilegustu vinnuferðum mínum var ferð um Vesturlandið með Bjössa og Jóni Gunnlaugs- syni. Bjössi var óþreytandi við að segja sögur úr sveitinni, þuldi upp staðanöfn og sagði okkur frá ábú- endum og störfum þeirra. Heim- sóknirnar til viðskiptavina voru árangursríkar og skemmtilegar og átti hann stóran þátt í að skapa þann anda með sínum einstaka og glaðværa persónuleika. Það er ómetanlegt fyrir fyrir- tæki að hafa á að skipa frábærum starfsmönnum sem þjónusta við- skiptavini sína umfram væntingar og hugsa um fyrirtækið eins og það sé þess eigið. Bjössi var einn af þessum starfsmönnum. Við- skiptavinir sóttust í að fá þjónustu Bjössa enda var hann ekki bara fyrirmyndar starfskraftur heldur einnig einstaklega skemmtilegur og vinsæll bæði meðal viðskipta- vina og samstarfsmanna. Við kveðjum góðan vin og sam- starfsfélaga og þökkum fyrir að hafa fengið að njóta hans starfs- krafta og vinskapar hjá VÍS. Við sendum Helgu, Bjarna Inga, Guðrúnu, Elinuborgu og fjölskyldum þeirra innilegar sam- úðarkveðjur. Fyrir hönd Vátryggingafélags Íslands hf., Auður Björk Guðmundsdóttir. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Bækur Fornbókabúð á vefnum 30% afsláttur 20. jan. til og með 7.feb. www.gvendur.is Gisting AKUREYRI Höfum til leigu ýmsar gerðir sumar- húsa við Akureyri og á Akureyri. Upplýsingar á www.orlofshus.is. Leó, sími 897 5300. Hvataferðir, fyrirtækjahittingur, óvissuferðir, ættarmót Frábær aðstaða fyrir alla hópa. Líka fjölskyldur. Heitir pottar og grill. Opið allt árið. Minniborgir.is Gisting á góðum stað. Upplýsingar í síma 868 3592. Húsnæði íboði Lokastígur, 101 miðbær/ Vesturbær — Herbergi Herbergi sem eru lítil, 10 til 15 fer- metrar með húsgögnum, sameigin- legt eldhús og þvottahús, þráðlaust Internet, baðherbergi með sturtu. Langtímaleiga sem þýðir 6 mánuðir og lengur, kr. 35.000 til 60.000. Tveir mánuðir fyrirfram, laust. Vinsamlegast takið fram í svari við auglýsingunni frá hvað tíma húsnæðið óskast og hvað langan tíma. osbotn@gmail.com Sími: 861 4142 kl. 8.00 til 16.00. Einbýlishús til leigu, um 340 m², á veðursælum stað í botnlanga í Kópavogi. Algjör barnaparadís, stutt í allt, næg bílastæði. halldorjonss@gmail.com eða sími 892 1630. Húsnæði óskast Hjón með 1 barn vantar 3-4 herb. íbúð Hjón að austan vantar íbúð í Vestur- bænum. Erum með eina 7 ára stelpu og vantar langtímaleigu. Ekki yfir 150 þ. Vinsamlega hafið samband í s. 846 2653, Guðrún eða 868 9406 Árni. Sumarhús Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Tómstundir Fjarstýrðar þyrlur í úrvali Erum með mikið úrval af fjarstýrðum þyrlum. Nýjasta tækni. Tilbúin til flugs beint úr kassanum. Netlagerinn slf / Tactical.is Dugguvogur 17-19 2. hæð. S. 517-8878 Til sölu Harðfiskur frá Vestfjörðum Nýpakkaður gæðaharðfiskur, ýsa og steinbítur. Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu. Tveir pokar, tæp 800 grömm, á aðeins 5700 krónur. Pantanir í síma 692-1706 eða hardfisk@gmail.com Blekhylki og tónerar í flestar gerðir prentara, 50-70% ódýrari, öll hylki framleidd af ORINK. Blekhylki.is, Fjarðargötu 11, Hafnarfirði, sími 517-0150. Útsala - Útsala - Útsala Handslípaðar kristalsljósakrónur frá Tékklandi og Slóvakíu. Kristals- glös, vasar, handútskornar trévörur, Kristalsskartgripir. Slóvak kristall, Dalvegi 16b, Kópavogi. S. 544 4331. Verslun Fjarstýrðar þyrlur í úrvali og m.fl. Erum með fjarstýrðar þyrlur í miklu úrvali. Netlagerinn slf. Dugguvogi 17-19, 2. hæð. Vefsíða www.Tactical.is. Einfalt að versla. Sími: 517-8878. Óska eftir Kaupi silfur Vantar silfur til bræðslu og endurvinnslu. Fannar verðlaunagripir, Smiðju- vegi 6, rauð gata, Kópavogi. fannar@fannar.is - s. 551 6488. KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Bílaþjónusta Hjólbarðar Kebek vetrardekk tilboð Hönnuð og testuð í Kanada. 185/65 R 15 12.900 kr. 195/65 R 15 12.900 kr. 205/55 R 16 14.900 kr 215/65 R 16 17.990 kr. 205/50 R 17 17.900 kr. Kaldasel ehf. hjólbarðaverkstæði Dalvegi 16 b, Kópavogi, s. 544 4333. Vélsleðar Til sölu Skidoo vélsleði Skidoo Renegade 600, árg. 2007. Ekinn aðeins 1250 km. Vel með far- inn. Verð kr. 1.000.000,-. Upplýsingar gefur Jón Auðunn í síma 824-4888.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.